Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 32
LISTIR
32 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STORMUR og Ormur, barnaeinleik-
ur byggður á sögu með myndum eft-
ir Barbro Lindgren og Ceciliu Tor-
udd, er fyrsti einleikurinn á dagskrá
Kaffileikhússins á yfirstandandi ein-
leikjadögum. Barnaeinleikurinn
verður sýndur á sunnudag kl. 15.
Einleikari er Halla Margrét Jóhann-
esdóttir. Leikstjóri er Thomas
Ahrens.
Einleikurinn Stormur og Ormur
fjallar um mann sem hittir ánamaðk
sem vill vera vinur hans. Manninum
líst auðvitað ekkert á það. Þó maður
sé einmana leggur maður ekki lið sitt
við hvern sem er…eða hvað? Á end-
anum tekst þó góð vinátta með þeim
Stormi og Ormi, þeir félagar taka
sér ýmislegt fyrir hendur og eru ekki
alltaf á eitt sáttir.
Barnaeinleikurinn Stormur og
Ormur er byggður á sænskri barna-
bók eftir Barbro Lindgren og Ceciliu
Torudd og var upphaflega leikgerð
bókarinnar unnin af By-teatern í
Svíþjóð. Sú leikgerð hefur verið sýnd
víða um heim við miklar vinsældir. Í
Þýskalandi vann Thomas Ahrens
nýja leikgerð verksins sem byggði að
nokkru leyti á upphaflegu leikgerð-
inni. Sýningin Stormur og Ormur í
Kaffileikhúsinu byggir á leikgerð
Thomasar.
Barnaein-
leikur í
Kaffileik-
húsinu
Halla Margrét Jóhannesdóttir leikur Storm og Orm.
LEIKFÉLAG Siglufjarðar er 50
ára á þessu ári. Af því tilefni hefur
verið ráðist í að setja upp sýningu
á Djöflaeyjunni eftir Einar Kára-
son í leikstjórn Guðjóns Sigvalda-
sonar og verður frumsýningin í
kvöld, föstudagskvöld, kl. 21 í
Nýja bíói á Siglufirði.
Leikstjórinn leggur áherslu á
kómíska þáttinn í þessu drama-
tíska verki, þar sem dramatíkin er
brotin upp með spaugilegum að-
stæðum, fyndnum persónum og
síðast en ekki síst, mikilli tónlist
frá braggaárunum. Alls taka 16
leikarar þátt í sýningunni. Í helstu
hlutverkum eru Sigrún Ingólfs-
dóttir, Ingi Hauksson, Maríanna
Kristinsdóttir og Páll Þorvaldsson.
Efni verksins er mörgum kunn-
ugt, en það er samið eftir skáld-
sögu Einars Kárasonar sem var
m.a. kvikmynduð. Braggarnir sem
setuliðið á stríðsárunum skildi eft-
ir sig í Reykjavík leystu þann
mikla húsnæðisvanda sem skap-
aðist vegna fólksflutninga til borg-
arinnar. Þeir voru ódýrt húsnæði
sem fólk fékk úthlutað hjá hús-
næðismálanefnd. Við þessa ráð-
stöfun myndaðist ákveðið bil milli
fólksins í bröggunum og hinna
sem bjuggu í betra húsnæði.
Á síðastliðnu ári bryddaði leik-
félagið upp á þeirri nýjung að
bjóða upp á sýningu með kvöld-
verði, í samstarfi við Nýja bíó
1924. Vegna vinsælda þeirra verð-
ur einnig svo í þetta sinn og verð-
ur matseðillinn að hætti bragga-
búa.
Morgunblaðið/Halldór Þormar
Maríanna Kristinsdóttir, Páll Þorvaldsson og Guðmundur Guðlaugsson í Djöflaeyjunni.
Djöflaeyj-
an sett upp
á Siglufirði
Siglufjörður. Morgunblaðið.
Í NORRÆNA húsinu á sunnu-
dag, kl. 14, verður kvikmynda-
sýning fyrir börn. Þá verður
sýnd norska ævintýramyndin
Leitin að nýrnasteininum, leik-
stjóri er Vibek Idsøe. Framleið-
andi er John M. Jakobsen.
Myndin segir frá því er kvöldið
áður en Simen og afi hans ætla
til Kaupmannahafnar gista þeir í
kofa á lítilli eyju. Þegar afi verð-
ur allt í einu veikur verður Sim-
en hræddur. Hann skilur ekki
hvað er að afa og leitar hugg-
unar hjá traustum vini sínum,
bangsanum. Bangsinn talar
bæði og hugsar og gefur góð
ráð. Hann dregur fram efna-
fræðidótið hans Simens, þar sem
leynast galdraefni. Bangsi gerir
Simen pínu-agnar-lítinn svo að
hann getur farið inn í afa.
Í myndinni er blandað saman
tölvutækni við venjulega kvik-
myndatækni, líkami afans er
skoðaður að innan og rauðu og
hvítu blóðkornin leika stórt hlut-
verk. Aðgangur er ókeypis.
Ævintýramynd
í Norræna húsinu
ALICE er þreytt á því að búa í
Suður-Afríku, þreytt á flækingnum
um allan heim með eiginmanninum,
Peter, sem byggir stíflur og er enn
óánægð eftir að hafa misst barn í
Afríku. Einmitt þegar hjónabandið
er orðið laust í reipunum er Peter
rænt af skæruliðum og málaliðinn
Terry Thorne kemur Alice til hjálpar
en á milli þeirra kviknar ástarneisti.
