Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
F
ramsóknarflokkurinn
hefur nú átt í stjórnar-
samstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn í sex ár,
en flokkarnir mynduðu
ríkisstjórn 1995 eftir að Framsókn-
arflokkurinn vann góðan sigur í al-
þingiskosningum, fékk 23,3% at-
kvæða. Í kosningunum 1999 tapaði
flokkurinn verulegu fylgi og fékk
18,4% atkvæða, sem er raunar svip-
að fylgi og hann fékk í kosningunum
1987 og 1991. Framsóknarflokkur-
inn hefur fengið slaka útkomu í
skoðanakönnunum að undanförnu
og víst má telja að flokksmenn séu
ekki alls kostar ánægðir með gengi
flokksins.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann hefði
í aðdraganda flokksþingsins haldið
26 fundi um allt land og rætt við
mjög stóran hóp stuðningsmanna
flokksins. Hann sagðist hafa fundið
fyrir miklum áhuga flokksmanna á
flokksstarfinu. Það væru margir
sem vildu láta til sín taka og m.a.
hefði sums staðar komið til kosn-
inga þegar félög voru að velja full-
trúa á flokksþing sem væri frekar
sjaldgæft.
Halldór sagði að fram hefði kom-
ið á þessum fundum að flokksmenn
væru óánægðir með útkomu flokks-
ins í skoðanakönnunum og menn
hefðu ýmsar skýringar á henni.
Hann sagðist reikna með að staða
flokksins yrði rædd á flokksþinginu,
enda væri þingið vettvangur fyrir
slíka umræðu. Hann myndi sjálfur
m.a. koma inn á vígstöðu flokksins í
setningarræðu sinni.
Veik staða í skoðana-
könnunum
Veik staða Framsóknarflokksins
í skoðanakönnunum á sama tíma og
Vinstri-grænir hafa stöðugt verið
að styrkja stöðu sína hefur ýtt undir
vangaveltur um að vinstrisinnaðir
kjósendur flokksins hafi í einhverj-
um mæli horfið frá stuðningi við
hann. Í nýlegri skoðanakönnun kom
t.d. fram að Vinstri-grænir væru
næststærsta stjórnmálaaflið á
landsbyggðinni, en Framsóknar-
flokkurinn hefur jafnan verið í
þeirri stöðu að vera að berjast við
Sjálfstæðisflokkinn um forystuhlut-
verkið í landsbyggðarkjördæmun-
um á norðan- og austanverðu land-
inu.
Þótt viðmælendur Morgunblaðs-
ins hefðu áhyggjur af þessari stöðu
taldi enginn þeirra að hún hefði bein
áhrif á stjórnarsamstarfið. Kjör-
tímabilið væri ekki hálfnað og of
snemmt væri að segja fyrir um
hvort áhugi framsóknarmanna á að
halda því áfram væri eitthvað að
dofna. Framsóknarmenn hefðu
meiri áhuga á sveitarstjórnarkosn-
ingunum á næsta ári og á flokks-
þinginu myndu menn leitast við að
blása krafti og kjarki í flokksmenn.
Skiptar skoðanir eru innan
Framsóknarflokksins um hvort
hann eigi að bjóða fram undir eigin
merkjum í Reykjavík í borgar-
stjórnarkosningunum að ári. Sumir
segja það ekki koma til greina en
aðrir segja nauðsynlegt að flokkur-
inn bjóði fram B-lista í næstu kosn-
ingum. Greinilegt er að margir
framsóknarmenn óttast að kjósend-
ur í Reykjavík mundu refsa flokkn-
um í kosningunum ef hann
„sprengdi“ R-listann, ekki síst þar
sem R-listinn nyti góðs gengis í
skoðanakönnunum. Einn viðmæl-
andi blaðsins sagði að ákvarðanir
Framsóknarflokksins í borginni
myndu ekki síst ráðast af ákvörð-
unum Vinstri-grænna um framboð í
Reykjavík. Ef ekki næðist sam-
komulag innan R-listans um sam-
eiginlegt framboð vildu framsókn-
armenn að Vinstri-grænir sætu
uppi með þann „Svarta-Pétur“ að
hafa sprengt R-listann.
Aftur kosið
um varaformann
Á síðasta flokksþingi Framsókn-
arflokksins var líkt og nú kosning
um varaformann. Finnur Ingólfs-
son sigraði þá Siv Friðleifsdóttur
með um 63% atkvæða. Þingfulltrú-
ar hafa án efa ekki átt von á að þurfa
aftur, rúmum tveimur árum síðar,
að kjósa sér nýjan varaformann, en
ekki hvers konar stjórnmá
hún væri.
Menn eru hins vegar fle
mála um að Jónína sé
stjórnmálamaður og haf
skörulega fram fyrir hönd
þann skamma tíma sem
setið á þingi. Margir eru en
þeirrar skoðunar að y
flokksins og ímynd væri „lé
„frískari“ með Jónínu í fo
en ef Guðni væri þar.
