Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 52

Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 52
HESTAR 52 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Til sölu er jörðin Skálmholt, Villingaholtshreppi. Um ræðir 230 ha jörð, skammt vestan við Þjórsárbrúar, þjóðveg nr. 1. Leigutekjur eru af sumarhúsalóðum sem leigðar eru frá jörðinni og möguleiki á að fjölga þeim. Ræktað land er um 60 ha. Hús þarfnast viðgerðar. Frábær staðsetning, um 45 mín. akstur frá Rvík. Jörð með margskonar möguleika, t.d til hrossaræktar og ferðaþjónustu. Útivistar og ferðaþjónustujörð til sölu Fasteignasala lögmanna Suðurlandi Austurvegi 3, 800 Selfossi. Sími 482 2849, fax 482 2801 Netfang: logmsud@selfoss.is GUÐRÚN Fjeldsted rekur hesta- leigu og reiðskóla á Ölvaldsstöðum í Borgarfirði. Á undanförnum 16 árum hefur hún boðið fötluðum börnum, sem verið hafa í sum- ardvöl á vegum Þroskahjálpar á Vesturlandi, í Holti í Borgarfirði, að koma og kynnast reiðmennsku og umgengni við hesta. Börnin hafa fengið að fara á hestbak, allt eftir getu hvers og eins, og einnig læra þau sem geta að leggja á, spretta af og auðvitað þarf svo að kemba hestunum. Sum fara í reiðtúra og segir Guðrún það hafa mjög jákvæð áhrif á börnin þegar þau finna hvað þau geta. Sumum þykir til dæmis mik- ið afrek að ríða yfir „fljótið“ Gufuá. Erfitt að finna sérhannaða hnakka fyrir fatlaða Börnin eru frá þriggja ára og upp í tvítugt og koma mörg þeirra ár eftir ár. Í byrjun hefur Guðrún oft reitt þau fyrir framan sig og einnig þá einstaklinga sem eru mikið fatlaðir og hafa ekki jafn- vægi til að sitja sjálfir. En börnin stækka og þyngjast og þá reynist erfitt að halda þeim eða lyfta. Það veldur miklu álagi á handleggi og herðar aðstoðarmannsins. Guðrún segist sjálf vera farin að finna mikið fyrir þessu álagi. Það hafi enn frekar ýtt henni áfram við að reyna að finna hnakk sem væri sérhannaður fyrir fatlaða. Hún segist nefnilega hafa orðið vör við að margir einstaklingar fái ekki eins mikið út úr reiðmennskunni ef teymt er undir þeim og aðstoð- armenn ganga við hlið hestsins til að styðja við reiðmanninn. Að sögn Guðrúnar hefur hún leitað logandi ljósi að sérhönnuðum hnakk fyrir fatlaða, bæði á sýningum erlendis og á Netinu, en án árangurs. Hún sá sér því ekki annað fært en að ráðast í verkið sjálf. Hún fékk Er- lend Sigurðsson í lið með sér og eftir þeim hugmyndum sem hún hafði eftir áralanga vinnu með fötl- uðum á hestbaki og tilsögn hefur hann hannað og smíðað hnakk. Hnakkurinn er enn í þróun en í vikunni var nýjasta eintakið, það þriðja á þróunarbrautinni, prófað af fötluðum nemendum Reiðskól- ans Þyrils í Reykjavík. Nokkrir mismunandi fatlaðir einstaklingar prófuðu hnakkinn. Hann reyndist vel en þó sagði Er- lendur að hann sæi að enn ætti hann eftir að endurbæta hnakkinn. Hann sagðist líklega hafa stoppað hann of mikið. Hann hafi verið að hugsa um að hafa hann nógu vel stoppaðan svo skúffa, þar sem sér- stöku baki er smeygt inn í, mundi ekki meiða bak hestsins. Hann sæi það nú að hnakkurinn þyrfti að leggjast betur að hestinum og þennan hluta hans ætli hann