Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 42

Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 42
UMRÆÐAN 42 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ K rafan um atkvæða- greiðsluna, sem fram fer á morgun um framtíð Reykja- víkurflugvallar, var borin fram af ýmsum og um margt ólíkum ástæðum. Vert er að hafa í huga þau sjónarmið, sem þar bjuggu að baki, þegar Reyk- víkingar nýta sér lýðræðislegan rétt sinn til að opinbera skoðun sína á þessu réttnefnda stórmáli. Mörgum brá í brún þegar upp- lýst var að borgarstjórinn í Reykjavík hefði staðfest skipulag flugvallarsvæðisins fram til ársins 2016. Þetta gerði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir með því að und- irrita plagg í þá veru ásamt samgönguráðherra Sjálfstæð- isflokksins, Sturlu Böðvarssyni. Sú ákvörðun borgarstjórans var alvarleg yfirsjón af hálfu þessa fulltrúa Reyk- víkinga. Af þeim sökum er ljóst að at- kvæðagreiðslan missir að nokkru leyti marks; margir telja hana ástæðulausa með öllu og stór hluti Reykvíkinga er þeirrar hyggju að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni þurfi að víkja löngu áður en árið 2016 gengur í garð. Á hinn bóginn er sjálfgefið að þeir, sem eru þess- arar skoðunar, mæti á kjörstað á morgun og láti í ljós þann vilja sinn að flugvöllurinn verði fluttur. Ef að líkum lætur mun þrýst- ingurinn á ráðamenn Reykjavíkur vaxa til mikilla muna á allra næstu árum. Í máli þessu tekst á ný hugsun og gömul og þeim mun óhjákvæmilega fjölga, sem eru þeirrar skoðunar að þetta mann- virki frá hernámsárunum verði að víkja. Að þessu leyti er líklegt að atkvæðagreiðslan breyti í raun litlu og að augu sífellt fleiri opnist gagnvart breyttum kröfum og nú- tímalegum hugmyndum um skipulagsmál. Í annan stað er vert að hafa í huga að krafan um atkvæða- greiðsluna kom einnig til sökum þess að stjórnmálamenn í Reykja- vík hundsuðu skipulega að hafa frumkvæði í máli þessu. Þetta á við bæði um R-lista og D-lista, sem allt fram á síðustu stundu hafa forðast að leggja fram skýra stefnu, annaðhvort í þá veru að halda beri í flugvöllinn í Vatns- mýrinni eða að hann beri að leggja niður og nýta svæðið á ann- an veg. Nú, daginn áður en gengið verður til atkvæða, er svo komið að afstaða flestra borgarfulltrúa liggur fyrir en skýr pólitísk stefna í nafni listanna tveggja hefur ekki verið lögð fram. Að vísu hafa ákveðnar vonir vaknað. Þannig hefur leiðtogi sjálfstæðismanna í borginni, Inga Jóna Þórðardóttir, lýst yfir því efnislega að hún telji það áhugaverðan kost að flytja flugvöllinn á uppfyllingu í Skerja- firði. Sá kostur var kynntur með sérlega áhrifamiklum hætti í Reykjavíkurmynd Hrafns Gunn- laugssonar. Þessi kostur er sá, sem vakið hefur mesta hrifningu, enda ein- kennir hann stórhugur og fram- tíðarsýn. Þá er þessi kostur að auki best fallinn til að sætta sjón- armið Reykvíkinga og lands- byggðarfólks. Vonir hafa því vaknað um að sjálfstæðismenn í höfuðstaðnum reynist tilbúnir til að standa undir þeim kröfum, sem til þeirra eru gerðar, og taki póli- tíska forustu í málinu. Það ferli ber að hefja með því að leggja til að þaulkannað verði hvort koma megi upp alþjóðlegum flugvelli á Lönguskerjum. Í þriðja lagi ættu Reykvíkingar ekki að vanmeta þá ákvörðun ráðamanna að bera framtíð flug- vallarsvæðisins undir borgarbúa. Þarna er um að ræða virðing- arverða tilraun til að þróa fram virkara lýðræði á Íslandi. Engu skiptir í þessu efni hvar