Raunar hafa ands
Guðna í varaformannskjö
mitt nefnt að með kjöri h
Framsóknarflokkurinn þu
legt yfirbragð. Guðni hafi
pólitíska ferli fyrst og fre
beitt sér að landbúnaðarm
málefnum landsbygg
Hann hafi því ekki nægileg
skírskotun. Ólíklegt sé
höfði mikið til kjósenda
borgarsvæðinu þar sem
fyrir flokkinn að styrkja st
Finnur tók sem kunnugt er fyrir
rúmu ári ákvörðun um að hætta
þátttöku í stjórnmálum. Hann er þó
enn formlega varaformaður Fram-
sóknarflokksins.
Þrír hafa boðið sig fram til vara-
formanns, Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra, Jónína Bjart-
marz alþingismaður og Ólafur Örn
Haraldsson alþingismaður.
Bakgrunnur frambjóðendanna er
um margt ólíkur. Guðni hefur tekið
virkan þátt í flokksstarfi í 30 ár og
var t.d. um tíma formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna.
Hann hefur verið alþingismaður í 14
ár og ráðherra í tvö ár.
Jónína og Ólafur Örn höfðu hins
vegar starfað í Framsóknarflokkn-
um í skamman tíma áður en þau
settust inn á Alþingi. Ólafur Örn var
kjörinn á þing árið 1995 fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Reykjavík og Jón-
ína var í þriðja sæti á lista flokksins
í sama kjördæmi fyrir síðustu kosn-
ingar. Þegar Finnur Ingólfsson
hætti á þingi settist hún inn á þing.
Enginn vafi þykir leika á að
Guðni njóti þess í þessu kjöri að
hafa starfað lengi í flokknum og
þekkja þar vel alla innviði. Hann
þekkir persónulega stóran hluta
þingfulltrúa og hefur að sögn geng-
ið skipulega til verks við að afla
stuðnings þeirra.
Jónína efnileg en með
stuttan pólitískan feril
Þeim sem Morgunblaðið ræddi
við bar saman um að skammur póli-
tískur ferill Jónínu ylli henni erf-
iðleikum. Flokksmenn þekktu ekki
vel störf hennar og margir væru
hikandi við að ljá henni atkvæði ein-
faldlega vegna þess að þeir vissu
26. flokksþing Framsóknarflokksins hefst í da
Spenn
kosning
manns
Á milli 800-900
Ekki er búist við hörð-
um átökum um málefni
á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins sem
hefst í dag, en reikna
má með að staða flokks-
ins almennt verði rædd.
Á þinginu verður nýr
varaformaður flokksins
kjörinn. Egill Ólafsson
velti fyrir sér stöðu
Framsóknarflokksins
og kosningu nýs
varaformanns.
Guðni
Ágústsson
EITT af verkefnum flokksþings framsóknar-
manna er að afgreiða breytingar á lögum
flokksins. Breytingarnar eru nokkuð viðamikl-
ar og markast m.a. af því að búið er að taka
ákvörðun um að breyta kjördæmamörkum
landsins. Skiptar skoðanir eru innan flokksins
um sumar breytingartillögur sem lagðar verða
fyrir flokksþingið. Á miðstjórnarfundi í síðasta
mánuði komu fram fjölmargar athugasemdir
við tillögurnar og verða þær ræddar áfram í
laganefnd flokksþingsins.
Ekki er útilokað að lagabreytingarnar gætu
haft einhver áhrif á kosningar á flokksþinginu
ef þær verða samþykktar óbreyttar. Fram til
þessa hefur fa
þinginu um h
inn formaður
gjaldkeri o.s.
öll embættin
ið verður með
formannskjör
kosningu um
Ágústsson ko
telja nauðsyn
um það embæ
Friðleifsdótti
Eitt megin
arflokksins h
Lagabreytingar gæ
ÁRANGURSRÍK TILRAUN
Í ORKUVINNSLU
KIRKJA LÁGRA ÞRÖSKULDA
Karl Sigurbjörnsson, biskupÍslands, ræðir í nýútkomnuhirðisbréfi sínu um mál,
sem mikið hafa verið til umræðu í
samfélaginu, afstöðuna til útlend-
inga og fólks sem á önnur trúar-
brögð en þorri þjóðarinnar og af-
stöðu til samkynhneigðra. Viðhorf
biskups mætti gjarnan verða sem
flestum til fyrirmyndar.