Þessi tilfinningalega úlfakreppa
sem Alice er komin í er efni í gott sál-
fræðidrama sem væri kryddað með
mannránsspennu og auðvitað bless-
aðri ástinni. En þessi mynd virkar
ekki, hún er hundleiðinleg og hrein-
lega hlægileg á köflum.
Í fyrsta lagi tekst ekki að byggja
upp neina samúð með persónunum
þar sem óáhugaverð stíflu- og olíu-
pólitík eru í fyrirrúmi í upphafi og
rétt er tæpt á Alice og aðstæðum
hennar. Þegar ránið á sér stað er
manni því nokk sama, og fer að bíða
eftir að Terry Thorne birtist og ást-
arsagan byrji. En hún lætur á sér
standa ásamt framvindu og spennu
myndarinnar, bæði í mannráninu og
innra með Alice.
Mestur hluti myndarinnar fer í að
Crowe sýnir að hann er klár gæi og
kann sitt fag, en það var búið að af-
greiða með upphafsatriði myndar-
innar. Russell Crowe er alls ekki
heillandi í þessu hlutverki og virðist
einhvern veginn ekki finna flöt á per-
sónunni, annan en þann að hann er
harður nagli. Ég gat ekki annað en
skellt upp úr þegar hann birtist í
felugallanum með svartmálaðan
nebbann sinn, eins og hann væri að
leika í Dýrunum í Hálsaskógi. Meg
Ryan sýnir að hún hefur því miður
enga dramatíska dýpt og túlkun
hennar á konu í hræðilegri aðstöðu
er bæði flöt og algjörlega laus við allt
raunsæi.
David Morse sem leikur Peter er
hins vegar ágætur og Gottfried John
er skemmtilegur sem samfangi hans.
Öll atriðin sem sýna mannránið eru
almennilegri. Þau eru raunsærri,
betur leikin og þar nýtur sín frábær
kvikmyndataka, sem er sá þáttur
myndarinnar sem stendur upp úr
hvað fagmennsku varðar.
Þessi mynd er allan tímann að
byrja. Ránið er algjörlega óspenn-
andi þar til rétt í lokin, sem gengur
ekki. Og þegar Terry kyssir Alice
eins og þau hafi verið gift til margra
ára rekur maður upp stór augu því
maður vissi ekki að neitt væri að ger-
ast á milli þeirra, en hafði þó grunað
það af því að maður var búinn að sjá
kynningarmyndbandið.
Ójafnvægi er ríkjandi í þessari
mynd. Hún er oft ósmekkleg og
ófrumleg, hún er með eindæmum
langdregin og fyrirsjáanleg í þokka-
bót. Proof of Life er ein versta mynd
sem ég hef séð lengi, lengi.
Ástir og átök í
frumskóginum
KVIKMYNDIR
S a m b í ó i n
Leikstjórn: Taylor Hackford. Hand-
rit: Tony Gilroy. Aðalhlutverk: Meg
Ryan, Russell Crowe, David Morse,
Pamela Reed og David Caruso.
Warner Bros. 2000.
PROOF OF LIFE
Hildur Loftsdótt ir
TÓNLIST frá Vín og Broadway
hljómaði á Hótel Borgarnesi síðast-
liðið sunnudagskvöld við mikla
ánægju þeirra 130 Borgfirðinga sem
á hlýddu. Flytjendur voru Veislu-
tríóið en í því eru Anna Guðný Guð-
mundsdóttir á píanó, Páll Einarsson
á kontrabassa og Sigurður Ingvi
Snorrason á klarínettu. Tríóið hafði
með sér góðan liðsauka, þau Sigrúnu
Eðvaldsdóttur fiðluleikara og söngv-
arana Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópr-
an og Bergþór Pálsson baríton.
Á efnisskrá kvöldsins var sígild
tónlist af léttara taginu, nokkurs
konar þverskurður af tónlist frá
tveimur heimsálfum af ólíkum upp-
runa sem á það sameiginlegt að hafa
náð miklum vinsældum um allan
heim. Fyrri hluti tónleikanna inni-
hélt tónlist frá Vín og voru m.a. leik-
in og sungin verk eftir Strauss,
Schrammel og Stolz. Eftir hlé tók við
söngleikjatónlist frá Broadway m.a.
eftir Gershwin og Webber. Viðstadd-
ir hylltu flytjendur með lófataki og
fengu í staðinn að heyra þrjú auka-
lög.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar stóð
fyrir tónleikunum en það hefur starf-
að ötullega að því að sinna allri teg-
und tónlistar og haft það að mark-
miði að Borgfirðingar gætu heyrt
fjölbreytta og vandaða tónlist. Tón-
leikarnir voru annað verkefni félags-
ins af þremur á þessu 34. starfsári.
Árlegir aðventutónleikar voru
haldnir í Reykholtskirkju í samvinnu
við Borgarfjarðarprófastsdæmi fyrir
jólin þar sem Kammerkór Vestur-
lands flutti metnaðarfulla dagskrá.
Hinn 16. júní nk. mun svo Trio Is-
landico halda djasstónleika í Borg-
arfirði.
Húsfyllir á
Vínartónleikum
Borgarnes. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Veislutríóið í Borgarnesi: Páll Einarsson, Sigrún Eðvaldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson og Sigurður Ingvi Snorrason.