Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 23

Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 23 - trygging fyrir l águ ver›i! CARL Bildt, sérlegur útsendari Sam- einuðu þjóðanna á Balkanskaga, lýsti því yfir í gær að hann væri reiðubúinn að láta af því starfi í kjölfar harðrar gagnrýni sem tengist stjórnarsetu hans í sænska olíufyrirtækinu Lundin Oil. Í Svíþjóð hefur þess verið krafist að hann velji á milli SÞ og olíufyr- irtækisins. Bildt reyndi í fyrstu að vísa gagnrýninni á bug en í fyrra- kvöld sendi hann Svenska Dagbladet tölvupóst þar sem hann segist hafa í hyggju að láta af störfum fyrir SÞ til að geta einbeitt sér frekar að öðrum störfum, m.a. fyrir olíufélagið í Súdan, en það er starfsemi þess þar sem þyk- ir afar gagnrýniverð. Olíufélögin í Súdan, þeirra á meðal Lundin Oil, sæta harðri gagnrýni í nýrri mannréttindaskýrslu Samein- uðu þjóðanna. Í skýrslunni segir að starfsemi olíufélaganna í landinu hafi „ýtt undir átökin í landinu, orðið til þess að draga úr mannréttindum og virðingu fyrir þeim og hafa nú þegar dregið úr þeim litlu möguleikum sem eru á að friður komist á“, segir í skýrslunni. Íbúarnir reknir burt Fjöldi erlendra olíufyrirtækja leit- ar nú olíu í Súdan þar sem geisar borgarastyrjöld á milli múslimskra stjórnvalda og kristinna skæruliða- hópa. Auk Lundin Oil má nefna bandarísk og kanadísk olíufyrirtæki. Ásakanirnar snúast m.a. um að stjórnvöld í Súdan hafi rekið fólk á brott frá stórum landsvæðum í ná- grenni olíulindanna og þar sem olíu er leitað. Í samtali við Aftonbladet um helgina lýsti Bildt því hins vegar yfir að hann hefði aldrei séð nein merki þess að fólk hefði verið neytt á brott eða á það ráðist. Þvert á móti hefði fólk flutt til svæða þar sem leitin færi fram. Í skýrslu SÞ er dregin upp önnur mynd af ástandinu. Þar segir að stjórnvöld hreki ættflokka svæðisins suður á bóginn og hvetji ættflokka norðan að til að setjast þar að. Stað- arnöfnum sé breytt yfir á arabísku og stjórnvöld reyni með þessu að ná full- um yfirráðum á svæðinu. Olíufélögin eigi samvinnu við stjórnvöld sem veiti þeim hervernd og rými til fyrir starf- semi þeirra. Carl Bildt er einn tíu stjórnar- manna í Lundin Oil, og þiggur fyrir það um 2 milljónir ísl. í árslaun. Hann segir í áðurnefndum tölvupósti til Svenska Dagbladet að hann sé sann- færður um að vera erlendra fyrir- tækja og olíulindir á svæðinu auki möguleika Súdans á því að koma á friði og að vinna að framþróun. Hann segir að dragi Lundin Oil sig út úr Súdan muni annað fyrirtæki einfald- lega taka við og það muni því engu breyta. Segir mannréttindi virt Bildt segir fyrirtækið hafa fylgt ráðleggingum mannréttindasamtak- anna Amnesty International og Sam- einuðu þjóðanna um hvernig bera eigi sig að á svæðinu. Lýsir hann efa- semdum um að til dæmis kínversk ol- íufyrirtæki, sem bíði þess að geta haf- ið starfsemi, muni virða mannréttindi að sama marki og sænska fyrirtækið. Ekki eru þó öll hjálparsamtök sam- mála Bildt. Christian Aid hefur kraf- ist þess að fyrirtækið hætti starfsemi í Súdan. Í fréttatilkynningu samtak- anna segir að þau voni að Bildt sitji áfram í stjórn fyrirtækisins