Morgunblaðið - 08.04.2001, Page 1
26
MORGUNBLAÐIÐ 8. APRÍL 2001
83. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
erðalögPáskaegg og messa bílarÚlfur í sauðargæru börnVissuð þið... bíóFramtíðarvonin
Sælkerar á sunnudegi
Lífið er krákuskel
Einföld kræklinga
súpa og hvítlauks
og tómatmariner-
aðar krákuskeljar
Sunnudagur
8. apríl 2001
Prentsmið
Morgunblaðsi
agnar Ingibergsson hefur lært listina að
ða en vera þó ævinlega í viðbragðs-
ðu. Hann er einn fárra Íslendinga í her-
mennsku og er að ljúka
7 mánaða vist með
sænska hernum í
Kosovo. Kjartan
Þorbjörnsson (Golli)
og Urður Gunnarsdóttir
fylgdust með Ragnari
og félögum hans í þessu
ð h ð h ð 10
Biðstaða á Balkanskaga
Áhrif verslunar-
miðstöðva
10
20
MENNINGUNA Í
ÖNDVEGI Á UPP-
LÝSINGATÆKNIÖLD
Lykillinn að
góðum ár-
angri að
velja réttu
sjúklingana
Morgunblaðið/RAX
Vetur konungur heldur enn föstum tökum í ríki sitt á Snæfellsnesi þó að vorið sé farið að láta á sér kræla annars staðar á landinu.
EINN úlfur slapp undan
norskum veiðimönnum sem
undanfarið hafa leitað þeirra
tíu úlfa sem ríkið leyfði að
yrðu veiddir.
Veiðitímabilinu lauk á föstu-
dag og höfðu þá níu úlfar verið
skotnir síðan tímabilið hófst
þann 10. febrúar. Leiðtogi
úlfaflokksins, sem nefndur
hefur verið Martin, slapp hins
vegar undan þeim 24 veiði-
mönnum sem útnefndir voru
til starfans af ríkinu.
Úlfurinn var nefndur Mart-
in eftir Martin Schanche, ein-
um ákafasta andstæðingi veið-
anna. Schanche gekk svo langt
að sækja um pólitískt hæli fyr-
ir nafna sinn í Svíþjóð.
Umhverfisverndarsamtök
hafa mótmælt veiðunum harð-
lega og segja úlfa enn í útrým-
ingarhættu en bændur eru
þeim hlynntir og segja að úlfar
hafi drepið 612 kindur á síð-
asta ári.
Snjóbráð gerði veiðimönn-
um erfitt fyrir að rekja slóð
úlfsins og er talið að hann hafi
komist undan og leiti sér nú
félaga.
Veiðimennirnir skutu flesta
hina úlfana úr þyrlum en
venjulega er bannað að veiða
dýr með þeim hætti í Noregi
því það er talið siðferðislega
rangt. Veiðin er talin hafa
kostað skattborgara um 3
milljónir nkr., andvirði um 30
milljóna ísl. kr.
Deilt um fjölda úlfa
Norska umhverfismálaráðu-
neytið segir að úlfarnir hafi
fjölgað sér of mikið síðan
Norðmenn og Svíar ákváðu í
sameiningu að reyna að fjölga
í stofninum í suðurhluta
Skandinavíu um miðjan síð-
asta áratug, um öld eftir að
þeim var nær útrýmt þar.
Það segir nú um 100 úlfa á
þessum slóðum sem haldi sig
yfirleitt í tíu úlfa hjörðum.
Umhverfisverndarsamtök
segja hins vegar eingöngu 30–
40 úlfa í Noregi.
Úlfurinn
Martin
Komst
undan
veiði-
mönnum
Ósló. Reuters.
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, og Jiang Zemin, forseti
Kína, höfðu í gær bréf til skoðunar
sem embættismenn ríkjanna hafa
sett saman og gæti leitt til lausnar
deilunnar vegna áreksturs banda-
rískrar njósnavélar og kínverskrar
herflugvélar. Í bréfinu er áreksturinn
harmaður.
Bréf sem kínversk stjórnvöld
sendu þeim bandarísku, og gert var
opinbert í gær, gæti þó sett strik í
reikninginn. Í því segir að ekki sé nóg
að harma áreksturinn, afsökunar-
beiðni Bandaríkjamanna sé nauðsyn-
leg.
