Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 39

Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 39 Ertu með flensu eða hálsbólgu? FRÁ APÓTEKIN G æ ða fr am le ið sl a Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 60 ára frábær reynsla. HEILL og sæll Friðrik. Þakka þér kærlega fyrir síðast, þ.e. þegar þú komst á Íslensku auglýs- ingastofuna með kynningu þar sem þú lýstir skoðunum þín- um á auglýsingamálum. Kynningin var skemmtileg og þú sagð- ir ýmislegt sem vit var í. Svo birtist eftir þig grein í Mbl. í gær og þá er eins og þú hafir gleymt öllu. Þú sagðir mér á þessum fundi að oft þyrftir þú að einfalda raunveruleikann til þess að markaðsfólk skildi þig – þess vegna treystir þú þér t.d. ekki til þess að tala um tvo hópa auglýsingastofa A) þær sem standa vel að birtingamálum og B) þær sem standa illa að birtingamálum. Hvernig ferðu að þegar þú þarft að tala annars vegar um kók og hins vegar diet kók? Já ég er svolítið sár. Enda ertu nýbúinn að vera hjá mér og segja mér og mínu fólki að við séum ein af fáum auglýsingastofum sem standi sig vel. Þú sagðir meira að segja að við stæð- um okkur svo vel að enginn viðskipta- vinur hefði komið til Birtingahússins frá Íslensku auglýsingastofunni. Og svo skrifar þú grein og setur alla und- ir sama hatt. Jæja nóg um þetta. Um þjónustulaunin Í grein þinni talar þú um þjónustu- launin og segir þau vera 15% og sýnir svo snilli þína með því að benda okkur hinum á að þetta jafngildi 150.000 kr. af einni milljón. Aftur virðist eitthvað hafa gerst hjá þér síðan við hittumst síðast. Þá vorum við algjörlega sam- mála um að það væri ekki rétt að tala um 15% því þjónustulaunin hér eru reiknuð af nettótölu en ekki brúttó. Ég sagði þér það þegar þú komst að því að meðalþjónustulaun Íslensku auglýsingastofunnar eru rúm 10% en ekki 15%. Þegar þú skrifaðir greinina hefur þú bara verið búinn að gleyma þessu, Friðrik minn, eða varstu kannski bara að einfalda raunveru- leikann til þess að fólk skildi þig? Manstu þegar við vorum saman í London? Þá vorum við sammála um að það væri í raun- inni ekki aðalatriði hversu há þessi hlut- fallstala væri, það sem skipti mestu væri hvað menn væru að fá fyrir peninginn. Og það er kannski mergur máls- ins. Hvað gerist ef við tökum birtingarnar af auglýsingastofunum? Hvað heldur þú, Frið- rik? Heldur þú að það sé tilviljun að tímaverð á auglýsingastof- um í Skandinavíu og á Bretlandi sé þrisvar til fimm sinnum hærra en hér? Leyfðu mér að segja þér af hverju við þurfum að hækka tímaverð ef birtingarnar fara frá okkur. Það er ekki vegna þess að hönnunin sé nið- urgreidd af birtingum – eins og ég hef oft sagt þér áður. Það er vegna þess að við þurfum að halda áfram þau gögn sem birtingadeildin kaupir í dag, til þess að tryggja að við þekkj- um miðlana sem auglýsingarnar birt- ast í og til þess, ásamt öðru, að tryggja að við gerum réttar auglýs- ingar. Hvað er að birta rétt? Friðrik, þú segir í greininni: „Stof- an hagnast mest á því að láta auglýs- andann auglýsa sem mest á sem stystum tíma en hag auglýsandans er í flestum tilfellum best borgið með því að auglýsa sem minnst en sem lengst.“ Ja hérna. Hag Íslensku aug- lýsingastofunnar er ekki best borgið með því að fá viðskiptavini sína til þess að auglýsa sem mest heldur með því að veita viðskiptavinum sínum rétta og heiðarlega ráðgjöf á öllum sviðum markaðsfærslunnar. Og það er það sem við keppumst við að gera. Ég get sagt þér, Friðrik, að viðskipta- vinir Íslensku auglýsingastofunnar eru það skynsamt og vel menntað fólk að það léti okkur aldrei komast upp með að ráðleggja því einhverja vit- leysu. Auðvitað veistu þetta – en eins og áður ert þú að einfalda raunveru- leikann til þess að fólk skilji