Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 42
KIRKJUSTARF
42 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
SÖLUSÝNING Í DAG FRÁ KL. 14-16
Maríubaugur 63-67, Grafarholti
Okkur er mikil ánægja að kynna frábær hús í
hinu nýja hverfi borgarinnar. Um er að ræða 3
keðjuhús. Húsin eru um 190 fm og með sérlega skemmti-
legu fyrirkomulagi. Allt á einni hæð. 40 fm bílskúr. Aflokað-
ur suðurgarður. Þetta eru hús sem vert er að skoða nánar.
Sölumenn frá Lundi og fulltrúi byggingarðila verða á
staðnum í dag og veita nánari upplýsingar og sýna eitt
húsana sem nú er verið að ljúka við.
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
netfang: lundur@f-lundur.is heimasíða:www.f-lundur.is
Opið á Lundi í dag milli kl. 12 og 14
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Þverás - Reykjavík - Parhús
Nýkomið í einkasölu fallegt parhús á
þessum frábæra stað. Húsið er um 70
fm að grunnfleti, hver hæð, auk þess
hefur verið innrétt. skemmtilegt herb. í
risi. 3 góð herb. á efri hæð, sjónvarps-
hol, eldhús og stofa á neðri hæð.
Góður 21 fm bílskúr, gróinn garður.
Áhv. húsbréf. Verð 21 millj. 80956
Sigurhæð 1
OPIÐ HÚS
Í DAG
Ingólfur Gissurarson löggiltur fasteignasali
Vorum að fá í sölu stórglæsilegt ca 300 fm einbýlishús á tveimur
hæðum í Hæðahverfinu í Garðabæ. Húsið er mjög vel skipulagt
með glæslegan arkitektúr og skiptist niður á eftirfarandi hátt: Á
neðri hæðinni eru rúmgóðar stofur með útgangi út á stóran sólpall,
eldhús, forstofuherbergi, gestasnyrting og 44 fm innbyggður bíl-
skúr. Á efri hæðinni eru 4 mjög rúmgóð svefnherb., (16-18 fm) með
útgangi úr hjónaherbergi út á suðvestursvalir með góðu útsýni,
sjónvarpshol og rúmgott baðherbergi. Garðurinn er allur nýstand-
settur eftir Stanislac Bohic og er bílaplanið og allar stéttar upphit-
aðar. Verð 35 millj. Áhv. hagst. langt.lán. Opið hús í dag á milli kl.
12 og 14.
ATVINNUHÚSNÆÐI.
Suðurlandsbraut 12 - verslunarhúsnæði
Til sölu í þessari glæsilegu húseign er öll jarð-
hæðin og bakhús. Um er að ræða 7 hæða
glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði þar
sem eftirfarandi einingar eru til sölu:
Verslunarhæð um 600 fm.
Bakhús (getur nýst sem verslunarpláss með
tengingu við framhús) að grunnfleti u.þ.b. 870
fm. Framangreindir eignarhlutar eru til sölu í
heilu lagi eða smærri einingum. Um er að ræða
einstaklega glæsilega eign sem hefur öll verið tekin í gegn að utan og klædd með
fallegri álklæðningu. Nýr glæsilegur gluggafrontur. Næg bílastæði m.a. í bíla-
geymslu. Óvenjugóð lofthæð. Teikningar og allar nánari upplýsingar veitir Óskar
á skrifstofu Eignamiðlunarinnar. 9910
PARHÚS
Suðursalir
204,8 fm parhús með innb. bílskúr sem
afhendist rúmlega „fullbúið að utan en
fokhelt að innan“. Gott skipulag, róleg
gata og fallegt útsýni til vesturs. Afhend-
ing fljótlega. 1422
HÆÐIR
Ölduslóð - björt hæð
Vorum að fá í einkasölu snyrtilega og
bjarta u.þ.b. 92 fm 4ra herbergja hæð
ásamt góðu óinnréttuðu risi með góðri
lofthæð. Húsið er tvíbýlishús með stórri
lóð. Íbúðin er snyrtileg en upprunanleg.
Laus e. nánara samkomulagi. V. 10,5 m.
1392
4RA-6 HERB.
