Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 46

Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 46
MINNINGAR 46 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ákveðið hefur verið að stofna barna- kór og kórskóla við Dómkirkjuna í Reykjavík undir stjórn Kristínar Valsdóttur. Kórinn tekur formlega til starfa í haust en innritun hefst nú á vordögum með það í huga að stilla saman strengi og raddir og hittast svo spræk að loknu sumarleyfi. Föstudaginn 23. mars og þriðju- daginn 27. mars fer skráning félaga fram kl. 16.00–18.00. Þar mun Mar- teinn H. Friðriksson dómorganisti og söngstjóri ásamt Kristínu Vals- dóttur, stjórnanda barnakórsins, taka á móti áhugasömum söngvur- um í skráningu og prufusöng. Fyrirhugað er að hefja æfingar strax í þeirri viku eða 30. mars og æfa saman fram í miðjan maí. Æft verður í Dómkirkjunni á þriðjudög- um og föstudögum: 8–10 ára kl. 16.00–17.00, 10 ára og eldri kl. 17.00–18.00. Hugsanlega munu þess- ir æfingatímar breytast í haust og þá í samráði við foreldrafélag sem áformað er að taki til starfa sam- hliða kórnum. Markmiðið með stofnun þessa kórskóla og barnakórs er að auka enn á annars blómlegt barna- og unglingastarf við Dómkirkjuna með því að gefa þeim krökkum, sem áhuga hafa, kost á að iðka og njóta tónlistar í metnaðarfullu og skemmtilegu samstarfi við aðra. Innheimt verður svokallað nótna- gjald á hvern þátttakanda, 1.000 kr. á önn. Rennur það til kaupa á nótna- bókum sem kórfélagar munu eign- ast. Stórólfshvolskirkja, Hvolsvelli TAIZÉ-HELGISTUND verður í kvöld, miðvikudag 22. mars, kl. 20.15. Heillandi samverustund. Sérstæð, hrífandi tónlist sem allir geta sung- ið. Syngjum saman, biðjum saman, gleðjumst saman. Hafið samband við sóknarprest um fyrirbænir. Áskirkja. Föstumessa kl. 20. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Allar mæður velkomnar með lítil börn sín. Samvera eldri borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna- stund, kaffiveitingar og samræður. TTT-starf (10–12 ára) kl. 16.30. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10–12. Pass- íusálmalestur kl. 12.15. Biblíulestur kl. 20. Háteigskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 11–16 í Setrinu í umsjón Þórdísar Ásgeirsdóttur, þjónustufulltrúa. Við minnum á heimsóknarþjónustu Háteigskirkju, upplýsingar hjá Þórdísi í síma 551- 2407. Kórskóli fyrir 5–6 ára börn kl. 16. Barnakór 7–9 ára kl. 17. Kvöld- bænir og fyrirbænir í dag kl. 18. Langholtskirkja. Opið hús kl. 11–16. Heilsupistill, léttar líkamsæfingar og slökun í Litla sal. Kyrrðar- og bænastund, orgelleikur og sálma- söngur í kirkjunni. Létt máltíð (500 kr.) í stóra sal. Spilað, hlustað á upp- lestur og málað á dúka og keramik. Kaffisopi og smákökur kl. 15. Að lokum er söngstund með Jóni Stef- ánssyni. Eldri borgarar eru sérstak- lega velkomnir en stundin er öllum opin. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Kirkjuprakkarar, 6–7 ára, kl. 14.10. Fermingarfræðsla kl. 19.15. Unglingakvöld Laugarnes- kirkju og Þróttheima kl. 20, 8. bekk- ur. Neskirkja. Orgelandakt kl. 12. Reynir Jónasson. Ritningarorð og bæn. Starf fyrir 7 ára börn kl. 14–15. Opið hús kl. 16. Föstuguðsþjónusta kl. 20. Myndasýning að lokinni guðs- þjónustu frá ferðinni í Bláa lónið. Súkkulaði og rjómavöfflur í safnað- arheimili. Sr. Frank M. Halldórsson. Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl. 20.30. Klara Hilmarsdóttir guð- fræðinemi predikar. Biblíulestur út frá 30. Passíusálmi. Krumpaldins- kaffi. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Léttur málsverð- ur á eftir í safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11–12 ára börn kl. 17. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra. Opið hús í dag kl. 13–16. Hand- mennt, spjall og spil. Fyrirbænaguð- sþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnaðarins. Kirkjuprakkarar, 7–9 ára, kl. 16–17. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17–18. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu eftir stundina. Kirkju- prakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.15. Digraneskirkja. Æskulýðsstarf KFUM&K og Digraneskirkju fyrir 10–12 ára drengi kl. 17.30. Ung- lingastarf KFUM&K og Digranes- kirkju kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Léttur hádegis- verður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Opið hús fyrir fullorðna til kl. 14. Bænar- og þakkarefnum má koma til Lilju djákna í síma 557- 3280. Látið einnig vita í sama síma ef óskað er eftir akstri til og frá kirkju. Starf fyrir 9–10 ára stúlkur kl. 15–16. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr- irbænir. Boðið er upp á léttan há- degisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi, 9–12 ára, kl. 16.30– 17.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 18–19. KFUK fyrir stúlkur, 12 ára og eldri, annan hvern miðviku- dag kl. 20.30–21.30. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Kópavogskirkja. Samvera 8–9 ára barna í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. TTT-sam- vera 10–12 ára barna í dag kl. 17.45– 18.45 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Léttur kvöldverður að stund lokinni. Tekið á móti fyrir- bænaefnum í kirkjunni og í síma 567-0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna, kl. 10–12 í safnaðarheimilinu. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14–16.30. Helgistund, spil og kaffi. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.12, altarisganga og fyr- irbænir. Léttur hádegisverður kl. 12:30–13.00. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshóp- ar. Umsjón Ásta Sigurðardóttir, cand. theol. Alfanámskeið í Kirkju- lundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. Ytri-Njarðvíkurkirkja. STN-starf í dag kl. 16.30 í umsjá Vilborgar Jóns- dóttur og er ætlað börnum 6 til 9 ára. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Opið hús fyrir unglinga í 8.–10. bekk í KFUM&K-húsinu kl. 20. Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18. Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur, ung- lingafræðsla, kennsla fyrir ensku- mælandi og biblíulestur. Allir hjart- anlega velkomnir. Boðunarkirkjan. Námskeið dr. Steinþórs Þórðarsonar, „Lærum að merkja biblíuna“, í kvöld kl. 20. Mörg spennandi efni verða tekin fyrir og biblían verður aðgengilegri. Allir velkomnir. Kapella sjúkrahúss Hvammstanga. Bænastund í dag kl. 17. Allir vel- komnir. KEFAS. Samverustund unga fólks- ins kl. 20. Samband íslenskra kristniboðs- félaga, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Hjónin Elísabet Jónsdóttir og Bjarni Gíslason sjá um efni samkomunnar. Allir velkomnir. Eyrarbakkakirkja. Messa föstu- dagskvöld kl. 20. Biskup Íslands heimsækir söfnuðinn. Barnaguðs- þjónusta nk. sunnudag kl. 11. Stokkseyrarkirkja. Messa fimmtu- dagskvöld kl. 20. Biskup Íslands heimsækir söfnuðinn. Gaulverjabæjarkirkja. Messa föstu- dag kl. 15. Biskup Íslands heimsæk- ir söfnuðinn. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Dómkirkjan. Safnaðarstarf Kórskóli og Barnakór Dómkirkj- unnar Hann var ekki stór árgangurinn sem brautskráðist frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1956 þótt menntaskólarnir í landinu væru ekki nema þrír á þeim árum. Við vorum 47 bekkjarsystk- inin og nú eru sex látin. Í þessum hópi var Guðmundur J. Guðjónsson sem varð bráðkvaddur 12. mars sl. Guðmundur kom frá Reykjavík eins og fleiri mætir nemendur í M.A. á þessum árum. Hann var þremur árum eldri og þess vegna nokkuð þroskaðri og lífsreyndari en flest okkar hinna. Meðal annars hafði Guðmundur fengið réttindi sem atvinnubílstjóri áður en við luk- um stúdentsprófi og nokkrir okkar fengu sitt fyrsta tækifæri til að aka bíl undir rólegri og yfirvegaðri leið- sögn hans. Guðmundur hafði næmt skopskyn en virtist vera vaxinn upp úr því að sækjast eftir þátttöku í ungæðislegum manndómsærslum okkar hinna en hann fylgdist samt grannt með þeim, jákvæður og kankvís. Ég bar virðingu fyrir hon- um þegar á skólaárunum og tók mikið mark á því sem hann sagði. Eftir stúdentspróf hóf Guðmund- ur nám í læknisfræði en vann jafn- framt fyrir sér og fjölskyldu sinni sem leigubílstjóri. Í árslok 1966 unnum við saman í 3 mánuði sem læknar