Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 36
UMRÆÐAN
36 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LJÓST er að Reykjavíkurflugvöll-
ur verður í notkun til ársins 2016 eða
lengur og á þeim tíma getum við
ekki leyft okkur að hafa flugvöllinn
og starfsemi honum tengda í tilvist-
arkreppu og niðurníðslu.
Þar sem búið er að leggja veru-
lega fjármuni í endurbyggingu á
flugbrautum vallarins, þá ber okkur
skylda til þess að nýta þá fjármuni
sem best.
Lagðar hafa verið fram tillögur
um enduruppbyggingu á öllu flug-
vallarsvæðinu og byggingu á sam-
göngumiðstöð við Loftleiðahótelið.
Ég tel að þessar tillögur séu ágæt-
ar, þ.e. að byggja eigi myndarlega
samgöngumiðstöð sem þjóni bæði
flugi og fólksflutningum á landi.
Slík miðstöð yrði miðsvæðis í
borginni og kæmi því að fullum not-
um til framtíðar, þó svo að flugvöll-
urinn yrði hugsanlega færður síðar
meir. Við þessar framkvæmdir
myndu losna byggingarlóðir á flug-
vallarsvæðinu fyrir Háskólann, íbúð-
arbyggð og undir atvinnuhúsnæði.
Víða eru lóðir miðsvæðis í borg-
inni sem henta mjög vel undir íbúða-
byggð sem og svæði við flugvöllinn
sem henta betur undir aðra starf-
semi en er á þeim í dag.
Að þessum svæðum þarf einnig að
huga.
Ásýnd flugvallar-
svæðisins mun gjör-
breytast við þær fram-
kvæmdir sem lagðar
eru til í tillögunum.
Fyrirhugað er að
flytja kennslu- og
ferjuflug á næstu árum
frá Reykjavíkurflug-
velli og þá hugsanlega
suður í Kapellu- eða
Hvassahraun og við
það fækkar lendingum
og flugtökum um helm-
ing á Reykjavíkurflug-
velli.
Við flutning á
kennslu- og ferjuflugi
kemur reynsla á það
svæði sem verður fyrir valinu, sem
gæti nýst til frekari ákvarðanatöku
um aukinn flugrekstur á viðkomandi
svæði síðar meir.
Ég tel afar mikilvægt að hafa
þyrluflugvöll við hátæknisjúkrahús
hér í höfuðborginni fyrir slysa- og
sjúkraflug sem og góða aðstöðu fyrir
þessa mikilvægu starfsemi á höfuð-
borgarsvæðinu og væri hentugt að
sú aðstaða yrði til framtíðar við
Reykjavíkurflugvöll eins og gert er
ráð fyrir í nefndum tillögum.
Sífelld þróun er í flugi og því þarf
að fylgjast vel með öllum valkostum
í því sambandi, sem ég
veit að flugmálayfir-
völd og flugfélög munu
gera af kostgæfni með
flugöryggi og hag-
kvæmni að leiðarljósi.
Sú þróun gæti komið
upp í flugi á allra
næstu árum að hægt
verði að notast við
styttri flugbrautir en
er í dag þótt fyllsta ör-
yggis sé gætt og þá
væri hugsanlega hægt
að stytta suður-norður-
brautina.
Í framhaldi af því
gæti skapast hag-
kvæmur kostur að
færa austur-vesturbrautina út á
uppfyllingu á Litluskerjum í Skerja-
firði.
Bent hefur verið á hugsanlegan
valkost varðandi flugvöll á Álftanesi,
sem ég tel að eigi að kanna nánar.
Einnig verður að huga að því að á
næstu árum getur ferðamáti fólks af
landsbyggðinni og þeirra sem sækja
landsbyggðina heim breyst veru-
lega, t.d vegna bættra samgangna.
Að ýmsu þarf því að hyggja í þess-
um efnum.
Skoðun mín er því sú að þeim til-
lögum og áætlunum sem nú liggja
fyrir varðandi Reykjavíkurflugvöll
eigi að hrinda í framkvæmd að hluta
til og bæta með því alla ásýnd flug-
vallarsvæðisins.
Beðið verði með að endurbyggja
dýr flugskýli og aðra þá þætti sem
ekki eru aðkallandi varðandi flug-
öryggi þar til línur skýrast betur við
rannsóknir og reynslu á öðrum flug-
vallarstæðum í nágrenni höfuðborg-
arinnar.
Samgöngur við Keflavíkurflugvöll
eiga eftir að breytast mikið og verða
greiðfærari á næstu árum og þar
með við svæðið sunnan Hafnarfjarð-
ar.
