Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 28
ÚR VERINU
28 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!"# $%%$&%% '()$&%%
FRIÐRIK Pálsson, stjórnarfor-
maður SÍF, telur að verkföll sem
baráttutæki í kjaramálum hafi dag-
að uppi í nútímanum og séu orðin
heldur vafasöm tæki. Hann telur
að finna verði nýjar leiðir til lausn-
ar kjaradeilum áður en til vinnu-
stöðvana kemur og að verkfall og
verkbann verði hreinn neyðarrétt-
ur, en ekki tæki til að knýja samn-
ingsaðilann til hlýðni.
Þetta kom fram í ræðu Friðriks
á aðalfundi SÍF í gær, en þar
ræddi hann meðal annars kjara-
deilu útvegsmanna og sjómanna.
„Dæmið eigi, svo að þér verðið
ekki sjálfir dæmdir, segir í góðri
bók,“ sagði Friðrik í ræðu sinni. „Í
þeim anda vil ég fjalla um kjara-
deilur sjómanna og útgerðarmanna
af varúð og ekki taka afstöðu því að
til þess hef ég ekki forsendur. Ég
hlýt að ætla að þeir menn, sem fara
þar fremstir í flokki, hver á sínum
stað, hafi það að leiðarljósi að forð-
ast að til vinnustöðvunar komi og
leysa þau mál sem fyrst, ef til
þeirra kemur. Mín persónulega
skoðun er hins vegar sú, að verk-
föll sem baráttutæki hafi eiginlega
dagað uppi í nútímanum og séu
orðin heldur vafasöm tæki. Verk-
föll voru „vopn“ síns tíma; mik-
ilvæg tæki alþýðunnar, sem þurfti
á því að halda að berjast fyrir
nauðþurftum sínum við mjög erf-
iðar aðstæður og gegn ópersónu-
legum iðnjöfrum þess tíma. Langt
fram yfir miðja 20. öldina var andi
kjaradeilna svipaður og bar nokk-
urn keim af uppruna þess háttar
átaka. Þegar líða tók á öldina varð
mikil breyting til batnaðar í þessu
efni. Smám saman þróaðist eðli-
legri samskiptamáti milli atvinnu-
rekenda og launþega jafnframt því
að breytt eignarhald fyrirtækja og
tilkoma nýrra launakerfa hafa gef-
ið tóninn fyrir framtíðina.
Rekstur útgerðar á Íslandi hefur
gengið vel á síðustu árum og er það
vafalítið að þakka dugnaði sjó-
manna og skipsstjórnarmanna,
gjöfulum fiskimiðum okkar svo og
þeirri hagræðingu sem útgerðir
hafa náð með fiskveiðistjórnarkerf-
inu. Sjómenn hafa líka yfirleitt
góðar tekjur og aðbúnaður þeirra
um borð er sómasamlegur. Verk-
fall sjómanna nú er því ekki boðað
til að fá fram knýjandi kjarabætur
fyrir fátæka stétt. Þessi deila snýst
um að skipta stórri og góðri köku.
Aðilar deilunnar hafa þekkt alla
málavöxtu um langt skeið, en ekki
borið gæfu til að ná lendingu án
þess að til vinnustöðvunar komi,
öllum landsmönnum til skaða.“
Nýjar leiðir við
lausn kjaradeilna
Þá sagði hann ennfremur: „Ég
tel, að það þurfi að einhenda sér í
það að finna nýja aðferð til lausnar
kjaradeilum áður en til vinnustöðv-
ana komi og að verkfall og verk-
bann verði hreinn neyðarréttur, en
ekki tæki til að knýja samningsað-
ilann til hlýðni. Hér er ekki tími til
þess að kasta fram mörgum hug-
myndum þar að lútandi né heldur
er ég færastur um að koma með
lausnina, en ein leið gæti verið sú,
að embætti ríkissáttasemjara yrði
breytt þannig, að það fengi aukið
vald til að úrskurða hvenær kjara-
deilur væru komnar á það stig, að
til vinnustöðvunar mætti koma. Til
dæmis þannig, að aðilar máls yrðu
að geta sýnt fram á, að þeir hafi
lagt sig alla fram og sýnt hvor öðr-
um fyllstu sanngirni við að ná lend-
ingu áður en verkfallsvopni fáist
beitt.
Nú má einhverjum finnast þetta
einföld framsetning og ég læt mér
ekki mislíka það. Ég vil hins vegar
minna á, að margt hefur breyst frá
þeim tíma, sem liðinn er síðan
verkfallsvopnið var fundið upp. Á
mörgum sviðum eru komnar til
leikreglur, sem eiga að verja ein-
staklinga fyrir því tjóni, sem þeim
ótengdir aðilar geta valdið þeim.
