Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hádegisverðarfundur
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka-FBA, á Fiðlaranum,
Skipagötu 14 miðvikudaginn 11. apríl
frá kl. 12.00 til 13.00
• Hvaða breytingar eru að eiga sér stað á
íslenskum fjármálamarkaði með aukinni
alþjóðavæðingu?
• Hvert verður hlutverk og helstu verkefni
bankanna á næstu árum í ljósi þessarar
þróunar?
• Hvernig er ákvarðanaferli Íslandsbanka-FBA
við lánveitingar til fyrirtækja og
atvinnustarfsemi?
Á fundinum mun Bjarni Ármannsson m.a. fjalla um þessi
mál og svara spurningum fundarmanna.
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 460 5700
eða á netfangi benedikt@afe.is eða sigga@afe.is
Opið hús í dag frá kl. 15-18
Brekkugata 27A, Akureyri
11 herbergja íbúðarhús 316 fm auk 98 fm sérsteyptri
geymslubyggingu.
Nánari upplýsingar í síma 462 7991
einnig
www.mbl.is/fasteignir - Fasteignasalan Byggð, Akureyri
Alls er þar um að ræða 58 íbúðir, en gert er ráð
fyrir í skipulagi fyrir svæðið að þar verði 19 lóðir
fyrir einbýlishús og 36 íbúðir í tveggja hæða rað-
húsum.
Hraðar byggt á holtinu en búist var við
Vilborg Gunnarsdóttir, formaður umhverfis-
ráðs Akureyrar, sagði að greinilega væri mikil
þörf fyrir lóðir undir nýjar íbúðir, en nýtt hverfi
á Eyrarlandsholti hefði byggst upp hraðar en
áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. „Það er greini-
legt að verktökum hefur gengið vel að selja íbúð-
ir á Eyrarlandsholti og því hefur hverfið byggst
upp hraðar en gert var ráð fyrir. Lóðirnar þar
áttu samkvæmt upphaflegri áætlun að endast
mun lengur, en raunin er,“ sagði Vilborg. Því
væri þörf fyrir nýjar lóðir og átti Vilborg ekki
von á öðru en áhugi fyrir lóðum á báðum stöðum
yrði mikill. „Svæðið við Klettaborg er miðsvæðis,
AKUREYRARBÆR mun nú á næstunni auglýsa
rúmlega eitthundrað nýjar byggingalóðir lausar
til umsóknar, en þær eru á tveimur svæðum.
Annars vegar er um að ræða tvo reiti við Lind-
arsíðu, milli Hlíðarbrautar og Bugðusíðu, en þar
verða 35-45 íbúðir á hvorum reit eða á bilinu 70
til 90 íbúðir í allt. Lóðarhafi mun annast deili-
skipulag þannig að ekki verður ljóst hversu
margar íbúðirnar verða nákvæmlega. Það liggur
ekki fyrir fyrr en lokið hefur verið við það verk-
efni. Einkum verður þar um að ræða íbúðir í rað-
húsum.
Hins vegar verða auglýstar lóðir á nýju bygg-
ingasrvæði við Klettaborg, ofan Borgarbrautar.
svo að segja í hjarta bæjarins, og ég held að
mörgum þyki eftirsóknarvert að byggja þar, en
þarna er útsýni til norðurs einkar gott,“ sagði
Vilborg.
Nýtt hverfi og þétting byggðar
Auk þess sem nú verða auglýstar nýjar lóðir á
tveimur stöðum í bænum sagði Vilborg að unnið
væri að því að undirbúa nýja byggingareiti í nýju
Naustahverfi sem rísa mun sunnan við hina nýju
íbúðarbyggð á Eyrarlandsholti. Hún sagði að
stefnt væri að því að þetta nýjasta hverfi yrði
tilbúið næsta vor.
Jafnframt því sem unnið er að undirbúningi
Naustahverfis sagði Vilborg að unnið væri að því
að þétta byggð í bænum. Það hefði þegar verið
gert á ýmsum stöðum og menn sæju áfram góða
möguleika á að þétta byggðina í þeim hverfum
bæjarins sem fyrir eru.
Allt að 200 nýjar lóðir við
Klettaborg og Lindarsíðu
Nýtt Naustahverfi
í undirbúningi
AKUREYRARKIRKJA: Fermingar-
messur á morgun, pálmasunnudag,
kl. 10.30 og 13.30. Vorferð sunnu-
dagaskólans verður á morgun; farið
verður að Möðruvöllum í Hörgárdal,
lagt af stað frá World Class kl. 10.30
og komið til baka um kl. 12. Gott
væri ef börnin kæmu með mynd af
sér fyrir vinatré. Morgunsöngur í
kirkjunni kl. 9 á þriðjudag. Mömm-
umorgun kl. 10 á miðvikudag, Helgi
Svavarsson, skólastjóri Tónlistar-
skólans á Akureyri, kemur í heim-
sókn. Fyrirbænamessa á fimmtu-
dag, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Passíusálmar lesnir á föstudag og þá
um kvöldið verður kyrrðarstund við
krossinn.
GLERÁRKIRKJA: Fermingarmess-
ur á morgun kl. 10.30 og 13.30.
Barnasamveran verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju og verður farið með
rútu frá Glerárkirkju kl. 11. Kyrrð-
ar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á
þriðjudag. Hádegissamvera á mið-
vikudag frá kl. 12 til 13, helgistund,
fyrirbænir og sakramenti. Léttur
hádegisverður á vægu verði á eftir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 á sunnudag. Heim-
ilasamband kl. 15 á mánudag, hjálp-
arflokkur kl. 20 á miðvikudag. Ath.
að ekkert barnastarf verður fyrr en
eftir páska.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæna-
stund í kvöld kl. 20. Sunnudagaskóli
fjölskyldunnar á morgun kl. 11.30,
Reynir Valdimarsson læknir sér um
kennsluna. Aldursskipt kennsla þar
sem allir fá eitthvað við sitt hæfi.
Vakningarsamkoma verður sama
dag kl. 16.30. Flutt verður lofgjörð-
artónlist, ræðumaður er Kristinn
Birgisson, skrifstofustjóri Sam-
hjálpar. Fyrirbænaþjónusta,
krakkakirkja og barnapössun.
Bænastundir eru alla virka daga kl.
06.30.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa verður í Möðruvallakirkju á
morgun, sunnudag, kl. 13.30. Vænt-
anleg fermingarbörn lesa ritningar-
lestra. Lesarar eru Sigmundur
Sveinsson og Þórólfur Óskarsson.
Prestur: Sr. Guðmundur Guðmunds-
son.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 í Péturskirkju við
Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag.Almenn samkoma á Sjón-
arhæð kl. 17 sama dag. Fundur fyrir
6-12 ára krakka á Sjónarhæð kl.
17.30.
STÆRRI-ÁRSKÓGSKIRKJA:
Messa verður í Stærri-Árskógs-
kirkju á laugardaginn, 7. apríl, kl. 14.
Kirkjustarf
ÞRETTÁN slökkviliðsmenn frá
Vestmanna í Færeyjum voru stadd-
ir í Ólafsfirði um síðustu helgi þar
sem þeir tóku þátt í brunaæfingum
með kollegum sínum í Ólafsfirði.
Einnig komu að æfingunum starfs-
menn MT-bíla í Ólafsfirði, Bruna-
málastofnunar ríkisins og slökkvi-
liðsstjórinn í Grindavík.
Að sögn Sigurjóns Magnússonar,
framkvæmdastjóra MT-bíla, mun
þetta vera í fyrsta sinn sem erlendir
slökkviliðsmenn koma til æfinga á
landsbyggðinni. Hann sagði að um
hafi verið að ræða bruna- og reyk-
köfunaræfingar, bæði verklegar og
bóklegar, og hafi þær gengið mjög
vel. Starfsmenn Brunamálastofn-
unar komu með kennslugáma sína
til Ólafsfjarðar og voru þeir m.a.
notaðir við æfingarnar. Sigurjón
sagði að hinir færeysku gestir hafi
látið mjög vel af dvöl sinni en fyrir
utan æfingarnar gerðu þeir sér ým-
islegt til skemmtunar með heima-
mönnum.