og beiti áhrifum sínum til að tryggja að fyr- irtækið láti af störfum. Geri hann það ekki, eða segi sig úr stjórninni, sé hann að víkja sér undan þeirri sið- ferðislegu skyldu sinni að tjá sig um mannréttindi, hvar sem er í heimin- um. Bildt segist ekki vera þeirrar skoð- unar að staðan batni við það að ol- íufélögin haldi á brott, þvert á móti bæti vera þeirra á svæðinu stöðuna. „Að halda á brott, einangra og leyfa þeim að berjast í friði er siðferðilega óverjandi að mínu mati,“ segir Bildt. Hótaði afsögn Pólitískir andstæðingar Bildts í Svíþjóð hafa gagnrýnt hann mjög síð- ustu daga, t.d. lýsti ritari Jafnaðar- mannaflokksins, Lars Stjernkvist, því yfir að stjórnarsetan og starfið fyrir SÞ færu illa saman. Hótaði Bildt þá að segja af sér hjá SÞ nyti hann ekki stuðnings til starfans og virðist nú ætla að gera alvöru úr. Hann segir í tölvupóstinum að í raun sé löngu kominn tími til að hætta störfum fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Það hafi nú þegar varað lengur en ætlunin hafi verið og hann vilji fá meiri tíma til að einbeita sér að störf- unum í Súdan. „Ég er einn þeirra sem hafa allt of mikil afskipti af allt of mörgum málum,“ skrifar hann. Sænskt olíufélag í Súdan harðlega gagnrýnt í mannréttindaskýrslu SÞ Bildt hyggst láta af störfum fyrir SÞ í kjölfar gagnrýni AP Carl Bildt í Skopje, höfuðborg Makedóníu, á föstudag í síðustu viku. Hér er hann að svara spurningum frétta- manna um átökin og ástandið í landinu sem sérlegur sendimaður Sameinuðu þjóðanna. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. STUÐNINGSMENN Domingos Cavallos hafa kallað hann „ofurráð- herrann“ eða „kraftaverkamanninn“ en andstæðingar hans hafa uppnefnt hann „feita skallann“. Nafn Cavallos er þó alltaf tengt hvikulum efnahag Argentínu og hann fær nú annað tækifæri til að rétta fjárhaginn við eftir að tilkynnt var óvænt í gær- morgun að hann ætti að fara með efnahagsmálin í stjórn Argentínu. Cavallo var efnahagsmálaráðherra í byrjun síðasta áratugar þegar hann réð niðurlögum óðaverðbólgu sem mældist allt að 5.000% á ári. Hann tengdi þá gjaldmiðil landsins, pes- óann, við dollarann á genginu einn á móti einum og sú ráðstöfun leiddi til efnahagslegs stöðugleika og hag- vaxtar í Argentínu, þriðja stærsta hagkerfi Rómönsku-Ameríku. Cavallo stjórnaði einnig mikilli einkavæðingu ríkisfyrirtækja, sem voru rekin með tapi, í forsetatíð Carl- os Menems. Argentína varð þá að eft- irlæti fjárfesta á Wall Street. Nú, tíu árum síðar, er Cavallo og tengingu pesóans við dollarann kennt um mikið atvinnuleysi eftir tveggja og hálfs árs efnahagsstöðnun. Eng- inn hagvöxtur hefur verið í landinu frá júlí 1998. Cavallo er leiðtogi lítils íhalds- flokks, Aðgerða í þágu lýðveldisins, og Fernando de la Rua forseti vonast til að styrkja stöðu sína með því að skipa hann í ráðherraembættið. Þrír ráðherrar úr vinstriflokknum Frepaso, sem myndar stjórn með miðflokkn- um Róttæka borgara- bandalaginu, sögðu sig úr stjórninni á föstudag til að mót- mæla áformum henn- ar um að lækka rík- isútgjöldin til að koma í veg fyrir að fresta þyrfti greiðsl- um á erlendum lán- um. Þessi áform mættu svo mikilli