Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 29
rætt um að gera blaðið að vikuriti,
einnig að minnka umfangið.
„Ég er mjög vonsvikinn. Við
starfsmennirnir vorum aldrei kall-
aðir á fund til að ræða hvernig
skera mætti framlagið niður.
Þetta hefur verið vont áfall fyrir
marga,“ sagði trúnaðarmaður
starfsmanna, Nicolai Kampmann,
sem sagðist hafa fengið skipun um
að þegja vandlega um allar við-
ræðurnar sem fram fóru bak við
tjöldin. Ella yrði blaðið um-
svifalaust lagt niður.
DANSKA dagblaðið Aktuelt, sem
er málgagn launþegasamtaka í
landinu og komið hefur út í 130 ár,
hefur nú lagt upp laupana. Þrátt
fyrir mótmæli starfsmanna ákvað
stjórn danska alþýðusambandsins,
LO, að hætta að styrkja blaðið og
var jafnvel búist við að það kæmi
ekki út í dag. Upplag Aktuelt hef-
ur minnkað um meira en helming
á áratug og var komið í um 25.000
eintök.
Verkalýðsleiðtogarnir Louis Pio
og Hans Brix stofnuðu blaðið 1871
og hét það í fyrstu Socialisten, en
síðan Social-Demokraten til 1959
er það varð Aktuelt. Alþýðu-
sambandið gaf út fleiri blöð og
tímarit en þeim hefur fækkað á
undanförnum árum. Frægasta fyr-
irsögn Aktuelt er frá árinu 1920,
„Konungur stendur fyrir valda-
ráni“. Aktuelt hefur státað af því
að vera elsta dagblað verkalýðs-
hreyfingar í heiminum.
Alls vinna 125 manns hjá
blaðinu, þar af 55 blaðamenn. Að
sögn dagblaðsins Jyllands-Posten
voru mikil innbyrðis átök um lok-
unina og taldi Anders Jerichow
aðalritstjóri að hægt væri að
bjarga blaðinu þrátt fyrir versn-
andi afkomu. LO lagði fram sem
svarar um 700 milljónum íslenskra
króna árlega til reksturs blaðsins
og töldu ráðamenn sambandsins
að ekki væri gerlegt að halda því
áfram. En Jerichow var ósáttur
við að ekki skyldi vera gefinn
frestur, reynt að minnka fjár-
framlagið í áföngum og kanna nýj-
ar leiðir. Hefur meðal annars verið
Danska dagblaðið Aktuelt hættir að koma út vegna hallareksturs
Var elsta verkalýðsblað í heimi
Ekki í for-
setaframboð
HILLARY Rodham Clinton,
öldungardeildarþingmaður frá
New York, sem talin hefur ver-
ið hugsanlegur forsetafram-
bjóðandi demókrata, sagði The
New York Post í gær að hún
ætli sér ekki í framboð til for-
seta, hvorki árið 2004 né síðar.
Yfirlýsingin kom frá forseta-
frúnni fyrrverandi þegar þrýst
var á hana um að útskýra um-
mæli sem voru á þá leið að hún
ætlaði sér ekki forsetaembætt-
ið. Háttsettur embættismaður
sem var í grenndinni og hlust-
aði á orðaskipti Clintons og
blaðamannsins sagðist halda að
hún hefði aldrei tekið svo af-
dráttarlaust til orða.
Viðræður út
um þúfur
VIÐRÆÐUR milli frétta-
manna og nýrra umdeildra eig-
anda rússnesku sjónvarps-
stöðvarinnar NTV fóru út um
þúfur innan við klukkustund
eftir að þær hófust í gær. Afdrif
sjónvarpsstöðvarinnar hafa
verið álitin prófsteinn á fjöl-
miðlafrelsi í Rússlandi en rík-
isfyrirtækið Gazprom tók hana
yfir í síðustu viku.
Fréttamennirnir lögðu til að
lausn deilunnar í kringum yf-
irtökuna yrði lögð fyrir Vladim-
ír Pútín Rússlandsforseta og
dómstóla í Rússlandi. Blaða-
menn hafa neitað að viður-
kenna hina nýju framkvæmda-
stjóra NTV í efa.
Framkvæmdastjórarnir vísuðu
tillögunum algerlega á bug.
Konungur í
framboð
SÍMEON II, hinn útlægi kon-
ungur Búlgaríu, sagði í gær að
hann myndi fara fyrir nýjum
stjórnmálaflokki sem býður
fram í þingkosningum í Búlg-
aríu 17. maí næstkomandi.
Símeon verður því fyrsti kon-
ungur í fyrrverandi kommún-
istaríkjum Austur-Evrópu til
að hafa afskipti af stjórnmálin.
Sektaðir fyr-
ir brauðát
RÍKISSTJÓRN Ísrael hefur
skipað fimmtán sérstaka rann-
sóknarmenn til að sekta íbúa
landsins sem staðnir verða að
því að borða venjulegt brauð en
ekki súrdeigsbrauð á opinber-
um vettvangi í páskahátíð gyð-
inga sem hefst í dag og haldin
er til að minnast burtfarar gyð-
inga frá Egyptalandi og Biblían
greinir frá. Neysla matar sem
inniheldur ger er bönnuð á há-
tíðinni.
Þriðjungur
nemenda
vel læs
EINUNGIS um þriðjungur
bandarískra nemenda á aldrin-
um níu til tíu ára uppfyllir þær
lestrarkröfur sem gerðar eru
til aldursflokksins, eða hefur
enn betri lestrarkunnáttu en
ætlast er til. Aðeins einn af
hverjum tíu nemendum úr hópi
svertingja uppfyllir kröfurnar.
Þetta kemur fram í nýrri könn-
un bandaríska menntamála-
ráðuneytisins. Þriðjungur nem-
enda hefur náð lágmarksfærni í
að lesa en 37% hafa enn slakari
lestrarkunnáttu.
STUTT