Færeyskir
slökkvi-
liðsmenn við
æfingar
Morgunblaðið/Sigurjón
Slökkviliðsmenn í Ólafsfirði og frá Vestmanna í Færeyjum á bruna-
æfingu í Ólafsfirði.
Lóðir á Eyrarlandsholti entust skemur en áætlanir gerðu ráð fyrir
SAMTÖK um náttúruvernd á Norð-
urlandi, SUNN, telja að unnt sé að
skapa nokkur heilsársstörf í Mý-
vatnssveit með því að nýta fjármuni
þá sem ríkið fékk við sölu á Kísiliðj-
unni á dögunum og með þeim hætti
sé hægt að styrkja starfsgrundvöll
annarra í sveitinni, t.d. bænda. Fram
hafa komið áform um að féð verði
notað til að efla atvinnulíf í sveitar-
félaginu.
Samtökin benda á að unnt sé að
skapa fágæta möguleika til að efla
atvinnustarfsemi sem beint tengist
náttúru og menningu sveitarinnar.
Meðal þess sem rætt var um á fundi
samtakanna fyrr í vikunni um þetta
efni er stofnun heilsársstöðu land-
varðar með búsetu í Mývatnssveit og
bygging fræðslumiðstöðvar sem
myndi hýsa gestastofu, náttúrurann-
sóknastöð, söfn og ef til vill eitthvað
fleira. Nefnt er að slík fræðslumið-
stöð sé af mörgum talin til brýnustu
verkefna. Í sveitina vanti heilsárs-
stað fyrir gestastofu og upplýsinga-
gjöf til ferðamanna. Á slíkum stað
þurfi einnig að vera geymslur, vinnu-
herbergi og skrifstofur fyrir lands-
vörslu og kjörið sé að koma upp mið-
stöð til að sinna fræðslutengdri
ferðaþjónustu og náttúruvernd í Mý-
vatnssveit. Í slíku húsnæði væri
æskilegt að setja Mývatnssafn og
fuglasafn Sigurgeirs Stefánssonar
auk safna sem aðstöðu vantar undir.
Þá er nefnt að koma þurfi upp
fræðslumiðstöð í Bjarnarflagi sem
helst yrði tengd minjasafni um Kís-
iliðju sem og að endurvekja Fræða-
garðinn í Kviku sem starfaði um
stutt skeið. Hann myndi útbúa
fræðsludagskrár fyrir ferðamenn og
skólahópa, skipuleggja móttökur,
þjónustu og fræðslu fyrir hópa og
vinna að markaðssetningu fyrir slíka
ferðamennsku. Fræðslustígum og
fuglaskoðunarskýlum með myndum
og upplýsingum um fugla og lifnað-
arhætti þeirra mætti koma upp og
einnig að veita styrki til einkafram-
kvæmda, t.d. til göngustígagerðar á
bújörðum bænda. Bent er á að yfir
veturinn mætti vinna að söfnun og
skráningu upplýsinga og fróðleiks,
s.s. örnefna, sagna og þess háttar.
Þannig benda samtökin á að unnt
sé að búa til nokkur störf sem tengj-
ast náttúru og menningu sveitarinn-
ar og styrki starfsgrundvöll annarra.
„Þessar aðgerðir myndu efla þá vísa
að opinberri starfsemi, t.d. Land-
græðslunnar, sem fyrir eru í Mý-
vatnssveit, segir í ályktun frá sam-
tökunum um þetta efni og enn
fremur að í byggðarlaginu mætti
einnig staðsetja verkefni á sviði nátt-
úruverndar fyrir hluta Norður- og
Austurlands.
SUNN um nýtingu fjármuna vegna sölu á Kísiliðjunni
Unnt er að skapa
nokkur heilsársstörf