Morgunblaðið - 07.04.2001, Page 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI er samstaða í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar með
þá útfærslu á framkvæmd-
um á Reykjanesbraut, sem
kynnt hefur verið í frum-
drögum að verkinu og unnin
er af Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsens hf. (VST)
fyrir Vegagerðina og Hafn-
arfjarðarbæ. Þetta kom
fram á fjölmennum borgara-
fundi í Hafnarborg síðast-
liðið fimmtudagskvöld, sem
haldinn var á vegum Hafn-
arfjarðarbæjar og Vegagerð-
arinnar og stóð í tvær
klukkustundir. Á annað
hundrað manns sóttu fund-
inn og kom þar fram tölu-
verð andstaða við fyrirhug-
aðar framkvæmdir á
Reykjanesbraut.
Á fundinum kynnti Krist-
inn Ó. Magnússon, bæjar-
verkfræðingur Hafnarfjarð-
ar, frumdrög hönnunar
framkvæmdarinnar og sýndi
m.a. myndband þar sem
kemur fram hvernig mann-
virki muni líta út að fram-
kvæmdum loknum. Að þess-
ari kynningu lokinni tók
Karl Garðarsson, fréttastjóri
Stöðvar 2 og Bylgjunnar, við
fundarstjórn og stýrði pall-
borðsumræðum um málið.
Fyrir svörum sátu Magnús
Gunnarsson, bæjarstjóri,
Kristinn Ó. Magnússon, Jón-
as Snæbjörnsson, umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðar-
innar, Sigurður Einarsson,
formaður skipulagsnefndar
Hafnarfjarðar, og Ólafur
Erlingsson, VST. Voru fyr-
irspurnir bornar fram úr sal.
Endurspegluðu þær mikinn
áhuga bæjarbúa, einkum
íbúa í Setbergi og Hvömm-
um, fyrir því sem í ráði er að
gera.
Skóli og hraðbraut
fara tæpast saman
Fyrsta athugasemdin sem
barst laut að nálægð fyrir-
hugaðs grunnskóla á Hörðu-
völlum við Reykjanesbraut-
ina og slysahætta sem
mönnum þótti sýnt að hlyti
að vera fyrir hendi. Í svari
fimmmenninganna kom
fram, að menn þar á bæ
vissu af þessari hættu og
kæmu til með að huga sér-
staklega að öryggisvörnum
þar, til að koma í veg fyrir
að börn gætu hlaupið út á
veginn.
Aðrir höfðu áhyggjur af
gangandi fólki almennt á
þessu svæði og fannst því
gert erfitt fyrir og beinlínis
stefnt í hættu.
Þá kom fram nokkur ótti
við þann hraða sem myndi
verða á hinum nýja vegi og
gerðu menn athugasemdir
við að þar væru engar
hraðahindranir að finna eða
umferðarljós. Í svari kom
fram, að ekki væri þörf á
hraðahindrunum eða um-
ferðarljósum, því brautin
væri ekki bein heldur dálítið
um sveigjur og beygjur sem
kæmi til með að draga úr
hraða bíla. Menn væru ekki
enn búnir að fastsetja há-
markshraða þarna, en væru
að gæla við að hann gæti
orðið 70-80 km frá Reykja-
vík og suður fyrir Hafnar-
fjörð, til að skapa greiða um-
ferð þar í gegn. Því væri af
hinu góða ef brautin gæti að
mestu verið hindrunarlaus.
En menn yrðu þó að sjálf-
sögðu að fara með gát, eins
og alls staðar.
Undarlegt að hafa
brautina einbreiða
Ýmsir höfðu á orði, að
undarlegt væri sú ráðstöfun
yfirvalda, að ætla að hafa
bara eina akrein í hvora átt,
þegar umræða um tvöföldun
Reykjanesbrautar væri búin
að standa jafn lengi og raun
bæri vitni, og spurðu hvort
menn ætluðu sér að halda
úti þessari einu akrein eða
stefna að tvöföldun og þá
hvenær. Í svari kom fram,
að ráðgert væri að byrja á
einni akrein, en að sjálf-
sögðu væri meiningin að tvö-
falda síðan í takt við þann
kafla sem tæki við suður-
eftir. Unnið væri eftir eftir
langtímaáætlun og stefnt að
því að tvöföldun gæti verið
orðin að veruleika fyrir
þetta svæði árið 2008.
