Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 14

Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍVAR Örn Guðmundsson arkitekt og Bolli Kristinsson kaupmaður, sem situr í mið- borgarstjórn borgarinnar, hafa sett fram hugmynd um að byggður verði hljómsveit- arpallur og veitingahús í Hljómskálagarðinum. Bolli Kristinsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hugmyndin hefði kviknað hjá honum fyrir um einu og hálfu ári og hann hefði fengið Ívar Örn til að útfæra hana. Bolli sagði brýnt að finna leiðir til að gera garðinn þannig að fólk leggi leið sína í hann í meira mæli en nú er. Ívar Örn segir að hug- myndinni sé ætlað að benda á leiðir til að draga fólk að Hljómskálagarðinum og lífga upp á garðinn þannig að hann geti gegnt svipuðu hlutverki í borgarlífinu og t.d. Central Park gerir í New York og Hyde Park í London. Stærri skrokkur þarf sterkara hjarta Ívar Örn vísar þar til þess að hann telji borgina standa á tímamótum og ákveða þurfi hvort skilgreina eigi borgina sem eitt stórt samansafn út- hverfa eða þá hvort styrkja eigi hið ótvíræða hjarta höf- uðborgarsvæðisins alls. „Því stærri sem skrokkurinn er, því sterkara þarf hjartað að vera,“ segir hann. Ívar Örn leggur áherslu á að í myndunum sem birtar eru hér til hliðar og unnar eru í samstarfi Arkitektastofunn- ar Nexus og margmiðlunar- fyrirtækisins Verði ljós, sé á þessu stigi fyrst og fremst um að ræða myndræna útfærslu á hugmynd, sem upphaflega kviknaði hjá Bolla Kristins- syni. Útfærslunni sé ætlað að ýta undir kynningu og um- ræðu um hugmyndina fremur en að um sé að ræða eiginlega hönnun á húsunum, sem sýnd eru. Með arkitektúr megi bæta þar ýmsu við. Hann leggur hins vegar áherslu á að hlutverk þeirra bygginga, sem lagt er til að reistar verði í garðinum, sé fyrst og fremst ætlað að vera vettvangur þjónustu, sem hafi það að markmiði að sinna þörfum þess fólk sem safnast saman í garðinum, oftar en á hátíða- og tyllidögum; það sé þjón- ustan við fólkið en ekki bygg- ingarnar sem skipti mestu máli. Átthyrndur eins og Hljómskálinn Eins og sést á myndunum eru reistar tvær nýjar bygg- ingar í Hljómskálagarðinum, ein til útitónleikahalds, hin til veitingaþjónustu. Tónlistaskálinn er 8 metrar í þvermál, átthyrndur og dregur mjög dám af Hljóm- skálanum. „Skálinn er eins og hann hafi alltaf verið þarna,“ segir Ívar. Allar hliðar skál- ans eru opnanlegar til að tón- leikar geti sést frá sem flest- um hliðum og áhorfendur notið þeirra sitjandi á flötinni í fögru umhverfi. Ívar segir að hugsa megi sér að þegar skálinn er ekki nýttur til tón- leikahalds megi koma þar fyrir bekkjum eða aðstöðu til að sitja og njóta náttúru, út- sýnis og borða nesti hvað sem veðri líður. Ívar hefur fundið skálanum stað á stétt, skammt sunnan Hljómskálans, á blettinum þar sem styttan af Bertel Thorvaldsen stendur. Hressingarskálinn? Veitingaskálinn er teiknað- ur í framhaldi af hæð, sem gerð verður við tjarnarbakk- ann og stendur skálinn á súl- um út í Tjörnina. Hann er 13 fermetrar í þvermál og 106 fermetrar og ætlað að hýsa um 33 viðskiptavini. Á skál- anum er stór útipallur, 115 fermetrar, sem nýst gæti alla daga í stilltu veðri og tekið allt að 42 viðskiptavini. Þegar verr viðrar er hins vegar hægt að draga tjöld yfir pall- inn og hita upp það svæði með gashiturum en það segir Ívar tíðkað í veitingastöðum af þessu tagi alls staðar í heiminum. Hægt er að reisa upp út- veggi skálans, sem eru úr gleri, og þannig verða veit- ingasalurinn og veröndin að einu rými. Náttúra, tónlist, útivist og nærvera Frá veitingaskálanum, sem Ívar Örn hefur gefið vinnu- heitið Hressingarskálann, er útsýni til Hljómskálanna beggja annars vegar og mið- borgarinnar hins vegar. Ívar sagði að til að styrkja Hljómskálagarðinn þannig að hann fái svipað hlutverk og fyrrgreindir garðar í New York og London sé brýnt að tengja Háskólasvæðið betur miðborginni en nú er gert. Það megi t.d. gera með und- irgöngum eða brú sem auð- veldi stúdentum og starfs- fólki Háskólans að eyða hvíldarstundum í garðinum. Fram hafa komið hug- myndir um að flytja ÍR-húsið í Hljómskálagarðinn og eins setti Hrafn Gunnlaugsson fram í þekktri mynd sinni hugmynd um flutning húsa af Árbæjarsafni í garðinn. Um þá hugmynd segir Ívar Örn að hann telji geta komið til greina að flytja fáein hús í garðinn en aðalatriðið í sínum huga sé þó að huga að mögu- leikum á því að garðurinn geti sinnt þörfum fólks fyrir að koma saman, njóta náttúru, tónlistar, útivistar og nær- veru hvert við annað. Hugmynd Bolla Kristinssonar kaupmanns og Ívars Arnar Guðmundssonar arkitekts Vilja tónleika- og veitingaaðstöðu