Morgunblaðið - 21.03.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.03.2001, Qupperneq 48
BOÐIÐ er upp á nýtt þýskupróf fyr- ir námsmenn sem ætla að stunda nám í Þýskalandi. Með þetta nýja TestDaF-próf er nú í fyrsta skipti boðið upp á staðlað, miðlægt þýsku- próf og það er hægt að taka þetta próf við þýskuskor Háskóla Íslands. Háskóli Íslands – þýskuskor er þar með með fyrstu TestDaF-prófstöð- um um allan heim. Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem prófið er haldið er skráningartíma- bilið stutt. Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 23. mars 2001. Áríðandi er að þeir sem hyggjast taka prófið hafi samband við Peter Weiss, sendikennara við HÍ, sem fyrst weiss@hi.is. Prófið verður haldið hinn 26. apríl 2001. Próftöku- gjald er 7.200 krónur. Prófið verður næst haldið í nóv- ember en þá verður skráningartíma- bilið lengra. Frekari upplýsingar: www.testdaf.de. Þýskupróf við HÍ Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði hélt ársfund sinn 13. mars sl. Aðalfundarefni var samstarf hjúkrun- arfræðideildar og Landspítala – háskóla- sjúkrahúss. Með tilurð Landspítala sem há- skólasjúkrahúss þarf að leggja aukna rækt við samþættingu rann- sókna, kennslu og klín- ísks starfs í heilbrigð- isvísindum, sérstaklega hjúkrunar- og ljósmóð- urfræði. Í því skyni þarf að efla tengsl Landspítala og hjúkr- unarfræðideildar. Framsögumenn á fundinum voru: Páll Skúlason, háskólarektor, Marga Thome, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar, Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss, Anna Stef- ánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Land- spítala – háskólasjúkrahúss, Gísli Einarsson, framkvæmdastjóri Skrifstofu kennslu og fræða Land- spítala – háskólasjúkrahúsi, Helga Jónsdóttir, formaður stjórnar Rannsóknastofnunar í hjúkr- unarfræði, og Ragnheiður Ósk Er- lendsdóttir, sérfræðingur á Rann- sóknastofnun í hjúkrunarfræði og verkefnisstjóri á barnasviði Land- spítala – háskólasjúkrahúss. Á fundinum voru Maríu Finns- dóttur, fyrrverandi fræðslustjóra Hjúkrunarfélags Íslands, og Sól- eyju S. Bender, lektor, veittar við- urkenningar fyrir rannsókna- og frumkvöðulsstörf. Viðurkenning fyrir rannsókna- og frumkvöðulsstörf María Finnsdóttir, fyrrv. fræðslustjóri Hjúkr- unarfélags Íslands, t.v., og Sóley S. Bender lektor hlutu viðurkenningar á fundinum. Málþing um streitu Náttúrulækningafélag Ís- lands gengst fyrir málþingi um streitu á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 22. mars kl. 20 þar sem fagfólk með þekkingu á streitu verður með framsögu og situr fyrir svörum. Frummælendur verða: Margrét Arnljótsdóttir, sál- fræðingur, Þórhallur Heimis- son, prestur, Ólafur Mixa, læknir og Bridget McEvoy, verkefnisstjóri í hjúkrun HNLFÍ. Auk þeirra taka þátt í umræðum: Sigríður Eysteins- dóttir, næringarfræðingur HNLFÍ, Helga Mogensen, jógakennari og Björg Árna- dóttir, framkvæmdastjóri Heilsuverndar ehf. Árni Gunn- arsson framkv.stj. HNLFÍ verður fundarstjóri. Í fréttatilkynningu segir: „Í Heilsustofnun NLFÍ í Hvera- gerði eru nú í boði sérstakir heilsudagar í forvarnarskyni, þar sem fólki er kennt að of- bjóða sér ekki – brenna ekki út. Fyrirlestrar eru haldnir um margvísleg efni sem snerta lík- ama og sál. Þar koma að verki læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, næringarfræð- ingur, sálfræðingur og fleiri. Á heilsudögum, sem er viku- námskeið, er lögð megin- áhersla á slökun, hvíld, léttar líkamsæfingar og hollt mat- aræði auk umræðna og fyrir- lestra.