Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 31

Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 31 EFTIR ágæta forkynningu Ing- ólfs Hartvigssonar cand. theol. á tónleikum Kammerkórs Hafnar- fjarðar á sunnudaginn um hugg- unarhlutverk negrasálma og hvernig afrískir þrælar á bökkum Mississippis fundu sér samsvörun með útlægum gyðingum við Níl og Tígris, eins og oft kemur fram af textum þessara sérstæðu laga, gat undirritaður ekki varizt þeim eft- irþanka, að hvítu kúgararnir litu á guðrækni og sálmasöng plantek- rusvertingjanna með velþóknun, þar eð hvort tveggja virtist kenna þrælum að afbera sitt hlutskipti með lofsverðri stillingu. Hins vegar var harðbannað að kenna þeim lestur. Það þótti hættulegt. Álíka hugsanir hljóta annars ósjálfrátt að vakna við það eitt að hlusta á þessi innilegu lög, sem eru með því frumlegasta sem finna má í bandarískum þjóðlagaarfi, enda sprottin af djúpri þörf. Hitt er þó ekki síður merkilegt, hvað negra- sálmar virðast enn í dag hafa mikla tónlistarlega tilhöfðun, jafnvel í þeim föla sveiflu- og trúarhita- sneydda flutningi sem oftast, og kannski óhjákvæmilega, ræður ríkjum í evrópskum flutningi. Þar er vitanlega úr vöndu að ráða hjá áhugafólki, sem hefur hvorki ráð né tíma til að sérhæfa sig í þessari grein. Ein leiðin úr sveifluvandanum er að styðja sönginn með djasshljóm- sveit, líkt og Kammerkórinn gerði að þessu sinni, og bætti um betur með aðstoð söngkonu sem kunn er fyrir blús og skylda tjáningu. Má segja að það hafi heppnazt þokka- lega, þó að píanó og bassi án trommusetts dygðu varla ein sér til að hleypa nægilegu fjöri í mann- skapinn, enda leikurinn afar var- færinn. Á móti kom, að hann yf- irgnæfði aldrei kórinn. Útsetningarnar voru fjölbreyttar og hver annarri betri, og erfitt að gera upp á milli þeirra, enda flutn- ingurinn nokkuð jafntækur út í gegn. En til að nefna eitthvað mætti geta hinnar seiðandi kyrrðar yfir Steal away to Jesus. Give me Jesus og Deep River (með mynd- arlegum einsöng Andreu Gylfa- dóttur í fyrri hluta) reyndu á hæð og færni kórsópransins sem komst snöfurlega frá hvoru tveggja. Hin sáraeinfalda útsetning Guðna Þ. Guðmundssonar á Were you there when they crucified my lord var engu að síður með þeim áhrifa- mestu. Andreu tókst bezt upp í So- metimes I feel like a motherless child, sem minnti mann lítillega á Bessie Smith. Wade in the water (úts. Norman Luboff) var í hæg- asta lagi, en lokanúmerið, Cruci- fixion spiritual, var án vafa með fallegustu atriðum á dagskránni, þrátt fyrir þónokkuð tónhnig. Styrkjafnvægi milli radda í Kammerkór Hafnarfjarðar var með því betra sem heyrist í blönd- uðum kórum, og hendingamótunin fáguð og líðandi. Hins vegar virtist kórinn ekki fara varhluta af vanda flestra blandaðra kóra í tenór, sem stóð tæplega hinum röddunum jafnfætis að hljómgæðum. Helzt þótti manni þó vanta meiri inn- lifun, og sérstaklega gleði, í sam- hljóminn, sem átti til að verka ein- um of sorgbitinn og armæðufullur, og var það ekki eingöngu stöku hnigi í tónstöðu að kenna. Það hef- ur verið sagt áður, en sakar ekki að endurtaka það, að jarðarfarar- svipur kórfélaga ekki aðeins sést, heldur heyrist! Spilamennska djassdúósins var hlédræg og nett, ekki sízt píanó- leikur Gunnars Gunnarssonar. Kontrabassaleikurinn var hæfilega sparneytinn, en þó fór í pirrur undirritaðs að heyra hann elta melódíu viðlagsins í Go down Mo- ses að tilefnislausu. Andrea Gylfa- dóttir stóð sig með prýði þrátt fyr- ir lítið svigrúm til persónulegrar tjáningar og einstaka smálafandi tónhæð handan við bláar nótur, sem varla truflaði nema vandlát- ustu eyru. Huggun harmi gegn TÓNLIST H á s a l i r Bandarískir negrasálmar. Einsöngur: Andrea Gylfadóttir; Gunnar Gunnarsson, píanó; Jón Rafnsson, kontrabassi. Kammerkór Hafnarfjarðar. Stjórnandi: Helgi Bragason. Sunnudaginn 28. marz kl. 17. KÓRTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson GÓÐAR draugasögur eru fínasta efni í kvikmyndir eins og Sjötta skiln- ingarvitið og What Lies Beneath hafa sýnt okkur á síðustu misserum. The Gift, sem frumsýnd var um síð- ustu helgi, er enn ein