í Hvammstangahéraði og þá sannfærðist ég um að hann hafði valið rétt þegar hann ákvað að verða læknir. Hann var íhugull, gaf sér góðan tíma til að hlusta, var traustvekjandi, átti auðvelt með að mynda jákvæð tengsl við þá sem til hans leituðu og ákvarðanir hans voru farsælar. Og þar sem hann var alveg einstaklega handlaginn kom það mér ekki á óvart að hann skyldi sérhæfa sig í bæklunarskurðlækn- ingum. Hann mun hafa verið sér- lega hæfur í því starfi og ég veit að þeir eru margir sem eiga góðri dóm- greind hans og handlagni mikið að þakka, þar á meðal einhver skóla- systkina okkar úr M.A. Sérgrein mín í læknisfræði er þess eðlis að hún gefur ekki mörg GUÐMUNDUR JÓN GUÐJÓNSSON ✝ Guðmundur JónGuðjónsson fæddist 19. júlí 1933 í Reykjavík. Hann varð bráðkvaddur í Neskaupstað 12. mars síðastliðinn. Útför hans fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 19. mars. tækifæri til að vísa sjúklingum til bæklun- arskurðlækna. Fyrir nokkrum árum ráð- lagði ég þó konu, sem ég var að reyna að hjálpa, að leita til Guð- mundar. Þessi mann- eskja hafði átt við margvíslega og erfiða vanheilsu að stríða um árabil og hafði þess vegna leitað til fjölda lækna en með litlum árangri. Hún var þess vegna orðin nokkuð bitur og kvaðst vera orðin afar þreytt á læknum en lét þó til leiðast að fara til Guðmundar. Þegar ég hitti hana næst ljómaði hún beinlínis af ánægju. Loksins hafði hún fundið lækni sem gaf sér nægan tíma til að hlusta á langa og margbrotna sjúkrasögu hennar, rannsaka hana gaumgæfilega og út- skýra síðan, þannig að hún skildi, hvaða valkostir væru í boði til þess að ráða bót á þeim verkjum sem hún hafði frá baki, mjöðmum og fót- leggjum. Ég er sannfærður um að Guðmundur hefur líknað mörgum fleirum sem hafa átt við svipuð vandamál að stríða. Ég veit að Guðmundi hugnuðust ekki þær kröfur um færibandavinnu sem gerðar hafa verið í vaxandi mæli til sjúkrahúsa undanfarin ár í hagræðingarskyni. Slíkar kröfur samrýmdust einfaldlega ekki eigin- leikum og eðliskostum Guðmundar. Það kom því ekki á óvart þegar hann hætti fyrir nokkrum árum að vinna á bæklunarskurðdeild Land- spítalans. Síðustu árin vann hann við mjög góðan orðstír á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Nú þegar hann er fallinn frá fyrir aldur fram veit ég að margir munu sakna hlýjunnar og velvildarinnar sem geislaði frá honum. Ég sendi eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum innilegar sam- úðarkveðjur frá okkur Guðrúnu og bekkjarsystkinum hans frá Menntaskólanum á Akureyri. Blessuð sé minning Guðmundar Guðjónssonar. Helgi Valdimarsson. Kveðja frá Reykjalundi Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Þessar línur Hávamála koma helst í hugann andspænis þeirri staðreynd að æviskeið Guðmundar Guðjónssonar er nú á enda runnið, löngu fyrr en við mátti búast. Í tuttugu ár, frá l976 til l996, var Guðmundur ráðgefandi sérfræðing- ur á Reykjalundi á sviði bæklunar- skurðlækninga. Því hlutverki sinnti hann af einstakri skilvirkni. Al- mennt er álitið að bæklunarskurð- læknar verði að vera smiðir góðir, vera laghentir og hafa fullkomna samstjórn augna og handa. Þetta átti vissulega við um Guðmund en hann var einnig búinn öðrum dýr- mætum eiginleikum sem læknum er brýnt að rækta með sér. Má þar nefna vingjarnlegt viðmót og traustvekjandi framkomu gagnvart sjúklingum og aðstandendum. Þeir eiginleikar voru Guðmundi eðlis- lægir og augljósir í fari hans. Hann gaf sér ávallt tíma til að ræða við sjúklinga sína svo lengi og svo oft sem þeir þurftu á að halda, útskýra fyrir þeim stöðu mála og gera grein fyrir meðferðaráformum, allt á tungu sem þeir skildu. Um leið og þökkuð er tveggja áratuga þjónusta Guðmundar til handa skjólstæðingum Reykjalund- ar og lærdómsrík samvinna eru konu hans og afkomendum sendar innilegar samúðarkveðjur. Haukur Þórðarson, fv. yfirlæknir. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöð- ugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstak- ling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur afmælis- og minning- argreina KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.