Hvassaleiti - 140 fm - m/bíl-
skúr - laus strax - lækkað
verð
Falleg og rúmgóð um 140 fm 5-6 her-
bergja íbúð ásamt bílskúr á 4. hæð. 3-4
svefnherbergi, stórar samliggjandi stofur
og tvennar svalir. Sérþvottahús og park-
et á gólfum. V. 15,9 m. 1288
Dunhagi + bílskúr
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 86 fm
4ra herbergja íbúð auk 21 fm bílskúrs.
Eignin skiptist m.a. í þrjú herbergi, stofu,
eldhús og baðherbergi. Vandaðar inn-
réttingar og gólfefni. Baðherbergi flísa-
lagt í hólf og gólf. Blokkin hefur öll verið
tekin í gegn. Kíktu á þessa. V. 13,5 m.
1405
Dunhagi - útsýni
Vel skipulögð 100 fm íbúð á 4. hæð með
frábæru útsýni á þrjá vegu. Íbúðin skipt-
ist í 2 stofur og 2 herbergi. Hægt að hafa
3 svefnh. Svalir eru út af stofu. Húsið er í
mjög góðu ástandi. V. 11,9 m. 1389
Leirubakki
Björt og falleg 4ra herbergja u.þ.b. 92 fm
íbúð á 2. hæð í nýlega viðgerðri blokk.
Eignin skiptist m.a. í hol, þrjú herbergi,
stofu, eldhús og baðherbergi. Sér-
þvottahús í íbúð. Falleg og björt íbúð. V.
10,7 m. 1388
3JA HERB.
Meistaravellir
Góð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við
Meistaravelli í Reykjavík. Eignin skiptist
m.a. í hol, eldhús, baðherbergi, stofu og
tvö herbergi. Blokk í góðu ástandi. Ný-
legt þak. Stúkusæti yfir KR-völlinn. V.
10,5 m. 1412
Engjasel - falleg
3ja herb. mjög falleg íbúð á 1. hæð í
standsettu húsi ásamt stæði í bíla-
geymslu. Glæsil. útsýni. Mjög falleg lóð.
Húsið er allt standsett að utan sem innan.
Barnvænt umhverfi. V. 10,8 m. 1415
Jöklafold + bílskúr
Falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu
fjölbýlishúsi auk bílskúrs. Eignin skiptist
m.a. í tvö herbergi, eldhús, baðherbergi
og stofu. Sérþvottahús í íbúð. Gott skipu-
lag og góðar innréttingar. Möguleiki er að
kaupa aukabílskúr með íbúðinni. V. 12,7
m. 1391
Blómvallagata
Vorum að fá í einkasölu fallega og bjarta
u.þ.b. 75 fm íbúð á 2. hæð í steinhúsi á
eftirsóttum stað. Stórt eldhús og gólfborð
á gólfum. Flísalagt baðherbergi. Skraut-
listar í loftum. Góð lofthæð. Áhv. 3,7 í
byggsj. Brunabótamat er 11,7 millj. V.
10,5 m. 1404
2JA HERB.
Hraunbær
Rúmgóð og björt 64 fm íbúð á jarðhæð
með sérgarði í litlu fjölbýlishúsi sem byggt
er síðar en flestar blokkir í hverfinu. Park-
et á gólfum, flísar á baði. V. 8,1 m. 1403
Laugateigur
Falleg og mikið endurnýjuð 75 fm kjallara-
íbúð með sérinng. í góðu bakhúsi. Parket
á gólfum og nýlegar innréttingar. 1351
Frostafold - með bílskýli
Vorum að fá í einkasölu fallega og bjarta
u.þ.b. 67 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli.
Nýtt parket á stofu, holi, eldhúsi og
svefnherbergi. Flísalagt bað. Gott eldhús
með borðkrók. Sérþvottahús. Suðursvalir
með frábæru útsýni. Stæði í bílageymslu
fylgir. Hús og sameign í góðu ástandi.
Áhvílandi ca 4,6 millj byggsj. með 4,9%
vöxtum. Laus fljótlega. V. 9,3 m. 1407
Frostafold
Falleg og björt 2ja herbergja íbúð í litlu
fjölbýli á þessum eftirsótta stað. Eignin
skiptist m.a. í hol, eldhús, stofu, herbergi
og baðherbergi. Sérþvottahús í íbúð.
Vönduð gólfefni og góð eldhúsinnrétting.
Gluggar í öllum herbergjum. V. 9,3 m.
