Morgunblaðið - 07.04.2001, Page 37

Morgunblaðið - 07.04.2001, Page 37
                           ! "#  $ ! "#  $ ! "# %  &    '(  !  &    '(  !  &    ) # * !+ *   !+ *    $    ,-(  .   ,-(    .   ,-(    .'/0!%&1/$2*3)45 ÞAÐ kostaði Kaupmannahafnarbúa 278 krónur að kaupa rauða 70–80 cm langa rós handa elskunni sinni í gær í blómabúðinni Fiol blomster þar í borg og íbúann í Ósló sem fór í Int- erfloru 409 krónur. Sá sem býr í Reykjavík borgaði 450 krónur fyrir rauða rós í Blómagalleríi. Þetta kom í ljós í gær þegar ann- aðhvort slegið var á þráðinn í blóma- búðir eða farið á staðinn í Ósló, Kaup- mannahöfn, Stokkhólmi og Reykjavík. Þegar athugað var verð á tilbúnum blómabúntum í stórmörkuðum í sömu borgum kom í ljós að verðið var einnig mismunandi. Ódýrast var blómabúntið í Bilka í Kaupmanna- höfn þar sem 10 rósir kostuðu 280 krónur en dýrast í Hagkaupi í Reykjavík þar sem sjö rósir kostuðu 599 krónur. Í blómabúðum var beðið um verð í stykkjatali á fyrsta flokks rauðum rósum sem væru 70–80 cm háar og beðið var um mestu gæði. Í stórmörk- uðum var beðið um verð á tíu óútspr- ungnum rósum og túlípönum í búnti. Haft var samband við blómabúðir og stórmarkaði af handahófi.Tekið skal fram þetta eru verðdæmi en ekki ítarleg verðkönnun. Verðmunur kann að vera milli stórmarkaða og blóma- verslana í viðkomandi borgum. Rauða rósin var dýrust í Reykjavík NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 37 FORÚRSKURÐUR dómstóls Evrópusambandsins í Strass- borg hefur, skv. frétt í Morgun- blaðinu í gær, úrskurðað að fyr- irtæki á borð við Levi Strauss hafi ekki „ótakmarkaðan“ rétt til að stjórna því hvar vörur þeirra eru seldar. Þar með geta stórmarkaðir t.d. selt gallabux- ur á lægra verði en sérvöru- verslanir. En hvað þýðir úr- skurðurinn fyrir fyrirtæki eins og Hagkaup? Finnur Árnason, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segist fyrst og fremst líta á niðurstöð- una sem tækifæri. „Við munum hafa augun opin á næstunni. Okkar markmið er að auka hlut sérvöru í verslun okkar og og það höfum við verið að gera.“ Að sögn Finns hefur hann fylgst vel með þessari umræðu enda hefur það verið ákveðnum vandkvæðum bundið að verða sér úti um merkjavörur. „Við reyndum fyrir mörgum árum að fá einmitt Levi Strauss buxur í verslun okkar en það gekk ekki upp.“ Breski dómstóllinn mun kveða upp endanlegan úrskurð í málinu síðar á þessu ári. Levi Strauss- gallabuxur Tækifæri fyrir stór- markaði 8. apríl Hátíðarmessa í Reynivallakirkju í Kjós, kl. 20.30 Kristjana Helgadóttir og Jónas Þór leika verk eftir Bach á flautu og orgel. Guitar Islancio flytur gömul sálmalög. Jón Þ. Þór flytur erindi um erlenda ferðamenn í kirkjustöðum áður fyrr. Geirlaug Þorvaldsdóttir, leikkona les ljóð. Kjalarnesprófastsdæmi Kveðja í lok Kristnihátíðar Reykjavík 7.-11. apríl Hólar í Hjaltadal Austfirðir 8. apríl Petite messe eftir Rossini í Egilsstaðakirkju, kl. 14.00 og Eskifjarðarkirkju, kl. 18.00 Kammerkór Austurlands flytur. Stjórnandi er Keith Reed. 8. apríl Föstudagskrá í Valþjófsstaðakirkju, kl. 17.00 Tónlist og upplestur íslenskra verka sem tengjast föstunni. 11. apríl Hátíðartónleikar í Hóladómkirkju, kl. 21.00 Skagfirski kammerkórinn flytur, stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson. Einsöngur: Þuríður Þorbergsdóttir, Kolbrún Erla Grétarsdóttir og Haukur Steinbergsson. Linda Margrét Sigfúsdóttir og Berglind Stefánsdóttir leika á þverflautur. 7. apríl Hátíðartónleikar í Grafarvogskirkju, kl. 17.00 Samleikur: Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason. Kórsöngur: Kór Bústaðakirkju, Kór Fella- og Hólakirkju, Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju. Stjórnendur eru Sigrún Steingrímsdóttir, Lenka Matéova og Oddný J. Þorsteinsdóttir. Einsöngur: Anna Sigríður Helgadóttir, Páll Rósinkrans, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, KK og Ellen Kristjánsdóttir. Gospelsöngur: Gospelsystur, stjórnandi er Margrét Pálmadóttir. Gospelkór Reykjavíkur, stjórnandi er Óskar Einarsson. Kangakvartettinn. Kvartett með Þorvaldi Halldórssyni. Karlakór: Karlakórinn Þrestir, stjórnandi er Atli Guðlaugsson. Göngugötunni Mjódd Símar 867 3284 - 588 8881 Yfirbreiðsla fylgir öllum pottum til páska Tilbúnir í garðinn, engra lagna þörf. Á kjörhita allan sólar- hringinn, orkukostn. aðeins 1.000 kr. á mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.