Einnig eru öll tæki til fólksflutn-
inga að verða betri og þægilegri með
hverju árinu sem líður.
Við eigum því að flýta okkur hægt
í þessum efnum og skoða alla þá
kosti sem eru inni í myndinni með
framtíðarsýn í huga.
Að sjálfsögðu getum við gert
könnun á vilja borgarbúa er varðar
Reykjavíkurflugvöll, en ég tel þó að
borgarbúar geti ekki tekið raunhæfa
afstöðu til veru flugvallarins til
framtíðar fyrr en eftir nokkur ár.
Þá verður komin reynsla á ýmsar
framkvæmdir við flugvöllinn sem við
verðum hvort sem er að gera á
næstu 2–3 árum hvort sem okkur
líkar betur eða verr.
Jafnframt útkoma á rannsóknum
sem í vændum eru varðandi vænt-
anlegt flugvallarstæði undir
kennsluflug.
Flutningur á flugvelli er dýr fram-
kvæmd og því þarf að vanda til
verksins og umfram allt huga að öllu
öryggi og ekki síður að því grund-
vallaratriði að völlurinn þjóni því
hlutverki sem honum er ætlað.
Vera má að eftir 16–20 ár verði
ekki raunhæf þörf á nema einum að-
alflugvelli sem myndi þjóna bæði
innanlands- og millilandaflugi.
Eins og staðan er í dag er ég ekki
viss um að það henti að blanda sam-
an innanlandsflugi við millilandaflug
á Keflavíkurflugvelli sem fer ört
vaxandi.
Þó má vera að það gæti hentað
síðar meir við vissar aðstæður frá
stærstu flugvöllum landsins.
Fyrirhugaður kennsluflugvöllur
gæti hugsanlega nýst að hluta til
farþegaflugs er varðar minni en
traustar flugvélar í innanlandsflugi
og jafnvel sjúkraflugi að vissu
marki.
Sú samgönguæð sem flugið er
okkur í dag má ekki verða að al-
mennu þrætuepli, heldur eiga
stjórnvöld að taka höndum saman án
pólitískra skoðana og ná lendingu í
málinu sem hentar bæði höfuðborg
okkar landsmanna sem og lands-
byggðinni allri sem best.
Kanna þarf þá kosti sem
gætu komið til greina
Ómar G.
Jónsson
Flugvöllur
Sú samgönguæð sem
flugið er okkur, segir
Ómar G. Jónsson, má
ekki verða að almennu
þrætuepli.
Höfundur er fulltrúi.
Í UMRÆÐUM
undanfarinna vikna
hefur mér sárnað
hvernig landsbyggðar-
menn hafa lagst í
skotgrafirnar og lýst
sig andvíga því að
Reykjavíkurflugvöllur
fari úr Vatnsmýrinni.
Hafa þeir jafnvel túlk-
að slíkar tillögur sem
aðför að sér. Hollvinir
Reykjavíkurflugvallar
hafa síðan kynt undir
þessu og reynt að láta
líta svo út að þeir sem
vilji flugvöllinn burt
séu vondir við lands-
byggðina. Þetta tel ég
vera alvarlega skammsýni því ýmis
tækifæri felast í því fyrir lands-
byggðina ef innanlandsflugið fer til
Keflavíkur. Það er því alveg hægt
að vera landsbyggðarmaður og
vera fylgjandi því að innanlands-
flugið fari þangað. Skal hér drepið
á nokkur þessara tækifæra.
Fyrst skal nefna sjúkraflugið. Ef
innanlandsflugið fer til Keflavíkur
tekur 40 mínútum lengri tíma að
fara með sjúkling frá landsbyggð-
inni á Landspítalann. Þetta eykur
mikilvægi Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri, sem er mjög nálægt
Akureyrarflugvelli. Þetta ætti að
stuðla enn frekar að því að sjúkra-
húsið verði á alþjóðlegan mæli-
kvarða. Auk þess hefur stefnan
verið að miðstöð sjúkraflugs sé á
Akureyri svo þetta fer vel saman.
Nánast öll bráðatilfelli þar sem
mínúturnar skipta máli eru nú þeg-
ar leyst með þyrlum.
Íbúar landsbyggðarinnar fara til
útlanda eins og aðrir og þurfa þá,
eins og staðan er núna, að fljúga til
Reykjavíkur og keyra síðan þaðan
til Keflavíkur. Það er til mikilla
þæginda fyrir landsbyggðarmenn
að geta flogið beint til Keflavíkur
og síðan áfram út í heim. Talið er
að millilandaflug í heiminum aukist
um 10% á hverju ári þessi árin. Ís-
lendingar fylgja þeirri þróun. Það
er því líklegt að landsbyggðarmenn
á leið til útlanda verði stærri og
stærri hluti farþeganna á komandi
árum.