þig. En satt að segja, Friðrik minn, þá held ég að fólk eigi ekki í neinum erfiðleikum með að skilja þig – sumir hafa bara aðrar skoðanir. Það að hag auglýsandans sé í flest- um tilfellum best borgið með því að auglýsa sem minnst en sem lengst er vafasöm fullyrðing sem mjög margir af helstu sérfræðingum birtingafræð- anna myndu varla skrifa undir. Þetta fer að sjáfsögðu eftir stöðu vöru- merkisins sem er verið að vinna með, vörutegundinni, fjárhagslegri stöðu fyrirtækisins o.s.frv. Á þetta bendir OMD sem er eitt stærsta birtingafyr- irtæki heims og samstarfsaðili Ís- lensku auglýsingastofunnar. Þeir stunda mjög umfangsmiklar rann- sóknir og benda á að mynstur í aug- lýsingabirtingum sé ákaflega marg- breytilegt. Nýlegar rannsóknir benda m.a. til, að það að kaupa jafnt og lítið yfir langt tímabil geri það að verkum að eftirtekt (awareness) á markaði haldist lág og stöðug. Breyti menn hinsvegar um og noti sama fjármagn til að kaupa meira í styttri lotum (bursts) og láti líða tíma á milli þá takist að ná mun meiri eftirtekt á markaði. Þá hefur það komið fram í rannsóknum hjá bæði OMD og t.d. Carat (stærsta óháða birtingahúsið í Evrópu) að kaup á GRP-punktum (Gross Rating Points) í verulegu magni í eina viku flytur yfir allt að 60% af virkni auglýsinganna (gerum ráð fyrir að þær séu vel gerðar) til næstu viku á eftir og allt að 40% í 3. viku og svo koll af kolli. Hvað þýðir að vera stærstur, Friðrik? Þú talar um í grein þinni að Birt- ingahúsið sé stærsti einstaki birt- ingaaðili á landinu. Friðrik minn. Þú verður að passa þig, því oft eru menn dæmdir eftir vitleysunni sem þeir láta út úr sér. Þegar horft er á veltu í sjónvarpi, útvarpi og dagblöðum það sem af er árinu er Íslenska auglýs- ingastofan næstum þrisvar sinnum stærri en Birtingahúsið og Gott fólk að minnsta kosti helmingi stærra. Hvernig í ósköpunum færðu út að Birtingahúsið sé stærsti einstaki birt- ingaaðilinn? Hér ertu ekki bara að einfalda raunveruleikann heldur beinlínis að fara með tóma vitleysu, sem er langt fyrir neðan þína virð- ingu. Ekki satt? Þú segir að lítið sem ekkert hafi gerst á auglýsingastofunum varðandi aukin gæði og meiri fagmennsku í birtingum. Við höfum ekki tekið neitt stökk eftir að þú komst fram á sjón- arsviðið, en Íslenska auglýsingastof- an hefur í 10 ár fjárfest fyrir a.m.k. 5–7 milljónir á ári í tækjum, gögnum, blöðum og endurmenntun fyrir birt- ingafólkið. Við búum yfir bestu mögu- legu gögnum, öllum nauðsynlegum tækjum og tólum og starfsfólki með gríðarlega mikla reynslu á sviði birt- inga, reynslu sem finnst óvíða annars staðar – til dæmis alls ekki á Birt- ingahúsinu. Friðrik minn. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Ég fagna að sjálfsögðu allri samkeppni og ég er sammála þér í því að hún er af hinu góða. En reynum nú að fjalla um þessi mál af heiðarleika og skynsemi, forðumst að einfalda raunveruleikann of mikið og segja ósatt. Reynum að stuðla í sameiningu að faglegri birt- ingum á Íslandi sem er hagur okkar allra, jafnt fyrirtækja sem auglýs- ingastofa. Um sannsögli, skyn- semi og birtingahús Atli Freyr Sveinsson Auglýsingar Reynum nú að fjalla um þessi mál af heiðarleika og skynsemi, segir Atli Freyr Sveinsson í opnu bréf til Friðriks Ey- steinssonar. Höfundur er markaðsstjóri Íslensku auglýsingastofunnar. NÚ hefur nýjasta sprengjan í íslenskum stjórnmálum litið dags- ins ljós, einkarekinn hverfisskóli í Áslandi. Sem að mínu mati virð- ist vera vanskapað af- sprengi hugmyndafræði meirihlutans í Hafnar- firði. Valkostur eða úrslitakostur Einkaskólar geta í sumum tilvikum verið góður kostur. Ísaks- skóli, Tjarnarskóli og hinir ýmsu tónlistar- skólar eru ágætt dæmi um það. Það er hins vegar ekki rétt að skylda