í Hljómskálagarðinn Mynd/Nexus, Verði ljós Hljómskálinn fjær og nýi skálinn nær. Horft úr veitingaskálanum yfir miðborgina. Miðborg LISTASAFN Reykjavíkur hefur fest kaup á útilistaverk- um eftir fimm íslenska lista- menn. Verkin sem um ræðir eru Geirfugl eftir Ölöfu Nor- dal; Á frívaktinni eftir Finnu Birnu Steinsson; Flæðisker eftir Borghildi Óskarsdóttur; Sólstólar eftir Helgu Guðrúnu Helgadóttur og Sleðinn eftir Örn Þorsteinsson. Þau stóðu öll á útisýning- unni „Strandlengjan“ sem Myndhöggvarafélag Reykja- víkur stóð fyrir og hófst með- fram suðurströnd Reykjavík- ur í júní 1998 og stóð fram á haust ársins 2000, þegar Reykjavík var ein af menn- ingarborgum Evrópu. „Verkin hafa verið keypt smám saman, frá árinu 1998 þangað til núna seint á síðasta ári, og þetta var gert með þeim hætti einfaldlega vegna þess að þá gafst betri tími til að skoða þau og meta og njóta, þar sem sýningin átti að fá að standa þetta lengi hvort sem var,“ sagði Eiríkur Þor- láksson forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur í samtali við Morgunblaðið í gær, að- spurður um málið. „En síðan þarf það að fara í gegnum op- inberar nefndir, þ.e.a.s. Menningarmánefnd og Skipu- lags- og bygginganefnd og loks í endanlega staðfestingu hjá borgarráði, að það sé leyfilegt að láta viðkomandi verk standa á þessum stöð- um.“ Í byrjun febrúar óskaði Listasafn Reykjavíkur svo eftir því við Skipulags- og byggingarnefnd borgarinnar, að umrædd verk fengju að standa til frambúðar á þeim stöðum sem þau voru sett upp en menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar var þá fyrir sitt leyti búin að sam- þykkja tillögu þessa efnis. Á fundi Skipulags- og bygging- arnefndar nýlega var um- rædd tillaga svo einnig sam- þykkt. Borgin kaupir útilist Morgunblaðið/Árni Sæberg Geirfugl Ólafar Nordal. Skerjafjörður '3     6 @        AA     #   3     3       3  72   3  @3  35 B @        BÖRN, sem nú eru í fimmta bekk Varmárskóla í Mos- fellsbæ, en búa á svonefndu vestursvæði í bænum, flytj- ast í nýjan grunnskóla sem stofnaður verður fyrir vest- ursvæðið næsta haust. Eftir sameiningu við Grunnskóla Mosfellsbæjar er Varmár- skóli orðinn stærsti grunn- skóli landsins með um 1100 nemendur. Við stofnun nýja skólans á vestursvæðinu fækkar í 850–900 nemendur en Varmárskóli verður eftir sem áður stærsti grunnskóli landsins, að sögn Viktors Guðlaugssonar, skólastjóra. Varmárskóli hefur frá ára- mótum verið eini skólinn í Mosfellsbæ. Í húsnæði Gagnfræðaskólans er kennsla á unglingastigi en í Varmárskóla kennsla yngstu barna og miðstig. Nýr skóli á vestur- svæði í haust Þau börn, sem búsett eru vestast í bænum og eru í 1.–5. bekk hafa gengið í sér- stakt útibú frá Varmárskóla. Á þeim grunni verður stofnaður nýr grunnskóli á vestursvæðinu í haust og jafnframt flytjast þau börn sem búsett eru á vestur- svæðinu en eru í Varmár- skóla yfir í nýja skólann. Að sögn Viktors er gert ráð fyrir að nýi skólinn vaxi svo smám saman upp og verði heildstæður grunnskóli fyrir 1.–10. bekk. Þau eldri börn, sem búsett eru á vest- ursvæðinu og ganga í Varm- árskóla, munu hins vegar ljúka grunnskólagöngu sinni þar. Eins og fyrr sagði er Varmárskóli nú stærsti grunnskóli landsins og eftir sameininguna stunda þar alls um 1.100 börn og ung- lingar nám. Fyrst um sinn verða 250–300 nemendur í nýja skólanum en gera má ráð fyrir að þeir verði 400– 450 þegar allir árgangar verða skipaðir, þ.e. þegar börnin sem fara í 6. bekk í haust, hefja nám í 10. bekk. Áætlanir gera ráð fyrir að nýi skólinn verði svokallaður tveggja hliðstæðu skóla, sem þýðir að tvær bekkjardeildir eru í hverjum árgangi. Með sameiningunni milli Varmárskóla og Gagnfræða- skólans voru skólarnir settir undir eina stjórn og teknir upp nýir stjórnunarhættir, að sögn Viktors skólastjóra, sem jafnframt tók við skóla- stjórastarfinu. Tveir aðstoðarskólastjórar starfa við skólann og að auki þrír sviðsstjórar, einn fyrir yngsta stig, einn fyrir mið- stig og einn fyrir unglinga- stig. Viktor segist ekki vita til þess að við annan grunn- skóla séu starfandi sviðs- stjórar sem eru í raun stjórnendur með óverulega kennsluskyldu. Hins vegar þekkist það í fleiri skólum að sérstakir sviðsstjórar séu skipaðir en þeir eru þá kennarar með stjórnunar- skyldu fremur en stjórnend- ur með óverulega kennslu- skyldu eins og við á í Mosfellsbænum. Að auki er sérstakur skrifstofustjóri meðal stjórnenda við skól- ann. Einn árgangur flyst í nýjan skóla í haust Mosfellsbær Varmárskóli stærsti grunnskóli landsins með 1.100 nemendur í ár en 850–900 næsta vetur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.