Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 1
67. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 21. MARS 2001
BRESKIR hermenn verða kvaddir
til við að fjarlægja skrokka af skepn-
um, sem slátrað hefur verið vegna
gin- og klaufaveikinnar, en á mörgum
bæjum hefur þeim verið safnað sam-
an í stórar kasir. Íhaldsflokkurinn í
Bretlandi hvatti til þess í gær, að
sveitarstjórnarkosningum yrði frest-
að í sumum héruðum vegna sóttar-
innar en allt bendir enn til, að þing-
kosningar verði í maíbyrjun. Óttast
er, að fyrsta tilfelli gin- og klaufaveik-
innar sé komið upp í Hollandi.
Vitað er nú, að gin- og klaufaveikin
hefur komið upp á 353 býlum í Bret-
landi og liggja skepnurnar, sem slátr-
að hefur verið, sums staðar í stórum,
rotnandi kösum. Hefur það verið
gagnrýnt harðlega, en alls hefur ver-
ið slátrað um 200.000 dýrum og
ákveðið hefur verið að slátra 100.000
til viðbótar. Hafa stjórnvöld skipað
nokkrum hópi hermanna að aðstoða
við að eyða skrokkunum en Tim Yeo,
talsmaður Íhaldsflokksins í landbún-
aðarmálum, sagði í gær, að ekki væri
nóg að gert og hvatti til, að aðstoð
hersins yrði stóraukin.
Líklega kosið 3. maí
Flest bendir til, að almennar þing-
kosningar verði í Bretlandi 3. maí
næstkomandi þrátt fyrir gin- og
klaufaveikina, en stjórnvöld tilkynntu
í gær, að staðið yrði við fyrri áætlanir
um manntal þann dag og næstu daga
á undan. Ákveðið hafði verið, að það
færi að nokkru fram samhliða
kosningunum. Hafa íhaldsmenn ekki
lagt til, að þeim verði frestað þrátt
fyrir lítið gengi í skoðanakönnunum.
Talsmaður hollenska landbúnaðar-
ráðuneytisins sagði í gær, að fundist
hefðu mótefni við gin- og klaufaveiki í
sjúkum geitum á einu býli í Hollandi.
Engar skepnur höfðu verið fluttar
þangað frá Bretlandi og beðið var eft-
ir niðurstöðum frekari rannsókna.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins fór fram á það við norsk
stjórnvöld í gær, að þau afléttu mjög
víðtæku banni við innflutningi kjöt-
og mjólkurafurða frá öllu Evrópska
efnahagssvæðinu, EES. Telur hún
ekki ástæðu til fyrir Norðmenn að
takmarka innflutninginn við önnur
ríki en Bretland og Frakkland og ætl-
ar að taka málið upp í EES-nefnd-
inni, verði ekki orðið við kröfu henn-
ar.
Óttast að gin- og klaufaveiki sé komin upp í Hollandi
Breskt herlið fjar-
lægir dýraskrokka
London, Amsterdam. Reuters, AFP.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
segir stjórn sína munu leggja sig
fram um að hvetja til friðarviðræðna
milli Ísraela og Palestínumanna en
ekki reyna með neinum hætti að
þröngva friði upp á deiluaðila. Kom
þetta fram á stuttum blaðamanna-
fundi hans með Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, í Washington
í gær.
Bush var spurður hvort hann
myndi eiga fund með Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínu en vék sér undan
því að svara. Palestínumenn hafa
lýst vonbrigðum sínum með afstöðu
Bandaríkjamanna og segja þá ekki
leggja nógu hart að Sharon að hefja
friðarviðræður.
Bandaríkjamenn hafa lagt áherslu
á að Sharon dragi úr efnahagslegum
þvingunum gagnvart Palestínu-
mönnum en vegna ferðabanns Ísra-
elsstjórnar geta margir þeirra ekki
sótt vinnu. Einnig halda Ísraelar eft-
ir skattgreiðslum og er stjórn Ara-
fats sögð nálgast gjaldþrot. Sharon
sagði á fundi með nefnd er vinnur
fyrir málstað Ísraels í Bandaríkjun-
um að hann væri þegar búinn að
grípa til aðgerða er myndu „bæta
efnaleg kjör Palestínumanna“.
AP
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, á hádegisverðarfundi með
George Bush Bandaríkjaforseta, Condoleezzu Rice, þjóðaröryggisráð-
gjafa Bush, og sendiherra Ísraels í Bandaríkjunum, David Ivri, í gær.
Bush lofar að beita
sér fyrir viðræðum
Washington. AFP.
TVEIR öflugustu stjórnmálaflokkar
albanska minnihlutans í Makedóníu
gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem þeir
hvöttu skæruliða er berjast gegn
stjórnarhernum til að leggja niður
vopn og hverfa friðsamlega aftur til
heimila sinna. Utanríkisráðherra
Albaníu, Paskal Milo, hrósaði í gær
Makedóníustjórn fyrir að hafa sýnt
„sjálfstjórn“ gagnvart árásum skæru-
liðahópanna er berjast fyrir auknum
réttindum albanska þjóðarbrotsins.
