Morgunblaðið - 08.04.2001, Side 31
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 31
Gullsmiðir
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - sími: 568 1500
AKUREYRI: Lónsbakka - sími: 461 1070
GREI
NAK
URLA
RAR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi:
„Fundur félagsmanna í Sölufélagi
garðyrkjumanna svf. og Ágætis hf.
haldinn í Garðyrkjuskólanum þann
6. apríl 2001 harmar ákvörðun sam-
keppnisráðs nr. 13/2001. Með
ákvörðuninni eru garðyrkjubændur
og afurðarfyrirtæki þeirra dæmd
fyrir stórfellt samsæri gagnvart
neytendum í landinu með því að hafa
gert það sem allir framleiðsluþættir
þjóðfélagsins gera á hverjum degi,
sem er að stilla af framboð og eft-
irspurn, svo mest nýting fáist út úr
framleiðsluþáttum þjóðfélagsins,
hagsmunum allra aðila til góða þ.m.t.
neytenda í landinu. Hver garðyrkju-
bóndi í landinu getur ekki verið skil-
greindur sem sjálfstæð heildsala.
Ennfremur lýsir fundurinn yfir
undrun sinni á þeirri umræðu sem
farið hefur af stað í málinu um að
stjórnendur og stjórnarmenn afurð-
arfyrirtækjanna hafi hagnast per-
sónulega. Lýst er fullum stuðningi
við störf þessara aðila.
Að lokum skorar fundurinn á
neytendur að sýna garðyrkjubænd-
um biðlund þar til hið sanna hefur
verið leitt í ljóst.“
Harmar
ákvörðun sam-
keppnisráðs
FRIÐRIK Þór Guðmundsson,
blaðamaður og faðir fórnarlambs
brotlendingar TF-GTI, Jón Ólafur
Skarphéðinsson, prófessor og faðir
fórnarlambs brotlendingar TF-GTI,
og Hilmar Friðrik Foss, flugmaður
og faglegur ráðgjafi aðstandenda,
hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynn-
ingu vegna bréfs RNF til samgöngu-
ráðherra:
„Rannsóknarnefnd flugslysa
(RNF) hefur nú beygt af og viður-
kennt að ástæða sé til fyrir lögreglu
að skoða vinnbrögð hennar og fá til
þess erlenda sérfræðinga. RNF
ákvað að blanda sér í þá opinberu
rannsókn sem Friðrik Þór Guð-
mundsson bað um 22. ágúst síðastlið-
inn. RNF segir lögreglunni fyrir
verkum, lögreglu sem að ósk að-
standenda rannsakar hvort RNF
hafi brotið hegningarlög með því að
farga mikilvægu sönnunargagni,
hreyflinum sem á drapst. Sama lög-
regla hefur lengst af fyrst og fremst
verið að bíða eftir skýrslu RNF til að
ljúka sinni rannsókn. Lögreglan hef-
ur því næsta lítið í höndunum um
meginsvið flugslysamálsins nema
ónothæfa skýrslu. Sem aftur þýðir
að lögreglan verður að vinna verk
RNF upp á nýtt og fá sér til aðstoðar
hæfa og reynda erlenda sérfræðinga
– líkt og aðstandendur gerðu kröfu
um fyrir mörgum mánuðum. Og er-
um við þá á vissan hátt komin aftur
fyrir byrjunarreit við rannsókn
málsins – verr sett vegna förgunar
hreyfilsins og annarra afglapa og
brota RNF, flugmálastjórnar, við-
halds- og skoðunaraðilans og flug-
rekandans.
Ljóst má vera að förgun hreyfils-
ins af hálfu RNF eru alvarleg rétt-
arspjöll. Forstjóri LÍO hefur nú upp-
lýst að frá fyrsta degi hafi hreyfillinn
verið geymdur í umsjá hagsmuna-
aðila, þ.e. viðhalds- og skoðunaraðila
flugrekandans sem jafnframt er
tæknistjóri sama flugrekanda.
Örfáum dögum síðar afsalaði
RNF sér þessu mikilvæga sönnunar-
gagni endanlega. Í ljósi mjög misvís-
andi upplýsinga um eldsneytismagn
um borð í flugvélinni verður að
draga í efa fram komnar getgátur
um bensínleysi sem grundvallandi
orsakaþátt flugslyssins. Það er á
ábyrgð RNF að nú er búið að farga
hreyflinum og útiloka að unnt verði
að sanna hvers vegna drapst á hon-
um.
Ekki var liðinn sólarhringur frá
því að ráðherra hafnaði ítrekaðri ósk
aðstandenda um að kallaðir yrðu til
erlendir sérfræðingar þar til hann
fór að ósk RNF, meints brotaaðila,
um hið sama. Það er ekki í verka-
hring RNF eða samgönguráðherra
að hlutast til um hina opinberu rann-
sókn og tilnefna hvaðan hinir er-
lendu sérfræðingar eigi að koma. Al-
þjóðaflugmálastofnunin hefur
ekkert með lögreglurannsóknir að
gera. Sú alþjóðastofnun er fyrir-
framvanhæf vegna úttekta hennar á
Flugmálastjórn. Nærtækast er að
leita til viðurkenndra aðila í Evrópu,
svo sem til Bretlands, þar sem er að
finna hina hæfustu sérfræðinga á
þessu sviði.“
Aðstandendur fórnarlamba flugslyssins
Segja rannsóknarnefnd hafa beygt af