Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAR SEM framtíð flugvallarins í
Vatnsmýrinni virðist jafn óráðin og
hún var, eftir nýafstaðnar kosningar,
sé ég að það stefnir í mikið óefni og
jafnvel í nýja Sturlungaöld.
Þar sem ég er búsettur í Hafn-
arfirði, og tel mig vera á nokkuð
hlutlausu svæði, og við gaflarar höf-
um löngum leyst okkar vandamál í
friðsemd undir einhverjum húsgafl-
inum, rölti ég út í blessaða vetrar-
blíðuna og tyllti mér undir gaflinn
hérna heima hjá mér.
Ekki hafði ég lengi setið þegar ný
hugmynd kviknaði. Ég sá í hugan-
um, líkt og í kvikmynd eftir Hrafn
Gunnlaugsson, nýjan og glæsilegan
flugvöll, sem ætti engan sinn líka í
heiminum, byggðan í Vatnsmýrinni,
en á þann hátt að það uppfyllir kröf-
ur beggja deiluaðila. Ingibjörg Sól-
rún getur byggt eftir vild í mýrinni
sinni og Sturla fær að hafa flugvöll-
inn um ókomnar aldir á sama stað.
Hugmyndin var svo skáldleg og
innblásinn að þegar ég settist við
tölvuna og hóf að færa hugsanir ein-
ar í búning birtust þær allar í
bundnu máli. Vona ég, þar sem þetta
er ekki erfiljóð og flugvöllurinn
hvorki dáinn né grafinn ennþá, að
blaðið sjái sér fært að birta hug-
myndina.
Vandinn leystur
Nú skal bræður, vitið virkja,
veginn friðar betur styrkja
Sturlunga nýja stöðvum öld.
Hugmynd snjalla hér skal bjóða,
hana tel ég eðalgóða.
Mætti ég biðja um meiri völd?
Hlutafélag fljótt skal stofna,
flestar þrætur munu rofna.
Fjármagnskóngar fara á stjá.
Auðmagn heimsins vel má virkja,
veldi einkagróðans styrkja,
Veröld hissa verður þá.
Vatnsmýrar skal vanda leysa,
vond þó geisi þrætukveisa.
Ber ég klæði á vopnin vel.
Frelsi rúnar flóttahræður
flytjum hingað, kæru bræður.
Best þær hýsa í tjöldum tel.
Þar skal velja vinnuknáa,
vel að manni, digra og háa,
fagmenn góða, unga enn.
Þar skulu gilda launin lágu,
litlu kostað til og smáu.
Hér skulu stjórna harðir menn.
Skýjakljúfa skjótt skal hanna
skýrt og vel, og líka kanna
hvað þarf marga og hæstu hæð.
Meðfram flugsins brautum beinum
brátt skal reisa þá með sveinum
þeim er þrælsins þekkja smæð.
Þar verða bestu heimsins hótel,
hraðbankar og tísku mótel,
Allt sem freistar ferðamanns.
Glæsimeyjar ganga um sali,
gestum þjóna eftir vali.
Næturgreiði og nektar dans.
Flugbrautir svo leggjum langar
lofts í hæðum, kröfustrangar,
skýjakljúfum ofan á.
Þar með leysast þrætumálin,
þá skal drukkin friðarskálin.
Sturla og Sólrún sættast þá.
Sturla flugvöll fær að hafa,
frúin Vatnsmýrina grafa.
Veraldarundur verður til.
Einkaframtak fær sinn gróða,
framboð verður glæsilóða.
Ég í frægðar uni yl.
ÁSGEIR JÓN JÓHANNSSON
(Ásjón)
Lyngbarði 5, Hafnarfirði.
Vandinn leystur
Frá Ásgeiri Jóni Jóhannssyni:
EFTIR frönsku byltinguna á
átjándu öld reyndu nýju valdhafarn-
ir að breyta sem mestu af því sem
minnti á fortíðina. Eitt af því sem
þeir breyttu var voru mælieining-
arnar og farið var að nota metra í
stað feta.
Einum mikilsmetnum manni í
Frakklandi þótti þó helst til nóg
komið þegar átti að fara að afnema
sjálft tugakerfið og taka upp tólf sem
grunntölu (tólf í tugnum). Hann
beitti all sérstakri aðferð við að berj-
ast gegn breytingunni og lagði til að
ellefu yrði hin nýja grunntala.
Allir sem þekktu til mannsins
vissu að eini tilgangur hans með
þessu var að kasta rýrð á alla um-
ræðuna um grunntölurnar og þannig
drepa niður allar tilraunir til breyt-
inga. Ellefu hafði enga af þeim kost-
um sem tólf voru taldir hafa umfram
tíu.
Skemmst er frá því að segja að
honum heppnaðist ætlunarverk sitt.
Núna er svipað upp á teningnum á
Íslandi. Landsmenn vilja afnema
gjafakvótakerfið og hefja uppboð á
kvótum í nafni hagkvæmni og rétt-
lætis.
Þröngur hópur manna berst nú
gegn því með all sérstæðum hætti.
Þeir vilja að ríkið setji á veiðiskatt.
Þeir sem þekkja til þessara manna
vita að þeir hafa ekki staðið fyrir
auknum ríkisafskiptum, þvert á
móti. Erfitt er einnig að rökstyðja
tillögu þeirra með réttlætis eða hag-
kvæmnisrökum. Eini tilgangur
þeirra virðist vera að þæfa málið og
tefja allar breytingar á gjafakvótan-
um.
Hversu lengi mun þeim takast
það?
GUÐMUNDUR ÖRN
JÓNSSON,
Laugalind 1, Kópavogi.
Ellefu
Frá Guðmundi Erni Jónssyni: