Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 24
ERLENT
24 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRANZ Fischler, sem fer með sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
(ESB), kynnti á blaðamannafundi í
Brussel í gær svokallaða grænbók um
sjávarútvegsmál. Henni er ætlað að
vera grundvöllur almennrar umræðu
í aðildarríkjum ESB um framtíð sam-
eiginlegu sjávarútvegsstefnunnar og
er liður í lögboðinni endurskoðun
hennar, en stefnt er að því að ný sjáv-
arútvegsstefna ESB taki gildi í árs-
byrjun 2003.
Að sögn Fischlers á hin endurskoð-
aða sjávarútvegsstefna að hafa meiri
skilvirkni, sveigjanleika og bætt fisk-
veiðieftirlit að leiðarljósi. Sagði hann
þörf á því að minnka veiðigetu fisk-
veiðiflota ESB um 40% frá því sem nú
er, þrátt fyrir þá minnkun flotans sem
þó hefur verið hrint í framkvæmd á
síðustu árum. Um 97.000 fiskiskip eru
nú gerð út frá ESB-löndunum.
Atvinnugrein í kreppu
Í desember sl. samþykktu sjávar-
útvegsráðherrar ESB-landanna
fimmtán róttækan niðurskurð fisk-
veiðikvóta í því skyni að vernda of-
veidda fiskistofna sem annars er
hætta á að nái sér aldrei á ný.
Í ár verða útvegsmenn í ESB að
draga úr veiðum á sumum fiskteg-
undum um allt að 40%, þar á meðal
þorski. Óttast menn að þetta muni
hafa mjög alvarleg áhrif á atvinnu-
ástand í sjávarbyggðum ESB, svo
sem í Skotlandi.
Um 260.000 manns vinna á fiski-
skipaflota ESB, og enn fleiri vinna við
landvinnslu aflans. Greinin skilar þó
ekki nema um 1% af vergri þjóðar-
framleiðslu ESB-landanna. Störfum
hefur á síðustu árum farið hraðfækk-
andi í greininni. Sagði Fischler í gær
að störfum í greininni mundi halda
áfram að fækka og eina leiðin til að
bæta ástandið væri að gera róttækar
breytingar á skipulagi útvegsins.
Grænbókin er fyrsta slíka stefnu-
markandi skýrslan sem samin hefur
verið um sjávarútvegsmál í ESB.
„Endurskoðun sameiginlegu sjáv-
arútvegsstefnunnar er
brýn; margir mikilvæg-
ustu fiskistofnarnir eru
á barmi hruns. Við er-
um að veiða of marga
fiska of unga, sem haml-
ar alvarlega gegn end-
urnýjun fiskistofn-
anna,“ lýsti Fischler
yfir í gær. „Róttækra
aðgerða er þörf til að
tryggja sjálfbærni sjáv-
arútvegsins. Í græn-
bókinni eru sett fram ný
markmið og tillögur að
því hvernig þeim megi
ná fram. Ég hvet fiski-
menn sem og alla þá
sem telja sér málið
skylt til að taka virkan þátt í um-
ræðunni um framtíð sjávarútvegs í
Evrópu,“ sagði Fischler.
Samkvæmt því sem fullyrt er í
grænbókinni er helztu vandamál sjáv-
arútvegs í ESB að rekja til þess að
markmið hafa stangast á og of mikið
hafi verið um skammtímalausnir. Nú
sé nauðsynlegt að skilgreina skýr
markmið og forgangsröðun, svo að
takast megi að byggja upp auðlindina
í hafinu og taka betra tillit til stefnu-
miða ESB varðandi umhverfisvernd,
matvælaöryggi og þróunarhjálp.
