Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 17
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
OPIÐ HÚS Í KVÖLD
FLÓKAGATA 27 - OPIÐ HÚS
Sjarmerandi 6-7 herb. 127 fm hæð og
ris á þessum eftirsótta stað. Tvær til
þrjár rúmg. stofur og þrjú stór og rúmg.
svefnherb. Neðri hæð: Eldhús, stofa,
borðstofa og baðherb. Risloft: 3 svefn-
herb., sjónvarpshol, wc og geymsla.
Parket og flísar á gólfum. Suðursvalir.
Eigninni er mjög vel viðhaldið. Fallegt
útsýni.
Guðni og Hope sýna íbúðina
frá kl. 18–20 í kvöld, föstudag.
NÝIR eigendur hafa tekið við
rekstri veitingastaðarins Crown
Chicken, hjónin Ólöf Benedikts-
dóttir og Jóhann Kristjánsson, og
hafa þau gert gagngerar end-
urbætur á staðnum sem er við
Skipagötu 12 í miðbæ Akureyrar.
„Við tókum allt í gegn hérna og
stækkuðum veitingasalinn þannig
að nú tekur hann 44 í sæti,“ sagði
Ólöf, en það var trésmiðjan Alfa á
Akureyri sem sá um allar innrétt-
ingar. Kjúklingar, bæði heilir og í
bitum, njóta vinsælda meðal gesta,
en einng er boðið upp á úrval
skyndibita af ýmsu tagi. Þar má
nefna hamborgara, pítur, fisk og
mínútusteik auk meðlætis. Við-
skiptavinir geta valið á milli þess að
snæða matinn í veitingasalnum eða
fá hann sendan heim, en að sögn Jó-
hanns skiptist salan þannig að tæp
80% eru í sal og rúm 20% í heim-
sendingu.
Alls vinna 15-17 manns á veit-
ingastaðnum sem opinn er frá kl. 11
til 21.30 alla daga.
Endurbætur á kjúklingastaðnum Crown Chicken
Morgunblaðið/Kristján
Jóhann Kristjánsson og Ólöf Benediktsdóttir eru nýir eigendur kjúk-
lingastaðarins Crown Chicken við Skipagötu á Akureyri.
Nýir eig-
endur hafa
tekið við
HINIR árlegu Kaffitónleikar Kórs
Akureyrarkirkju verða haldnir í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
nk. sunnudag kl. 15 að lokinni messu
kl. 14 þar sem kórinn syngur einnig.
Dagskráin er fjölbreytt, en m.a.
syngur kórinn íslenska kórtónlist
eftir Emil Thoroddsen, Hafliða Hall-
grímsson, Jón Hlöðver Áskelsson,
Hjálmar H. Ragnarsson og Árna
Harðarson. Einnig verður einsöngur
og Villurnar. Þá er að sjálfsögðu
kaffihlaðborð.
Stjórnandi á tónleikunum er
Björn Steinar Sólbergsson.
Kaffitón-
leikar
STJÓRNENDUR Sjafnar á Akur-
eyri og Rekstrarvara í Reykjavík
hafa ritað undir viljayfirlýsingu um
víðtækt samstarf sem felur í sér
gagnkvæma sölu og dreifingu þeirra
vara sem fyrirtækin hafa á boðstól-
um. Sjöfn er í hópi stærstu fyrirtækja
á sínu sviði hér á landi, en þar er
framleidd málning og hreinlætisvörur
fyrir fyrirtækja- og neytendamarkað.
Rekstrarvörur einbeita sér að sölu á
daglegum rekstrarvörum til stofnana
og fyrirtækja. Sjöfn mun hefja sölu á
vörum Rekstrarvörum í verslun
Sjafnar við Austursíðu 1 á Akureyri
og jafnframt beina viðskiptum á
rekstrarvörum til Rekstrarvara. Þá
munu Rekstrarvörur hefja sölu á
framleiðsluvörum Sjafnar í stórversl-
un sinni við Réttarháls auk þess sem
félagið annast sölu og dreifingu á
framleiðsluvörum Sjafnar um sölu-
kerfi sitt. Í því felst bein sala til fyr-
irtækja og stofnana auk þjónustu við
ríkisstofnanir og sveitarfélög sem eru
innan rammasamnings Ríkiskaupa.
Þá stefna fyrirtækin tvö að sam-
starfi um framleiðslu á nýjum um-
hverfisvænum vörum eða efnum og
einnig mun samstarf verða haft við
gerð þrifalýsinga og ráðgjafarþjón-
ustu til fyrirtækja og stofnana.
Með samstarfinu er áhersla lögð á
að efla og bæta þjónustu og ráðgjöf
við viðskiptavini á Akureyri og höf-
uðborgarsvæðinu. Vöruúrval mun
aukast og þá gerir samstarfið að verk-
um að innkaup verða hagkvæmari.
Loks má geta þess að sala og þjón-
usta sem Þ. Björgúlfsson á Akureyri
hefur sinnt flyst vegna breytinga hjá
félaginu yfir til Sjafnar, en Rekstr-
arvörur og Þ. Björgúlfsson hafa lengi
átt í samstarfi.
Sjöfn og
Rekstrarvör-
ur í samstarf
♦ ♦ ♦