Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 35
unda frá álvinnslu yrði sama sem 0,
sparnaður af álnotkun yrði einnig
sama sem 0 og nettólosunin þar
með sömuleiðis 0. Ef við berum þá
tölu saman við nettólosunina sam-
kvæmt töflunni kemur í ljós að
núllkosturinn er hagstæðari en ál-
vinnsla ef rafmagnið til vinnslunnar
er framleitt með eldsneyti en óhag-
stæðari ef rafmagnið er framleitt
úr öðrum orkugjöfum.
Hvað eiga Íslendingar
að gera?
Vatnsorka á Íslandi tilheyrir
vatnsorku (1) í töflunni. Hvert kg
af áli sem unnið er með íslenskri
vatnsorku sparar þannig andrúms-
loftinu 4,1 kg losun koltvísýrings
borið saman við að ál væri alls ekki
framleitt og notað.
Þessi niðurstaða sýnir ljóslega að
það er beinlínis í þágu markmiðs
Loftslagssáttmálans og Kyoto-bók-
unarinnar að auka álvinnslu á Ís-
landi sem mest má verða.
Hvort menn telja slíkt óæskilegt
af öðrum ástæðum er allt annað
mál sem ekkert hefur með Kyoto-
bókunina að gera.
Ef við gerum ráð fyrir að raf-
magn til álvinnslu á Íslandi verði í
framtíðinni framleitt að 90% úr
vatnsorku og að 10% úr jarðhita
nemur sparnaður andrúmsloftsins
umfram núllkostinn 3,97 kg á kg af
áli. Heildarlosun Íslendinga innan-
lands 1999 frá annarri starfsemi en
álvinnslu nam 2,930 milljónum
tonna að koltvísýringsígildi og
0,527 milljón tonnum í flutningum
Íslendinga milli landa, eða samtals
3,457 milljón tonnum. Með því að
framleidd væru árlega á Íslandi
3,457/3,97 = 0,87 milljón tonn af áli
sparast andrúmsloftinu jafnmikil
losun. Til þess þyrfti 12,9 TWh af
rafmagni árlega. Eigum við að láta
þar staðar numið eða ganga
lengra? Spara andrúmsloftinu með
álvinnslu meira en við losum sjálf
vegna alls annars? Það mætti skoða
sem einskonar „sameiginlega fram-
kvæmd“ Íslendinga og þeirra sem
nota íslenskt ál í samgöngutæki.
Með því tækjum við heimsforystu í
viðleitninni til að hemja gróður-
húsaáhrifin, reiknað á hvern íbúa.
Hvaða ímynd af Íslandi myndi það
skapa í heimi þar sem sívaxandi
uggs gætir við afleiðingar gróður-
húsaáhrifanna?
Og eitt í viðbót til umhugsunar:
Ísland er langsamlegasta ríkasta
land veraldar að efnahagslegri
vatnsorku, reiknað á hvern íbúa,
eins og meðfylgjandi súlurit sýnir.
Fyrir utan allan jarðhitann! Legg-
ur slík yfirmáta gjafmildi forsjón-
arinnar á hreinar orkulindir okkur
einhverjar siðferðilegar skyldur á
herðar í samfélagi heimsþorpsins?
Hvaða máli skiptir losun
í einstökum löndum?
Þrátt fyrir þær staðreyndir sem
að framan eru raktar eiga íslensk
stjórnvöld í basli með álvinnslu á
Íslandi vegna Kyoto-bókunarinnar.
Það basl er ekki stjórnvöldum að
kenna heldur á það rót sína í nú-
verandi útfærslu bókunarinnar,
sem í reynd vinnur sumpart gegn
markmiðum Loftslagssáttmálans.
Sú útfærsla er eingöngu til komin
vegna þess að menn náðu ekki
samkomulagi um neitt annað. Hún
sýnir í hvaða ógöngum menn lenda
þegar þeir ætla að leysa hnattræn
vandamál hver í sínu horni. Hún
vekur líka upp þá spurningu hvaða
þýðingu losun gróðurhúsaloftteg-
unda í einstökum löndum hafi í
heimi hnattrænna viðskipta, um-
fram þá að gera mögulegt að
reikna heimslosunina, sem ein
skiptir máli. Vegna viðskipta og
verkaskiptingar milli landa getur
aukin losun í landi A hæglega leitt
til samdráttar í losun í landi B sem
er meiri en aukningin í A. Hvað á
A þá að gera? Samkvæmt Kyoto-
bókuninni í núverandi mynd á A að
kappkosta að draga úr sinni losun
án nokkurrrar hliðsjónar af B.
Hann kynni að vísu að geta keypt
kvóta af B. En á að þurfa að borga
fyrir að stuðla að markmiðum
Loftslagssáttmálans? Eru þetta vit-
ræn vinnubrögð? Þjóna þau mark-
miðum sáttmálans?
Höfundur er verkfræðingur og
fyrrverandi orkumálastjóri.
!
"
#!
$%& '()*
*+%,
!
*
-!
. # $
&!
/0
*
!*& 1 *
#*
2 )*%/,
.,/&
(*/+
)%/(
)%/,
))/%
+/'
*/&
*/-
./-
./*
./.
%/)
(/.
)/*
)/.
)/%
)/)
)/,
,/&
4!
. +-6&.*-
!"
# ! $%
-&7
-*
-%
-&%&
- & , 8
- & 6& 8
-%. 9
:9
;9
9<4*7= 7>. !* & 6
:9<4*7= 7>& ?@&
;9<4*7= 7>& A@&
&" ' %" # #! !
# " ! " (
" # B*!&& *C&9
& 666
4*
7
3
&
" ,(
)'/&
)(/%
-/,
)/&
)/&
%/+
%/(
*/,
*/,
*/,
*/,
*/,
*/,
*/,
0+/&
0*/%
0)/,
'/)
'/)
(/(
(/+
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 35
Göngugötunni Mjódd
Símar 867 3284 - 588 8881
Yfirbreiðsla fylgir öllum
pottum til páska
Tilbúnir í garðinn,
engra lagna þörf.
Á kjörhita allan sólar-
hringinn, orkukostn.
aðeins 1.000 kr. á
mánuði.
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða
kennara næsta haust í eftirtaldar
námsgreinar:
• Stærðfræði
• Eðlisfræði
• Viðskiptagreinar
• Íþróttir stúlkna
Aðstoðarskólastjóri og deildarstjórar viðkomandi deilda
veita nánari upplýsingar um starfið. Umsóknum skal
skilað á skrifstofu skólans í síðasta lagi 23. maí 2001.
Laun samkvæmt sérstökum samningi við skólanefnd VÍ.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS,
Ofanleiti 1, 103 Rvík,
sími 5900 600,
verslo@verslo.is
KENNARAR!
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050