Framkvæmdastjórnin lýsir í græn-
bókinni fjórum atriðum sem ættu að
hennar mati að vera
meginmarkmið endur-
skoðaðrar sjávarút-
vegsstefnu ESB. Þessi
atriði eru: Að bæta
vernd fiskistofna; að
auka þátttöku hags-
munaaðila í ákvarðana-
töku; að tryggja efna-
hagslega sjálfbærni
atvinnugreinarinnar og
loks að stuðla að sjálf-
bærum sjávarútvegi út
yfir lögsögu ESB.
Vakið máls á fram-
seljanlegum kvóta
Í grænbókinni er í
allítarlegu máli gerð
grein fyrir helztu vandamálunum sem
við er að etja við framkvæmd sameig-
inlegu sjávarútvegsstefnunnar. Þar á
meðal er sagt frá því hvernig sá hluti
styrkjakerfisins sem ýtir undir end-
urnýjun á skipakosti og tækjabúnaði í
útvegi hefur beinlínis aukið á vand-
ann. Kerfið hafi ýtt undir offjárfest-
ingu og stuðlað að því að viðhalda of
mikilli veiðigetu flotans.
Farið er yfir vandamál sem varða
fiskveiðieftirlit, umhverfismál og
fleira. Ennfremur er greint frá helztu
hugmyndum framkvæmdastjórnar-
innar um úrbætur.
Þar sem fjallað er um hugsanlegar
nýjar leiðir í efnahagslegri stjórnun á
sviði sjávarútvegs segir m.a.: „Sam-
bandið ætti líka að hefja skipulega
könnun á mismunandi leiðum við fisk-
veiðistjórnun, sem ekki eru mikið not-
aðar í Evrópu, svo sem:
– úthlutun veiðiheimilda á grund-
velli markaðskerfis, svo sem framselj-
anlegs kvóta og uppboða, sem skapa
markað fyrir veiðiheimildir og er til
þess fallið að auka áhuga þeirra sem
eiga heimildirnar til að viðhalda lang-
tíma sjálfbærni í fiskveiðum;
– blandað stjórnunarkerfi („co-
management systems“);
– aðgangsgjald fyrir réttinn til fisk-
veiða, að minnsta kosti fyrir vissa
hluta fiskveiðiflota ESB.“
Ekki hvikað frá reglunni um
hlutfallslegan stöðugleika
Þá er í grænbókinni tekin skýr af-
staða til reglunnar um „hlutfallslegan
stöðugleika“, sem verið hefur grund-
vallarregla við útlutun fiskveiðiheim-
ilda í ESB og gengur út á að veiði-
reynsla sé að mestu látin ráða því
hvernig veiðiheimildum hvers árs er
úthlutað. Um hlutfallslegan stöðug-
leika segir:
„Framkvæmdastjórnin sér eins og
er engan valkost við regluna um hlut-
fallslegan stöðugleika, sem gæti skil-
að niðurstöðu sem jafn mikil sátt er
um. Samráðsferlið leiddi í ljós að
þetta viðhorf er ríkjandi úti um allt
sambandið. Það er því engin knýjandi
ástæða fyrir róttækri endurskoðun
núverandi kvótaúthlutunarkerfis.
Þegar skipulagsvandi sjávarút-
vegsins hefur verið leystur og betri
félagslegur og efnahagslegur stöðug-
leiki hefur náðst í greininni kann að
koma sá tími að ástæða þyki til að
endurskoða þörfina á að viðhalda
reglunni um hlutfallslegan stöðug-
leika og á því að leyfa markaðsöflun-
um að verka með sama hætti í sjávar-
útveginum eins og í öðrum greinum
efnahags ESB.“
Nálgast má grænbókina undir vef-
slóðinni http://europa.eu.int/comm/
fisheries/policy_en.htm.
Framkvæmdastjórn ESB gefur út grænbók um sjávarútvegsmál
Uppstokkun
fyrir 2003
Franz
Fischler
Ný stefnumarkandi skýrsla, svokölluð
grænbók, um sjávarútvegsmál í ESB
var kynnt í Brussel í gær. Auðunn
Arnórsson gluggaði í hana.