börn í þessa skóla eins og gert er nú í Ás- landi. Einkaskólar eiga að vera val- möguleikar í menntun barna, ekki úr- slitakostir. Grunnhugmyndir velferðarkerfis- ins byggjast á því að allir eigi rétt á sömu menntun. Það að sumir verði að ganga í einkarekna skóla meðan aðrir fara í hina venjulegu bæjarskóla er því hrein og klár mismunun. Á móti kemur að foreldrum er frjálst að senda krakkana sína í hvaða skóla sem er innan bæjarfélagsins. Mér er ekki kunnugt um að bærinn ætli að styrkja þessa foreldra sér- staklega með ferðakostnað fyrir börnin. Ætlar kannski Magnús Gunnars- son að skutla þeim börnum, sem ekki vilja ganga í Áslandsskóla, annað. Hann hefur væntan- lega nægan frítíma eft- ir næstu kosningar. Skemmtileg tilraun? Hverjar eru svo ástæðurnar fyrir þessu framtaki? Eru hafn- firskir skólar svona illa reknir? Eru kennarar og skólastjórnendur ekki starfi sínu vaxnir? Meirihlutinn í Hafnar- firði hefur staðið sig svo illa í skólamálum að hann þarf að skorast undan lögbundinni skyldu sinni við hafnfirsk ungmenni. Þetta hefur hann gert með undan- þágu frá menntamálaráðherra. Hingað til hefur meirihlutinn ekki komið fram með haldbær svör við því hvers vegna þarf að stíga svona rót- tækt skref í skólamálum bæjarins. Eina sem hann hefur bent á er að hugmyndin sé skemmtileg og að þetta sé spennandi tilraun. En kjarni málsins er að þú framkvæmir ekki skemmtilegar tilraunir með börn sem tilraunadýr. Peningavit Hvernig á rekstraraðili að reka skólann fyrir minni fjárhæðir en Hafnarfjarðarbær myndi gera? Samkvæmt grein 2.1.2 í útboðs- gögnum mun tilvonandi rekstraraðili meta sjálfur þörf fyrir faglærða kenn- ara. Það leiðir líklega til þess að rekstraraðili taki til sín reynslulitla eða ófaglærða kennara, þeir eru jú ódýrara vinnuafl samkvæmt núgild- andi kjarasamningum. Er það for- svaranlegt? Ég held ekki. Í vel reknum sveitarfélögum eru skólastjórar ráðnir á svipuðum tíma og arkitektarnir sem teikna skólann, til þess að taka þátt í undirbúningi og skipulagi skólastarfsins. Ef enginn býður í verkið eða sé útboðið óhag- stætt þá situr bærinn eftir tómhentur án skólastjóra eða kennara. Þá eru aðeins tveir mánuðir í að kennsla hefjist sem er augljóslega allt of stutt- ur tími til að manna og skipuleggja heilt skólaár. Ef þetta verður raunin þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn svo sannarlega misst af skólabílnum. Við lifum í þjóðfélagi þar sem pen- ingar skipta allt of miklu máli. Vera má að einhver fjárhagslegur ávinn- ingur verði af þessu fyrir rekstrarað- ilann og Hafnarfjarðarbæ. Ég tel hins vegar að það sé ekki þess virði að stofna framtíð bæjarins í hættu fyrir fáeinar krónur. Er skemmtileg tilraun einhver ástæða fyrir því að senda æsku Hafn- arfjarðar út í óvissuna. Nei! Ég held að þessi tilraun sé ekki tilraunarinnar virði. Kennsla í öðru sæti Þegar öllu er á botninn hvolft mun lokatakmark rekstraraðila skólans alltaf vera að græða sem mest á her- legheitunum. Kennslan mun skipa annað sætið. Þar af leiðandi verður að skera einhvers staðar niður. Hverjir verða út undan og hverjum verður hampað? Þetta eru þær spurningar sem ég held að Hafnfirðingar hljóti að spyrja sig að. Börn í Áslandi: 99 kr/kg? Andri Ólafsson Kennsluútboð Meirihlutinn hefur ekki komið fram með hald- bær svör við því, segir Andri Ólafsson, hvers vegna þarf að stíga svona róttækt skref í skólamálum bæjarins. Höfundur er formaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Hrei nsum viðar-, rimla-, strimla-, plíseruð- og sólargluggatjöld. Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634. Iðnbúð 1, 210 Garðabæ sími 565 8060 Nýtt Nýtt Afskorin blóm 20% afsláttur í mars

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.