Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 30
ERLENT
30 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SEX meintir hryðjuverkamenn voru
handteknir á Ítalíu og í Þýskalandi á
fimmtudag. Mennirnir, sem sagðir
eru frá Alsír og Túnis, eru grunaðir
um að tengjast sádi-arabíska hryðju-
verkamanninum og auðkýfingnum
Osama bin Laden.
Fimm þessara manna voru hand-
teknir á Ítalíu. Þeir eru taldir tilheyra
sama hópi og hafði lagt drög að árás á
bandaríska sendiráðið í Róm í janúar.
Maðurinn sem handtekinn var í
Þýskalandi er talinn hluti af hópi sem
talið er að hafi ætlað sér að standa
fyrir sprengjutilræði í miðborg
Strassborgar á gamlárskvöld.
Fimm manns, sem tengjast tilræð-
unum fyrirhuguðu, tókst að komast
undan lögreglunni og er nú leitað.
Bandaríska sendiráðinu í Róm var
lokað í þrjá daga í janúar vegna ótta
um að til stæði að sprengja þar.
Þá sagði ítalska fréttastofan Ansa
frá því að til stæði að skjóta eldflaug-
um að sendiráðinu.
Fyrirhugað sprengjutilræði í
Strassborg fór út um þúfur sl. des-
ember eftir að þýska lögreglan hand-
tók fjóra menn í Frankfurt sem höfðu
vopn og sprengiefni í fórum sínum.
Þeir menn tengdust hópi á Norður-
Ítalíu. Sá hópur tengdist aftur hópn-
um sem lagt hafði drög að árásinni á
sendiráðið í Róm.
Innanríkisráðherra Ítalíu, Enzo Bi-
anco, sagði í gær að aðgerðirnar sem
leitt hefðu til handtöku mannanna
hefðu verið snilldarlegar og sagði
ítölsku lögregluna hafa notið sam-
starfs evrópskrar lögreglu og banda-
rískrar. Bianco sagði að íslamskir
hryðjuverkamenn hefðu orðið fyrir
miklu áfalli og bætti við að búið væri
að sigra „heilann á bak við íslömsk
hryðjuverk“.
Að sögn Stefano Dambruoso sak-
sóknara, sem fer fyrir rannsókninni,
er ítalski hópurinn mjög hættulegur
en starfsemi hans hefði fyrst og
fremst falist í því að útvega íbúðir fyr-
ir „stórlaxa íslamskra hryðjuverka-
manna sem tengjast bin Laden“, auk
þess sem hann hefði séð um að útvega
dvalarleyfi og falsað vinnupappíra.
Bandarísk stjórnvöld saka bin Lad-
en um að hafa staðið á bak við
sprengjutilræði í bandaríska sendi-
ráðinu í Tansaníu og Kenýa 1998 sem
urðu 224 manns að bana.
Alþjóðleg samvinna lögreglu ber árangur
Hryðjuverkamenn
handteknir á Ítalíu
Róm. AFP, AP.
EINN höfunda umdeildrar sagn-
fræðikennslubókar í Japan hélt í
gær uppi vörnum fyrir bókina sem
gagnrýnendur segja að fari á hunda-
vaði yfir yfirgangssemi Japana á
stríðstímum. Sagði höfundurinn, Ak-
inori Takamori, að í bókinni komi
fram söguskoðun sem margir Jap-
anar séu samþykkir.
Takamori er einn af tíu höfundum
bókarinnar, sem valdið hefur úlfúð
bæði í Japan og nágrannalöndum.
Sagði hann að í eldri kennslubókum
hafi verið smjaðrað fyrir Kína og
Suður-Kóreu.
„Fyrri kennslubækur hafa beygt
sig of mikið undir söguskoðanir Kín-
verja og Suður-Kóreumanna,“ sagði
Takamori sem kennir japanskar
fornbókmenntir við Kokugakuin-há-
skóla í Tókýó. Kínversk og s-kóresk
stjórnvöld, sem hafa fordæmt bók-
ina, yrðu að sætta sig við þá stað-
reynd að til væri fólk sem hefði öðru-
vísi viðhorf til sögunnar.
Uppkastinu breytt
Japanska menntamálaráðuneytið
lagði á þriðjudag blessun sína yfir
uppkast að bókinni sem er ætluð til
kennslu í fyrstu bekkjum mennta-
skóla, eftir að nefnd á vegum ráðu-
neytisins hafði farið yfir það og mælt
með að breytingar yrðu gerðar á 137
þáttum í henni vegna umdeilanlegs
innihalds.
Í uppkastinu að bókinni segir að
35 ára herseta Japana á Kóreuskaga
hafi verið í samræmi við alþjóðalög.
Þá var enn fremur sagt að fjölda-
morðin í Nanjing væru „ekkert í
samanburði við helförina.“ Sam-
kvæmt tillögum nefndarinnar voru
gerðar breytingar á texta bókarinn-
ar og gerð grein fyrir því að við inn-
limun Kóreu hafi verið beitt hervaldi
til að vinna bug á andspyrnu Kór-
eubúa.
Þá var enn fremur felld niður til-
vitnun sem dró úr umfangi Nanjing-
fjöldamorðanna en Kínverjar segja
að allt að 300 þúsund manns hafi fall-
ið þegar japanskar hersveitir lögðu
undir sig borgina í desember 1937.
Þetta hefur þó ekki dugað til að
draga úr gagnrýni á bókina, einkum
frá Kína og Suður-Kóreu þar sem
enn ríkir mikil reiði vegna yfirgangs
Japana á stríðstímum.