Svipað gildir um
ferðamenn sem koma
til Íslands. Núna er
það þannig að þeir
sem koma fljúgandi til
landsins verða að fara
til Reykjavíkur. Það
er engin önnur leið.
Fólk í ferðaþjónustu
úti um land hefur síð-
an gagnrýnt ferða-
þjónustuna á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir
það að reyna að passa
að þessir ferðamenn
fari sem minnst frá
höfuðborgarsvæðinu.
Þ.e. fari að hámarki
dagsferðir svo þeir
gisti alltaf á höfuðborgarsvæðinu.
Með innanlandsflugi í Keflavík er
þó að minnsta kosti kominn sá
möguleiki að einhverjir þessara
ferðamanna fljúgi beint áfram í
náttúrufegurðina á Vestfjörðum,
Norðurlandi eða Austurlandi. Ég
skil alls ekki hvað menn meina
þegar þeir segja að innanlandsflug
í Keflavík mundi skaða ferðaþjón-
ustuna. Ég held að það bæti hana.
Eitt enn um flugið. Færeyja- og
Grænlandsflugið hefur farið um
Reykjavíkurvöll. Ef það flyttist til
Keflavíkur held ég að möguleikar
Flugleiða ykjust í þessu flugi. Þá
gætu Færeyingar og Grænlending-
ar flogið með Flugleiðum til Kefla-
víkur og þaðan beint til áfanga-
staða Flugleiða í útlöndum. Það er
merkilegt hvað Íslendingar hafa
alltaf verið áhugalausir um við-
skipti við þessa næstu nágranna
okkar.
Með innanlandsfluginu flytjast
mörg störf til Keflavíkur. Það er
jákvætt. Með hverju starfi sem
flyst úr Reykjavík minnkar það að-
eins þensluna og ringulreiðina þar
en Keflavík styrkist á móti. Ekki
veitir af, því sennilegt er að herinn
dragi áfram saman starfsemi sína
og fari að lokum. Starfsmenn við
innanlandsflug sem vilja fylgja með
til Keflavíkur geta selt íbúðir sínar
í Reykjavík á okurverði og keypt
betri íbúðir í Keflavík á lægra
verði ef staðan 2016 verður svipuð
og nú.
Innanlandsflugið til Keflavíkur
er ódýrasti kosturinn. Meira að
segja ódýrari en þær nauðsynlegu
breytingar sem gera yrði í Vatns-
mýrinni ef marka má þátt Elínar
Hirst sl. sunnudag. Augljóst er að
það er líka ódýrara að reka einn
flugvöll en tvo. Öll þurfum við að
hugsa um skynsamlega nýtingu
fjármuna ríkisins. Landsbyggðar-
menn líka.
En lítum nú á gallann. Hann er
sá að flestir sem fara um Reykja-
víkurflugvöll eru að fara til eða frá
Reyjavíkursvæðinu. Þ.e. eru ekki
að fara til útlanda eða til Keflavík-
ur. Fyrir þennan hóp lengist leiðin
með því að fara um Keflavík. Menn
tala þar um 40 mínútur. En það er
alls ekki reyndin fyrir alla! Það er
firra að halda því fram að allir sem
eru að koma til höfuðborgarsvæð-
isins með flugi séu að fara í miðbæ-
inn. Það væri eins vitlaust að halda
því fram að öll umferð til borg-
arsvæðisins fari rakleiðis niður í
miðbæ. Við vitum að svo er ekki.
Sú umferð greinist sundur í allar
áttir. Eins er það með flugfarþeg-
ana, þeirra brottfarar- og ákvörð-
unarstaður er út um allar trissur.
Aðeins lítill hluti þeirra er að fara
að sinna einhverjum stjórnsýsluer-
indum í miðbænum enda eru slík
samskipti í vaxandi mæli höfð um
Internetið. Hve miklu munar t.d.
fyrir Hafnfirðing að keyra á
Reykjavíkurvöll eða keyra til
Keflavíkur? Sennilega um 15 mín-
útum. Hversu miklu munar það
fyrir Breiðhylting eða flugfarþega
sem er að fara í Smárann? Senni-
lega vel innan við 30 mínútum.
Af framansögðu vona ég að
menn sjái að það eru tvær hliðar á
þessu máli fyrir landsbyggðina.
Væri ekki réttara að skoða málið
frá báðum hliðum en að húka í
skotgröfunum?
