Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 56
UMRÆÐAN 56 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ INGIBJÖRG Sól- rún Gísladóttir,borg- arstjóri í Reykjavík, hefur nú upp á sitt eindæmi ákveðið, hvað sem tautar og raular, að kosningin um flug- völl í Vatnsmýrinni í Reykjavík sé siðferði- lega bindandi fyrir borgaryfirvöld, Reyk- víkinga og landsmenn alla, þrátt fyrir að kosningin sé á engan hátt marktæk og nið- urstaðan engin sam- kvæmt reglum sem hún setti sjálf og eru byggðar á sveitar- stjórnarlögum. Borgarstjóri og fylgifiskar henn- ar í málinu, Helgi Hjörvar og Hrannar Björn Arnarsson, tala nú eins og allt hafi þetta verið meiri- háttar sigur fyrir lýðræðið og marki ákveðin tímamót í sögu borgarinnar. Auðvitað eru þetta skýr skilaboð til Reykvíkinga um að taka ekki mark á því lýðskrumi og skrípaleik sem borgarstjórinn hefur boðið Reykvíkingum upp á. 13. febrúar sl. lagði borgarstjóri fram svohljóðandi tillögu í borgar- ráði: „Borgarráð samþykkir að nið- urstaða atkvæðagreiðslu um fram- tíðarnýtingu Vatnsmýrar og staðsetningu Reykjavíkurflugvall- ar 17. mars n.k. verði bindandi, ef a.m.k. ¾ hlutar atkvæðisbærra manna taka þátt í henni. Jafnframt samþykkir borgarráð að niðurstað- an verði bindandi, ef a.m.k. 50% at- kvæðisbærra manna greiða at- kvæði á sama veg.“ Samkvæmt þessari samþykkt hefðu a.m.k. 75% eða 60.969 Reyk- víkingar þurft að kjósa til þess að hún yrði bindandi, en aðeins 37,2% tóku þátt eða 30.219 Reykvíkingar. Kjósendur á kjörskrá voru 81.262. Til þess að kosningin yrði bindandi samkvæmt samþykkt borgarráðs hefðu 30.750 fleiri Reykvíkingar þurft að taka þátt í kosningunni en raun varð á eða 38%. Niðurstaða kosninganna var á þann veg að 14.913 eða 18,4% vildu að völlurinn færi en 14.529 eða 17,9% vildu að völlurinn væri. Þarna munar aðeins 384 atkvæðum eða tæplega 0,5%. Þeir sem sátu heima og tóku ekki þátt í kosning- unni voru 51.043 eða 62,8% af þeim sem voru á kjörskrá. Draga má þá ályktun að þeir sem kusu að sitja heima endurspegli afstöðu þeirra sem vildu ekki taka þátt í þessu sýnd- arlýðræði eins og nú hefur komið á daginn. Þessi kosning er eng- an veginn bindandi fyrir borgarstjórn Reykjavíkur ef menn vilja fara að reglum lýðræðisins. Á fundi borgarráðs 12. desember s.l. lagði borgarstjóri fram til- lögur sérfræðihóps vegna atkvæðagreiðsl- unnar um flugvöllinn. Þar var m.a. sam- þykkt að samhliða atkvæðagreiðsl- unni yrði efnt til skoðanakönnunar meðal annarra landsmanna til að fá fram sjónarmið landsbyggðarfólks og íbúa annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Úrtak 5– 10.000 manna yrði spurt í síma. Samþykkt var að niðurstöður þess- arar skoðanakönnunar og atkvæða- greiðslunnar yrðu birtar samtímis. Þetta hefur ekki verið gert. Sú samþykkt borgarráðs hefur verið virt að vettugi. Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru mikill ósigur fyrir borgarstjóra sem lagði allt undir í málinu. Dræm þátttaka í atkvæðagreiðslunni sýn- ir að borgarbúar sáu í gegnum þá sýndarpólitík sem viðhöfð hefur verið. Staðreyndir tala sínu máli því 50.043 Reykvíkingar eða 62,8% kusu að taka ekki þátt í kosning- unni og sátu heima. Atkvæða- greiðslan hefur engan veginn skil- að marktækri niðurstöðu og er því ekki bindandi. Auðvitað er það jákvætt að fá álit kjósenda í tilteknum málum eins og flugvallarmálinu, en R-listinn hefur klúðrað þessu máli gjörsamlega með óvönduðum vinnubrögðum. Formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, Árni Þór Sigurðsson, snerist gjörsamlega í málinu tveim- ur dögum fyrir kjördag. Þetta er sá aðili í borgarstjórn Reykjavíkur sem hefur hvað greiðastan aðgang að öllum upplýsingum um málið. Það er því ekki óeðlilegt að hinn al- menni borgarbúi spyrji sig hvernig hin faglegu rök séu í þessu máli þegar einstaklingur sem er í for- svari fyrir málaflokkinn kúvendir í málinu á síðustu dögum. Nú hafa borgarstjórinn