Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 29
Í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Leynifélagið
Opið virka daga 10 -18. Laugardaga 11 - 15
Fjöldi
bókatitla
með allt að
90%
afslætti!
Tilboð vikunnar! K
ostaboð da
gsins!
Veglegur bókamarkaður IÐUNNAR ...
Mikið ú
rval af
barna-
og
ungling
abókum
!
ÞAÐ voru félagar í Árnesinga-
kórnum í Reykjavík sem skipu-
lögðu tónleika í Langholtskirkju á
fimmtudagskvöldið til stuðnings
Neistanum, styrktarfélagi hjart-
veikra barna. Átta kórar sungu
þrjú til fjögur lög hver, en í lok
tónleikanna sungu allir kórarnir
saman auk einsöngvara nýtt kór-
verk eftir Sigurð Bragason, Á
páskum, við ljóð eftir Valdimar
Lárusson. Milli atriða fluttu að-
standendur Neistans ávörp.
Kvennakór Hafnarfjarðar hefur
farið mikið fram á því ári sem liðið
er síðan gagnrýnandi heyrði síðast
í honum á tónleikum í Víðistaða-
kirkju. Enn er fyrsti sópran þó
veikasti hlekkur kórsins; raddbeit-
ing á efsta raddsviði sópransins
nokkuð máttlaus og lin og sópr-
aninn hljómar ekki vel út. Heyr
himna smiður í fjögurra radda út-
setningu naut sín tæpast í flutningi
kórsins, en tvö tvíradda lög þeim
mun betur, Ef ég gæti flogið eftir
Gunnar Reyni Sveinsson og Ave
María eftir Eyþór Stefánsson.
Krakkakór Grafarvogskirkju
söng yndislega og af hjartans ein-
lægni fjögur lítil lög, Mér um hug
og hjarta nú, Ég er barnið þitt,
Ótal óteljandi fuglar og Þú ert þýð-
ingarmikill. Það var mikil stemmn-
ing yfir söng barnanna, og eftir
ávarp sitt bað Guðrún Pétursdóttir
börnin að syngja aftur Mér um hug
og hjarta nú, og það gerðu þau af
mikilli innlifun og gleði.
Karlakórinn Stefnir söng þrjú
lög. Jörð, eftir Andrew Lloyd
Webber var prýðilega sungið og
sömuleiðis Um hina heittelskuðu
eftir Eirík Bóasson. Söngur kórs-
ins var músíkalskur, en vandamálin
helst hjá fyrsta tenór, sem er frem-
ur linur og slappur, og þarf að
beita sér meira og syngja út.
Brennið þið vitar var of hratt sung-
ið og átti píanóleikari kórsins, Sig-
urður Marteinsson, fullt í fangi
með að halda í við allt of hratt
tempó kórsins. Meiri yfirvegun
hefði farið þessu sígilda karlakórs-
lagi betur.
Kvennakórinn Vox feminae söng
feiknavel þrjú lög úr austurvegi;
finnskt joík-lag, lettneskt þjóðlag
og Kvennakór úr óperunni Évgeníj
Onegin eftir Tsjaíkovskíj. Finnska
joíkið missti svolítið marks og
vantaði kraft vegna þess að það
var allt of hægt sungið. Lettneska
þjóðlagið var afar fallega sungið en
þar var píanóleikurinn allt of gróf-
ur. Toppurinn í söng Vox feminae
var kvennakórinn úr Évgeníj
Onegin. Þar voru konurnar hreint
stórkostlegar og sungu af mikilli
tilfinningu og músíkölskum inni-
leik.
Kór Nýja tónlistarskólans kom
kannski hvað mest á óvart á þess-
um tónleikum. Kórinn hefur gert
það gott í óperuuppfærslum skól-
ans, en hér naut hann sín vel sem
virkilega góður kammerkór, með
fínar raddir innanborðs. Einsöngv-
ari kórsins, Lindita Óttarsson,
söng Ave Maríu eftir Sigvalda
Kaldalóns úr Dansinum í Hruna
skínandi vel. Maríukvæði Atla
Heimis Sveinssonar var virkilega
fallega sungið, en rangur tónn hjá
bassa í niðurlagskadensu hvers er-
indis skemmdi fyrir. Þar átti bass-
inn að fara á grunntón, en ekki elta
sópran hálftón niðurfyrir grunn-
tóninn. Síðasta lag kórsins, þjóð-
lagið Gloria tibi í útsetningu Jóns
Ásgeirssonar, var feiknavel sungið
og með fallegri dýnamík og glæsi-
leg „glorían“ var fallega mótuð og
frábærlega sungin.