Eins kom fram gagnrýni á
kostnað við þessar fram-
kvæmdir, en hann er ráð-
gerður 1,5 milljarðar króna
eða 1000 milljónir á km mið-
að við 80-100 milljónir á km,
sem tvöföldunin sunnan
Hafnarfjarðar að Keflavík er
talin muni kosta. Jafnframt
var spurt hvort samgöngu-
yfirvöld hefðu samþykkt til-
lögurnar. Í svari kom fram,
að með því að veita fjár-
magni í verkið hefðu yfirvöld
lagt blessun sína á fram-
kvæmdina. Guðmundur Árni
Stefánsson kvaddi sér hljóðs
og áréttaði að Alþingi hefði
ekki samþykkt þessa út-
færslu á veginum; þingmenn
kjördæmisins hefðu einungis
aflað fjár til vegarbóta á
Reykjanesbraut. Nú lægi
fyrir að kostnaðurinn yrði
umtalsvert meiri en nokkur
hefði gert ráð fyrir og væri
það áhyggjuefni. Samkvæmt
langtímavegaáætlun væri
ljóst að fjármagn kæmi til
með að vanta. Ekki væri
heppilegt að byrja á þessu
og geta ekki lokið því.
Kvaðst hann sjá eftir því, að
þessum fjármunum skyldi
ekki varið í byggingu ofan-
byggðarvegar, sem myndi
líklega kosta í kringum 700
milljónir króna. Fleiri höfðu
áður tekið til máls á fund-
inum og sagst gjarnan hafa
viljað sjá einhverjar hug-
myndir um ofanbyggðarveg,
þar sem horft væri til fram-
tíðar en ekki bara út þetta
kjörtímabil og spurðu nánar
út í það mál. Þau svör feng-
ust, að ofanbyggðarvegur
væri í núgildandi aðalskipu-
lagi og gert væri ráð fyrir að
svo yrði áfram. Verið væri
að kanna hugsanlegar teng-
ingar slíks vegar við Reykja-
nesbraut. Eftir 15 ár yrði
hann komin inn í áætlun.
Hugmyndafátækt við
lausn þessa verkefnis
Aðrir tóku svo djúpt í ár-
inni, að tala um hugmyn-
dafátækt varðandi lausn
þessa verkefnis. Víða erlend-
is, þar sem upp hefðu komið
svipuð vandamál með um-
ferð í gegnum bæi, hefðu
menn leyst þau með að
leggja göng undir bæina. Í
svari við því kom fram, að sá
möguleiki hefði verið hug-
leiddur og ræddur, en síðan
horfið frá honum, vegna erf-
iðleika við að tengjast að-
liggjandi brautum.
Óánægjuraddir heyrðust
um fleiri atriði tengd þess-
um framkvæmdum, s.s. með
staðsetningu hringtorgsins
við Hringbraut, skorti á
undirgöngum fyrir gangandi
og hjólandi fólk, vöntun á út-
færslum á tengingum við
Kaplakrika og að nauðsyn-
legt væri að skera kirkju-
garðinn í tvennt. Eins fannst
sumum hin nýja Reykjanes-
braut liggja æði nærri íbúð-
arhúsum hér og hvar í bæn-
um. Þá komu fram áhyggjur
af gífurlegri umferð flutn-
ingabíla með möl og bensín
o.fl. meðan á framkvæmdum
myndi standa.
Í lokin spurði einn fund-
argesta pallborðsmenn,
hvort þeir fyndu ekki fyrir
hinum mikla þunga andstöðu
sem væri á fundinum. Þar
tæki hver til máls af öðrum
og allir hefðu eitthvað stór-
fellt við hinar fyrirhuguðu
vegaframkvæmdir að at-
huga. Væri ekki ástæða til
að hugsa þetta mál næstum
því allt frá grunni? Menn
væru greinilega „pínulítið“ á
móti þessu.
„Nei, þetta er besta lausn-
in,“ var svarið.
Á annað hundrað manns var á kynningarfundi í Hafnarborg um væntanlegar framkvæmdir við Reykjanesbraut
Nálægð grunn-
skóla gagnrýnd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á kynningarfundinn í Hafnarborg mættu á annað hundrað manns og höfðu margir ýmislegt
við fyrirhugaðar framkvæmdir við Reykjanesbraut að athuga.
Hafnarfjörður
STJÓRNSÝSLULÖG voru
brotin í forvali borgaryfirvalda
á arkitektastofum í tengslum
við skipulag Halla- og Hamra-
hlíðarlanda við Úlfarsfell. Sex
arkitektastofur voru valdar úr
hópi 25 stofa af sérstakri for-
valsnefnd, en Hjörleifur B.
Kvaran borgarlögmaður sagði
að tveir starfsmenn borgar-
skipulags sem valdir hefðu
verið í nefndina hefðu verið
vanhæfir til verksins þar sem
yfirmenn þeirra tengdust
tveimur af þeim arkitektstof-
um sem skilað hefðu inn tillög-
um og síðan verið valdar til að
taka þátt í skipulagsvinnunni.
Borgarráð ákvað á fundi
sínum á þriðjudaginn að skipa
tvo nýja fulltrúa í forvals-
nefndina í stað þeirra sem
skipaðir hefðu verið af borg-
arskipulagi. Munu þeir, ásamt
öðrum fulltrúum forvalsnefnd-
arinnar, dæma að nýju þær
tvær umsóknir arkitektastof-
anna sem tengjast yfirmönn-
um borgarskipulags og þær 19
sem hafnað var.
Bein fjölskyldutengsl
Hjörleifur sagðist ekki telja
að borgarsjóður væri bóta-
skyldur gagnvart þeim 19 sem
hafnað hefði verið. Hann vildi
ekki segja til um hvort borg-
arsjóður væri bótaskyldur
gagnvart hinum tveimur ef
niðurstaða nefndarinnar yrði
sú að þær yrðu ekki valdar
þegar búið væri að dæma um-
sóknirnar að nýju.
Málsatvik eru þau að í des-
ember auglýstu borgaryfir-
völd eftir arkitektastofum til
að taka þátt í forvali vegna
skipulags í Halla- og Hamra-
hlíðalöndum, en um er að ræða
um 130 hektara svæði við Úlf-
arsfell. Eins og áður sagði skil-
uðu 25 arkitektastofur inn til-
lögum og 31. janúar
samþykkti skipulags- og bygg-
ingarnefnd skipun forvals-
nefndar og áttu sæti í nefnd-
inni formaður skipulags- og
byggingarnefndar, tveir
fulltrúar borgarskipulags,
einn fulltrúi borgarverkfræð-
ings og einn fulltrúi frá Arki-
tektafélagi Íslands. Forvals-
nefndin skilaði inn tillögu um
val á sex arkitektastofum
skömmu síðar og 28. febrúar
samþykkti skipulags- og bygg-
inganefnd tillöguna.
Þegar úrslitin voru kunn-
gerð bárust athugasemdir frá
Ævari Harðarsyni arkitekt
þar sem hann bendir m.a. á að
bein fjölskyldutengsl séu á
milli æðstu yfirmanna borgar-
skipulags og eigenda tveggja
af þeim sex arkitektastofum
sem valdar hefðu verið í for-
valinu. Hann bendir á að tveir í
forvalsnefndinni séu starfs-
menn borgarskipulags og und-
irmenn Þorvalds S. Þorvalds-
sonar, forstöðumanns
stofnunarinnar, og Helgu
Bragadóttur deildarstjóra.
Hann segir að þessir aðilar
hafi því verið vanhæfir til þess
að taka afstöðu í málinu þar
sem ein stofan sem skilað hefði
inn tillögu væri í eigu sonar
Þorvalds og önnur í eigu syst-
ur Helgu. Þessar tvær stofur
voru síðan valdar ásamt fjór-
um öðrum í forvalinu til að
taka þátt í skipulaginu við Úlf-
arsfell.
Óskað eftir umsögn
borgarlögmanns
Á fundi borgarráðs 13. mars
óskuðu borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks eftir því að
borgarlögmaður athugaði
hvort forval arkitektastofa í
tengslum við skipulag Halla-
og Hamrahlíðarlanda bryti í
bága við stjórnsýslulög. Á
fundi borgarráðs 27. mars var
álitsgerð Hjörleifs B. Kvaran
borgarlögmanns lögð fram
auk umsagnar borgarskipu-
lags um erindi Ævars og bréfs
frá Arkitektafélagi Íslands þar
sem farið er fram á að forvalið
verði endurtekið.