í Reykja- vík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og fylgifiskar hennar í málinu, Helgi Hjörvar og Hrannar Björn Arnarsson, gefið skít í lýðræðið og virða hvorki sveitarstjórnarlögin né sínar eigin samþykktir. Sagt er að kosningaúrslitin séu siðferðilega bindandi þó að allir viti að svo er ekki. Þetta pólitíska sjónarspil hef- ur skaðað lýðræðið og kostað borg- arbúa mikla peninga. Mikill ágreiningur er nú uppi hjá R-listanum í málinu. Framsóknar- mennirnir Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson telja bæði að úrslit kosninganna séu alls ekki bindandi. Þannig er siðferðismat borgarfulltrúa innan R-listans mis- munandi. Í sjónvarpsviðtali 19. mars s.l. sagði Sigrún Magnúsdóttir: „Þetta er alveg skýrt, við lögðum upp með skýra kosti, kosningin náði þeim ekki og er því ekki bindandi, ég held að allir séu sammála um það.“ Í þessu sama sjónvarpsviðtali var talað við Alfreð Þorsteinsson. Hann sagði að ákveðnar reglur hefðu verið settar um hvenær og hvort kosning yrði bindandi. Það væri augljóst að krafan væri um 75% þátttöku en raunin væri víðs- fjarri því marki. Borgaryfirvöld væru því algjörlega óbundin af þessari niðurstöðu. Hann sagðist ekki geta séð að borgaryfirvöld væru siðferðilega bundin né að nið- urstöðurnar væru bindandi á ein- hvern hátt. Hér kemur skýrt fram að sið- ferðismat þeirra Sigrúnar og Al- freðs í málinu er allt annað en borgarstjórans og hennar fylgi- fiska. Þau líta greinilega til sveit- arstjórnarlaga og þeirra reglna sem settar voru vegna kosninganna í áliti sínu. En borgarstjóri, Helgi og Hrannar berja hausnum við steininn af því að þeim líkar ekki niðurstaða kosninganna og segjast vera siðferðilega bundin af kosn- ingunni sem er fjarri öllum sanni. Að leggja málið þannig upp er ekk- ert annað en siðblinda. Auðvitað eru þetta skýr skilaboð til Reykvíkinga um að taka ekki mark á því lýðskrumi og skrípaleik sem borgarstjórinn hefur nú boðið Reykvíkingum upp á. Nú spyrja menn hvort borgarstjóra muni tak- ast að sveigja þau Sigrúnu og Al- freð til hlýðni við sig í málinu. Ágreiningur um lýðræðis- reglur og siðferðismat Jóna Gróa Sigurðardóttir Kosning Þetta eru skilaboð til Reykvíkinga, segir Jóna Gróa Sigurðardóttir, um að taka ekki mark á því lýðskrumi og skrípa- leik sem borgarstjórinn hefur nú boðið upp á. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. ALLS staðar blasir við okkur hversu sam- skipti eru mikilvæg í daglegu lífi. Mörgum finnst nóg um alla fundina sem við boðum til eða eigum að mæta á og flestir eru talandi í síma daginn út og inn, sitjandi, gangandi og akandi. Eftir vinnuna reynum við eftir fremsta megni að eiga góð samskipti við heim- ilisfólkið sem oftar en ekki er talandi í síma, að senda tölvupóst, leita á netinu, horfa á sjónvarp eða mynd- band. Þessi tæknivæddu samskipti minna á þörf okkar fyrir að eiga samneyti við annað fólk en eru kannski á köflum á kostnað venju- legra hjálpartækjalausra samskipta. Stjórnun, samskipti og vellíðan Framundan er alþjóðlegur heil- brigðisdagur sem að þessu sinni er helgaður geðheilbrigði. Góð sam- skipti eru grundvöllur góðrar geð- heilsu. Á vinnustað skipta samskipti starfsmanna mjög miklu máli. Rann- sóknir hafa sýnt að starfsmenn leggja mesta áherslu á gildi góðra samskipta og starfsanda þegar þeir eru spurðir um vellíðan í vinnu. Sam- skipti og góður starfsandi vegur þar þyngra en aðrir þættir svo sem laun. Samskipti sem byggjast á virðingu, umburðarlyndi og gagnkvæmu trausti einkenna góða vinnustaði og oftar en ekki eru það stjórnendur sem gefa tóninn og eiga drjúgan þátt í að skapa góðan starfsanda. Landlæknisembætt- ið og Geðrækt hvetja landsmenn til að taka þátt í eflingu geðheil- brigðis á vettvangi heil- brigðiskerfisins, heim- ila, skóla, kirkju og vinnustaða. Landspít- ali-háskólasjúkrahús tekur þátt í þessu verk- efni með því að leggja áherslu á gildi góðra samskipta fyrir and- lega velferð starfs- manna. Af þessu tilefni var settur saman samstarfshópur sem fer í stuttar heimsóknir á deildir spítal- ans vikuna 2.