Morgunblaðið - 07.04.2001, Side 24
VIÐSKIPTI
24 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ver› a›eins í dag
NÝ svæðisskrifstofa Flugleiða fyr-
ir Skandinavíu hefur formlega ver-
ið opnuð á Strikinu í Kaupmanna-
höfn en gagngerar breytingar hafa
verið gerðar á starfsemi félagsins í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Breytingarnar felast fyrst og
fremst í því að sölu- og markaðs-
starf í löndunum þremur hefur ver-
ið sameinað með það að markmiði
að styrkja stöðu félagsins og efla
viðskipti á Netinu. Í því skyni var
ný markaðsdeild sett á laggirnar
fyrir Skandinavíumarkað auk nýrr-
ar netdeildar en báðar eru til húsa
á nýju svæðisskrifstofunni. Þá voru
símsölu- og hópsöludeildir land-
anna einnig sameinaðar í nýja hús-
næðinu, svo og bókhaldsdeildirnar
og ráðinn hefur verið nýr fulltrúi
almannatengsla.
Hagræðing í yfirbyggingu
Hannes Hilmarsson, fyrrum
svæðisstjóri í Bretlandi, er nýr
svæðisstjóri Flugleiða í Skandin-
avíu. Hann segir aðalmarkmiðið
með þessum breytingum hafa verið
að innleiða nýja markaðsstefnu
Flugleiða í Skandinavíu. Hins veg-
ar hafi ekki þótt hagkvæmt að
setja upp markaðs- og netdeildir
fyrir skrifstofurnar þrjár í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. Því hafi
sú leið verið farin að endurskipu-
leggja starfsemi landanna í heild
og ná þannig fram talsverðum
sparnaði. Hagræðingin kemur, að
sögn Hannesar, aðallega fram í
niðurskurði yfirbyggingar í starf-
seminni. Starfsmenn fóru úr 40
manns í 32, en þar af eru nokkur
ný stöðugildi. 4 starfsmenn eru
áfram í Svíþjóð og 3 í Noregi. Þá
lækkaði húsnæðiskostnaður um
20% en hið nýja húsnæði, sem er
570 fermetrar að stærð, kostar um
700 þúsund krónur á mánuði.
Þar sem símsöludeildirnar hafa
verið fluttar til Kaupmannahafnar
eru allar símapantanir afgreiddar
þar, hvort sem hringt er í síma-
númer Flugleiða í Noregi, Dan-
mörku eða Svíþjóð. Símtölin eru
sjálfvirkt flokkuð með tilliti til þess
frá hverju landanna þriggja þau
koma og afgreidd á viðkomandi
tungumáli. Viðskiptavinurinn á því
að verða breytinganna lítið var.
Flugleiðir starfrækja þó áfram
söluskrifstofur í Osló og Stokk-
hólmi en starfsfólkið þar þjónar að-
allega ferðaskrifstofum og fyrir-
tækjum.
Netið er aftur á móti það sölu-
tæki sem Flugleiðir gera ráð fyrir
að geti skilað hvað mestri hag-
kvæmni og stefnt er að því að gera
netið samofið starfsemi félagsins,
að sögn Hannesar.
Vefir landanna þriggja hafa nú
verið sameinaðir en sérstök heima-
síða er þó í hverju landi sem tengir
notendur inn á sameiginlega vef-
inn.
Markaðssetning vefjarins fer að-
allega fram í gegnum aðra vefi á
Netinu, s.s. á danska Yahoo og á
fréttavefjum dagblaðanna Börsen
og Dagens Nyheter. Heimsóknir á
Flugleiðavefinn í Skandinavíu hafa
farið úr tæpum 4 þúsund í rúm 10
þúsund á viku síðan um sl. áramót.
30 þúsund manna netklúbbur
Jafnhliða vefnum er rekinn net-
klúbburinn Lucky Fares um til-
boðsverð og byggist hann á sam-
bærilegum klúbbi og Flugleiðir
hefur verið með í Ameríku. Með-
limir klúbbsins eru nú um 33 þús-
und manns í Skandinavíu og allt að
500 manns á viku skrá sig í klúbb-
inn til að fá send tilboð. Markmið
Flugleiða er að meðlimir klúbbsins
verði 60 þúsund talsins í árslok og
sala í gegnum Netið nemi um
helmingi heildarsölu árið 2005.
„Klúbburinn er gífurlegt tæki-
færi fyrir okkur því að við erum
litlir á þessum markaði, það er
dýrt að auglýsa og vörumerkið
Icelandair er lítið þekkt. Með
þessu náum við beint til viðskipta-
vinarins með litlum tilkostnaði og
getum byggt upp tryggð við félagið
auk þekkingar á vörumerkinu og
Íslandi,“ segir Hannes.
Þriðji stærsti markaður Flugleiða
Skandinavía var á árinu 2000
þriðji stærsti markaður Flugleiða,
þaðan komu 22% tekna félagsins af
millilandaflugi eða um 4,2 milljarð-
ar króna. Íslandsmarkaður var
stærstur með 5 milljarða króna og
26% hlutdeild en Bandaríkin næst-
stærstur með 4,7 milljarða eða
25%.
Skandinavar, þ.e. Danir, Svíar
og Norðmenn, voru 28% ferða-
manna sem komu til Íslands árið
2000, þar af voru Svíar flestir, þá
Danir en fæstir voru Norðmenn.
Sala ferða til Íslands nemur um
60% af heildarsölu Flugleiða í
Skandinavíu en hin 40% af alls 81
þúsund farþegum frá Skandinavíu
á liðnu ári fljúga áfram til Am-
eríku.
