Morgunblaðið - 08.04.2001, Page 30
30 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
I
Fyrir nokkrum árum keypti ég
olíumálverk eftir föðursystur mína,
Júlíönu Sveinsdóttur (1889–1966),
frá Assisi á Ítalíu. Þetta er lítið
málverk, 50x40 cm. Lengi hafði ég
haft hug á að heimsækja Assisi og
skoða þær byggingar, sem mál-
verkið hefur að geyma. Við hjónin
dvöldum í þrjár vikur á Ítalíu um
hátíðarnar, svo nú bar vel í veiði að
heimsækja Assisi. Hinn 3. janúar
2001 kl. 10.30 er haldið af stað
áleiðis til Assisi. Bílstjóri er Enrico
Mensuali tengdasonur okkar, en
farþegar við hjónin, Bergljót dóttir
okkar og Linda dótturdóttir okkar.
Þetta er 2½ tíma akstur frá Greve,
heimili okkar í Toscana. Bergljót
hefur komið fimm sinnum til Assisi
og þá stundum með ferðahópa.
Hún er því öllum hnútum kunnug
þar á bæ. Hún hefur ritað nokkrar
greinar í Morgunblaðið um Assisi
og Verna, þar sem Frans frá Assisi
dvaldi einnig. Friðrik Rafnar
(1891–1959) vígslubiskup ritaði
„Sögu hins heilaga Franz frá Ass-
isi“, er út kom á Akureyri árið
1930, en bókin kom síðan út í end-
urskoðaðri útgáfu á vegum kaþ-
ólsku kirkjunnar á Íslandi árið
1979. Átti ég fyrri útgáfuna og var
því nokkuð kunnugur sögu Frans.
II
Eftir að hafa skoðað nokkrar
kirkjur setjumst við að snæðingi í
„Buca di San Francesco“, einu
fremsta veitingahúsi í Assisi. Það
stendur við Via E. Brizi nr. 1. Þar
var töfruð fram frábær máltíð, tví-
réttuð með kaffi, vín í sérflokki.
En andrúmsloftið, stíllinn yfir
þjónustufólkinu, allt var þetta ná-
kvæmlega eins og ég vil hafa veit-
ingahús. Samt var þessi staður
ekki opnaður fyrr en árið 1973.
III
Mjög bratt er í Assisi og þarf að
ganga þar með mikilli gát, en þurrt
var og sól, svo menn runnu ekki í
brattanum. Næst skoðuðum við
Basilica d. San Francesco-
kirkjuna, þar sem líkamsleifar
Frans frá Assisi (1181–1226) eru
grafnar neðst í grafhvelfingu
kirkjunnar. Þar var mannfjöldi
mikill, þúsundir manna, en kirkjan
er gríðarstór. Andrúmsloftið
magnað, enda Frans talinn vera sá
maður, sem komist hefur næst því
að feta í fótspor Jesú Krists. Mál-
verk Júlíönu reyndist vera af dóm-
kirkju heilags Rufinos í Assisi.
Bygging kirkjunnar hófst 1140 og
er framhliðin í rómönskum stíl.
Þar var Frans skírður. Kirkjan er
helguð heilögum Rufino biskupi,
sem leið píslarvættisdauða árið
239. Hann kom á kristinni trú í
Assisi.
IV
Kynni Júlíönu af Ítalíu hófust
árið 1926, þegar hún heldur til
Ítalíu í sína fyrstu námsferð þang-
að og dvaldi þar í ársfjórðung.
Varð hún þegar heilluð af Ítalíu og
fór þangað aftur árin 1932, 1934 og
1953. Í ritinu „Íslenskir samtíð-
armenn A–J“ er út kom árið 1965,
er haft eftir Júlíönu: „Til Ítalíu
1926 (skildi þá fyrst, hvað list
var).“ Þá var hún búin að mála í 14
ár … Heimferðin tók einnig 2½
tíma, svo alls hafði þessi heimsókn
okkar til Assisi tekið 8 klukkutíma.
Þreytt, en ánægð, renndum við
heilum vagni í hlað í Greve og nú
hafði enn einn draumur minn ræst
á gamals aldri. Ég hafði komist til
vinar míns Frans frá Assisi.
Heimildir:
1) Bergljót Leifsdóttir: Lesbók Mbl. 27.
ágúst 1988 – La Verna – Golgata grámunk-
anna.
2) Friðrik Rafnar vígslubiskup: Saga
hins heilaga Franz frá Assisi. Útg. Þor-
steinn M. Jónsson, Akureyri 1930.
3) Friðrik Rafnar vígslubiskup: Heilagur
Franz frá Assisi, ævi hans og starf með
myndum eftir Toni Schneiders, útg. Kaþ-
ólska kirkjan á Íslandi, 2. útgáfa endur-
skoðuð, Leiftur hf., Reykjavík 1979.
Pílagrímsför
til Assisi
Andrúmsloftið var magnað, segir
Leifur Sveinsson, enda Frans talinn
vera sá maður, sem komist hefur næst
því að feta í fótspor Jesú Krists.
Veitingahúsið Buca Di San Francesco í Assisi – anddyrið. Séð yfir Assisi. Dómkirkja heilags Rufinos í Assisi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfundur er lögfræðingur
í Reykjavík.
Greinarhöf-
undur og fjöl-
skylda á veit-
ingahúsinu
Buca Di San
Francesco í
Assisi. Frá
vinstri: Leif-
ur, Halldóra,
Bergljót,
Linda og
Enrico.
Málverk Júl-
íönu Sveins-
dóttur af
Dómkirkju
heilags Ruf-
inos í Assisi.
Ljósmynd/Toni Schneider Ljósmynd/Toni Schneider