Morgunblaðið - 07.04.2001, Síða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 13
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi sjálfstæðismanna,
gerði viðtal við Guðmund Þórodds-
son, forstjóra Orkuveitu Reykjavík-
ur og stjórnarmann í Línu.Neti, í
Morgunblaðinu á fimmtudag, að um-
talsefni á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag. Sagði Guðlaugur Þór að
af viðtalinu mætti ljóst vera að Lín-
a.Net hefði með kaupunum á Irju
ehf. um mitt árið 1999 verið að
,,kasta um 250 milljónum út um
gluggann“, eins og borgarfulltrúinn
orðaði það. Helgi Hjörvar, borgar-
fulltrúi R-listans, og varaformaður
stjórnar Línu.Nets, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
sögðu á hinn bóginn að ekkert væri
hægt að fullyrða um það á þessu stigi
málsins að fjárfestingin hefði verið
til einskis. Lagði Helgi Hjörvar
reyndar áherslu á að tíminn myndi
leiða í ljós að skynsamlegt hefði verið
að fjárfesta í Irju. Borgarstjóri talaði
á sömu nótum. ,,Það er rangt að
þessar 250 milljónir hafi tapast,“
sagði hún m.a.
Í málflutningi sínum vitnaði Guð-
laugur Þór í fyrrgreint viðtal í við-
skiptablaði Morgunblaðsins og sagði
að þar kæmi fram í máli Guðmundar
að Irja gæti ekki nýst Línu.Neti
vegna þess samningar Irju við Mot-
orola hefðu ekki gengið eftir. Mot-
orola hefði m.ö.o. ekki komið fram
með þær tæknilausnir á þeim tíma
sem gert hefði verið ráð fyrir í samn-
ingunum. Þar með hefðu þeir gagna-
flutningsmöguleikar ekki verið til
staðar sem Lína.Net hefði fyrst og
fremst verið að sækjast eftir með
kaupunum á Irju. ,,Það er staðfest í
þessu viðtali að menn voru að kaupa
verðlaust fyrirtæki fyrir 250 milljón-
ir kr.,“ fullyrti Guðlaugur Þór m.a.
Benti hann á að í viðtalinu kæmi
fram að eignir Irju hefðu á þessum
tíma verið fyrirtækið með ákveðna
viðskiptaáætlun en í henni hefðu m.a.
falist samningarnir við Motorola.
Þess má auk þess geta að Irja hafði
þá samið um uppsetningu og rekstur
Tetra-fjarskiptabúnaðar fyrir lög-
regluna og Slökkvilið Reykjavíkur.
,,Menn voru bara að kaupa fyrirtæki
með viðskiptaáætlun fyrir 250 millj-
ónir, sagði Guðlaugur Þór og benti á
að í viðtalinu hefði einnig komið fram
að Lína.Net hefði sömuleiðis með
kaupunum verið að kaupa fyrirtæki
sem gat verið komið í gang með
Tetra-kerfið í fyrravor. ,,Þeir áttuðu
sig hins vegar á því nokkrum dögum
seinna að þeir hefðu keypt köttinn í
sekknum og reyndu að fá peningana
til baka.“ Vísar Guðlaugur Þór þarna
til þess er forsvarsmenn Línu.Nets
hefðu skömmu eftir kaupin reynt að
fá stóran hluta kaupverðsins endur-
greiddan. ,,Þetta er líka athyglisvert
í því samhengi að í desember sl. fór
fram hlutafjárútboð í Línu.Neti,
sagði Guðlaugur Þór ennfremur og
vitnaði í bókun R-listans í borgarráði
frá 12. des. sl. En þar segði: ,,Frá
stofnun Línu.Nets hefur verðmæti
fyrirtækisins ríflega tífaldast og
sannað þannig mikilvægi sitt á liðn-
um árum. Vegna mikilla fjárfestinga
á næstunni og útrásar á markaði er
talið mikilvægt að auka hlutafé fyr-
irtækisins um 100 milljónir að nafn-
virði…“ Eftir að Guðlaugur Þór
hafði lesið upp úr fyrrnefndri bókun
R-listans sagði hann jafnframt að í
henni væri tekið fram að Orkuveita
Reykjavíkur, stærsti eigandi Línu.-
Nets, þyrfti að kaupa hlut í hlutafjár-
útboðinu: ,,Það kemur hins vegar
fram í viðtalinu í Morgunblaðinu að
