Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRELSI TIL FERÐA Í 15 LÖNDUM
U
ndirbúningurinn
hefur verið mjög
mikill en hann
hefur gengið vel,
þjálfun starfs-
manna er lokið,
framkvæmdir í
flugstöðinni eru
á áætlun, prófun Schengen-upplýs-
ingakerfisins gekk vel og það er
komið í notkun. Við erum tilbúnir
fyrir Schengen,“ segir Jóhann R.
Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli.
Þegar Ísland verður aðili að
Schengen-samstarfinu næstkom-
andi sunnudag verður afnumið eft-
irlit á innri landamærum Schengen-
ríkjanna en eftirlit með farþegum
sem koma inn á Schengen-svæðið
verður hert.
Um 98% allra ferðamanna sem
koma til Íslands fara um Keflavík-
urflugvöll, sem verður jafnframt út-
vörður Schengen-ríkjanna 15 á ytri
landamærum svæðisins.
Lögreglumenn og
tollverðir manna
14 landamærahlið
Mikil ábyrgð er lögð á landa-
mærasveit sýslumannsins á Kefla-
víkurflugvelli, sem hefur tekist þær
skyldur á herðar að gæta ytri landa-
mæranna með ströngu eftirliti fyrir
hönd allra Schengen-landanna.
Lögreglumenn og tollverðir munu
manna landamærahliðin 14 sem reist
hafa verið í nýrri Suðurbyggingu
flugstöðvarinnar. Jafnframt verður í
engu slakað á eftirliti í sjálfri flug-
stöðinni og á flugvallarsvæðinu.
Schengen-samstarfið hefur í för
með sér umtalsverðar breytingar, að
sögn Jóhanns. „Annars vegar erum
við að taka upp eftirlit með áningar-
og skiptifarþegum til og frá Banda-
ríkjunum, sem hafa farið eftirlits-
laust um okkar svæði. Hins vegar er-
um við að fella niður formlegt
landamæraeftirlit gagnvart þeim
sem koma frá hinum svokölluðu
Schengen-ríkjum,“ segir hann.
„Það veltur mikið á framkvæmd-
inni hvernig til tekst. Menn hafa
spurt hvað það muni þýða að fella
niður formlegt eftirlit með því fólki,
sem er að ferðast innan svæðisins.
Ég tek skýrt fram að vitaskuld er
ekki verið að fella niður allt eftirlit.
Við höldum eftir sem áður uppi eft-
irliti, en við munum breyta því. Við
verðum til dæmis með óeinkennis-
klædda löggæslumenn í flugstöðinni.
Lögreglan í landinu hefur ekki afsal-
að sér neinum heimildum til að krefj-
ast þess að fólk sanni á sér deili ef
ástæða er til, t.d. með því að fram-
vísa skilríkjum. Það er því ekki búið
að binda hendur okkar við að halda
uppi eftirliti.
Þótt ég vilji ekki upplýsa í smáat-
riðum hvernig við munum haga
þessu eftirliti, þá get ég fullvissað
fólk um að það verður mikið eftirlit
eftir sem áður. Svo má ekki gleyma
því að tolleftirlit verður óbreytt og ef
tollverðir eru með fólk undir hönd-
um sem þeir telja að hafi gerst brot-
legt á einhvern hátt gagnvart lögum
landsins þá verður náttúrlega brugð-
ist við því,“ segir Jóhann.
Starfssvæðið nær yfir
alþjóðaflugvöll og herstöð
Embætti sýslumannsins á Kefla-
víkurflugvelli er næststærsta lög-
gæsluembætti landsins á eftir
Reykjavík en þar starfa rúmlega 80
lögreglumenn og tollverðir. Sérstaða
þess er mikil, fáir Íslendingar eru
búsettir á svæðinu en tæplega 4.000
Bandaríkjamenn, hermenn og fjöl-
skyldur þeirra, á svæði varnarliðs-
ins. Daglega sækja svo um 1.700 Ís-
lendingar vinnu inn á öryggissvæði
embættisins.
„Við erum með alþjóðaflugvöll og
herstöð og því eru öryggismálin
mjög stór hluti af viðfangsefnum
embættisins,“ segir Jóhann.