Af heildartekjum allrar starf-
semi Flugleiða komu 60%, eða 20
milljarðar króna, af alþjóðlegum
markaði en af farþegatekjum milli-
landaflugsins sótti félagið 75%, eða
16 milljarða króna, á alþjóðlegan
markað á síðasta ári.
Ótakmarkaðir
vaxtarmöguleikar
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir að af
þessu megi sjá hversu mikilvægur
alþjóðamarkaðurinn er. Íslenski
markaðurinn standi ekki undir
nema mjög litlu flugi en vegna
staðsetningar landsins geti það
verið miðstöð í alþjóðlegu flugi.
Því hefur, að sögn Guðjóns, al-
þjóðlegt leiðarkerfi verið byggt of-
an á heimamarkaðinn en það gefi
færi til sóknar á heimamarkað ann-
arra, færi á fleiri leiðum og aukinni
tíðni auk þess sem tekjugrunnur
fyrirtækisins er styrkari og nýting
fastakostnaðar er betri.
Vaxtarmöguleikana segir Guðjón
nánast ótakmarkaða enda sé Ís-
land lítið þekkt sem ferðamanna-
staður á mörkuðum vestanhafs,
sem og í Skandinavíu.
„Við höfum fjölgað ferðamönn-
um á Íslandi um 7% á ári og stefn-
an er að halda því áfram“, segir
Guðjón og rifjar upp að nýlega hafi
komið fram í fréttum að allt stefni í
að milljón ferðamenn heimsæki Ís-
land á ári hverju eftir 10-15 ár.
Áherslu Flugleiða segir hann
fyrst og fremst vera á vetrarferðir
til landsins og viðskiptaferðir frá
landinu. „Vaxtartækifæri á mark-
aðnum frá Íslandi liggja ekki síst í
þeirri staðreynd að farþegar hafa
verið tiltölulega fáir á viðskiptafar-
rými í samanburði við önnur Evr-
ópulönd og hafa borgað mun lægri
fargjöld en gengur og gerist. Sæt-
anýtingin bæði frá Íslandi og til Ís-
lands er í raun ágæt en vaxtar-
möguleikinn liggur í því að breyta
samsetningu og fá fleiri vel borg-
andi farþega.“
Hannes segir um vetrarferðirnar
að þar liggi helstu vaxtartækifær-
in, þ.e. utan háannatíma. Markaðs-
setningin miðast, að hans sögn, að
því að fá fólk, m.a. fyrirtækjahópa,
til landsins á veturna í ævintýra-
og borgarferðir. Samkeppnisstöð-
una við aðrar borgir segir hann af-
ar góða enda bjóði ekki aðrar borg-
ir upp á snjósleðaferðir eða Bláa
lónið.
Hótelrými er flöskuháls
Guðjón og Hannes segja aðeins
eitt standa í veginum fyrir mikilli
aukningu ferðamanna til landsins
og það sé skortur á hótelrými.
Þetta er að mati Guðjóns nokk-
urt áhyggjuefni en Flugleiðir eru
nú að stækka hótel Esju og verður
því lokið árið 2003. Þá er áætlað að
nýtt hótel í Aðalstræti verði tekið í
notkun árið 2004 og til skoðunar er
hugmynd um að stækka Loftleiða-
hótelið. Hannes telur þó að stór
ráðstefnumiðstöð yrði mesta lyfti-
stöngin fyrir Ísland, „að fá í miðri
viku fullt af velborgandi farþegum
sem annars er erfitt að ná til“.
Breytingar á starf-
semi Flugleiða í
Skandinavíu
Morgunblaðið/Jim Smart
Hluti af starfsfólki svæðisskrifstofunnar við formlega opnun hennar.
Ný svæðisskrifstofa Flugleiða er við
Strikið í Kaupmannahöfn, skammt
frá Ráðhústorginu.
EINS OG fram hefur komið á Baug-
ur hlut í bresku verslunarkeðjunni
Arcadia. Baugur á þennan hlut þó
ekki beint, heldur í gegnum eignar-
haldsfélagið A-Holding, sem á 20%
hlut í Arcadia. Aðrir eigendur A-
Holding eru Gaumur, Gilding, Ís-
landsbanki-FBA og Kaupþing. Ekki
er gefið upp hvernig eignaskiptingin
í A-Holding er, þannig að óljóst er
hversu stór hlutur Baugs er í raun.
Samkomulag liggur fyrir milli eig-
enda A-Holding um að Baugur geti
keypt öll hlutabréf í A-Holding og
samkvæmt samþykktum aðalfundar
Baugs hefur stjórn félagsins heimild
til að gefa út 500 milljóna króna nýtt
hlutafé sem hún getur nýtt í þessum
tilgangi. Fyrir er hlutafé í Baugi
rúmir 1,2 milljarðar króna, þannig
að þeir sem eiga A-Holding með
Baugi munu eftir hlutafjáraukn-
inguna og skipti á hlutabréfunum í
Baugi og A-Holding eignast tæplega
29% í Baugi.
Markaðsvirði Arcadia var 445
milljónir punda í gær, eða tæpir 60
milljarðar íslenskra króna. Eignar-
hlutur A-Holding er því tæplega 12
milljarða króna virði. Lokagengi
félagsins var 235 pens, en þegar A-
Holding hóf að kaupa í félaginu síð-
astliðinn nóvember var verðið 38
pens, sem þýðir að verðið hefur rúm-
lega sexfaldast. Ekki er þó hægt að
draga ályktanir um hagnað A-Hold-
ing út frá þessum tölum, því ekki
hefur verið gefið upp hversu mikið
var greitt fyrir hvern hlut.
Fjárfestingar íslenskra félaga í Arcadia
Hluturinn 12 milljarða virði