Í umsögn borgarlögmanns
segir m.a.: „Það er ljóst að
skipulagsstjóri var vanhæfur
til að leggja mat á hæfni sonar
síns. Með sama hætti var stað-
gengill skipulagsstjóra van-
hæfur til þess að mæta hæfni
systur sinnar. Starfsmenn
borgarskipulags hafa verið
settir í þá vandasömu stöðu að
meta hæfni skyldmenna yfir-
manna sinna sem sjálfir voru
ekki til þess hæfir. Telja verð-
ur að fyrir hendi séu þær að-
stæður sem til þess eru fallnar
að draga megi ólhutdrægni
starfsmanna í efa með réttu.
Það er því skoðun borgarlög-
manns að fulltrúar Borgar-
skipulags í forvalsnefndinni
hafi verið vanhæfir til þess að
fara yfir og meta umsóknir frá
arkitektastofum sonar skipu-
lagsstjóra og systur staðgeng-
ils hans.“
Í lok umsagnarinnar segir:
„Forvalsnefndin lagði tillögu
sína um val á umsækjendum
fyrir skipulags- og byggingar-
nefnd sem samþykkti tillög-
una. Stjórnvaldsákvörðunin
um val á umsækjendum var
því tekin af skipulags- og
byggingarnefndinni. Forvals-
nefndin hafði samt sem áður
það hlutverk að meta kosti og
lesti umsækjendanna og vinna
úr þeim upplýsingum sem þeir
létu af hendi. Við vinnu sína
tók forvalsnefndin því ýmsar
ákvarðanir og vann störf sín
sem stjórnsýslunefnd. Halda
má því fram að skipulags- og
bygginganefndin hafi átt erfitt
með að hafna tillögu forvals-
nefndarinnar og það hefði hún
vart getað gert nema yfirfara
alla vinnu forvalsnefnarinnar
og meta sjáfstætt hæfni um-
sækjendanna.
Ákvörðun skipulags- og
byggingarnefndarinnar um
val á arkitektastofum er hvort
tveggja ívilnandi og íþyngj-
andi stjórnvaldsathöfn. Hún
er ívilnandi gagnvart þeim
umsækjendum sem valdir
voru en íþyngjandi gagnvart
þeim sem var hafnað. Þó svo
að undirbúningur ákvörðunar-
innar hafi verið haldinn veru-
legum annmörkum er ekki
sjálfgefið að ákvörðunin verði
talin ógildanleg. Ákvörðunin
er ennfremur bindandi gagn-
vart þeim aðilum sem valdir
voru sem á engan hátt bera
ábyrgð á þeirri framkvæmd
sem viðhöfð var.
Í auglýsingu forvalsins var
tiltekið að valdar yrðu allt að
fimm arkitektastofur til
áframhaldandi vinnu. Því var
heimilt að velja færri en fimm.
Raunin varð sú að skipulags-
og bygginganefndin valdi sex
arkitektastofur. Val tveggja
kann að orka tvímælis en telja
verður að óumdeilt sé að að val
fjögurra arkitektastofa bygg-
ist alfarið á málefnalegum
sjónarmiðum. Því verður ekki
séð að annmarkar á fram-
kvæmd forvalsins og ákvörðun
skipulags- og byggingar-
nefndra leiði til bótaskyldu
borgarsjóðs gagnvart þeim
umsækjendum sem ekki voru
valdir til þess að vinna að
rammaskipulagi fyrir byggða-
svæði í Halla- og Hamrahlíð-
arlöndum.“
Í umsögn borgarskipulags
um erindi Ævars kemur m.a.
fram að forsvarsmönnum
stofnunarinnar þyki leitt að
málið hafi farið eins og að
framan greinir, „enda legði
embættið sig fram, m.a. með
samráði við Arkitektafélag Ís-
lands að vinna málið með þeim
hætti að sátt yrði um það og
niðurstaða forvalsins trúverð-
ug. Verður strax leitað leiða til
þess að mál af þessum toga
endurtaki sig ekki.“
Arkitekt gerði athugasemdir við forval vegna skipulags Halla- og Hamrahlíðarlanda
Fjölskyldutengsl
leiddu til vanhæfis
Reykjavík