Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 25
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 25
Útsölustaðir:
Reykjavík: Verslanir Hans Petersen, Myndval í Mjódd, Beco ehf. Kópavogur: Hans Petersen. Garðabær: Framköllun Garðabæjar ehf.
Hafnarfjörður: Filmur & Framköllun. Keflavík: Verslunin Hljómval. Vestmannaeyjar: Bókabúðin - Penninn. Selfoss: Hans Petersen. Akureyri: Pedromyndir.
Sauðárkrókur: Bókabúð Brynjars. Ísafjörður: Penninn - Bókaverslun Jónasar Tómassonar ehf. Akranes: Penninn - Bókabúð Andésar Nielssonar.
www.hanspetersen.is
LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ
FYLGIR HVERRI MYNDAVÉL
R
Ú
N
A
Falleg hönnun, stór skoðari og
stórir stjórntakkar.
Góð vél fyrir byrjandann
Verð: 6.690
C a n o n P R I M A B F - 9 S
Léttasta APS vélin (aðeins 115g).
Álíka stór og hefðbundið greiðslukort.
Einföld og meðfærileg.
Tilboðsverð: 11.900.- með tösku.
C a n o n I X U S M 1
Nýjasta Ixus myndavélin
með aðdráttarlinsu. Hlaut hin
eftirsóttu EISA verðlaun 2000-2001
í flokki APS myndavéla. Fjölmargir
möguleikar í myndatöku.
Tilboðsverð: 17.990.-
C a n o n I X U S Z 5 0
Falleg og stílhrein myndavél á
frábæru verði. Fer vel í hendi og
er einföld í notkun. Aðdráttarlinsa
fyrir nærmyndir sem og landslags-
myndir. Canon taska fylgir.
Tilboðsverð: 12.390-
(13.990.- með dagsetningu).
C a n o n P r i m a Z o o m 7 6
SAMKVÆMT nýútkominni
skýrslu ríkislögreglustjóra, Brot
gegn lífi og líkama 1999, sem er
samantekt um líkamsmeiðingar,
aðrar en kynferðisbrot, var tíðni
ofbeldisbrota 50,6 tilvik á hverja
10 þúsund íbúa árið 1999, sam-
kvæmt málaskrá lögreglu. Í um-
dæmi lögreglunnar í Vestmanna-
eyjum reyndist brotatíðnin
langhæst, eða 82,7 brot á hverja 10
þúsund íbúa.
Skýrslan byggist á svörum lög-
reglustjóra í landinu við fyrirspurn
ríkislögreglustjóra þar sem óskað
var upplýsinga um öll ofbeldismál
sem tilkynnt voru til lögreglu 1999.
Skýrslan sýnir að tveir þriðju
hlutar líkamsmeiðinga sem til-
kynntar voru til lögreglu áttu sér
stað á eða við skemmtistaði og á
almannafæri, rúmlega fimmtungur
á heimilum og tæplega fimmtung-
ur á öðrum stöðum. Árið 1999 voru
alls 937 ofbeldismál tilkynnt til
lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og
399 á landsbyggðinni.
Karlar sjaldnast barðir
heima hjá sér
Samkvæmt skráningu slysa- og
bráðamóttöku Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi (LSH)
urðu konur fyrir ofbeldi á eigin
heimilum í 32,7% tilvika en karlar
mun sjaldnar, eða í 7% tilvika. Oft-
ast urðu karlar fyrir ofbeldi utan
heimilis eða í 54,5% tilvika og í
öðrum heimahúsum í 38,6% tilvika.
Samkvæmt tölum slysa- og bráða-
móttöku LSH leituðu þangað 1.136
karlar vegna ofbeldis frá miðju ári
1999 til sama tíma 2000, en 416
konur.
Deilur voru langalgengast að-
dragandi líkamsmeiðinga ef litið er
til landsins alls og næstar í röðinni
eru fyrirvaralausar árásir. Tölu-
verður munur var á aðdraganda
líkamsmeiðinga eftir því hvort
verknaðurinn átti sér stað á höf-
uðborgarsvæðinu eða landsbyggð-
inni. Í 58,5% tilvika voru deilur að-
dragandi líkamsmeiðinga á lands-
byggðinni en í 35,7% tilvika á
höfuðborgarsvæðinu. Í 27,6% til-
vika var fyrirvaralaus árás aðdrag-
andi ofbeldisins á landsbyggðinni
en í 38,9% tilvika á höfuðborg-
arsvæðinu.
