Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL
ÍSLENSKT umslag, sem talið er
vera með falsaðri utanáskrift, er
meðal uppboðsgripa á uppboði
Thomas Høyland auktioner sem
fram fer í Kaupmannahöfn síðar í
mánuðinum. Utanáskriftin gerir það
að verkum að svo virðist sem um-
slagið hafi farið í póst en að sögn
Magna Magnússonar frímerkja-
kaupmanns er verðmæti póstsendra
umslaga margfalt meira en umslaga
sem aldrei hafa verið póstlögð.
Umslagið sem um ræðir er með
fimm frímerkjum á og er póststimpl-
að í Reykjavík í nóvember 1897. Frí-
merkin eru sérstök því upphaflega
voru þau fimm aurar að verðgildi en
var breytt í þriggja aura merki með
yfirstimplun þegar öll þriggja aura
frímerki voru uppurin hjá póstþjón-
ustinni.
Í grein sem Jón Aðalsteinn Jóns-
son ritaði í tímarit Landssambands
sænskra frímerkjasafnara í haust
varaði hann við umslögum sem eru
með þessum yfirstimpluðu frímerkj-
um. Í greininni kemur fram að á sín-
um tíma seldust umrædd frímerki
upp á mettíma og spurðist fljótlega
út að nær öll frímerkin höfðu farið til
eins og sama manns, Ditlevs Thom-
sens stórkaupmanns sem einnig
verslaði með frímerki. Í greininni
eru leiddar líkur að því að Thomsen
hafi notað sambönd sín til að fá fjölda
óáritaðra umslaga með frímerkjun-
um stimplaðan af póstþjónustunni.
Síðar hafi utanáskrift verið bætt á
umslögin í því skyni að auka verð-
mæti þeirra. Ekki er nákvæmlega
vitað hvenær það hafi verið gert en
mynd af umslaginu er birt í sænskri
frímerkjabók frá árinu 1957 en að
sögn Magna er líklegt að utaná-
skriftin sé mun eldri og að öllum lík-
indum hafi útlendingur verið þar að
verki.
Jón Aðalsteinn bendir í grein sinni
sérstaklega á umslagið sem nú á að
fara á uppboð í Kaupmannahöfn og
segir það bera mörg merki fölsunar.
Í fyrsta lagi er utanáskriftin í meira
lagi vafasöm en viðtakandi er „Herra
Setselja Eliasdóttir, Bergstöðum“.
Jón Aðalsteinn bendir á að Sesselja
sé kvenmannsnafn og því hefði eng-
inn Íslendingur sett orðið „herra“
framan við það. Eins er stafsetning
nafnsins önnur en venjulega auk
þess sem það sé óhugsandi að Ís-
lendingur hefði sent bréf utan
Reykjavíkur án þess að láta hrepp
og sýslu viðkomandi bæjar fylgja
með í utanáskriftinni. Þá er komu-
stimpillinn á baksíðunni, Grenjaðar-
staður 24/11, þekktur á öðrum um-
slögum sem vitað er að voru
stimpluð samkvæmt pöntun.
Umslagið hefur oft verið boðið til
sölu á uppboðum erlendis og er síð-
ast vitað um það á uppboði í Dan-
mörk í október árið 1999. Að þessu
sinni er upphafsverð 12 þúsund
danskar krónur eða um 135 þúsund
íslenskar krónur og eru þá ótalin
umboðslaun uppboðshaldara og virð-
isaukaskattur. Umrætt uppboð á að
fara fram dagana 23.–26. apríl í
Kaupmannahöfn.
Íslenskt umslag, sem er talið falsað, á uppboði í Danmörku
Byrjunarverð um
135 þúsund krónur
Síða úr vörulista uppboðsins þar
sem meðal annars er mynd af
umslaginu.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur fellt úr gildi ákvörðun lögreglu-
stjórans í Reykjavík um að neita að
krefjast nálgunarbanns yfir erlend-
um karlmanni sem sakaður er um að
hafa stungið mann fyrir utan skyndi-
bitastað í Faxafeni í Reykjavík hinn
5. janúar sl. Árásarmaðurinn sætir
nú farbanni sem hefur verið staðfest
í Hæstarétti.
Þegar gæsluvarðhald mannsins
rann út krafðist réttargæslumaður
mannsins, sem varð fyrir árásinni,
þess að lögreglan færi fram á nálg-
unarbann en þeirri beiðni var hafn-
að, „að svo komnu máli“. Ríkissak-
sóknari hafnaði því að endurskoða
ákvörðun lögreglustjórans á þeim
grundvelli að kæruleið væri ekki fyr-
ir hendi.