Annar flokkanna, Lýðræðisflokkur
Albana (DPA), á aðild að ríkisstjórn
en hinn, Flokkur lýðræðis og hag-
sældar, er andvígur samsteypustjórn
Ljubcos Georgíevskís forsætisráð-
herra. Javier Solana, æðsti fulltrúi
Evrópusambandsins (ESB) í utanrík-
is- og varnarmálum, var viðstaddur er
albönsku leiðtogarnir undirrituðu yf-
irlýsinguna til skæruliða. Var haft eft-
ir honum að með þessu væri stigið
mikilvægt skref í þá átt að einangra
skæruliðana er nefna hreyfingu sína
Þjóðfrelsisherinn. Í yfirlýsingunni
eru fordæmdar allar tilraunir til að
beita ofbeldi í því skyni að ná fram
pólitískum lausnum.
„Það væru mistök að semja við
hryðjuverkamenn um þessi mál,“
sagði Solana og sagði ESB vilja að
flokkar og fulltrúar albanska minni-
hlutans héldu áfram að starfa innan
ramma þess stjórnarfyrirkomulags
sem við lýði væri í landinu. Skæru-
liðar hafa meðal annars krafist þess
að Makedónía verði gerð að sam-
bandsríki þar sem Albanar og slav-
neskumælandi Makedóníumenn
skipti með sér völdum. Solana sagði
ESB ekki sjá ástæðu til slíkra stjórn-
arskrárbreytinga í lýðræðislandi.
Hann lýsti stuðningi við þær að-
gerðir sem stjórnvöld í Skopje hafa
gripið til en þau hafa eflt mjög herlið
sitt á landamærunum við Kosovo þar
sem skæruliðar hafa verið umsvifa-
miklir. Notaðir voru í gær T-54 skrið-
drekar af sovéskri gerð og annar öfl-
ugur búnaður til að reyna að hrekja
uppreisnarliðið frá hæðum við borg-
ina Tetovo og var skotið stanslaust af
fallbyssum á stöðvar þeirra í meira en
klukkustund.
Skæruliðar hvattir til
að leggja niður vopn
AP
Mala, einn af leiðtogum albanskra skæruliða í Kosovo er berjast í Makedóníu, reynir að fá 88 ára gamlan
Albana, Tomo Blazeski, og eiginkonu hans, Tirpku, til að yfirgefa þorpið Lasce í Makedóníu. Stjórnarherinn
skaut á þorpið sem er í höndum skæruliða en hjónin neituðu samt að fara að ráðum Mala.
Skopje, Tetovo, Genf. Reuters, AFP, AP.
Átök/32
♦ ♦ ♦
DOMINGO Cavallo, sem átti stóran
þátt í því að ráða niðurlögum óða-
verðbólgu í Argentínu í byrjun síð-
asta áratugar, var skipaður efna-
hagsmálaráðherra landsins í gær.
Hann tilkynnti strax að hann hygðist
minnka fjárlagahalla um andvirði
tæpra 260 milljarða króna á árinu.
Forveri Cavallos í embættinu,
Ricardo Lopez Murphy, sagði af sér í
fyrrakvöld eftir að tillögur hans um
samdrátt ríkisútgjalda mættu harðri
andstöðu. Boðað hefur verið til alls-
herjarverkfalls í landinu í dag vegna
sparnaðaráformanna.
Cavallo sem vill beita skattalækk-
unum til að hleypa lífi í efnahaginn,
hét því að horfið yrði frá niðurskurð-
arhugmyndum Murphys.
Hann sagðist myndu biðja þingið
um aukin völd í efnahagsmálum.
Argentína
Vill lækka
skatta
Buenos Aires. Reuters.
„Kraftaverkamaðurinn“/23
SEÐLABANKI Bandaríkjanna
ákvað í gær að lækka svonefnda
stýrivexti um hálft prósentustig, í
5%, í von um að ýta undir neyslu og
fjárfestingar en hagvöxtur hefur
verið lítill undanfarna mánuði í land-
inu. Ljóst er að á fjármálamörkuð-
um hafi margir búist við enn meiri
vaxtalækkun. Nasdaq-verðbréfa-
vísitalan lækkaði um rúm 4,8% í gær
og Dow Jones um tæp 2,4% en nokk-
ur hækkun varð hins vegar á Evr-
ópumörkuðum sem lokað er fyrr.
Alan Greenspan seðlabankastjóri
og menn hans hafa nú lækkað vext-
ina þrisvar frá áramótum til að
bregðast við dvínandi þrótti í efna-
hagslífinu, vextirnir voru 6,5% í
byrjun janúar. Áhyggjur af stöðnun
í Japan, sem er annað stærsta hag-
kerfi heims, hafa valdið vantrú á að
góðærið í iðnríkjunum haldi áfram.
Viðskiptahalli Bandaríkjamanna fer
einnig vaxandi. Reyndist hann hafa
aukist lítillega í janúar, var þá 33,3
milljarðar dollara og frá því í fyrra
hefur mestur hallinn verið á við-
skiptum við Kína. Áður skipuðu Jap-
anir það sæti. Nokkrir sérfræðingar
benda á að ýmsar tölur gefi til
kynna að ástandið vestra sé ekki
jafnslæmt og sumir óttast. Stöðugt
verði til ný atvinnutækifæri og við-
skipti með dýra bíla og húsnæði séu
mikil.
Kröfur um vaxtalækkun hafa ver-
ið háværar, ekki síst vegna verðfalls
á verðbréfamörkuðum. En aðrir
leggja áherslu á að breytingar á
vöxtunum megi ekki stjórnast af
tímabundnu ástandi á verðbréfa-
mörkuðum heldur efnahagnum í
heild. Vaxtalækkun eigi ekki að vera
bjarghringur fyrir óvarkára fjár-
festa.
Green-
span
lækkar
stýrivexti
Washington. AP, AFP.