Algengast að þolendur
séu kýldir og slegnir
Algengast var að þolandi væri
sleginn, í hann sparkað eða honum
hrint. Beiting vopna var sárasjald-
gæf. Stundum var notast við það
sem hendi er næst til að veita
áverka og dæmi eru um að höfði
árásarþola sé barið við harðan flöt,
hann kaffærður í snjó eða í hann
kastað. Á höfuðborgarsvæðinu var
kýlt eða slegið í 41,8% tilvika og í
49% tilvika á landsbyggðinni.
Flest ofbeldisbrot má skilgreina
sem minni háttar líkamsárásir þótt
allmörg dæmi séu um mjög alvar-
leg ofbeldisverk. Algengust voru
smávægileg meiðsl í andliti. Þar á
eftir koma aðrir höfuðáverkar og
áverkar á útlimum. Dæmi eru um
mjög alvarleg meiðsl, s.s. mikla
andlitsáverka, nefbrot og brotnar
eða lausar tennur. Miklir andlits-
áverkar, nefbrot og áverkar á baki
og brjóstkassa virðast algengari á
höfuðborgarsvæðinu.
Karlar voru árásarmenn í lang-
flestum tilvikum og jafnframt mun
oftar þolendur ofbeldis en konur.
Þá var yngra fólk oftar gerendur
en þolendur í ofbeldismálum.
Flestir gerendur á höfuðborgar-
svæðinu voru í aldurshópnum 15-
20 ára, eða 32,1%, og 22,9% í ald-
urshópnum 21-25 ára. Á lands-
byggðinni voru 43,2% í aldurs-
hópnum 15-20 ára og 23,4% í
aldurshópnum 21-25 ára.
Í meirihluta mála þekktust árás-
armenn og fórnarlömbin ekki. Á
hinn bóginn voru vina- eða kunn-
ingjatengsl nokkuð algeng milli
gerenda og þolenda.
Skýrslan leiðir í ljós að lang-
hæsta tíðni ofbeldisbrota mældist í
Vestmannaeyjum, þá í Reykjavík
og Keflavík. Í Eyjum voru 82,2
brot á hverja 10 þúsund íbúa, 69,2
brot í Reykjavík og 67 í Keflavík.
Meðaltal allra lögregluumdæma
var 50,6 brot á hverja 10 þúsund
íbúa. Fæst brotin voru í Neskaup-
stað (6,6) Vík (9,1) Bolungarvík,
(9,8) og Búðardal (12,6). Ekkert
brot var kært til lögreglu á Kefla-
víkurflugvelli eða Hólmavík.
Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um ofbeldisbrot í landinu
Rúmlega 50 ofbeldisbrot
á hverja 10 þúsund íbúa
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands
hefur tilkynnt félagsmála-
ráðuneytinu að það telji sér
ekki lengur fært að sinna um-
sagnarhlutverki vegna útgáfu
á atvinnuleyfum nektardans-
ara. Í bréfi sem ASÍ hefur
sent ráðuneytinu segir að af-
staða sambandsins byggi
fyrst og fremst á þeirri óvissu
sem ríki um eðli þeirra starfa
sem viðkomandi dansarar eru
látnir sinna á grundvelli út-
gefinna atvinnuleyfa og þær
aðstæður sem þær starfa við.
„Það er skoðun Alþýðusam-
bandsins að stjórnvöld og lög-
gjafinn verða að skera úr um
til hvers konar starfa og
vinnuskilyrða umrædd at-
vinnuleyfi ná og tryggja að
eftir því sé farið. Þá bendir
ASÍ á nauðsyn þess að Ísland
leggi sitt af mörkum í þeirri
alþjóðlegu baráttu sem nú fer
fram gegn skipulagðri versl-
un með fólk, einkum ungar
konur og börn, en kastljósinu
var m.a. beint að þessum
vanda á alþjóðlegum degi
kvenna, 8. mars sl.,“ segir
m.a. í bréfi ASÍ.
Veitir ekki
umsögn um
atvinnu-
leyfi nekt-
ardansara