Í úrskurði dómsmálaráðuneytis-
ins kemur fram að árásin hinn 5.
janúar hafi verið afar hættuleg. Þá
liggi fyrir viðurkenning árásar-
mannsins að hann hafi áður veist að
manninum og rannsóknargögn
bendi eindregið til þess að hann hafi
að undanförnu ásótt manninn með
hótunum. Ráðuneytinu virðist því
fyllilega réttmætt að gera kröfu um
nálgunarbann við héraðsdóm á þeim
forsendum að rökstudd ástæða sé til
að ætla að hann muni fremja afbrot
eða raska á annan hátt friði manns-
ins. Dómstólar muni eiga lokaorðið
um hvort þetta skilyrði sé uppfyllt.
Lögreglan
krefjist nálg-
unarbanns
FÁTT er betra lífi og heilsu manna
en hressilegur göngutúr úti í frísk-
legu útiloftinu. Nú þegar sól hækk-
ar á lofti og snjórinn staldrar stutt
við á jörðinni gefast fleiri tækifæri
til að hressa sig og njóta útiver-
unnar, líkt og þetta hressa fólk sem
spásseraði um göngustíga borg-
arinnar og ræddi um heima og
geima.
Morgunblaðið/Þorkell
Að ganga sér til góðs
MINNISVARÐI sr. Hallgríms Pét-
urssonar við Dómkirkjuna í Reykja-
vík er kominn aftur á sinn stað eftir
gagngerar viðgerðir. Eiríkur Þor-
láksson, forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkur, sagði viðgerðina hafa
tekið lengri tíma en gert hafi verið
ráð fyrir enda hafi styttan verið farin
að láta nokkuð á sjá og stöpullinn
verið mjög illa farinn. Að sögn Eiríks
var allt kapp lagt á að færa minn-
isvarðann í upprunalegt horf og vel
hafi tekist til um viðgerðinar.
Styttan var reist fyrir tilstilli
Gríms Thomsens skálds og bónda á
Bessastöðum og var hún afhjúpuð 2.
ágúst 1885. Stöpull minnismerkisins
er úr íslensku grágrýti, gerður af
Juliusi Schou steinsmið í Reykjavík.
Harpan er úr steyptum málmi, er er-
lend smíð og á að minna á list skálds-
ins, „er svo vel söng, að sólin skein í
gegnum dauðans göng,“ en svo orti
Matthías Jochumsson.
Á framhlið varðans er nafn Hall-
gríms ásamt fæðingar- og dánarári
letrað á ljósa marmaraplötu. Þar eru
einnig letruð þessi orð úr Passíu-
sálmunum:
„Fyrir blóð lambsins blíða
búinn er nú að stríða
og sælan sigur vann.“
(Ps. 25. 12.)
Árni Gíslason leturgrafari gróf áletr-
unina en hún var orðin illa farin og
ólæsileg og því nauðsynlegt að grafa
nýja plötu. Leturgerðin sem Árni
notaði tíðkast að sögn Eiríks ekki
lengur og því hafi þurft að leita í
handverksaðferðir liðinna tíma.
Í bók Þóris Stephensen, Dóm-
kirkjan í Reykjavík, er að finna mik-
inn fróðleik um kirkjuna og umhverfi
hennar, þ.m.t. minnisvarða sr. Hall-
gríms. Þar segir að um 1500 til 2000
manns hafi verið viðstaddir afhjúpun
styttunnar og hlýtt á ræðu Péturs
Péturssonar biskups. Við athöfnina
var sungið og hlýtt á leik lúðraflokks.
Kominn í upp-
runalegt horf
Morgunblaðið/Jim Smart
Á FÖSTUDAGSKVÖLD var lög-
reglumaður á frívakt fluttur á
Sjúkrahúsið á Ísafirði. Hann hafði
hlotið höfuðhögg í skallaeinvígi við
annan lögreglumann en þeir öttu
kappi á öldungamóti lögreglu-
manna sem haldið er í íþróttahús-
inu á Torfnesi. Hjá lögreglunni á
Ísafirði fengust þær upplýsingar í
gær að maðurinn væri laus af spít-
ala og sæti nú á varamannabekkn-
um.
Meiddist í
skallaeinvígi
Lögreglumaður
fluttur á sjúkrahús
♦ ♦ ♦
ÞRJÁR litlar jarðskjálftahrinur
urðu norður af Tröllaskaga í gær-
morgun. Var stærsti skjálftinn 3,3
stig á Richterskvarða.
Vigfús Eyjólfsson, jarðfræðingur
á jarðeðlissviði Veðurstofu Íslands,
upplýsti að fyrsta skjálftahrinan
hefði orðið kl. 9.53. Önnur hrina kl.
10.18 og sú þriðja 10.37.
Upptökin eru um 30 km norður af
Tröllaskaga sem Vigfús sagði þekkt
óróasvæði svipað og á Suðurlandi.
Taldi Vigfús ólíklegt að skjálftarnir
hefðu fundist enda upptökin það
langt frá landinu.
Skjálfta-
hrina út
af Trölla-
skaga