Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 53 vil ekki gleyma þér, ég mun ekki gleyma þér. Ég elskaði þig, ég elska þig. Ég trúi ekki, ég reyni en ég get ekki, þú fórst bara. Ég sakna þín því ég elska þig. Guð varðveiti þig og hjálpi fjöl- skyldu þinni á erfiðum tímum. Þín frænka, Árný Yrsa. „Öllu er afmörkuð stund, og sér- hver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma“. Tíminn sem við höfðum Gunnar Jón hjá okkur var ekki langur og á kveðjustund viljum við þakka þér, elsku frændi og vinur, fyrir gleðina og allt sem þú gafst okkur á þinni stuttu ævi. Þessar línur eru okkar kveðja til þín. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Elsku Kim, Guðmundur og fjöl- skylda og aðrir ástvinir. Látum minninguna um „einstak- an“ yndislegan dreng verða ljósið sem lýsir okkur í sorginni, því það ljós mun aldrei slokkna. Jóhanna, Haukur og synir. Jón, Jóna og fjölskylda. Þegar okkur barst sú hörmulega frétt síðasta sunnudag að vinur okk- ar og bekkjarfélagi hann Gunnar Jón hefði lent í alvarlegu bílslysi og látist brustum við strax í grát. Við huggum okkur við það að „þeir deyja ungir sem guðirnir elska“. Gunnar, þú varst fjörugur og skemmtilegur strákur og munt alltaf lifa í huga okkar. Þegar við hugsum til baka munum við sérstaklega eftir þegar við vorum í grunnskóla og all- ur bekkurinn vildi fá frí í tíma til að spjalla eða spila, þá sagðir þú alltaf „nei, ég vil frekar læra!“ Samt vildir þú fá frí með okkur, þú varst aðeins að þessu til að kanna viðbrögðin – því það fannst þér gaman. Við rifjum líka upp með hlátur í huga þegar átti að taka 10. bekkjarmyndina af okkur og þú vildir standa eins og flestir hinir strákarnir en vegna stærðar þinnar varstu látinn sitja –– og ert með mikinn fýlusvip á myndinni. Ekki þurfum við að hugsa lengra en til síðustu viku þegar við brostum mikið að því þegar þú varst að reyna að ergja eldri stelpurnar á hinu borð- inu, uppí skóla, með því að nudda og slá höndunum í borðið þar til þig verkjaði, en þá bléstu bara í lófana og hélst áfram – og það virkaði hjá þér, þær urðu virkilega pirraðar! Þú eyddir næstum öllum þínum frí- stundum í íþróttahúsinu og stundað- ir þar fótbolta af kappi. Þú hélst með Manchester United í enska boltan- um og varst vægast sagt ekki sáttur þegar Liverpool tók þá síðasta laug- ardag 2-0. Linda minnist þess mjög þegar þú varst á körfuboltaæfingu hjá stelp- unum og varst með mikla körfu- boltatakta eins og þú værir búinn að æfa í mörg ár, en hafðir aldrei æft, og stelpunum fannst þú efnileg körfuboltastjarna. Þú varst nýgenginn í meistara- flokk Ægis í fótbolta og varst að fara að spila með þeim þinn fyrsta leik þegar örlögin gripu í taumana. Gunnar. Okkur mun ávallt þykja vænt um þig og við vonum að þér líði vel þar sem þú ert núna og trúum því að þér hafi verið ætlað annað og betra hlutverk annars staðar en hjá okkur. Við sjáumst vonandi seinna. Elsku Gummi, Kim, Maggi, Valdís og Gummi Kalli, ættingjar og vinir, við vottum ykkur dýpstu samúð og megi Guð gefa ykkur styrk til að tak- ast á við sorg ykkar og missi. Þínar vinkonur og bekkjarsystur, Auður Helga og Linda Ósk. Elsku Gunnar Jón minn. Ég bjóst ekki við því að þurfa að kveðja þig strax og alls ekki á þennan hátt en svona er þetta bara. Ég þekkti þig sem lífsglaðan og kátan strák sem öllum þótti vænt um. Auðvitað gastu verið pirrandi af og til en eru það ekki allir? Þú komst oft heim til okkar og þótti öllum á heimilinu vænt um þig enda varstu orðinn eins og einn af okkur. Það var gaman að fylgjast með ykkur Hjalta, þið voruð svo