Embætti sýslumannsins annast
öryggismál í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, þar með talið rýmingaráætl-
anir, sem eru á ábyrgð lögreglunnar
á Keflavíkurflugvelli. Embættið
annast einnig skipulag sprengjuleit-
ar og svokallaðrar flugverndar, sem
felur í sér umsjón með öllu öryggi
sem lýtur að umgengni við flugför á
jörðu niðri, en það er einnig á ábyrgð
flugmálastjórnar á Keflavíkurflug-
velli. Auk almennra lögreglustarfa
hefur lögreglan á Keflavíkurflugvelli
einnig það verkefni að annast hlið-
gæslu á varnarsvæðinu í samstarfi
við sjóherslögreglu bandaríska hers-
ins auk margvíslegs annars sam-
starfs við einstakar deildir varnar-
liðsins.
Verkefni tollgæslunnar á Kefla-
víkurflugvelli eru svo hefðbundin
tollgæslustörf og fíkniefnaeftirlit við
komu farþega til landsins, vopnaleit
á farþegum við brottför, eftirlit með
tollfrjálsum forðageymslum, flug-
hlöðum o.fl.
Fjölgað um fjóra starfs-
menn vegna Schengen
Þegar Leifsstöð var opnuð 1986
störfuðu 50 lögreglumenn og 30 toll-
verðir við embættið. Á þeim tíma
fóru um 600 þúsund farþegar um
flugstöðina á ári en á síðasta ári hafði
farþegum fjölgað í hálfa aðra millj-
ón.
Jóhann segist telja að menn hafi
náð miklum árangri við að ná utan
um aukin og ný verkefni án þess að
fjölga starfsmönnum. Með endur-
skipulagningu, betri nýtingu starfs-
fólks og breytingum á vaktafyrir-
komulagi, sem unnið var í samstarfi
við starfsmenn, hefur komið í ljós að
aðeins þurfti að fjölga starfsmönn-
um á Keflavíkurflugvelli um 4 vegna
framkvæmdar Schengen-samnings-
ins.
Tólf manna vopnuð sveit
Nýtt skipurit hjá lögreglunni tók
gildi 1. janúar og hjá tollgæslu 15.
mars. Landamæraeftirlitið verður
sameiginlegt verkefni tollgæslu og
lögreglu. Settar hafa verið á fót fjór-
ar deildir innan lögreglunnar; rann-
sóknardeild, almenn deild, öryggis-
deild og landamæradeild.
„Hinn almenni lögreglumaður
flyst á milli verkefna eftir því á
hvaða tíma dags hann er við störf.
Fækkað er á vöktum í almennu
deildinni úr sjö í fimm. Öryggisdeild-
in fær ákveðið hlutverk en þar erum
við að þjálfa upp tólf manna vopnaða
sveit, í samvinnu við ríkislögreglu-
stjóra, sem tekur til starfa innan tíð-
ar,“ segir Jóhann.
Sú ákvörðun er ekki beinlínis
tengd þátttöku Íslands í Schengen,
að sögn sýslumanns, en þetta er talið
nauðsynlegt vegna öryggis. Haldið
er uppi vopnaleit í flugstöðinni og
eru dæmi þess að lögreglan hafi tek-
ið útlendinga í flugstöðinni með al-
væpni. Fyrir nokkrum árum var t.d.
maður sem kom til Keflavíkur með
einkavél tekinn við vopnaleit með
hlaðna skammbyssu.
„Alþjóða-flugmálastjórnin krefst
lágmarks viðbúnaðar í flugstöðvum.
Við höfum hugsað okkur að það
verði að jafnaði þrír lögreglumenn
sem bera handvopn í flugstöðinni,“
segir Jóhann. Fyrir nokkrum árum
var vopnuð sveit lögreglumanna í
flugstöðinni í Keflavík en hún var
lögð niður 1992.
Haldið verður uppi
miklu eftirliti í Leifsstöð
/0
12
34
0566
7*08 0566
46 2 7 6
6
7 08 "
# $
%&
'('
)*
/ 60
9 6 $
%
(
)*
Morgunblaðið/Golli
Salur á annarri hæð flugstöðvarinnar, þar sem vegabréfaskoðun og landamæraeftirlit fara fram, verður opnaður næsta sunnudag. Farþegar sem koma og fara út af Schengen-svæðinu þurfa að fara í gegnum þessi hlið.
Morgunblaðið/Golli
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli.
Afnám vegabréfaskoð-
unar með gildistöku
Schengen þýðir ekki að
slakað verði á eftirliti á
Keflavíkurflugvelli, segir
Jóhann R. Benediktsson
sýslumaður.
Ómar Friðriksson kynnti
sér undirbúning landa-
mæraeftirlits á Keflavík-
urflugvelli og stöðu mála
í nýbyggingu Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar, sem
opnuð verður næstkom-
andi sunnudag.
Keflavíkurflugvöllur verður útvörður 15 ríkja á ytri landamærum Schengen-svæðisins