í flokki menn standa. Þróunar í átt til virkara lýðræðis gætir nú þegar víða erlendis og flest bendir til þess að þetta form, þ.e.a.s. þjóð- aratkvæði og skoðanakannanir, verði nýtt í auknum mæli á Vest- urlöndum í náinni framtíð. Efa- semdir um það form einkennast af hræðslu stjórnmálamanna um missi valdsins og úreltri forræð- ishyggju; fullyrða má að fylgi við þennan framgangsmáta muni vaxa í mörgum þeirra ríkja, sem fylgja leikreglum lýðræðis og eru stolt af því. Metnaður Íslendinga ætti með réttu að standa til þess að vera þar í fararbroddi. Því miður hefur ákveðnum stjórnmálamönnum tekist að gera ágreininginn um framtíð flugvall- arsvæðisins að þjóðlegri deilu milli höfuðborgar og lands- byggðar. Sú framganga lýsir í raun í hnotskurn öllu því, sem breyta þarf í íslenskum stjórn- málum. Deilan hefur þó ef til vill verið til góðs að því marki sem hún hefur leitt í ljós hversu ólík nálgun býr að baki hjá þeim, sem telja stórhug og framtíðarsýn há- leit fyrirbrigði í sjálfum sér, og hjá hinum, sem sífellt berjast gegn breytingum, oftast í nafni tiltekinna hagsmuna en ævinlega af ótta við hið ókomna og nýja. Í deilunni um Reykjavík- urflugvöll takast á smásýni og stórsýni, afturhald og framfara- hugur, gömul hugsun og ný. Í ljósi þess að „flugvallarmálið“ tekur í raun til ýmissa grunn- þátta, sem varða í senn framþró- un Reykjavíkur og þjóðfélagsins alls, hlýtur að valda miklum von- brigðum það fálæti, sem flestir þingmenn höfuðborgarinnar hafa sýnt því. Sú framganga ætti að vera borgarbúum hvatning til að taka þátt í kosningunum, óháð því hvaða skoðun þeir hafa á stað- setningu flugvallarins. Stórbrotin sýn til framtíðar Reykjavíkur hefur verið sett fram í „flugvallarmálinu“; sýn um alþjóðlegan flugvöll steinsnar frá miðborginni, um brýr og tengingar og byggð á eyjum. Þeir, sem vilja óbreytt ástand, og þeir, sem hundsa kosningarnar á morgun, eru með því að leggja sitt af mörkum til þess að áfram verði stuðst við staðnaðar, smágerðar og líflausar hugmyndir á vett- vangi stjórn- og skipulagsmála; íslenskar „reddingar“ í stað stórhugar og heildarlausna. Og þeir, sem kjósa að leiða atkvæðagreiðsluna hjá sér, verða þá jafnframt að eiga það við sig að hafa unnið gegn viðleitni til að gera lýðræðið virkara á Íslandi. Smáhugur og stórsýni Vilja íbúar Reykjavíkur að áfram verði stuðst við staðnaðar, smágerðar og líflausar hugmyndir á vettvangi stjórn- og skipulagsmála? VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is AUKINN áhugi á skipulagsmálum er mikið fagnaðarefni. Virk umræða með þátt- töku alls almennings fer nú fram um ráðstöf- un lands og náttúru- auðlinda til framtíðar og fjallað er um áhrif einstakra áætlana á byggð, búsetu og sam- félagsgerð. Allir íbúar landsins geta tekið þátt í þessari umræðu og haft áhrif á hana. Gætum að Innan tíðar verður skylt samkvæmt lögum að skipu- lagsáætlanir, svæðisskipulag og að- alskipulag, lúti mati á umhverfis- áhrifum. Það á við væntanlegt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðis- ins og aðalskipulag Reykjavíkur. All- ir íbúar landsins munu hafa sama rétt á að koma með athugasemdir og ábendingar. Mikil umræða hér í Reykjavík um framtíð Reykjavíkurflugvallar er fagnaðarefni. Hún vekur íbúana til umhugsunar um skipulag borgarinn- ar og er hluti af framtíðarþróun byggðar í Reykjavík næstu áratugi. Flestir líta þó á Stór-Reykjavíkur- svæðið, þ.e. Reykjavík, Seltjarnar- nes, Mosfellsbæ, Kópavog, Garða- bæ, Álftanes