forstjóri Orkuveitunnar telji að
gengið 10,5 sem Orkuveitan keypti
síðan hluti á hafi verið allt of hátt.“
Guðlaugur sagði ennfremur að í fyrr-
greindri bókun R-listans kæmi
hvergi fram að Lína.Net hefði keypt
verðlaust fyrirtæki. Það hefði heldur
ekki komið fram í umræðum um
hlutafjárútboðið innan borgarstjórn-
ar eða borgarráðs. ,,Það kom ekki
fram í borgarráði, ekki í borgar-
stjórn og ekki í stjórn veitustofn-
ana… Það hefur ekki hvarflað að for-
svarsmönnum R-listans að upplýsa
borgarráð eða borgarstjórn neitt um
þetta mál.“
Áhyggjur af Stiklu
Nokkrar umræður urðu um mál-
efni Línu.Nets á fundi borgarstjórn-
ar og tók Helgi Hjörvar, borgar-
fulltrúi R-listans og varaformaður
stjórnar Línu.Nets, m.a. fram að
endanlegt kaupverð Línu.Nets á Irju
hefðu verið innan við 200 milljónir
kr. þar sem Lína.Net hefði fengið
samtals um 55 milljóna kr. afslátt af
kaupverðinu eftir að kaupin áttu sér
stað. Síðan sagði hann: ,,Á þessu stigi
er ekki gott að fjalla um hverjukaup-
in á Irju munu endanlega skila Lín-
u.Neti. Það mun reksturinn á næstu
árum fyrst og fremst leiða í ljós…Þá
mun koma í ljós að fyrirtækið Irja
var gott fyrirtæki með öfluga við-
skiptaáætlun sem skynsamlegt var
að fjárfesta í og mun skila arði.“
Helgi Hjörvar sagði jafnframt mik-
ilvægt að hafa í huga að Irja hefði
þegar hafið starfsemi. ,,Þó að starf-
semi Irju (sem felst í talstöðvaþjón-
usta fyrir öryggis- og neyðaraðila)
varði ekki kjarnastarfsemi Lín-
u.Nets, sem eru gagnaflutningar, þá
er þjónusta Irju…ákaflega mikil-
væg. Það fengum við að sjá í höf-
uðstöðvum slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins nú nýverið þegar
Tetra-kerfið var vígt… Þar fengum
við að sjá hversu gríðarlegt fram-
faraskref Tetra-kerfið er fyrir starf-
semi þessara aðila.“
Síðar í umræðunni beindi Helgi
Hjörvar athyglinni að fyrirtækinu
Stiklu. ,,Vilja menn hafa áhyggjur af
ráðstöfun almannafjár er réttara að
huga að öðru fyrirtæki sem Reykja-
víkurborg er hluthafi í. Reykjavík-
urborg er nefnilega hluthafi í fyrir-
tækinu Landsvirkjun sem aftur á
þriðjung í fyrirtækinu Stiklu. Sá er
hins vegar munur á fyrirtækinu
Stiklu og Irju að fyrirtækið Irja eða
nú Lína.Net hefur viðskiptasamn-
inga upp á hundruð milljóna króna.
En fyrirtækið Stikla, sem Lands-
virkjun á einn þriðja hluta í, hefur
ráðist í hundruð milljóna kr. fjárfest-
ingar í Tetra-kerfi en hefur enga
slíka viðskiptasamninga. Hefur enga
umtalsverða samninga um viðskipti í
því kerfi. Það væri þess vegna athug-
unarefni fyrir borgarfulltrúann Guð-
laug Þór Þórðarson að ræða við sam-
flokksmann sinn og stjórnarmann í
Landsvirkjun Vilhjálm Þ. Vilhjálms-
son um fjárfestingar af almannafé í
Tetra-kerfi Stiklu sem enga umtals-
verða viðskiptasamninga hefur. Þar
kynni að vera ástæða til að hafa
áhyggjur. Ég vil hins vegar taka það
fram að sem stjórnarmaður í Lands-
virkjun hef ég, þegar málefni Stiklu
hafa verið til umfjöllunar, vikið af
fundi af eðlilegum ástæðum.“ Þess
má geta að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, borgarfulltrúi D-listans, var
ekki á fundi borgarstjórnar þegar
þessi ummæli féllu. Guðlaugur Þór
sagði hins vegar síðar í umræðunni
að ef það væri eitthvað að hjá Lands-
virkjun væri ,,sjálfsagt að taka það
upp.“ Það breytti þó ekki staðreynd-
unum um kaup Línu.Nets á Irju.
Fleiri borgarfulltrúar blönduðu
sér inn í þessa umræðu. Þeirra á
meðal Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi sjálfstæðismanna. Lagði
hann m.a. áherslu á að það væri óþol-
andi fyrir fyrirtæki í samkeppnis-
rekstri að þurfa æ ofan í æ að verða
bitbein borgarfulltrúa. Sagði hann að
réttast væri að borgin seldi hlut sinn
í Línu.Neti og það strax.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri kvaddi sér einnig hljóðs og
gerði eins og Helgi Hjörvar fyrir-
tækið Stiklu að umtalsefni. Sagði
hún það merkilegt hvernig sjálfstæð-
ismenn í borgarstjórn hefðu tekið
um það ,,pólitíska ákvörðun“ eins og
hún orðaði það að gera fyrirtækið
Línu.Net að sérstökum ásteytingar-
steini í borgarstjórn. Á sama tíma
gerðu þeir hins vegar engar athuga-
semdir við fjárfestingar Landsvirkj-
unar í Stiklu. ,,Ég hef ekki orðið vör
við það að fjárfestingar í því hluta-
félagi…hafi ratað hér með sama
hætti í umræðu borgarstjórnar
Reykjavíkur og fjárfestingin í Irju…
Með sömu rökum ættu hins vegar
málefni Stiklu að vera hér uppi á
borðum og málefni Irju.“ Tók borg-
arstjóri jafnframt fram að hún hefði
sem fulltrúi í stjórn Landsvirkjunar
á sínum tíma varað við fjárfestingum
í Stiklu. Í lok umræðunnar sagði
borgarstjóri síðan að það væri rangt
hjá Guðlaugi Þór að 250 milljónir kr.
hefðu tapast með kaupum Línu.Nets
í Irju.
Guðlaugur Þór Þórðarson um kaup Línu.Nets á Irju ehf.
„250 milljónum kast-
að út um gluggann“
GEÐRÆKT og Landlæknisembætt-
ið hafa í vikunni sent upplýsingarit
um geðheilbrigði til stórra stofnana í
landinu til að vekja fólk til umhugs-
unar um mikilvægi góðrar geðheilsu.
Tilefni bréfsendinganna var að sögn
Önnu Bjargar Aradóttur, hjá for-
varna- og heilsuverndarsviði Land-
læknisembættisins, alþjóðaheil-
brigðisdagur WHO sem er í dag.
Dagurinn er helgaður geðheilbrigði
og hvetur Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin almenning jafnt sem stjórnvöld
um heim allan að vinna heilshugar að
eflingu geðheilbrigðis. Á Íslandi var
að sögn Önnu megináherslan lögð á
að vekja vitund um geðheilbrigði
meðal almennings þar sem ein af for-
sendum starfsins sé að draga úr for-
dómum í garð þeirra sem haldnir eru
einhvers konar geðheilsuvanda. Því
hafi engin sérstök dagskrá verið
skipulögð í dag heldur verkin látin
tala alla undangengna viku. Meðal
annars voru send bréf og upplýsing-
ar til allra heilsugæslustöðva í land-
inu þar sem þær voru hvattar til þess
að fræða fólk um geðheilbrigði.
Einnig voru starfsmenn hvattir til að
taka upp málefni geðheilbrigðis í
sínu starfi, þ.e. bæði með forvörnum
og í beinu læknisstarfi. Bréf voru
einnig send til allra presta á landinu
og til biskups þar sem þeir voru
beðnir um að leggja út frá fordómum
í messum sínum á sunnudag og
minna á margbreytileik mannlífsins.
Vekur fólk til umhugsunar
Sjónvarpsstöðvarnar ætla allar að
sýna breska stuttmynd í kvöld í til-
efni dagsins. Myndin, sem er bresk
en þýdd og staðfærð fyrir Íslend-
inga, fjallar um hversu algeng geð-
heilsuvandamál eru í raun og veru og
reynt að draga úr fordómum með því
að benda á að geðheilsuvandi getur
hent hvern sem er. Héðinn Unn-
steinsson, formaður Geðræktar,
sagði myndina koma með nýjan
vinkil á umræðuna um geðvandamál
sem tengdist boðskap dagsins.
„Ég geri mér vonir um að myndin
hafi töluverð áhrif á fólk og veki
áhorfendur til umhugsunar um geð-
heilbrigði og mikilvægi umburðar-
lyndis í garð þeirra sem eru veikir,“
sagði Héðinn. Þess má geta að vitað
er að á hverjum tíma þjást 22 til 24%
íslensku þjóðarinnar af geðheilsu-
vanda af einhverjum toga, þ.e. nær
einn af hverjum fjórum landsmönn-
um. „Það er því mikilvægt að minna
á við getum öll eflt geðheilsu okkar,
m.a. með því að leggja rækt við heil-
brigði og vellíðan hjá okkur sjálfum
og þeim sem við umgöngumst,“ sagði
Anna Björg.
Alþjóðaheilbrigðisdagur WHO – geðheilbrigði
Rækt lögð við heil-
brigði og vellíðanENDRUM og sinnum heyr-
ast raddir um að börn séu
hætt að leika sér úti við en
glápi þess í stað á sjónvarp
eða spili tölvuleiki. Ekki
var það svo með þessa
stúlku sem vígbjóst af kappi
á gangstétt í Reykjavík í
blíðviðrinu sem lék við höf-
uðborgarbúa fyrir
skemmstu. Leikfélagar
hennar voru á næsta leiti og
eins víst að þeir hafi ekki
látið sitt eftir liggja í víg-
búnaðarkapphlaupinu. Morgunblaðið/Golli
Vígbún-
aður á
vorkvöldi