Karl biskup segir að gestrisni og
umburðarlyndi íslenzku þjóðarinn-
ar sé runnið af rótum kristinnar
trúar, þar sem kærleiksboðorðið sé
í brennidepli, orð og fordæmi frels-
arans og krafan um að sýna útlend-
ingum virðingu og kærleika. Hann
hvetur presta og söfnuði til að
„hvetja til umburðarlyndis gagn-
vart fólki af öðrum trúarbrögðum,
efna til samtals við múslima í
byggðarlögum sínum og stuðla að
því að ótti og tortryggni víki.“
Í kaflanum um samkynhneigð
segir m.a. í hirðisbréfi biskups:
„Víða er samkynhneigð hafnað í
heilagri ritningu. Eru þau fyrir-
mæli ótvíræð og sígild? Hvað með
hliðstæð boð sem varða stöðu
kvenna og kynlíf í lögmáli Móse og
hjá Páli? Hver er staða þeirra
boða? Er samkynhneigð meiri synd
en ýmislegt annað sem fordæmt er
í lögmálinu og bréfum postulanna,
en sem flestir eru nú sammála um
að eru forboð bundin samtíma-
menningu þeirra?“
Biskup leggur ríka áherzlu á að
kirkjan sé öllum opin og ekki spurt
um kynhneigð. Kirkjan verði að
horfast í augu við þann sársauka og
neyð sem ótti við samkynhneigð og
fordómar valdi samkynhneigðum.
Biskup gengur ekki svo langt að
taka undir með þeim sem mælt
hafa með hjónavígslu samkyn-
hneigðra í þjóðkirkjunni og bendir
á að engin þjóðkirkna Norðurlanda
hafi treyst sér til að stíga það
skref. Hins vegar tekur hann af
skarið um að „þeim sem leita fyr-
irbænar kirkjunnar og blessunar
guðs yfir samlíf sitt og heimili er
ekki vísað á bug, hvert svo sem
sambúðarform heimilisfólksins
er.“
Ummæli biskups Íslands um
þessi mál einkennast af umburðar-
lyndi og kærleika og undirstrika
vilja hans til að kirkjan þróist á
þann veg sem hann lýsir sjálfur:
„Kirkjan á að vera opin, víðsýn,
umburðarlynd og halda opnu
sambandi við heiminn og gefa fólki
færi á að vaxa í þekkingu, skilningi,
náð. Hún á að hafa lága þröskulda
jafnframt því sem hún stendur föst
á óhagganlegum grunni postul-
anna og heldur fast í játningu trú-
arinnar.“
Það getur borgað sig að faraótroðnar slóðir og taka
áhættu. Það sýnir tilraunaverk-
efni Hita- og vatnsveitu Akureyr-
ar, sem nú heitir Norðurorka. Í
tilrauninni var bakrásarvatni frá
dreifikerfi hitaveitunnar dælt nið-
ur í jarðhitakerfið á Laugalandi í
Eyjafjarðarsveit. Tilraun þessari
lauk fyrir rúmu ári og nú er nið-
urdælingin um 8% af heildarorku-
framleiðslu hitaveitunnar.
Nýting bakrásarvatns til orku-
vinnslu er einnig umhverfisvæn
og eykur verulega nýtingu auð-
lindarinnar auk þess sem rennsli á
volgu vatni um fráveitukerfi bæj-
arins minnkar. „Árangurinn af
þessu verkefni er mun meiri en
bjartsýnustu menn þorðu að
vona,“ sagði Franz Árnason,
framkvæmdastjóri Norðurorku, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hafist var handa við þetta verk-
efni árið 1997. Þannig er staðið að
verki að um 15 gráða heitu bak-
rásarvatni er dælt 12 km leið frá
Akureyri til jarðhitasvæðisins á
Laugalandi og dælt þar undir
háum þrýstingi niður í djúpar hol-
ur sem gefið höfðu lítið vatn.
Vatnið fer niður á 500 til 2.000
metra dýpi þar sem bergið er 90
til 100 gráða heitt og er dælt upp
að nýju 90 til 95 gráða heitu.
Margir hafa komið að þessu
verkefni auk Hita- og vatnsveitu
Akureyrar og má þar nefna Orku-
stofnun, Háskólann í Uppsölum,
RARIK og Hoechst Danmark.
Heildarkostnaður við verkefnið
var um 135 milljónir króna en á
móti kom 50 milljóna króna styrk-
ur frá Evrópusambandinu.
Eins og sakir standa er eini
kostnaðurinn við þetta nú við raf-
orkuna sem fer í að dæla vatninu
niður í jörðina. Búist er við að
hægt verði að nýta umræddar bor-
holur í 20 til 25 ár og jafnvel leng-
ur.
Nú þegar er farið að kanna for-
sendur fyrir frekari orkuvinnslu
af þessu tagi. „Þetta fór kannski
ekki nákvæmlega eins og við héld-
um en að mörgu leyti betur,“ sagði
Ólafur G. Flóvenz hjá Orkustofn-
un í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Niðurdælingin er orðin
fastur liður í orkuvinnslunni og
menn eru farnir að opna augun
fyrir þessum möguleika víðar.“
Það er aðeins með því að vera
tilbúinn að reyna nýjar leiðir, sem
vænta má framfara. Árangurinn
af tilrauninni á Laugalandi sýnir
hvers virði það er þegar stofnanir
og fyrirtæki eru reiðubúin til að
fylgja góðum hugmyndum eftir og
í þessu tilfelli skemmir ekki fyrir
að verkefnið er á sviði orku-
vinnslu.