-4. apríl. Heimsóknirn- ar eru á léttu nótunum þar sem heimsóknargestir bjóða starfsmönn- um og sjúklingum, sem hafa mögu- leika til, að taka þátt í stuttum sam- skiptaleik. Samskiptaleikir varpa ljósi á hvernig hópar vinna saman og oft og tíðum kristallast samskipta- munstur í slíkum leikjum, þátttak- endum og öðrum til gagns og gam- ans. Auk heimsóknanna hafa prestar spítalans sérstakar bænastundir af þessu tilefni, sjúkraþjálfarar bjóða upp á slökun og sýning Kaffileik- hússins á leikritinu Háalofti hinn 5. apríl er tileinkuð starfsmönnum Landspítala-háskólasjúkrahúss. Vellíðan starfsmanna er lykillinn að starfsánægju sem er grundvöllur velgengni fyrirtækja. Vellíðan starfsmanna er afrakstur góðra stjórnunarhátta, virðingar í sam- skiptum, ábyrgðar og umburðar- lyndis starfsmanna. Skipulag verk- efna, gott upplýsingaflæði og tækifæri starfsmanna til að hafa áhrif á eigin störf einkenna góða stjórnun. ,,Ekki líta undan! Láttu þér annt um andlega heilsu“ eru mikilvæg skilaboð til starfsmanna og stjórnenda til að styðja velferð starfsmanna og þar með velferð fyr- irtækjanna. Láttu þér annt um and- lega heilsu Sigrún Gunnarsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Alþjóðaheilbrigði Vellíðan starfsmanna, segir Sigrún Gunn- arsdóttir, er lykillinn að starfsánægju sem er grundvöllur velgengni fyrirtækja. KLÚBBURINN Geysir er úrræði fyrir fólk sem er að ná sér eftir geðræn veikindi. Þeir sem hafa átt við þann vanda að etja er stór hópur sem klúbb- urinn Geysir hefur átt þátt í að virkja. Klúbburinn hjálpar félögum að ná betri lífs- gæðum og ná sínum markmiðum. Það að vera virkur, tilheyra hópi, og að vinnufram- lag sé metið, teljum við að séu sjálfsögð mann- réttindi og lífsgæði. Það að vera haldinn geðsjúkdómi leiðir oft til félagslegr- ar einangrunar og lágs sjálfsmats. Manneskjan í fyrirrúmi Klúbburinn Geysir er vinnustaður þar sem félagar og starfsfólk vinna saman að þeim verkefnum sem inna þarf af hendi. Félagar fá tækifæri til að reyna sig í ýmsum störfum og fá svörun á þau. Í klúbbnum Geysi er vinnuframlag hvers og eins metið. Við horfum á styrkleika frekar en veikleika, og félagar fá tækifæri til að byggja upp starfsgetu sem leiðir til betra sjálfsmats og einangrun verður rofin. Ef félagi veikist þá hef- ur hann klúbbinn alltaf sem stuðn- ing, og hann er ekki gleymdur, því hver og einn félagi er mikils metinn. Taka þátt í þjóðfélaginu Það að skapa félögum tækifæri til að komast út á almennan vinnu- markað eftir veikindi er eitt af að- almarkmiðum klúbbsins. Klúbbur- inn leitar að vinnu eftir óskum félaga og styður viðkomandi. Stuðningur- inn er fólginn í því að félaginn fær þann tíma og þá kennslu sem hann þarf meðan hann er að komast inn í starfið. Félaginn er ráðinn á sínum forsendum og fær laun samkvæmt launataxta fyrirtækisins. Klúbbur- inn Geysir skapar tækifæri fyrir félaga til að ná markmiðum sínum og fá starfsreynslu á vinnumarkaði. Í dag eru starfandi 14 einstakling- ar á hinum almenna vinnumarkaði fyrir tilstuðlan Geysis og daglega koma 15–25 félagar í klúbbinn til starfa. Í tilefni af alþjóðlega heilbrigðis- deginum telur klúbburinn Geysir að skref til heilbrigðis sé fólgið í því, að vera virkur og það sé þörf fyrir þig, og vinnuframlag hvers og eins skipt- ir máli. Kæru landsmenn, til hamingju með daginn! Það er þörf fyrir þig Anna S. Valdemarsdóttir Geysir Klúbburinn Geysir er vinnustaður, segja Anna S. Valdemarsdóttir og Ólína H. Guðmunds- dóttir, þar sem félagar og starfsfólk vinna sam- an að þeim verkefnum sem inna þarf af hendi. Höfundar eru starfsmenn í klúbbnum Geysi. Ólína H. Guðmundsdóttir Sterk gó l fe fn i Ármúla 23, sími 533 5060 Súrefnisvörur Karin Herzog Oxygen face Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.