“ FRÉTTIR 48 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ MAREL hf. hefur gefið véla- og iðn- aðarverkfræðiskor Háskóla Íslands 25 hugbúnaðarleyfi og voru þau af- hent þann 14. mars. Um er að ræða 25 SolidWorks leyfi en SolidWorks er eitt fullkomnasta hönnunarkerfi sem völ er á, segir í fréttatilkynn- ingu. Leyfin eru kærkomin viðbót við hugbúnað véla- og iðnaðarverk- fræðiskorar og mun forritið nýtast við kennslu í ýmsum verkfræði- greinum. Með þessu fá nemendur tækifæri til þess að vinna í einu helsta hönn- unarumhverfi á markaðnum. Stuðningur sem þessi er mjög mikilvægur fyrir deildina og styrk- ir tengsl Háskólans við atvinnulífið. Marel hefur um árabil lagt áherslu á góð tengsl við háskólastofnanir í landinu og er gjöf þessi einn þáttur í að styrkja þau tengsl. Umtalsverður hluti nýhönnunar hjá Marel hf fer nú fram í Solid- Works en fyrirtækið hefur fest kaup á 9 leyfum. Í kjölfar þess kom Vidar Kvam, fulltrúi ProNor í Nor- egi, umboðsmanns SolidWorks á Ís- landi, til landsins og hélt hann tveggja daga námskeið fyrir starfs- menn Marel hf auk nokkura gesta. Námskeiðið var haldið 13. og 14. mars í húsakynnum Endurmennt- unarstofnunar Háskólans. Gjöfin afhent. Frá vinstri: Sigurður Brynjólfsson, prófessor í vélaverk- fræði, Valdimar K. Jónsson, deildarforseti verkfræðideildar, Vidar Kvam, starfsmaður ProNor í Noregi, umboðsmanns SolidWorks á Ís- landi, og Helgi Hjálmarsson, verkfræðingur hjá Marel hf. Marel hf. styrkir véla- og iðnaðarverkfræðiskor HÍ Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heillandi borgar á verði sem hefur aldrei fyrr sést. Þú bókar tvö sæti til Prag, en greiðir bara fyrir 1, og kemst til fegurstu borgar Evrópu á frábærum kjörum. Hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela og fararstjórar Heimsferða bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Gildir út 1.apríl - heim 5.apríl. Tveir fyrir einn til Prag 1. apríl frá kr. 16.770 Verð kr. 16.770 Flugsæti p.mann, m.v. 2 fyrir 1. 27.900 / 2 = kr. 13,950 Skattar kr. 2.820 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á Iðnþingi Samtaka iðn- aðarins í síðustu viku: „Iðnþróun byggist á markvissu langtíma vöruþróunar- og markaðs- starfi. Stöðugleiki og friður í ís- lensku efnahagslífi undanfarin ár hefur skilað raunvexti í almennum iðnaði og byggingariðnaði á árunum 1995–1999 sem er meiri en 6% á ári að meðaltali og enn meiri í upplýs- ingatækni. Þetta er árangur sem ekki má fórna. Hátt gengi, há laun og háir vextir vega að samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Markaðshlutdeild þeirra minnkar og halli á viðskiptum við út- lönd eykst. Um leið hægir merkj- anlega á efnahagslífinu eins og veltutölur fyrirtækja sýna. Spáð er samdrætti í fjárfestingum sem hafa verið miklar undanfarin ár. Stjórn- völd hafa boðað að vænta megi vaxta- og skattalækkana en þær hafa ekki verið tímasettar. Hættan er sú að beðið verði of lengi. Harðar aðhaldsaðgerðir á sama tíma og afkoma fyrirtækja versnar og hlutabréfaverð hríðfellur geta leitt til skyndilegs samdráttar í fjár- festingum og þar með hættu á harðri lendingu efnahagslífsins. EES-samningurinn hefur reynst vel en dugir ekki til frambúðar. Til þess eru margar ástæður. Jafnvæg- ið milli aðila samningsins hefur raskast og samningurinn þróast ekki í takt við það sem gerist innan ESB. Enn er þó ótalið veigamesta atriðið. Íslenska krónan er of dýru verði keypt. Hún skapar vandamál í hagstjórn, veldur óþarfa vaxtabyrði og gengissveiflum sem bitna á fyr- irtækjum og rekstrarskilyrðum þeirra. Lítil og veik mynt hindrar eðlilegar fjárfestingar innlendra og erlendra fyrirtækja á Íslandi. Mikill meirihluti (62%) félagsmanna í Sam- tökum iðnaðarins er þeirrar skoð- unar að aðild að Evrópusambandinu sé efnahagslega hagkvæm. Einungis 15% telja að aðild að Evrópusam- bandinu yrði efnahag Íslands til tjóns.“ Aðild að Evrópusambandinu efnahagslega hagkvæm EGGERT Eggertsson lyfja- fræðingur fjallar um lyfjafræði fyrir almenning á námskeiði sem haldið er af Heilbrigðis- skóla Fjölbrautaskólans við Ár- múla, 2. og 5. apríl. kl. 20–22.15. Í fréttatilkynningu segir: „Allir þurfa einhvern tíma á lífs- leiðinni að taka lyf um lengri eða skemmri tíma. Lyfjategundum fjölgar stöðugt og notkun lyfja eykst. Verkun lyfja er misvel þekkt meðal almennings og heil- brigðisstétta, sem þurfa að hafa sig allar við til að fylgjast með örum breytingum á lyfjamark- aði. En það er ekki síður nauð- synlegt að fræða almenning um lyf. Í opinberri umræðu er helst fjallað um lyfjakostnað, en nauð- synlegt er að fjallað sé um hvað lyf geta gert fyrir okkur og hvernig eigi að nota þau með góðum árangri, ekki síst þar sem mörg lyf er hægt að kaupa án milligöngu lækna.“ Námskeiðið kostar 4.500 kr. Skráning fer fram virka daga kl. 9–12 í síma Fjölbrautaskóla Ár- múla og á vefnum www.fa.is/si- menntun. Námskeið í lyfjafræði fyrir almenning AUÐUR í krafti kvenna stefnir á að skila árangri til íslenska hagkerf- isins með því að nýta betur þann auð sem í konum býr og hvetja þær til frumkvæðis og nýsköpunar. Mark- miðið er að auka þátttöku kvenna í atvinnusköpun og efla þau fyrirtæki sem eru í eigu kvenna. „Árangurinn mun skila íslensku hagkerfi auknum hagvexti,“ segir í frétt um verkefnið og síðan segir: „Auður tileinkar einn vinnudag á ári dætrum Íslands og í ár er dag- urinn 10. apríl 2001. Þennan dag mun ungum stúlkum verða boðið með fullorðnum til vinnu. Markmið- ið er að kynna þeim þau atvinnu- tækifæri sem til eru. Ungu stúlkur dagsins í dag eru starfskraftar framtíðarinnar og þær eru kynslóð- in sem mun breyta kynjahlutföllum hinna ýmsu starfsgreina. Með því að opna alla vinnustaði fyrir ungum stúlkum einn dag á ári gefum við þeim tækifæri til að kynnast þeim fjölbreyttu möguleikum sem at- vinnulífið hefur að bjóða. Í fyrra var „Dæturnar með í vinnuna“ haldið í fyrsta skiptið og fékk frábærar mót- tökur. Yfir 2000 ungar stúlkur tóku þátt í fyrra og voru mjög ánægðar með daginn.“ Auður skorar á fyrirtæki að taka vel á móti stúlkum landsins með því að skipuleggja fræðandi og skemmtilega dagskrá. Foreldrar eru einnig hvattir til að taka dætur landsins með sér í vinnuna þennan dag. Heimasíðan er www.ru.is/audur/ daeturnar.htm. Einnig er hægt er að fá nánari upplýsingar hjá verk- efnastjórn Auðs í krafti kvenna með því að senda póst á audur@ru.is. Dæturnar með í vinnuna FÉLAG þjóðfræðinga heldur kvöld- vöku í sal Sögufélagsins, Fischer- sundi 3, fimmtudaginn 22. mars kl. 20.30. Katla Kjartansdóttir og Unn- ur Steingrímsdóttir hafa báðar ný- lokið BA-prófi í þjóðfræði við Há- skóla Íslands og munu þær kynna lokaverkefni sín. Ritgerð Kötlu „Lífið er dýrt, dauð- inn þess borgun. Trú og tákn í tengslum við íslenska andláts- og út- fararsiði á 20. öld“ tekur til umfjöll- unar slíka siði á fyrri hluta aldarinn- ar fram undir hana miðja og sambærilega siði og viðhorf í sam- tímanum. Ritgerð Unnar ber titilinn „Cog- ito, ergo sum“ og fjallar um persónu- lega trúarmótun fimm íslenskra kvenna. Rannsóknin byggir á viðtöl- um og leitast höfundur við að skil- greina hvaða þættir í lífshlaupi og umhverfi kvennanna höfðu áhrif á trúarþróun þeirra og heimsmynd. Þjóðfræðingar halda kvöldvöku
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.