Morgunblaðið - 07.04.2001, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 39
Á HVERJU ári heldur Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin (WHO eða
World Health Organisation) heil-
brigðisdag sem er hverju sinni
tileinkaður vissu málefni. Að
þessu sinni er dagurinn tileink-
aður geðheilbrigði.
Geðraskanir (geðsjúkdómar)
eru algengar, þær valda miklum
þjáningum hjá sjúklingunum og
aðstandendum þeirra, þær kosta
þjóðfélagið mikla fjármuni og enn
ríkja verulegir fordómar í garð
geðsjúkra. Veikindin sem slík er
ekki hægt að meta til fjár en
áætlað hefur verið að á árinu
1998 hafi geðraskanir kostað ís-
lenskt samfélag um 20 milljarða
króna (m.a. vinnutap, mannslíf,
sjúkrahúskostnaður og lyf). Einn
af hverjum fjórum þeirra sem eru
á fullum örorkubótum á Íslandi
er geðfatlaður.
Í upphafi 21. aldar er ein-
kennilegt til þess að hugsa að
fólk með geðraskanir þurfi ekki
bara að berjast við veikindi sín
heldur einnig við fordóma. Þessa
fordóma má rekja til miðalda og
raunar enn lengra aftur í tímann
og þeir eiga rætur sínar í fáfræði,
hræðslu við hið óþekkta og
djöflatrú. Í sjálfu sér er ekki erf-
itt að skilja hvernig og hvers
vegna þessir fordómar urðu til en
erfitt er að skilja hvers vegna
þeir eru svona lífseigir. Það ger-
ist enn þann dag í dag, líka á Ís-
landi, að fólki með geðraskanir er
neitað um vinnu meðan aðrir eru
ráðnir þótt þeir séu með sjúkdóm
sem er mun alvarlegri og líklegri
til að trufla vinnu viðkomandi
starfsmanns. Enn er stundum tal-
að um líkamlega og andlega sjúk-
dóma eins og þar sé eðlismunur á
en nútíma þekking segir okkur
annað. Flestir sjúkdómar stafa af
sýkingum eða af truflun í starf-
semi ónæmiskerfisins, hormóna,
taugaboðefna, viðtaka (fyrir
hormón eða taugaboðefni) eða
jónaganga í frumuhimnum. Í
flestum sjúkdómum er um að
ræða flókið samspil erfða og um-
hverfisþátta og í öllum atriðum
gildir það sama hvort um er að
ræða svo kallaða líkamlega eða
geðræna sjúkdóma. Við gætum
tekið sykursýki og geðklofa sem
dæmi: sykursýki stafar af því að
framleiðsla á vissu hormóni og/
eða viðtökum þess fer úrskeiðis
og geðklofi stafar af því að fram-
leiðsla á vissu taugaboðefni og/
eða viðtökum þess fer úrskeiðis,
munurinn er í raun ekki svo mik-
ill. Miðtaugakerfið er vissulega
flókið líffæri og við vitum ekki
enn hvernig það starfar nema í
stórum dráttum en það gildir
einnig um öll önnur líffæri eins
og t.d. hjartað, lifrina og lungun.
Geðsjúkdómar eru því í eðli sínu
alveg eins og aðrir sjúkdómar,
þeir eru truflun á starfsemi heil-
ans meðan hjartasjúkdómar eru
truflun á starfsemi hjartans og
lungnasjúkdómar eru truflun á
starfsemi lungnanna.
Markmið alþjóðaheilbrigð-
isdagsins þessu sinni er að vekja
athygli á geðheilsu í heiminum og
hvetja til aðgerða til að bæta
ástandið. Vinna þarf ötullega að
forvörnum og fræða þarf almenn-
ing um einkenni hinna ýmsu geð-
raskana þannig að aðstandendur
átti sig snemma á því þegar eitt-
hvað er að. Þetta er mjög mik-
ilvægt t.d. þegar um er að ræða
þunglyndi, sem getur leitt til
sjálfsvígs, vegna þess að til er
meðferð sem langoftast skilar
góðum árangri. Vandamálið er
gríðarlega stórt sem sést af því
að um 400 milljónir manna í
heiminum þjást af geðröskunum
eða taugasjúkdómum af einhverju
tagi og fjórði hver einstaklingur
sem leitar sér aðstoðar í heil-
brigðiskerfinu þjáist af slíkum
sjúkdómi. Því miður fá sumir
þessara einstaklinga ranga sjúk-
dómsgreiningu í byrjun og þar af
leiðandi ekki meðferð við hæfi.