and- stöðu á þinginu og meðal almennings að Ricardo Lopez Murphy, höfundur sparnaðartillagnanna, sagði af sér embætti efnahagsmálaráðherra í fyrrakvöld eftir að hafa gegnt því í aðeins hálfan mánuð. Afsögn hans varð til þess að Cavallo var skipaður í stjórnina. Cavallo sagði sig úr stjórn Men- ems í júlí 1996 eftir að hafa valdið titringi með því að saka nokkra ráð- herra hennar um að tengjast glæpa- starfsemi. Síðan hefur hann reynt að halda sér í sviðsljósinu í Argentínu og erlendis. Cavallo er 54 ára og sonur fyrrver- andi sópaframleiðanda. Hann stund- aði nám við Harvard-háskóla og gaf kost á sér í forsetakosningunum í Argentínu árið 1999 en fékk aðeins 10% atkvæðanna. Hann bauð sig einnig fram í borgarstjórakosningum í Buenos Aires og tapaði. Cavallo hefur lagt til að pesóinn verði tengdur við fleiri gjaldmiðla en dollarann en hann sagði í gær að nú- verandi stefnu í gengismálum yrði haldið í nokkur ár. Buenos Aires. Reuters, AFP. „Kraftaverkamaðurinn“ aftur við stjórnvölinn Reuters Fernando de la Rua, forseti Argentínu (t.v.), og Domingo Cavallo á blaðamannafundi í gær. RAFMAGN var skammtað í Kali- forníuríki í Bandaríkjunum á mánu- daginn, rétt eina ferðina. Segja yf- irvöld raforkumála í ríkinu að bilanir og vandræði með aðra orkugjafa hafi borið raforkukerfi ríkisins ofurliði. Taka hefði þurft af rafmagn hjá yfir hálfri milljón viðskiptavina til að koma raforkubirgðum í rétt horf en tvísýnt hafi verið með þær á mánu- daginn. Rafmagnsleysið bitnaði á yfir einni milljón manns um allt ríkið og er „það lengsta sem við höfum hing- að til orðið að þola,“ sagði James Detmers, aðstoðarframkvæmda- stjóri ISO, stofnunarinnar sem sér um raforkulínur í ríkinu. Patrick Dornison, talsmaður ISO, sagði að kreppan gæti haft áhrif á önnur ríki í vesturhluta Bandaríkj- anna „og gæti jafnvel breiðst út til annarra landshluta.“ Óvenjuhlýtt í veðri Raforkumálafulltrúar sögðu að eldur í raforkustöð í Suður-Kaliforn- íu hefði leitt til rafmagnsleysisins á mánudaginn en orkukerfi ríkisins hefði þá þegar verið undir miklu álagi vegna þess að óvenjuhlýtt hafi verið í veðri. Vatnsyfirborð í miðl- unarlónum hafi verið lágt og því hafi túrbínur, sem framleiða rafmagn, gengið hægar en venjulega. Detmers sagði að gripið hefði ver- ið til rafmagnsskömmtunar á mánu- daginn til að koma í veg fyrir „stjórnlaust“ rafmagnsleysi í ríkinu. Hann varaði enn fremur við því, að rafmagnsleysi myndi halda áfram að hrjá Kaliforníu fram eftir sumri. Þetta var í fyrsta sinn sem raf- magn fer af síðan í febrúar er rík- isstjórinn, Gray Davis, gerði samn- ing við ríkisþingið og raforkuveitur um að hið opinbera myndi kaupa raf- magn fyrir orkuver ríkisins. Óvenjuheitt er víða í Kaliforníu. Hitinn í miðborg Los Angeles fór í 31 gráðu á mánudag sem leiddi til auk- innar notkunar á loftkælingu sem aftur jók raforkunotkun. Rafmagn var skammtað frá hádegi til klukkan fjögur síðdegis og varði í klukku- stund í senn á hverju svæði. Síðan var einnig skammtað frá klukkan sex síðdegis í rúma klukkustund. Rafmagns- skömmtun í Kaliforníu San Francisco, Los Angeles. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.