RÚSSAR búa sig nú undir að stýra
rússnesku geimstöðinni Mír til
jarðar á föstudaginn kemur en ótt-
ast er að hún steypist stjórnlaust
niður verði ekki hægt að láta hana
hrapa í Kyrrahafið innan viku. Fari
eitthvað úrskeiðis og lendi brot úr
geimstöðinni á byggð gæti það
eyðilagt tugi húsa. Gryfjan sem
myndaðist yrði allt að 10 metra
djúp og 100 metra löng.
Gert er ráð fyrir því að Mír falli í
Kyrrahafið klukkan 6.30 fyrir há-
degi á föstudaginn kemur, um sól-
arhring síðar en áætlað var í vik-
unni sem leið. Ástæða tafarinnar er
að geimstöðinni miðaði hægar nið-
ur en sérfræðingar höfðu áætlað.
Upphaflega átti að láta geimstöðina
hrapa 27.-28. febrúar en stjórnstöð
hennar varð að fresta því vegna
ýmissa tæknilegra vandamála.
Takist ekki að stýra Mír til jarð-
ar fyrir þriðjudaginn kemur er
hætta á að geimstöðin hrapi stjórn-
laust í gufuhvolf jarðar með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum, að sögn
Viktors Blagovs, starfsmanns rúss-
nesku stjórnstöðvarinnar (TsUP).
„Hefjist aðgerðin ekki fyrir þennan
tíma hrapar geimstöðin sjálf,“
sagði hann.
3% líkur á að Mír
lendi á landi
Yfirmenn stjórnstöðvarinnar
segja að um 3% líkur séu á því að
geimstöðin fari af réttri braut og
lendi á landi. Þeir hafa því tryggt
hana fyrir andvirði 34 milljarða
króna.
Geimstöðin verður látin steypast
niður þegar hún verður í 220 km
hæð yfir jörðu, en hún var í 230 km
hæð á sunnudag. Eldflaugar flutn-
ingaflaugarinnar Progress, sem er
tengd við Mír, verða notaðar til að
beina geimstöðinni til jarðar. Er
þetta mikið nákvæmnisverk, meðal
annars vegna þess að geimstöðin
þarf að vera yfir Japan þegar hún
fer niður í gufuhvolfið.
1.500 brot falla til jarðar
Gert er ráð fyrir því að Mír fljúgi
yfir Japan og Ástralíu áður en
geimstöðin verður látin hrapa í
Kyrrahafið milli Nýja-Sjálands og
Chile, fjarri helstu siglinga- og
flugleiðum. Stjórnvöld nokkurra
ríkja á þessu svæði hafa látið í ljósi
áhyggjur af því að geimstöðin hrapi
ekki á réttan stað og benda á að
ýmis tæknileg vandamál hafa kom-
ið upp í henni á síðustu mánuðum.
Rússneska stjórnstöðin missti til að
mynda sambandið við Mír í tæpan
sólarhring í desember og margir
óttast að það geti gerst aftur þegar
geimstöðin verður látin hrapa.
Búist er við að mestur hluti
geimstöðvarinnar, sem er 137 tonn
að þyngd, brenni upp í gufuhvolf-
inu. Þó er gert ráð fyrir því að um
1.500 brot, alls 20-40 tonn, falli til
jarðar. Flest þeirra verða mjög lítil
en nokkur á stærð við lítinn bíl og
talið er að hraði þeirra verði svo
mikill að þau geti þeyst í gegnum
tveggja metra þykka styrkta stein-
steypu.
Hraði geimstöðvarinnar þegar
hún hrapar verður um 3.600 km á
klukkustund. Krafturinn verður á
við 13.000 tonna dýnamítspreng-
ingu og litlu minni en í fyrstu
kjarnorkusprengingunni.