1390
Opið í dag, sunnudag, frá kl. 12-15
Í FÓTSPOR Krists er heiti á hug-
leiðslu í orði og tónum sem í boði
verður þrjú kvöld í dymbilviku í
Háteigskirkju um þrjú sjálfstæð
efni. Fjórða kvöldið verða pall-
borðsumræður með yfirskriftinni Í
fótspor fyrirmynda. Öll kvöldin
hefst dagskráin kl. 20.
Á mánudag les Matthías Johann-
essen rithöfundur úr verkum sín-
um. Ildiko Varga (mezzósópran),
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir (gamba)
og dr. Douglas A. Brotchie (orgel)
flytja kantötu eftir Francois Coup-
erin og trúarljóð eftir C. Ph. E.
Bach og Jón Leifs.
Á þriðjudagskvöldið les Helga
Bachmann leikkona píslarsöguna úr
Jóhannesarguðspjalli. Peter
Tompkins (óbó) og dr. Douglas A.
Brotchie (orgel) leika fjölbreytta
tónlist fyrir óbó og orgel, meðal
annars eftir J.S. Bach, Telemann,
Fauré og Jón Ásgeirsson.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur flytur erindi á mið-
vikudagskvöldið: „Þeir vita ekki
hvað þeir gjöra“ – um þjáningu og
fyrirgefningu. Kirkjukór Háteigs-
kirkju og kammersveit flytja Missa
brevis eftir Josef Haydn og kór-
verk eftir Franz Liszt og Hugo
Distler undir stjórn dr. Douglasar
A. Brotchie organista.
Pallborðsumræður verða svo á
fimmtudagskvöldið um fyrirmynd-
ir, samskipti og jákvæða örvun í
fjölskyldunni. Þátttakendur: sr.
Carlos A. Ferrer prestur, Elísabet
Berta Bjarnadóttir félagsráðgjafi,
Matthildur Laufey Hermannsdóttir
leikskólakennari, Páll Heimir Ein-
arsson meðferðarfulltrúi o.fl.
Það hefur lengi verið til siðs að
íhuga þjáninguna á föstunni. Nið-
urinn er hvað þyngstur í dymb-
ilviku; því bregðum við á það ráð í
Háteigskirkju að gefa fólki kost á
að setjast niður með hugsanir sínar
og takast á við þær.
Það eru allir hjartanlega vel-
komnir að hlýða á þessa vönduðu
og sérstæðu dagskrá, sem leiðir
mann áreiðanlega á vit hugsana og
tilfinninga, sem annars eru lítt
kannaðar. Aðgangur er ókeypis.
Páskabingó
í Hjallakirkju
PÁSKABINGÓ verður mánudag-
inn 9. apríl í safnaðarheimili Hjalla-
kirkju, efri hæð. Bingóið hefst kl.
20 og eru allir velkomnir, ungir
sem aldnir. Bingóvinningar eru
margvíslegir; páskaegg, páska-
skraut, sælgætiskörfur og fleira.
Bingóspjaldið kostar 200 kr. Safn-
aðarfólk, sem og aðrir, er hvatt til
að mæta.
Safnaðarstarf
Háteigskirkja. Í fótspor Krists,
mánudagskvöld kl. 20. Hugleiðsla í
orðum og tónum. Matthías Johann-
essen rithöfundur les úr verkum
sínum. Ildiko Varga, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir og Douglas A. Brotch-
ie flytja kantötu eftir Francois
Couperin og trúarljóð eftir C. Ph.
E. Bach og Jón Leifs.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Tólf spora hópar koma
saman í safnaðarheimilinu mánu-
dag kl. 19.15.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðs-
félagið (8., 9. og 10. bekkur) kl. 20–
22.
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélag fyr-
ir 13 ára (fermingarbörn vorsins
2001) kl. 20–21.30. Æskulýðsfélag,
eldri deildir, 9. og 10. bekkingar, kl.
20–21.30.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9–
10 ára drengi á mánudögum kl. 17–
18. Æskulýðsstarf fyrir 8.–10. bekk
á mánudögum kl. 20–22.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í
kirkjunni alla daga kl. 9–17 í síma
587-9070. Mánudagur: KFUK fyrir
stúlkur 9–12 ára kl. 17.30–18.30.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir
8. bekk kl. 20.30 á mánudögum.
Hugleiðsla
í orðum
og tónum