Karlakórinn Þrestir leitaði á
hefðbundin söngvamið karlakór-
anna í sínum söng. Með söngvaseið
á vörum var prýðilega sungið,
sömuleiðis enska lagið Drink to me
only með íslenskum texta. Jafn-
vægi milli raddanna í kórnum er
fínt, en þó mættu allar raddir rétta
svolítið úr kútnum og syngja meira
út með meiri stuðningi og krafti. Í
síðasta laginu kom í ljós að það
getur kórinn vel. Skarphéðinn í
brennunni eftir Helga Helgason
var sungið með þeim karlmannlega
þrótti sem þessi hetjusöngur býður
upp á. Samkór Kópavogs hóf söng
með breska þjóðlaginu Danny Boy.
Útsetning lagsins hófst á mjúkum
og fallegum inngangi píanósins,
sem Jónas Sen, píanóleikari kórs-
ins, lék mjög fallega. Leikur Jón-
asar með kórnum var svo fagur að
áheyrendur kusu að klappa sér-
staklega fyrir honum milli erinda
þótt lagið væri ekki búið. Kórinn
söng prýðilega. Útsetningin á öðru
lagi kórsins, álandseyska þjóðlag-
inu Vem kan segla, var hins vegar
hreint ekki góð; – allt of knúsuð, og
naut kórinn sín engan veginn. Í
þriðja laginu, Þetta fagra land,
söng kórinn hins vegar bæði af ör-
yggi og sönggleði.
Árnesingakórinn steig síðastur á
svið og söng syrpu af lögum úr
Porgy og Bess eftir George Gersh-
win. Hressileg sönggleði einkenndi
söng Árnesingakórsins og ein-
söngvari kórsins, Þorsteinn Þor-
steinsson, söng It ain’t necessarily
so af krafti og sannfæringu. Loka-
atriði tónleikanna var frumflutn-
ingur á verkinu Á páskum eftir
Sigurð Bragason við texta Valdi-
mars Lárussonar. Þetta er íburð-
armikið verk fyrir tvo kóra, orgel,
tvöfaldan karlakvartett, fjóra ein-
söngvara og tvær barnsraddir. All-
ir kórarnir sungu saman hlutverk
kóranna tveggja og úr varð gríð-
armikill hljómur sem fyllti hvern
krók og kima kirkjunnar. Þessi
litla páskakantata Sigurðar Braga-
sonar er ekki nútímalegt verk, en
dregur frekar dám af klassískum
meistaraverkum um sama efnivið,
s.s. Mattheusarpassíunni. Flytjend-
ur stóðu sig með ágætum, ekki síst
börnin tvö, Ríkharður Þór Brands-
son og Helene Inga Stankiewicz,
sem sungu sínar litlu fallegu stróf-
ur skínandi fallega. Tónleikarnir
voru fjölsóttir, og greinilega mörg-
um hugleikið að styrkja gott mál-
efni með því að hlýða á tónlist. Það
sem upp úr stendur er sá undra-
verði kraftur sem er í kóramenn-
ingu landsins. Þetta þarf ekki leng-
ur að vera undrunarefni, en eigi að
síður er ekki annað hægt en dást
að því, þegar svo margir kórar
koma saman til að syngja, að eng-
inn þeirra skuli vera slakur; – allir
mjög frambærilegir þótt á mismun-
andi stigi séu. Auðvitað eru til
betri kórar og sjálfsagt einnig
verri. Á árinu 1999 skráði Tónlist-
arráð Íslands 220 kóra og söng-
hópa í landinu öllu, þar af 116 á
höfuðborgarsvæðinu. En ef þetta
átta kóra úrtak segir eitthvað um
standardinn almennt er full ástæða
til að fagna enn einu sinni mikilli
grósku í íslenskum kórsöng.