Ástralski stjörnufræðingurinn
Rob McNaught, sérfræðingur í
loftsteinum, sagði að tugir húsa
myndu eyðileggjast ef aðeins eitt
brot úr geimstöðinni hrapaði á
Sydney. Hann líkti afleiðingunum
við hrap braksins úr bandarísku
farþegaþotunni sem sprakk í loft
upp og féll á skoska bæinn Lock-
erbie í sprengjutilræði árið 1988.
„Ef einn þessara klumpa lendir á
húsi myndi það hverfa algerlega
ásamt nokkrum nálægum húsum,“
sagði Naught.
Öryggisráðstafanir
í nokkrum ríkjum
Stjórnvöld í nokkrum ríkjum
sem Mír á að fljúga yfir hafa boðað
öryggisráðstafanir vegna hraps
geimstöðvarinnar. Japanska
stjórnin segist ætla að fyrirskipa
íbúum nokkurra svæða að halda sig
innandyra í 40 mínútur meðan Mír
flýgur yfir þau. Þá hefur stjórn
Nýja-Sjálands gefið út viðvörun til
skipa og flugvéla sem fara um
svæðið þar sem geimstöðin á að
hrapa.
Sérfræðingar eru á einu máli um
að það sé mikið nákvæmnisverk að
stýra geimstöðinni til jarðar.
Bandaríska geimfarið Skylab hrap-
aði á strjálbýlt svæði í vesturhluta
Ástralíu árið 1979 og brak þess
dreifðist yfir stórt svæði. Rúss-
neskur Kosmos-gervihnöttur hrap-
aði einnig til jarðar í óbyggðum í
norðurhéruðum Kanada 1987. Þá
féll sovéska geimstöðin Salyut-7
niður í gufuhvolfið vegna eldsneyt-
isskorts og nokkur brot úr henni
hröpuðu á Argentínu í febrúar
1991. Ekki er þó vitað til þess að
hrap slíkra leifa úr geimnum hafi
valdið mannskaða.
Sýnt á Netinu
Geimstöðin Mír er 15 ára gömul
og ákveðið var að láta hana hrapa
til að eyðileggja hana þar sem
Rússa skortir fjármagn til að gera
við hana og halda henni við.
Teknar verða myndir af hrapi
Mír og hægt verður að skoða þær á
Netinu fjórum klukkustundum síð-
ar á www.mirreentry.com.
Mír á að
hrapa til jarð-
ar á föstudag
!"#$ %
!!
" #!!!
$!!
&
'
!
()
'
"
#
$
%&''()(*
%
&'
(
*&+ $ &,-$
.
/
0
0
/
.
) #
* !
#
(
+
%
,
+-
Moskvu. Reuters, AFP.
HILLARY Rodham Clinton,
öldungadeildarþingmaður frá
New York, hefur nú kallað yf-
ir sig gagn-
rýni með því
að taka á leigu
dýrasta skrif-
stofuhúsnæði í
allri sögu
þingmanna
deildar-
innar. Skatt-
greiðendur
sjá um kostn-
aðinn af skrif-
stofum þingmanna á heima-
slóðum.
Eiginmaður Clinton, Bill
Clinton, fyrrverandi forseti,
ætlaði að leigja sér rándýrt
húsnæði á Manhattan en
hætti við vegna harðrar gagn-
rýni og reynir nú að fá leigt í
blökkumannahverfinu Har-
lem.
Skrifstofa Hillary Clinton á
Manhattan mun kosta nær
fjörutíu milljónir á ári í leigu.
Næstdýrasta húsnæði öldung-
ardeildarþingmanns er skrif-
stofa Dianne Feinstein í San
Francisco og er sjö milljónum
króna ódýrara.
Í starfsliði Clinton öldunga-
deildarþingmanns verða um
60 manns.
Fylgi hennar í könnunum
er nú minna en verið hefur,
um 40% Bandaríkjamanna
segjast hafa lítið álit á henni.
Dýra
skrif-
stofa
Hillary
New York. The Daily Telegraph.
Hillary
Clinton