Þrátt fyrir að vissrar bjartsýni
gætti í gær um að lausn deilunnar
væri í nánd benti háttsettur embætt-
ismaður í Bandaríkjastjórn á það í
samtali við AP-fréttastofuna á að
lausn slíkra deilna væri mjög flókið
verk og lítið þyrfti að bregða út af til
að allt væri í járnum á ný.
Í fyrrnefnda bréfinu eru lagðar lín-
ur skoðanaskiptum ríkjanna á því
hvað orsakaði slysið. Kínverjar hafa
haldið því fram að bandaríska vélin sé
orsakavaldurinn en því vísa Banda-
ríkjamenn á bug. Bréfið greiðir einnig
leiðina fyrir lausn áhafnar bandarísku
vélarinnar sem haldið hefur verið
fanginni, á Hanain-eyju í Kína, síðan
hún neyddist til að nauðlenda vélinni í
kjölfar árekstursins sl. sunnudag.
Í síðarnefnda bréfinu, sem Qian
Qichen, varaforseti Kína, sendi Colin
Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, segir hins vegar að yfirlýsingar
Bandaríkjamanna hafi hingað til ver-
ið „ófullnægjandi,“ og Kínverjar séu
„mjög óánægðir með það“. Í bréfinu
er þess krafist að Bandaríkin biðji
Kínverja afsökunar, afsökunarbeiðni
sé lykillinn að lausn deilunnar.
John Warner, formaður varnar-
málanefndar öldungadeildar banda-
ríska þingsins, sagði í samtali við AP
að orðalag bréfsins sem forsetarnir
tveir hefðu til skoðunar væri þess eðl-
is að báðir aðilar gætu vel við unað.
Talið er að það verði ekki undirritað
af Bush, heldur sendiherra Banda-
ríkjanna í Kína, Joseph Prueher.
Bandaríkin og Kína harma árekstur
flugvéla í drögum að yfirlýsingu
Lausn deilu
í sjónmáli?
Haikou, Washington. AFP, AP.
UPPÁKOMUNUM í bresku kon-
ungsfjölskyldunni virðist seint ætla
að linna. Það nýjasta varðar Sophie,
eiginkonu Játvarðar prins, og varð
einum ráðherra bresku ríkisstjórn-
arinnar tilefni til að kalla fjölskyld-
una „samsafn af aulabárðum“ sem
ekki ætti að styrkja með almannafé.
Þau Játvarður og Sophie, jarlinn
og greifynjan af Wessex, voru í
heimsókn í Qatar við Persaflóa á
dögunum og þar átti hún samtal við
„arabískan fursta“, eða mann sem
kynnti sig þannig, og lét þá móðan
mása um menn og málefni. Meðal
annars var hún sjálf ekki frá því að
hún minnti um margt á Díönu
heitna og hafði fátt fallegt að segja
um tengdafólkið og aðra frammá-
menn, til dæmis Tony Blair for-
sætisráðherra.
„Arabíski furstinn“ var blaða-
maður á News of the World í dul-
arklæðum og samtalið var síðan
notað til að neyða Sophie til að veita
blaðinu einkaviðtal. Sá samningur
er þó líklega úr sögunni því að tvö
önnur bresk blöð komust yfir og
hafa birt útdrætti úr samtalinu milli
Sophie og „furstans“.
Annað með „viðhengin“
Kim Howells, neytendaráðherra í
bresku stjórninni, sagði í fyrradag
að breska konungsfjölskyldan hefði
ávallt verið „samsafn af aulabárð-
um“ sem oft hefðu valið sér hálf-
undarlegt fólk til fylgilags og væru
eins og utangátta í nútíma-
samfélagi. Engin ástæða væri til að
greiða með fjölskyldunni af al-
mannafé enda væri hún ein sú rík-
asta í heimi. David Davis, einn þing-
manna Íhaldsflokksins, sagði að
mikilvægt væri að styðja drottn-
inguna, drottningarmóðurina og
Karl prins en um „viðhengin“
gegndi kannski öðru máli.
Við þetta bætist síðan að Játvarð-
ur er í stjórn kvikmyndafyrirtækis
og Sophie í stjórn almannatengsla-
fyrirtækis og hafa þau verið sökuð
um að reka erindi þeirra í opinber-
um heimsóknum.
Ummæli Sophie, eiginkonu Játvarðar
prins, hneykslunarhella í Bretlandi
Leysti frá skjóðunni
við „arabískan fursta“