að endurskoða. Sú útgáfa af hnakkn- um sem prófuð var er með mjög djúpu og öruggu sæti og handfangi fyrir faman. Síðan er hægt að festa bak, sem er nokkurs konar hálfhringur, við hnakkinn. Hægt er að velja um þrjár mismunandi hæðir á baki. Á bakið eru fest ör- yggisbelti, eitt sem fest er um mittið og síðan ólar yfir axlirnar. Einnig kom í ljós við þessa prófun að líklega þarf bakið að vera mýkra þar sem það kemur við knapann, sérstaklega það sem nær upp undir hendur á tiltölulega stórum einstaklingi, og ólarnar þyrftu að vera breiðari. Löfin á hnakknum eru sérstök að því leyti að þau eru með stuðningspúða bæði framan við fótlegginn og einnig aftan við hann til að halda honum stöðugum. Þá eru notuð ístöð sem eru lokuð að framan til að fæturnir renni ekki fram. Hægt er að hafa ístaðsólarnar hvort sem er yfir eða undir löfunum. Ánægjan að sitja einn á hesti Guðrún sagði að þessi frum- hönnun gæti veitt mörgum fötl- uðum reiðmönnum, þar á meðal lömuðum og spastískum, þá ánægju og frelsi að geta setið hest einir og jafnvel í hópi annarra reiðmanna. Auk þess vonast hún til að þessi hnakkur eigi eftir að opna nýja möguleika fyrir fatlaða og nýtast þeim í endurhæfingu. Þá eigi hann vonandi einnig eftir að létta að- stoðarmönnum þeirra lífið svo um munar. Þróa sérhann- aðan hnakk fyrir fatlaða Þótt reiðmennsku fatlaðra og reiðþjálfun vaxi fiskur um hrygg er erfitt að fá sérhann- aðan hnakk fyrir þá. Guðrún Fjeldsted fékk því Erlend Sigurðsson í lið með sér og þau hafa hannað slíkan hnakk. Ásdís Haralds- dóttir fylgdist með þegar hann var prófaður. Morgunblaðið/Ásdís HaraldsdóttirErlendur Sigurðsson, hönnuður og smiður, Guðrún Fjeldsted hug- myndasmiður, og Magnús Jónsson sem smíðar virkið. Nýi hnakkurinn: Á að geta veitt fötluðum þá ánægju að sitja hest einir. TÖLTKEPPNI á ís hefur ótrúlegt aðdráttarafl fyrir áhorfendur og eftir að farið var að halda ístölt í Skautahöllinni í Reykjavík hefur þessi siður breiðst út. Um helgina verður keppt í Stjörnutölti í Skautahöllinni á Akureyri og laug- ardaginn 31. mars nk. verður hið árlega Ístölt í Skautahöllinni í Reykjavík. Þann sama dag ætla Danir að reyna sig í ístölti og hefur heyrst að mikill áhugi sé á mótinu þar í landi. Stjörnutöltið í Skautahöllinni á Akureyri verður haldið á morgun, laugardag 17. mars, og hefst það kl. 20.30. Keppendur verða: Matth- ías Eiðsson á Ómi frá Brún, Krist- ján Þorvaldsson á Synd frá Akur- eyri, Jón Kristófer Sigmarsson á Freydísi frá Glæsibæ, Sigurður Sveinbjörnsson á Hrafni frá Úlfs- stöðum, Úlfhildur Sigurðardóttir á Skugga frá Tumabrekku, Arnar Grant á Ofsa frá Engimýri, Arndís Björk Brynjólfsdóttir á Halldóri frá Vatnsleysu, Haraldur Guð- mundsson á Ægi frá Móbergi, Sveinn Ingi Kjartansson á Sporði frá Naustum, Anna Catharina á Prinsi frá Kommu, Baldvin Ari Guðlaugsson á Golu frá Ysta-Gerði, Jóhann Þorsteinsson á Smið frá Miðsitju, Anton Páll Níelsson á Skugga frá Víðinesi, Tryggvi Björnsson á Snekkju frá Bakka, Birgir Árnason á Ósloga frá Rauðalæk, Gísli Gíslason á Birtu frá Ey, Höskuldur Jónsson á Regin frá Engimýri og Hans Kjerúlf á Laufa frá