Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 80
80 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SPURNINGAKEPPNI framhaldsskól-
anna hefur aldrei verið jafn spenn-
andi og í ár, þar sem lið Borgar-
holtsskóla stóð uppi í hárinu á liði
MR. Fyrirliðinn, Sæmundur Ari Hall-
dórsson, segir: „Nei, ég er síður en
svo svekktur að hafa tapað, en
fyrst við vorum hálfpartinn með sig-
urinn í höndunum hefðum við
kannski geta klárað þetta.“ Borg-
arholtsskóli tók sig til og bauð
keppnisliðinu sínu á U2 tónleikana
í Dublin í ágúst. Eftir það liggur leið
Sæmundar Ara í Háskólann, en í
hvað deild segir hann óvíst, enda er
áhugasviðið umfangsmikið.
Hvernig hefur þú það í dag?
Ég var að koma heim úr skólanum
og það er síðdegisþreyta í mér, en
þetta stefnir allt í rétta átt.
Hvað ertu með í vösunum í augna-
blikinu?
Ég er með Eurocard og miða. Ekkert
meira.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú
verður stór?
Stærri, þroskaðri og fær í flestan
sjó.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Ég ætla að segja Bítlarnir en þá
verða samt sumir svolítið reiðir.
Bítlarnir eru fjölhæfari listamenn,
en upphaflega þegar Stones voru í
blúsnum voru þeir mestu töffararn-
ir.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem
þú fórst á?
Litli sótarinn eftir Benjamin Britten,
að ég held. Ég man alltaf eftir því
þar sem plakatið hékk uppi hjá
ömmu og afa af því að frænka mín
söng í verkinu.
Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga
úr eldsvoða?
Plötusafninu mínu. Ekki spurning.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Sjálfsgagnrýni.
Hefurðu tárast í bíó?
Nei aldrei. Ég er samt tilfinninga-
næm týpa og hef tárast yfir mynd-
um en ég geri það heima í laumi.
Finndu fimm orð sem lýsa persónu-
leika þínum vel.
Fróðleiksfús, dálítið latur, en ef ég
hef gaman af einhverju þá tek ég
það föstum tökum, vonandi góður
en svolítið stríðinn.
Hvaða lag kveikir blossann?
„Je t’aime“ með Serge Gainsbourg.
Hvert er þitt mesta prakkarastrik?
Eitt sinn þurfti mamma að leita að
mér í klukkutíma uppi í sumarbú-
stað af því ég neitaði að fara heim.
Ég lá í felum og fylgdist með henni
allan tímann.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur bragðað?
Ég er svo venjulegur gaur að þegar
ég fer til útlanda fer ég á MacDon-
alds og steikhús, en ég hef lent í því
að púsla einhverju furðulegu sam-
an heima.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Go Hawaii með Casino vs. Japan.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Tom Cruise án efa. Ég skil ekki af
hverju Stanley Kubrick var að nota
greyið í Eyes Wide Shut. Hann er
hræðilegur leikari í alla staði.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Að falla í stærðfræði á fyrsta ári. Ég
hef ekki beðið þess bætur.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Að sjálfsögðu. Hilli, vinur minn, er
búinn að sannfæra mig um það
með ótæmandi fyrirlestrum. Ég er
ekki góður í trúarbragðafræðum en
hef heyrt óteljandi rök fyrir því og
get ekki trúað öðru eftir að hafa séð
myndir einsog Der Himmel über
Berlin.
Bráðum fær í
flestan sjó
Morgunblaðið/Jim Smart
SOS
SPURT & SVARAÐ
Sæmundur Ari
Halldórsson
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 2 og 4. Vit nr. 210.
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika,
þú verður bara að upp-
götva þá.
Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra Good Will Hunting
Vinsælasta Stúlkan
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 217.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 213
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Enskt tal. Vit nr. 214
Sprenghlægileg ævintýramynd
Frábær mynd úr smiðju Disney þar sem nornin Isma
rænir völdum og breytir Keisaranum í lamadýr.
Nú þarf Keisarinn að breyta um stíl!
Brjáluð Gam-
anmynd
Sandra Bullock þarf að hafa sig alla við til að
geta brugðið sér í gervifegurðardrottningar og
komast að því hver er að eyðileggja keppnina.
Frábær grínmynd sem sló öll met í USA.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit nr. 201.
Sýnd kl. 10. B. i. 14. Vit nr. 209
www.sambioin.is
PROOF
OF LIFE
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 207.
Sýnd kl. 1.50 og 3.45. Vit nr. 203.
Tvíhöfði
Sýnd kl. 1.45. Enskt tal. Vit nr. 187.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 3 og 5.45. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.16 ára.
Sýnd kl. 10.15.
AI Mbl
Tvíhöfði
Kvikmyndir.is
FRAMBJÓÐANDINN
Stundum getur þú tekið
leiðtoga af lífián þess að
skjóta einu einasta skoti
Lalli
Johns
eftir Þorfinn Guðnason.
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Vinsælasta Stúlkan
Brjáluð
Gamanmynd
Sýnd kl. 4.30, 6.30 og 8.30.
HK DV
Strik.is
Ó.H.T Rás2
Yfir 2000 áhorfendur
Ó.H.T Rás2
HL Mbl
Kvikmyndir.com
Sandra Bullock þarf að hafa sig alla við
til að geta brugðið sér í gervi fegurðar-
drottningar og komast að því hver er að
eyðileggja keppnina. Frábær grínmynd
sem sló öll met í USA.
SV Mbl
Frumsýning
Frumsýning
JULIA STILES • SEAN PATRICK THOMAS
SAVE THE LAST DANCE
Trufluð tónlist - Brjálaður dans!
Önnur aðsóknarmesta myndin í USA á þessu ári með Júlíu Stiles (10
things I hate about you). ATH. Kaupið tónlistina úr myndinni í Japis
og fáið frímiða fyrir 2 á myndina!
kirikou
og galdrakerlingin
DV
Tvíhöfði
Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Tónlistin úr myndinni fæst í Japis
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
UNNUSTA leikarans Keanu Reev-
es lést í bílslysi á mánudaginn þeg-
ar hún velti jeppabifreið sem hún
ók eftir Hollywood Boulevard eftir
að hafa ekið út af veginum og lent á
þremur kyrrstæðum bílum. Jenni-
fer Syme var 29 ára gömul og starf-
aði hjá hljómplötufyrirtæki í Los
Angeles en hafði einnig spreytt sig
á kvikmyndaleik og fór með lítið
hlutverk í Lost Highway eftir
David Lynch.
Talsmenn lögreglu segja að
rannsókn standi nú yfir á banaslys-
inu en ekki þykir útilokað að eit-
urlyf hafi átt þar hlut að máli því
við leit í bifreiðinni fundust lyf og
peningaseðlar með leyfum af hvítu
duftkenndu efni. Syme hafði þjáðst
af þunglyndi síðan hún fæddi and-
vana barn þeirra Reeves árið 1999
og var í lyfjameðferð sökum þess.
Reeves hefur ekki gefið frá sér
opinbera yfirlýsingu vegna andláts
unnustu sinnar.
Keanu Reeves verður fyrir miklu áfalli
Reuters
Keanu Reeves
Unnustan lést
í bílslysi