frá- bærir saman. Þegar við Magnús byrjuðum saman kynntist ég þér enn betur. Þið hin á heimilinu tókuð mér mjög vel og þótti mér mjög notalegt að koma til ykkar. Næstum öll skipt- in sem ég kom voruð þið bræðurnir að hjálpast að í tölvunni inni í ein- hverju af herbergjunum. Þetta er ógleymanlegt af því það var svo fyndið að sjá ykkur æsast yfir fót- boltaleikjunum og fagna þegar ykk- ar lið skoraði. Eins og vanalega varst þú alltaf svangur þótt þú værir nýbú- inn að borða. Eitt sinn þegar þú komst til okkar var pabbi að elda fisk. Þú labbaðir inn í eldhús, gægð- ist á pönnuna og sagðir svo: „Er þetta nóg fyrir ykkur? Heima hjá mér eru alltaf elduð fjögur flök.“ Pabbi gat ekki annað gert en bætt á pönnuna og boðið þér í mat. Þú borð- aðir fiskinn með bestu lyst þó svo að þú hafir verið nýbúinn að borða fisk líka heima hjá þér. Jæja Gunnar minn, margs er að minnast um þig. Hver á að hanga í netunum fyrir ut- an íþróttaklefana núna og tuða í okk- ur fimleikastelpunum um að tíminn okkar sé búinn og ykkar sé byrjað- ur? Það getur enginn. Það verður aldrei náð að fylla upp í þitt skarð af því að enginn er eins og þú en Guð- mundur Karl bróðir þinn kæmist næst því. Þú varst svo sérstakur og svo frábær og ég sakna þín svo sárt. Ég vona bara frá mínum innstu hjartarótum að þú sért á góðum stað, í góðum höndum þar sem þér líður vel, Gunnar minn. Minning þín mun ávallt búa í mínu hjarta. Elsku Kim, Guðmundur, Magnús, Valdís, Guðmundur Karl og vinir Gunnars sem lentu í þessum hræði- lega atburði. Ég votta ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur. Megi guð vaka yfir ykkur og styrkja ykkur á þessu erfiða skeiði. Mig langar að ljúka þessari minn- ingu um Gunnar Jón með orðum eft- ir Sören Kirkegaard: „Daginn sem þú fæddist gréstu en ástvinir þínir glöddust. Lifðu þannig, að daginn sem þú kveður, gráti ástvinir þínir en þú sért sjálfur glaður.“ Hugrún Vignisdóttir. Elsku Gunnar Jón. Þegar við fréttum um þetta hörmulega slys brustum við strax í grát. Maður spyr sig alls konar spurninga sem erfitt er að finna svör við. Heimurinn lítur öðruvísi út. Og það sem er ofarlega í huga okkar allra er ekkert nema góðar minningar. Hvað þú lagðir þig fram til að kanna viðbrögð annarra með alls konar uppátækjum. „Þér tókst það svo sannarlega.“ Eins og þegar þú og Stebbi, vinur okkar, fór- uð út með fjarstýringuna og stóðuð fyrir utan gluggann hjá öðrum og breyttuð um stöðvar svo fólkið skildi ekkert í því hvað væri að gerast. Fólkið var farið að hringja í Stöð 2 til að kvarta undan ólátunum í sjón- varpinu, en þá voruð það bara þið, prakkararnir. Þetta er bara eitt af mörgum sniðugum uppátækjum þín- um. Þetta kennir okkur að meta hvert annað meira og héðan í frá munum við eftir að spenna beltin. Okkur þykir sárt að vinur okkar þurfti að deyja til að við förum að hugsa rökrétt um svona lagað. Það er allt of dýrkeypt. Við viljum votta fjölskyldu þinni okkar dýpstu samúð og megi guð styrkja ykkur í sorginni. Þínir vinir og bekkjarfélagar, Hrafnhildur, Svanhildur, Hafþór, Bragi, Snorri og Jón Bryngeir. Elsku Gunnar Jón. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Guð varðveiti þig. Hjálpi og styrki mömmu þína og pabba, systkini þín og okkur öll. Þín frænka, Guðrún Arna.  Fleiri minningargreinar um Gunnar Jón Guðmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Löglærður aðstoðar- maður dómara Við Héraðsdóm Reykjaness er laus til umsókn- ar staða löglærðs aðstoðarmanns dómara. Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 2.-6. tölul. 2. mgr. 12. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags lögfræðinga og héraðsdómstól- anna frá 28. september 1998. Umsóknir berist skrifstofu Héraðsdóms Reykja- ness fyrir 20. apríl nk. Dómstjóri. KÓPAVOGSSKÓLI - skóli í sókn - Kópavogsskóli er heildstæður 2ja hlið- stæðna grunnskóli með sérdeild. Skólinn er í rótgrónu hverfi og hafa starfsmenn, nemendur og foreldrar í sameiningu mótað sínar sjálfsmatsaðgerðir og gildi skólastarfs eftir leiðum siðferðilegra reikningsskila (Velvildarvogarinnar). Eftirtaldar kennarastöður á næsta skóla- ári eru nú lausar til umsóknar: • Handavinnukennara (smíðakennara), • Sérkennara • Almenns bekkjarkennara. Laun samkv. kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaga. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur Guðmundsson í síma 554 0475 og 897 9770 Umsóknarfrestur er til 20. apríl næstk. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR Hjúkrunarforstjóri Blönduósi Laus er til umsóknar staða hjúkrunarforstjóra við Heilbrigðisstofnunina Blönduósi. Hjúkrunarforstjóri er yfirmaður sem ásamt yfir- lækni og framkvæmdastjóra annast daglega stjórn stofnunarinnar. Hjúkrunarforstjóri ann- ast faglega stjórnun á heilsugæslu og sjúkra- húsi. Um er að ræða fullt starf. Launakjör eru sam- kvæmt kjarasammningi hjúkrunarfræðinga. Einungis kemur til greina að ráða hjúkrunar- fræðing. Umsóknum skulu fylgja náms- og starfsferill viðkomandi. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Starfið veitist frá og með 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi. Allar frekari upplýsingar um starfið veita Kristj- ana Arnardóttir, hjúkrunarforstjóri, og Pétur Arnar Pétursson, framkvæmdastjóri. Umsóknum skal skila til Péturs Arnars Péturs- sonar, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi. Öllum umsóknum verður svarað. Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.       Félagslegt starf með götubörnum. Dreifing á matvælum og fatnaði til flóttamanna. Berjast gegn eyðnifaraldrinum, finna fjölskyldur fyrir börn sem eru munaðarlaus vegna eyðni. 4-6 mánaða þjálfun í Danmörku. Möguleiki á skólastyrk fyrir þá sem byrja núna. HUMANA PEOPLE TO PEOPLE. Hafið samband við John í s. 0045 28 40 67 47. jb@humana.org — www.drh-movement.org Skólastjóri — kennari Okkur nemendur við grunnskólann Finnboga- stöðum, Árneshreppi, vantar skólastjóra og kennara. Þetta er fámennur skóli í fallegu umhverfi. Upplýsingar veita: Haraldur Óskarsson, skólastjóri, símar 451 4031 og 451 4032. Hjalti Guðmundsson, formaður skólanefndar, sími 451 4012. Gunnsteinn Gíslason, oddviti, símar 451 4001 og 451 4003. TIL SÖLU Rýmingarútsala Laugardaginn 7. apríl 2001 höldum við rýmingarsölu frá kl. 13.00—16.00 síðdegis og bjóðum ykkur álstiga og tröppur á frábæru verði. Einnig úrval af ódýrum verkfæra- og veiðikössum og kassa sem mundu henta vel utan um fluguhnýtingardótið. Ferðavörur á mjög hagstæðu verði: Uppblásin vask í útileguna, sápu- hulstur, neyðarteppi, töskur, grillgaffala og margt fleira. Einnig er mikið úrval veiðarfæra, flugustangir, kaststangir, kaststangir með hjóli á góðu verði, flugu- hjól, flugulínur, flugu og baklínu í sama pakka, flugu- hnýtingarsett, túbu „Visa“ ódýrar vöðlur, Camo vöðlur til gæsaveiða, veiðigallar og nokkur lítið gölluð vesti. Fjölbreytt úrval leikfanga, dúkkur, bílar, litabæk- ur, púsluspil. Örbylgjuofnar á kynningarverði. Safapressur á tilboðsverði ofl. ofl. Lítið við og gerið góð kaup. Greiðslukortaþjónusta. I. Guðmundsson, Vatnagörðum 26, 104 Reykjavík, sími 533 1991. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.