Sungið af
hjartans lyst
TÓNLIST
L a n g h o l t s k i r k j a
Átta kórar: Kvennakór Hafnar-
fjarðar undir stjórn Hrafnhildar
Blomsterberg, Krakkakór
Grafarvogskirkju undir stjórn
Oddnýjar Þorsteinsdóttur,
Karlakórinn Stefnir undir stjórn
Atla Guðlaugssonar, Vox feminae
undir stjórn Margrétar Pálmadótt-
ur, Kór Nýja tónlistarskólans
undir stjórn Sigurðar Bragasonar,
Karlakórinn Þrestir undir
stjórn Jóns Kristins Cortes,
Samkór Kópavogs undir stjórn
Julians Hewletts og Árnesinga
kórinn í Reykjavík undir stjórn
Sigurðar Bragasonar sungu
til styrktar Neistanum,
styrktarfélagi hjartveikra
barna. Fimmtudag kl. 20.
KÓRTÓNLEIKAR
Bergþóra Jónsdótt ir
FORSALA
aðgöngumiða
á tónleika
Kristjáns Jó-
hannssonar
og Höllu
Margrétar
Árnadóttur,
sem verða í
Íþróttahöll-
inni á Ak-
ureyri 12. apr-
íl, er hafin. Meðleikari
Kristjáns og Höllu Margrétar
verður Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari. Á milli at-
riða þeirra
þremenninga
treður á svið
Örn Árnason,
leikari, en
meðleikari
hans er Jónas
Þórir.
Það er
knattspyrnu-
deild KA
sem sér um
framkvæmd tónleikanna. For-
salan er í KA-heimilinu, í
Veganesti Esso á Akureyri og
verslun KEA-Nettó í Reykjavík.
Forsala hafin á tónleika
Kristjáns Jóhannssonar
Kristján
Jóhannsson
Halla Margrét
Árnadóttir
HÆTTA varð við sýningu á 92 teikn-
ingum eftir ítalska endurreisnarmál-
arann Sandro Botticelli sem fyrir-
huguð var í Metropolitan-safninu í
New York vegna ótta forsvarsmanna
bókasafns Vatíkansins í Róm, sem á
sjö teikninganna, um málsókn vest-
anhafs ef af yrði.
Sýningin var þess í stað opnuð í
Konunglegu listakademíunni í Lund-
únum um síðustu helgi.
Teikningar Botticellis, sem byggj-
ast á ljóðabálkinum „Guðdómlegum
gleðileik“ eftir Dante, hafa ekki ver-
ið saman á sýningu í 500 ár en flestar
koma þær úr safni Kupferstichkab-
inett í Berlín eftir að hafa verið á
dreif á milli safna í Austur- og Vest-
ur-Berlín um langt skeið. Lundúnir
eru síðasti viðkomustaður sýningar-
innar, sem var áður uppi í Berlín og í
Róm.
Sýningarstjóri Konunglegu list-
akademíunnar í Lundúnum lýsir
sýningunni sem „einum af hinum
guðdómlegu endurfundum í vest-
rænni menningarsögu“.
Svo langsótt sem það kann að virð-
ast óttaðist Vatíkanið að teikningar
þess myndu með einhverjum hætti
blandast inn í málarekstur gegn því í
Kaliforníu um brot á einkarétti á
sölu á eftirprentununum teikninga í
eigu bókasafnsins með þeim afleið-
ingum að Botticelli myndirnar yrðu
kyrrsettar vestanhafs.
Fyrir þremur árum voru tvær
myndir eftir austurríska málarann
Egon Schiele kyrrsettar í Banda-
ríkjunum á þeim forsendum að nas-
istar hefðu stolið þeim af réttmætum
eigendum. Óttast safnastjórnendur í
Bandaríkjunum að þetta verði til
þessa að æ erfiðara verði að fá
myndir lánaðar vestur um haf til
sýninga.
Mikil vonbrigði eru á Metropolit-
an-safninu yfir ákvörðun Vatikans-
ins en safnið hafði lengi unnið að því
að fá að setja upp þessa sýningu á
teikningum Botticellis og efar mjög
að annað tækifæri eigi eftir að gefast
á næstu árum eða áratugum.
„Vonbrigðin eru mjög mikil,“ er
haft eftir talsmanni safnsins. „Við
höfum orðið af einstöku tækifæri.“
Digital Press
Fæðing Venusar er eitt af þekktustu verkum Botticellis.
Metropolitan-safnið
verður af Botticelli
New York. Morgunblaðið.