Innanlandsflug
til Keflavíkur
Jón Þorvaldur
Heiðarsson
Flugvöllur
Með hverju starfi sem
flyst úr Reykjavík,
segir Jón Þorvaldur
Heiðarsson, minnkar
þenslan og ringulreiðin
þar en Keflavík
styrkist á móti.
Höfundur er eðlisfræðingur.
VIÐKVÆÐI sam-
gönguráðherra, flug-
málastjóra og hóps
þingmanna sem gerði
mikinn hávaða á Al-
þingi á þriðjudaginn
er að í flugvallarmál-
inu séu aðeins tveir
kostir: Annaðhvort
Vatnsmýrin og blóm-
legt innanlandsflug
eða Keflavík og dauði
flugsins innanlands.
Fjöldi pólitíkusa utan
af landi fór með þessa
þulu úr ræðustól
þingsins – sumir náðu
meira að segja að
setja svolitla tilfinn-
ingu í lesturinn – en þingmenn
Reykjavíkur létu ekki svo lítið að
hafa skoðun á málinu. Hvar voru
þeir?
Þessi málflutningur er óheiðar-
legur, hann er rangur og það er
næstum átakanlegt að hlusta á
hann. En því miður hefur þetta
kænskubragð orðið aðalatriði í mál-
inu. Þeir sem vilja flugvöllinn úr
Vatnsmýri eru útmálaðir sem óvin-
ir landsbyggðarinnar og það virðist
ekki breyta neinu þótt þeir hafi
lagt til fjölda kosta sem myndu
hæfa innanlandsflugvelli: Hvassa-
hraun, Löngusker, Álftanes, Eng-
ey, Akurey, Kapelluhraun. Verði
ofan á að flugvöllurinn fari, hafa
stjórnvöld meira en áratug til að
ákveða hvaða kostur verður valinn.
Sumir þeirra eru heldur ekki dýrir,
að minnsta kosti ekki miðað við þá
sóun að leggja besta byggingaland
á Íslandi undir illa nýttan flugvöll.
Þá má nefna að enginn ráðherra
eða þingmaður hefur lagt til að inn-
anlandsflugið verði flutt til Kefla-
víkur, fyrir því virðist alls ekki
vera neinn pólitískur
vilji. Þetta tal um að
valkostirnir séu bara
tveir er ekki annað en
hræðsluáróður sem
þeir hafa kokkað upp,
samgönguráðherrann
og flugmálastjórinn,
og þykjast sjálfsagt
mjög lævísir. En á
þessu þarf ekki að
taka neitt mark. Að
endingu hlýtur valdið
að vera hjá þingmönn-
um, þeim sömu og nú
vilja fá mikla aðdáun
vegna frækilegrar
varðstöðu sinnar fyrir
landsbyggðina. Ef
marka má hetjuanda þessara snöf-
urmenna ætti þeim ekki að verða
skotaskuld að verja hagsmuni
landsbyggðarinnar á þessu sviði
sem öðrum.
Samgönguráðherra rís upp á Al-
þingi og vill fá sátt í málinu, gott ef
hann talaði ekki um þjóðarsátt? Ja,
það er stórt orð Hákot! Ráð-
herrann virðist núorðið gjörsam-
lega hugfanginn af slægð sinni.
Hann umgengst öll sjónarmið
nema sín eigin af fullkominni lítils-
virðingu, lætur þau sem vind um
eyru þjóta, og ætlast svo til að
menn kalli þetta þjóðarsátt! Maður
verður nokkuð ráðþrota undir
svona málflutningi, en einna helst
minnir þetta á sáttaboðin sem ind-
íánar í Ameríku fengu á sínum
tíma og reyndust þeim heldur
þungbær.
Hvað felur þjóðarsátt ráðherrans
annars í sér? Jú, flugvallarsvæðið
minnkar ögn og það verður hægt
að stækka einbýlishúsabyggðina í
Skerjafirði svolítið. Flugvélarnar
munu halda áfram að fljúga yfir
bæinn með slysahættu og gný; hið
dýrmæta byggingaland verður van-
nýtt og bærinn mun halda áfram að
þenjast upp um holtin með tilheyr-
andi óhagræði, tímasóun og fjár-
austri. Þessar hugmyndir eru
klastur og málflutningurinn svo
óvandaður að manni er vandi á
höndum að svara honum.
Óvandaður
málflutningur
Egill
Helgason
Höfundur er blaðamaður.
Flugvöllur
Þessar hugmyndir eru
klastur, segir Egill
Helgason, og málflutn-
ingurinn óvandaður.