Kollaleiru. Auk keppninnar verða nokkur kynbótahross sýnd. Þau eru hryss- urnar Kveikja frá Árgerði, Tíbrá frá Búlandi, Saga frá Bakka, Fiðla frá Akureyri, Komma frá Flugu- mýri, Þota frá Hólum, Skák frá Staðartungu og Þraut frá Glæsibæ og stóðhestarnir Glampi frá Vatns- leysu og Hróður frá Refsstöðum. Miðinn á Stjörnutöltið kostar 1000 kr. og að sögn Stefáns Erl- ingssonar er enn hægt að kaupa miða í Hestabúðinni á Akureyri. Aðeins topptöltarar með mikla útgeislun Það er verslunin Töltheimar sem stendur fyrir Ístöltinu í Reykjavík að vanda. Erling Sigurðsson hjá Töltheimum sagði að mótið yrði með svipuðu sniði og verið hefur. Þó verða heldur færri hross, eða 24 talsins. Í forkeppninni verða þrjú hross inni á vellinum í einu og verð- ur alltaf riðið upp á sömu hönd. Átta efstu hestar eftir forkeppni keppa áfram þannig að sá sem er í 8. sæti keppir við 1. hest, 7. við 2., 6. við 3. og 5. við 4. Þrír efstu hest- arnir fara beint inn í A-úrslit, en fjórir næstu keppa um hver kemst inn sem 4. hestur í A-úrslit. Erling sagði að mikil áhersla yrði lögð á að velja topphesta með mikla útgeislun til keppninnar. Fljótlega munu fara að birtast nöfn einhverra þeirra. Hann sagði að reynt yrði að fara að öllu með gát og enginn glannaskapur leyfður. Dýralæknir verður á staðnum, hrossin fara í fótaskoðun áður en þau fara inn á völlinn og öll hrossin verða með sérstakar ísfjaðrir auk skafla til frekara öryggis. Sigurður Sæmundsson og Erling verða þulir og eiga væntanlega eft- ir að skemmta áhorfendum með vel völdum athugasemdum að vanda. Boðið verður upp á ýmsar upp- ákomur, þar á meðal skautaatriði frá Skautahöllinni. Öll veitingasala verður í höndum Skautahallarinnar og ágóði af henni mun renna til styrktar skautaíþróttinni. Aðrir starfsmenn verða á vegum Tölt- heima. Sala aðgöngumiða hefst ekki fyrr en í vikunni fyrir mótið og sagðist Erling búast við að þeir yrðu á sama verði og í fyrra, þ.e. kr. 2.000 í sæti og 1.500 í stæði. Mikill áhugi á ístölti norðan og sunnan heiða EIGENDASKIPTI hafa orðið á versluninni Töltheimum sem varð til þegar hestabúð- irnar Hestamaðurinn, Reið- sport og Reiðlist sameinuðust á sínum tíma. Fyrrum eig- endur hafa selt hlutafé sitt í fyrirtækinu og er Birgir Skaptason nýr aðaleigandi og talsmaður hluthafa fyrirtæk- isins. Að sögn Birgis verður rekstur Töltheima áfram byggður á starfi forveranna og til stendur að reka versl- unina með svipuðu sniði. Hann sagðist þó stefna að því að bæta þjónustuna enn frek- ar og nýta alla þá möguleika sem slík verslun býður upp á. Áfram verður boðið upp á sömu vörumerki en sterk við- skiptasambönd hafa skapast við framleiðendur margra þekktra vörumerkja, svo sem Mountain Horse. Einnig sagði Birgir að boðið væri upp á góðar íslenskar vörur svo sem fjölbreytt úrval af hnökkum og öðrum reiðtygjum og hefur verið vaxandi útflutningur á þessum vörum, m.a. í gegnum vefsíðu Töltheima. Þessi þátt- ur starfseminnar segir hann að bjóði upp á mikla vaxt- armöguleika sem hann hafi mikinn áhuga á að nýta sér Eigenda- skipti á Tölt- heimum Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.