Tvískinnungur ekki til bóta
Takamori sagði enn fremur að
Japanir ættu ekki að draga dul á
söguskoðanir sínar til þess eins að
geta komið á vinsamlegum tengslum
við nágrannaríki sín. „Að vera sam-
mála á yfirborðinu en ósammála í
hjarta sínu er ekki til bóta ef stuðla á
að góðum tengslum til langframa,“
sagði Takamori og bætti við að
margir Japanir, þ. á m. stjórnmála-
menn, hefðu fallið í þessa gildru.
„Þeir eru sammála viðhorfum Kín-
verja eða Suður-Kóreumanna á op-
inberum vettvangi en í einkasamtöl-
um láta þeir aðra skoðun í ljósi.
Japanir hafa sínar eigin hugmyndir,
afstöðu og boðskap. Það er betra að
tjá þetta allt á heiðarlegan hátt og
athuga svo hversu mikið við getum
komið til móts við afstöðu Kínverja
eða Suður-Kóreu.“
Höfundur umdeildrar sögukennslubókar í Japan
Segir eldri bækurnar
„of smjaðurslegar“
Tókýó. Reuters.
AP
Japanski fáninn og japanskar sögukennslubækur voru brenndar þegar
efnt var til mótmælaaðgerða í Ulsan, skammt suður af Seoul í S-Kóreu í
gær. Segja mótmælendurnir að nýja japanska sögukennslubókin rétt-
læti innrás Japana í S-Kóreu og önnur ríki við upphaf 20. aldar og ekki
sé minnst á að japönsk stjórnvöld hafi í seinni heimsstyrjöld gert
fjöldann allan af asískum konum að kynlífsþrælum. Helsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn í S-Kóreu hvatti í gær til þess að japanskar vörur yrðu
sniðgengnar í mótmælaskyni.
TONY Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, brá sér í líki
ferðamannsins í gær
til að leggja áherslu
á, að erlendir gestir
þyrftu ekkert að ótt-
ast þótt gin- og
klaufaveiki geisaði í
búfé. Komum er-
lendra ferðamanna
til landsins hefur
fækkað um 10% og í
ferðageiranum horf-
ast margir í augu við
erfiðleika og jafnvel
gjaldþrot. Hér er
Blair meðal „víkinga-
barna“ í Jórvík en
Víkingasögusafnið
þar er ákaflega vin-
sæll áfangastaður,
jafnt innlendra sem
útlendra ferðalanga. AP
Blair
á vík-
inga-
slóðum
NORSKA stjórnin kynnti í gær til-
lögur sem miða að því að gerbreyta
skipulagi heilbrigðismála og munu
meðal annars spítalar á vegum sveit-
arfélaga verða ríkiseign. Ýmis sam-
tök hagsmunaaðila í heilsugæslu
mótmæltu þegar áformunum og
sögðu að flanað væri að breytingum
en félög sjúklinga voru fremur
ánægð með hugmyndirnar, að sögn
Aftenposten.
Mikið hefur verið kvartað yfir
löngum biðröðum í heilbrigðiskerf-
inu, sjúklingar verða að liggja í rúm-
um á göngunum og mikill munur er á
þjónustu í þéttbýli og afskekktum
sveitum. Tore Tønne heilbrigðis-
málaráðherra sagði að nú væri mál
að stokka upp spilin.
„Þessar umbætur munu binda
enda á deilurnar um það hver beri
ábyrgð á ástandinu og hver eigi að
laga það,“ sagði hún. Kveðið er á um
skyldu heilbrigðisstofnana til að eiga
samstarf um nýtingu tækja og með-
ferð, einnig munu skjólstæðingar
kerfisins fá meiri áhrif á reksturinn.
Breytingarnar munu taka gildi 1.
janúar 2002 og munu ekki hafa áhrif
á rekstur einkarekinna stofnana.
Talsmenn sveitarfélaganna ætla
að sögn Aftenposten að krefja ríkið
um bætur fyrir mannvirkin ef stofn-
anirnar verða þjóðnýttar og leggja
áherslu á að ríkisvaldið verði einnig
að greiða uppsafnaðar skuldir sveit-
arfélaga sem stafa af útgjöldum til
heilsugæslu.
Nýjar tillögur norskra stjórnvalda
Umbylting í skipu-
lagi heilsugæslu
Ósló. AP.
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, hvatti í gær atvinnu-
leysisbótaskrifstofur í landinu til að
taka harðar á fólki sem er á atvinnu-
leysisskrá en hafnar tilboðum um
vinnu.
„Enginn í þessu þjóðfélagi hefur
rétt til að vera latur,“ sagði kansl-
arinn í viðtali sem birtist í dag-
blaðinu Bild í gær. „Ef einhver er
fær um að vinna en nennir því ekki,
ætti hann ekki að búast við samúð.“
Schröder kvaðst þeirrar skoðunar að
skerða ætti bætur þeirra sem hafna
viðunandi atvinnutilboði. „Það er
ekki nema eðlilegt og ég tel að bóta-
skrifstofur ættu að nýta sér tæki-
færin til þess betur.“
Samkvæmt nýjum tölum um at-
vinnuleysi í Þýskalandi, sem birtar
voru fyrr í vikunni, eru um fjórar
milljónir manna skráðar án atvinnu,
á meðan 600 þúsund manns vantar
til ýmissa starfa.
Schröder úthýsir letinni
Frankfurt. AFP.