af þessum ágætu draugamyndum sem þenur taugarnar undir öruggri handleiðslu spennuleikstjórans Sams Raimis. Hún er byggð á handriti eftir leik- arann og kvikmyndagerðarmanninn Billy Bob Thornton og fjallar um miðil eða spákonu. Sagt er að Billy Bob styðjist að einhverju leyti við reynslu móður sinnar sem fæst við svipaðan starfa. Hvað sem því líður er hér í öllu falli á ferðinni glettilega góð spennumynd, drungaleg bæði og myrk úr þeim margnotaða sögustað amerísku bíómyndanna, Suðurríkj- unum, en jafnframt sérstæð saga um vináttu er nær út yfir gröf og dauða. Það er ekki nóg með að Raimi stýri sögunni í höfn af kunnáttusemi og leikni í gerð spennuatriða heldur hef- ur hann fengið í lið með sér einhvern kræsilegasta leikarahóp sem síðari tíma myndir kunna frá að greina og notfært sér allt það besta sem hann hefur fram að færa. Er þar fremst í flokki ástralska leikkonan Cate Blanchett, sem fer með aðalhlutverk- ið og leikur miðilinn af einstökum skilningi á ótta fólks við hana; Hilary Swank er aumkunarverð taugahrúga sem fórnarlamb heimilisofbeldis; Keanu Reeves er ofbeldisfullur skap- ofsamaður en Reeves er ein af fáum Hollywood-stjörnum sem reyna ekki að halda uppi fallegri leikaraímynd; Katie Holmes er fín sem glyðran í smábænum er hlýtur ill örlög og Greg Kinnear er frábær sem sorgbit- inn eiginmaður hennar. Líklega skar- ar þó fram úr þeim öllum Giovanni Ribisi, sem sennilega er besti leikari sinnar kynslóðar vestra, í hlutverki bifvélavirkja sem þarf að kljást við óhugnanlega fortíð. Eins og sjá má er sagan safarík og inn í hana flækjast hinar fjölbreyti- legustu persónur sem þó eiga það all- ar sameiginlegt að lífið fer um þær ómjúkum höndum. Það er hæg stíg- andi í frásögninni á meðan Raimi og félagar eru að kynna persónurnar til sögu og þær kringumstæður sem leiða til þess að lögreglan leitar eftir hjálp miðilsins þegar ung kona hverf- ur með dularfullum hætti, en þegar sagan er farin í gang stoppar hana ekkert. Raimi er leikinn í því að not- færa sér sérstaklega sýnir miðilsins til þess að skapa óhugnað og spennu, einkum er minnisstæður einfættur fiðluleikari í fenjunum umhverfis bæ- inn, og sagan heldur okkur föngnum með óvæntu útspili í lokin. Því í ljós kemur að hér er ekki ein- göngu um spennumynd að ræða sem gerð er spennunnar vegna heldur saga um þá sem þurfa sárlega á hjálp að halda og þá sem geta veitt hana en fá ekki ráðrúm til þess. Hún er um óvenjulega vináttu og full af mann- legum skilningi á örlögum þeirra sem minna mega sín. Þar liggur hinn dramatíski þungi í vitrænni spennu- mynd sem aldrei slakar á klónni. Það sem miðillinn sér KVIKMYNDIR H á s k ó l a b í ó , L a u g - a r á s b í ó o g B o r g a r b í ó A k u r e y r i Leikstjóri: Sam Raimi. Handrit: Billy Bob Thornton og Tom Epper- ton. Framleiðandi: Jim Jack. Aðal- hlutverk: Cate Blanchett, Keanu Reeves, Giovanni Ribisi, Greg Kinnear, Hilary Swank, Katie Holmes. 2000. THE GIFT  Arnaldur Indriðason SÝNING á „Blúndum og blásýru“, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu, verður til styrktar Krýsuvík- ursamtökunum á morgun, fimmtu- dag, kl. 22. Undanfarin ár hefur Borg- arleikhúsið gefið hagnað af einni leiksýningu á ári til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. Hefur þetta starf verið unnið í nánu sam- starfi við Lionsklúbbinn Þór og að þeirra frumkvæði sem hafa stuðn- ing við heimilið sem langtímaverk- efni sitt. Nú eru Lionsklúbbarnir Fjölnir og Þór í samstarfi um að safna saman nægilegu fé til að létta ol- íukyndingarokinu af Krýsuvík- ursamtökunum og gera þeim kleift að nýta gufu úr eigin borholu, nán- ast við bæjardyrnar. Þá má gera ráð fyrir að fé sem annars fer í ol- íukyndingu geti gagnast þeim sem mest þurfa á því að halda, vist- mönnum í Krýsuvík. Hægt er að panta miða í síma 5688000. Aðalleikarar eru Guðrún Ás- mundsdóttir og Hanna María Karlsdóttir í hlutverkum Abbýar og Mörtu. Leiksýning til styrktar Krýsuvíkursamtökunum Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Pétur Einarsson í í leikritinu Blúndur og blásýra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.