og Hafnarfjörð, sem eina heild, og telja að skipulag svæð- isins þurfi að taka mið af því. Reykjavík hefur um áratugabil verið þungamiðja almennings- samgangna hér innanlands. Reykja- víkurflugvöllur hefur gegnt þar lykilhlut- verki. Sjálfsagt er að Reykvíkingar fái tæki- færi til að láta í ljós skoðun sína á skipu- lagsmálum eins og nú er fyrirhugað. Hitt er að mínu viti beinlínis rangt – að íbúar eins svæðis geti með inn- byrðis atkvæða- greiðslu fyrirfram ákveðið lokun flugvall- arins hér í höfuðborg allra landsmanna. Aðrir valkostir um staðsetningu flugvallar verða að reynast raunhæfir áður en lokun flugvallarins hér í Reykjavík er ákveðin. Við ákvörðun um framtíð flugvallarins þarf að hafa mörg atriði í huga, enda er mikilvægi hans fjöl- þætt. Huga þarf að samgöngum að og frá flugvelli, ákveða hvernig hátta skal uppbyggingu á þjónustu og taka ákvarðanir um öryggismál. Flugvöllinn áfram í Reykjavík Umræðan um flugvöllinn hefur kveikt nýjar hugmyndir um fyrir- komulag og nýtingu þess svæðis þar sem flugvöllurinn er nú. Margar eru þessar hugmyndir áhugaverðar og mörgum þeirra mætti ef til vill hrinda í framkvæmd að hluta til þótt Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Sú staðreynd að aukin tækni verð- ur til þess að flugvélar geta nýtt styttri flugbrautir mun væntanlega hafa í för með sér að flugvöllurinn getur nýtt landsvæðið þar sem hann er öðruvísi og betur. Sjálfsagt er að leita allra leiða til að takmarka það land sem flugvöllurinn krefst, gera allt sem hægt er til að tryggja öryggi og leitast við að halda í lágmarki þeim áhrifum sem flugumferð hefur á nánasta umhverfi sitt. Mikilvægt er einnig að umhverfi flugvallarins verði gert sem fallegast en það hefur stórlega verið vanrækt á undanförn- um árum. Það er afar mikilvægt að allir sem hlut eiga að máli sameinist um að finna bestu lausn fyrir miðstöð inn- anlandsflugsins. Ég tel að sú miðstöð eigi að vera hér á svæði Reykjavík- urflugvallar. Mál allra Íslendinga Jón Bjarnason Flugvöllur Það er afar mikilvægt, segir Jón Bjarnason, að allir sem hlut eiga að máli sameinist um að finna bestu lausn fyrir miðstöð innanlands- flugsins. Ég tel að sú miðstöð eigi að vera hér á svæði Reykjavík- urflugvallar. Höfundur er alþingismaður. FORSAGA málsins er sú að fyrir 25 árum var svo komið á grunn- slóð við Faxaflóann allt að Snæfellsnesi, að hreinlega var búið að þurrka upp allan fisk á stóru svæði, af tog- skipum og netabátum svo skipstjórar og sjó- menn lögðu til að svæði yrðu lokuð fyrir neta- og togveiði. Við var brugðið og svæð- um var lokað. Þetta til- tekna svæði, sem um ræðir er, lína dregin úr Þormóðsskeri úti fyrir Mýrum og í Gölt við Hellnanes á Snæfellsnesi. Enginn veit hvaða áhrif lokun þessi hefur haft á uppeldissvæði fisktegunda sem þarna eru, eða hvaða áhrif frið- un þessi hefur haft á viðkomu teg- unda. Ekki veit ég hvort Hafró hef- ur nýtt sér aðstæður til rannsókna sem þarna hafa skapast. 3. ágúst fær sjávarútvegsráð- herra bréf frá tveim netabáta- eigendum, sem róa frá Arnarstapa, þar sem þeir biðja um að opnaður sé fyrir þá hluti af þessu lokaða svæði. Undir skrifa þessir tveir ásamt Kristni Jónassyni titlaður bæjarstjóri í undirskrift. Þess skal geta að þetta mál hafði þá aldrei verið rætt á bæjarráðsfundi Snæ- fellsbæjar, því telst þessi undir- skrift, prívat og persónuleg þó svo að hann sé bæjarstjóri Snæfellsbæj- ar að atvinnu. Sjávarútvegsráðuneytið telur sennilega að undirskrift bæjarstjóra sé vegna undanfarandi samþykktar í bæjarstjórn. Ráðuneytið hafði þó ekki fyrir því að leita umsagnar þar um eða annarra hagsmunaaðila eins og t.d. Landssambands smábáta- eigenda. Þeir biðja Hafrannsókna- stofnun um umsögn. 