Nærtækast er að nefna hér á landi
eftirlitsstofnanir eins og Sam-
keppnisstofnun, sem getur gripið
og grípur harkalega í taumana ef
sýnt þykir að einstaklingar verði
fyrir skaða, sem þeir bera enga
ábyrgð á og geta ekki varið sig
gegn,“ sagði Friðrik Pálsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF, telur verkföll úrelt og að leita
verði nýrra leiða til lausnar kjaradeilum.
Finna þarf nýjar
leiðir til lausnar
kjaradeilum
ENGINN arður verður greiddur til
hluthafa í SÍF vegna rekstrarins á
síðasta ári, enda gekk reksturinn
erfiðlega. Tillaga þess efnis var sam-
þykkt á aðalfundi félagsins. Friðrik
Pálsson, stjórnarformaður SÍF,
sagði á aðalfundi þess, að hann væri
almennt þeirrar skoðunar að greiða
ætti arð, væri þess nokkur kostur,
jafnvel þó félag væri rekið með
nokkrum halla, en með svona háa
taptölu á bakinu væri ekki unnt að
leggja það til.
Á fundinum samþykkt að kjör
stjórnarmanna og skoðunarmanns
yrðu óbreytt frá fyrra ári.
Þá var samþykkt heimild til aukn-
ingar á hlutafé félagsins um 25 millj-
ónir króna með sölu nýrra hluta í
tengslum við kaupréttarsamninga
sem stjórnin kann að gera við starfs-
menn fyrirtækisins. Jafnframt að
stjórninni yrði heimilt að auka
hlutafé um allt að 275 milljónir króna
til að styrkja eiginfjárstöðu félags-
ins. Loks var samþykkt tillaga um
heimild til handa stjórn félagsins til
kaupa á hlutabréfum í félaginu að
nafnvirði allt að 147,8 milljónir
króna.
Stjórn félagsins var öll endurkjör-
in.
Enginn arður
REKSTUR SÍF-samstæðunnar
gekk illa á síðasta ári og nam tap alls
um 985 milljónum króna. Mestur
hluti kostnaðarins varð vegna sam-
runa SÍF og ÍS og vegna gengisþró-
unar. Gunnar Örn Kristjánsson, for-
stjóri SÍF, segir að samlegðaráhrifin
séu þegar byrjuð að koma fram.
„Þannig tókst að bæta verulega
rekstur félagsins á síðustu mánuðum
ársins og hefur rekstur fyrstu mán-
aða þessa árs gengið betur en áætlað
var. Gert er ráð fyrir því í rekstr-
aráætlunum samstæðunnar að veru-
leg umskipti verði á rekstrinum árið
2001 og að hagnaður verði af starf-
seminni,“ sagði Gunnar Örn Krist-
jánsson á aðalfundi SÍF í gær.
Gunnar rakti síðan helztu þætti
þess sem olli taprekstrinum á síðasta
ári, en sneri sér síðan að framtíðinni:
„Í kjölfar þeirra umróta sem voru í
rekstri félagsins árið 2000 var með
sérstöku átaksverkefni farið í gerð
greininga á áhættustigi einstakra
rekstrarþátta í starfseminni með að-
stoð utanaðkomandi sérfræðinga. Í
kjölfar þess var gripið til viðeigandi
aðgerða til að auka svigrúm og getu
samstæðunnar til að bregðast við
sveiflum í ytra umhverfi. Sem dæmi
um slíkt má nefna að gerðar hafa ver-
ið breytingar á innkaupasamningum
á þann veg að í auknum mæli, eins og
komið var inn á áðan, verður keypt
inn í heimamynt dótturfélags og leit-
ast verður við að para og safna gjald-
eyrisáhættu á sem fæsta staði í sam-
stæðu, aðallega hjá móðurfélagi,
þannig að stýra megi þeim málum
enn betur. Samningar um greiðslu-
tryggingar hafa verið gerðar fyrir
alla samstæðuna utan starfseminnar
í Bandaríkjunum þar sem notkun
greiðslutrygginga er ekki almenn.
Þá hefur með samningum við
nokkur laxeldisfyrirtæki í Noregi
tekist að draga úr mögulegum sveifl-
um á hráefnisverði og skapa fyrir-
tækinu aukið svigrúm til að bregðast
við meiriháttar breytingum á því. Þá
hafa verið gerðir styttri samningar
við super- og hypermarkaði en með
því aukast möguleikar til verðbreyt-
inga á söluverði, en auk þess hefur
tekist að tengja söluverð og hráefn-
isverð við gerð nokkurra mikilvægra
samninga,“ sagði Gunnar.
Stefnumótun
Hann vék síðan að stefnumótun og
fleiri þáttum í starfseminni: „Við
samrunann var ljóst að samræma
þyrfti stefnu og hugmyndir lykil-
stjórnenda samstæðunnar og skerpa
sýn manna á þau atriði sem skipta
sköpum fyrir framtíðina og skil-
greina þau svið og þá markaði sem
grundvalla eiga frekari uppbyggingu
þess á komandi árum. Undirbúning-
ur að stefnumótun félagsins hófst á
vormánuðum ársins 2000 með upp-
lýsingaöflun og almennri skoðun á
rekstrarumhverfi samstæðunnar.