Meðferð geðraskana hefur gjör-
breyst síðustu áratugina og stór
hluti þeirra sjúklinga með alvar-
lega geðsjúkdóma sem áður fyrr
enduðu inni á meðferðarstofnun
geta nú notið lífsins og verið nýt-
ir þjóðfélagsþegnar.
Að lokum má benda á meiri
upplýsingar um geðheilbrigði og
geðsjúkdóma á Netinu, m.a. á ís-
lensku á síðum Landlæknisemb-
ættisins (www.landlaeknir.is) og
Geðheilsu ehf. (www.persona.is)
og á ensku hjá Alþjóðaheilbrigð-
isstofnuninni (www.who.int/world-
health-day/).
Geðheilbrigði og fordómar
Höfundur er prófessor í lyfjafræði
og skrifar pistla um læknisfræði-
leg efni fyrir Morgunblaðið.
eftir Magnús
Jóhannsson
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 2001 helgaður geðheilsu
Einn af hverjum fjórum
þeirra sem eru á fullum
örorkubótum á Íslandi
er geðfatlaður.
FYRSTA einnota heyrn-
artækið er komið á
markaðinn, og vonast
sérfræðingar til þess að
þetta hvetji fleira fólk til
að takast á við heyrn-
artap. Tækið er kallað
Söngfugl (Songbird) og
er hannað til að endast í
einn og hálfan mánuð.
Þurfa notendur þá ekki
að hugsa um viðhald og
rafhlöðuskipti, að því er
greint er frá á fréttavef
breska ríkisútvarpsins,
BBC.
Segja framleiðendur
tækisins að það kosti um
2.700 krónur á mánuði í hvort eyra,
en rannsóknir sýni að það sé betra
en sum nýjustu tækin sem geta
kostað allt að 190 þúsund krónur.
Breska lyfjabúðakeðjan Boots
mun hafa tækið á boðstólum næsta
haust. Að sögn talsmanns hennar
fer minna fyrir nýja tækinu í eyra
en hefðbundnum heyrnartækjum,
og byrjunarkostnaðurinn sé minni.
Haft er eftir konu sem prófaði tæk-
ið að það virki vel.
Einnota heyrnartæki
Nýja heyrnartækinu komið fyrir.
Associated Press
LYF sem þróað var til að meðhöndla
tauga- og mænusigg (MS) kann að
reynast notadrjúgt í baráttunni við
gláku, sem er algengasta orsök
blindu, að því er fram kemur á frétta-
vef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Hópur vísindamanna við Weizman-
vísindastofnunina í Ísrael notaði lyfið
til að koma í veg fyrir blindu hjá dýr-
um sem haldin voru sjúkdómi er svip-
ar til gláku hjá fólki. Uppgötvunin
bendir til þess að lyfið, Copaxone,
kunni ennfremur að koma í veg fyrir,
eða að minnsta kosti hægja á, sjóntapi
hjá fólki sem þjáist af þrálátri gerð
sjúkdómsins.
Langflestir glákusjúklingar hafa
hækkaðan þrýsting inni í auganu
vegna galla í frárennsli glæra vökv-
ans sem heldur auganu röku og flytur
næringu til ytri frumna þess. Þessi
aukni þrýstingur inni í auganu veldur
skemmdum á sjóntauginni þannig að
hún hrörnar og leiðir þetta oft til
blindu.
Í mörg ár hefur leitin að betri
glákumeðferð beinst að því að laga
frárennsliskerfi augans til að draga
úr þrýstingnum. En í ljós hefur komið
að ekki er nóg að létta þrýstingnum
og það eitt dugði ekki til að stemma
stigu við hrörnun sjóntaugarinnar og
dró ekki úr hættunni á blindu.
Michal Schwartz, prófessor við
Weizman-stofnunina, komst að því að
fyrstu skemmdirnar á tauginni valda
losun efna sem leiða til frekari
skemmda. Þessi efni gegna mikil-
vægu hlutverki við að halda auganu
heilbrigðu.
Eitt þessara efna er taugaboðefnið
glútamat, sem streymir frá skemmd-
um taugafrumum og hefur slæm áhrif
á nærliggjandi frumur. En prófessor
Schwartz og samstarfsmenn hennar
komust að því að Copaxone virðist
geta verndað taugina fyrir eituráhrif-
um glútamats. Í rottum sem var gefið
lyfið dóu aðeins um 4% af taugafrum-
um í glákusýktu auga, samanborið við
28% í rottum sem ekki hafði verið gef-
ið lyfið.
Þess er vænst að innan skamms
verði hafnar tilraunir með áhrif lyfs-
ins á fólk með gláku. Niðurstöður
rannsóknarinnar birtast í Proceed-
ings of the National Academy of Sci-
ences USA.
MS-lyf gegn gláku