28. ágúst sendir Hafró umsögn, hún telur ekkert athugavert við að verða við umræddri beiðni en áréttar þó að æskilegt sé að svæðið sé lokað yf- ir hrygningartímann. 18. september er reglugerðinni breytt af sjávarútvegsráðuneyt- inu og hluti svæðisins opnaður fyrir netabát- um allt árið. Mat Hafró á ástandi þorskstofnsins og ákvörðun ríkisstjórn- arinnar fyrir fiskveiði árið 2000–2001 leiddi til þess að ákveðið var að minnka heildar- þorskafla um 20%. Þrátt fyrir það er ákveðið að opna fyrir netabátum nýtt veiði- svæði. Um mánaðamótin sept.-okt., þeg- ar reglugerðinni hafði verið breytt, fá handfærabátaeigendur sem róa frá Arnarstapa ávæning af breyt- ingunni. Þeir sem til þekkja vita að handfæraveiðar verða ekki stund- aðar innan um netalagnir þar sem net liggja á veiðistöðum alla daga, en skakbátar láta sig reka aftur og aftur yfir veiðistað. Frá Arnarstapa róa um 30 hand- færabátar og hefur umrætt svæði verið eitt af aðalveiðisvæðum þeirra. Margir þessara báteigenda hafa byggt sér bústað á Arnarstapa sem tengist þeirra útgerð. Bæjar- stjóranum ætti að vera þetta vel kunnugt þar sem hann á sumarbú- stað þarna. Kunna þeir honum litlar þakkir. Nú er slitinn friðurinn í þessu samfélagi. 13. nóv. skrifuðu 25 smábáta- eigendur, sem róa frá Arnarstapa, mótmælabréf til sjávarútvegsráðu- neytisins og óskuðu eftir að þessi breyting yrði dregin til baka. Þá sendu þeir afrit af því bréfi til bæj- arstjórnar Snæfellsbæjar. Þá varð uppi fótur og fit, bæjarstjóri leggur fram tillögu um að bæjarráð sé samþykkt breytingunni á reglu- gerðinni. Um það varð mikil um- ræða og ekki allir á eitt sáttir og voru bókuð hörð mótmæli en breyt- ingin var samþykkt með tveimur at- kvæðum. Það var sem sagt 23. nóv. 2000 sem fyrst var fjallað um þetta mál í bæjarstjórn Snæfellsbæjar, fjórum mánuðum eftir að bréfið með hinni vafasömu undirskrift barst sjávar- útvegsráðuneytinu. Það sjá allir heilvita menn að þessi samþykkt bæjarstjórnar er yfirklór og til þess eins að bakka upp bæjarstjórann persónulega og pólitískt í þessu óheillamáli. 21. jan. 2001 fá smábátaeigendur bréf frá sjávarútvegsráðuneytinu, það tekur ráðuneytið þrjá mánuði að svara þeim, en tók aðeins sjö vik- ur að afgreiða beiðni um opnun á svæði sem hafði verið lokað í 25 ár. Þá leituðu þeir aðeins umsagnar Hafró, nú þurfa þeir hinsvegar að leita til Útvegsmannafélags Snæ- fellsness, Hafrannsóknastofnunar og Snæfellsbæjar. Ráðuneytið ákveður að reglugerðarbreytingin standi óbreytt. Niðurlag bréfsins er svona: „Berist ráðuneytinu hinsveg- ar endurnýjaðar óskir um að hinu umdeilda svæði verði lokað þegar handfæraveiðar almennt hefjast við norðanverðan Faxaflóa í vor mun ráðuneytið taka málið upp að nýju.“ 1. feb. 2001 bárust sjávarútvegs- ráðuneytinu endurnýjaðar óskir frá handfærabátaeigendum. Nú er slitinn friðurinn í litlu samfélagi undir Jökli Konný Breiðfjörð Leifsdóttir Fiskveiðistjórn Þetta mál hafði þá aldr- ei verið rætt á bæjar- ráðsfundi Snæfells- bæjar, segir Konný Breiðfjörð Leifsdóttir, og því telst undirskriftin prívat og persónuleg. Höfundur er trillukona á Snæfellsnesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.