Eiginleg stefna samstæðunnar til
fimm ára lá fyrir undir lok ársins eft-
ir að sérstakur vinnuhópur sem og
stjórn félagsins hafði fjallað ítarlega
um málið. Áhersla er lögð á að byggja
upp fjárhagslegan styrk og tryggja
með því fjármagn til uppbyggingar,
vaxtar og þróunar. Því verður best
náð með því að styrkja stoðir starf-
seminnar á Íslandi og auka markaðs-
aðgang fyrirtækisins fyrir fullunnar
vörur undir eigin vörumerkjum.
Fjórir kjarnamarkaðir eru sérstak-
lega tilgreindir sem þungamiðja
frekari uppbyggingar á starfsemi
samstæðunnar erlendis, þ.e. Frakk-
land, Bretland, Spánn og Bandaríkin.
Verslanakeðjur, veitingahús og
stór eldhús verða, enn sem fyrr, lyk-
ilviðskiptaaðilar í frekari uppbygg-
ingu þar sem liðsheild samstæðunnar
er grunnurinn að uppbyggingu
sterkrar markaðsstöðu.
Aukið veltufé frá rekstri
Þrátt fyrir mikinn fórnarkostnað
vegna samrunans og rekstrartaps á
árinu 2000 skilaði SÍF nær 109 millj-
ónum króna í jákvæðu veltufé frá
rekstri (samanborið við tæpar 66
milljónir árið á undan). Þessu má að
mestu þakka viðsnúning sem varð á
síðustu þremur mánuðum ársins
þegar samlegðaráhrifa var byrjað að
gæta.
Samrunanum fylgir mikil hagræð-
ing í rekstri en þrátt fyrir að starfs-
mönnum á Íslandi fækkaði um þriðj-
ung þá jókst salan frá Íslandi um 5% í
verðmætum milli árana 1999 og 2000.
Þetta gerist á sama tíma og heildar-
útflutningur sjávarafurða frá Íslandi
dróst saman um 3% úr 97,7 milljörð-
um í 94,5 (skv. Hagst. Ísl.).
Þá hefur samningsstaða fyrirtæk-
isins styrkst í krafti stærðar, við
kaup á vörum og þjónustu og áhrifa
þessa er þegar farið að gæta í kaup-
um á ýmissi þjónustu s.s. trygging-
um, frakt, umbúðum, íbætiefnum og
mörgu fleiru.
SÍF-samstæðan er í raun alþjóð-
legt fyrirtæki með rætur á Íslandi
sem getur boðið viðskiptavinum sín-
um heildarlausnir vegna breiðs vöru-
framboðs og víðs markaðsnets. Í
samkeppni á alþjóðamarkaði er
stærðarhagkvæmni mikilvæg og í því
umhverfi stöndum við ekki aðeins
sem sterkt félag sem boðið getur alla
flóru sjávarfangsins heldur er rekst-
urinn mjög áhættudreifður.
Markvisst unnið
að endurbótum
Eins og hér hefur verið stuttlega
rakið hafa skiptst á skin og skúrir í
rekstri SÍF á síðasta ári. Markvisst
hefur verið unnið að umbótum til að
treysta rekstrarumgjörð fyrirtækis-
ins og reynt hefur verið að lágmarka
þær sveiflur sem eru í ytra rekstr-
arumhverfi fyrirtækisins. Samstæð-
unni hefur verið mörkuð skýr stefna
til næstu fimm ára þar sem áhersla er
lögð á kjarna starfseminnar og verk-
efnum forgangsraðað. Hinu gríðar-
lega umfangsmikla samrunaferli er
nú lokið og eru samlegðaráhrif þegar
farin að sýna sig. Á þessari stundu
sem og auðvitað flestum öðrum er
mikilvægt að horfa fram á veginn og
búa sig undir komandi verkefni. Það
höfum við markvisst gert hjá SÍF og
erum við nú þegar farin að sjá árang-
ur erfiðisins. Þannig tókst að bæta
verulega rekstur félagsins á síðustu
mánuðum ársins og hefur rekstur
fyrstu mánaða þessa árs gengið bet-
ur en áætlað var. Gert er ráð fyrir því
í rekstraráætlunum samstæðunnar
að veruleg umskipti verði á rekstr-
inum árið 2001 og að hagnaður verði
af starfseminni. Ákveðið hefur verið
að birta uppgjör samstæðunnar árs-
fjórðungslega og mun samstæðu-
reikningur fyrsta ársfjórðungs verða
birtur í maí,“ sagði Gunnar Örn
Kristjánsson.
Aðalfundur SÍF-samstæðunnar
Gert er ráð fyrir
hagnaði í ár