Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 47
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1222
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Nes – Höfn Sigurbergur Arnbjörnsson 478 2113
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
OPIÐ HÚS Í DAG
milli kl. 14-16 í Mávahlíð 15
- risíbúð - LAUS STRAX
Sérlega falleg og björt 2ja herbergja risíbúð á góðum stað.
Parketlagt hol, parketlögð stofa, parketlagt svefnherbergi, eldhús
með góðri innréttingu, (nýr ískápur fylgir), flísalagt baðherbergi
með baðkari. Áhv. í byggsj. og húsbr. ca 3,4 m. Verð 8,2 m.
Borgarfasteignir, Vitastíg 12,
símar 561 4270 og 896 2340.
! " ! # $$%& !
' (%( !
! "
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að skoða
safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á
sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa.
Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gam-
alt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara.
Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi,
kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eld-
horn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrif-
stofan opin mán.–föst. kl. 9–16, lokað 20.–24.4. Sími 551–
7030, bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is –
heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími
530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–21.30, helg. 8–
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–
20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fim. kl. 11–15. Þri.,
mið. og fös. kl. 17–21.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau.
8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–
21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og
kl. 11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21,
lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30–
21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–
20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–21,
lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op-
inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl.
8.15–16.15. Móttökustöð er opin
mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–
16.15. Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel,
Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–
19.30. Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða
og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun laug-
ardaga og sunnudaga kl. 10–18.30. Endurvinnslustöðin á
Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvikud. og föstud. kl.
14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205.
„Fjöldamargir breiddu klæði sín
á veginn, en aðrir hjuggu lim af
trjánum og stráðu á veginn. Og
múgur sá, sem á undan fór og
eftir fylgdi, hrópaði: Hósanna
syni Davíðs! Blessaður sé sá sem
kemur, í nafni Drottins! Hósanna
í hæstum hæðum! Þegar hann
kom inn í Jerúsalem varð öll
borgin í uppnámi, og menn
spurðu: Hver er hann? Fólkið
svaraði: Það er spámaðurinn Jes-
ús frá Nasaret í Galíleu.“
(Matteus 21:8-11.)
Páskarnir eru að nálgast, mikill
mannfjöldi er kominn til borg-
arinnar að halda hátíð. Enn einu
sinni ætla gyðingarnir að minn-
ast þess þegar forfeður þeirra
voru leystir úr þrælahaldinu í
Egyptalandi. Rifja upp söguna af
Móse og Faraó, plágunum tíu og
undrinu þegar Rauðahafið klofn-
aði og hinir okuðu fengu frelsi.
Einn komumanna vakti meiri
athygli en aðrir. Þó var far-
arskjótinn ekki mjög virðulegur,
ösnufoli undan áburðargrip.
Enginn gæðingur það. Samt fór
fregnin um eins og eldur í sinu.
Hann var að koma! Spámaðurinn
sem hafði vakið mann upp frá
dauðum í þorpi þarna rétt hjá.
Læknað sjúka og gert mörg önn-
ur undur. Marga langaði að sjá
þennan umtalaða mann.
Þarna kom hann. Ösnufolinn
lötraði áfram og reiðmaðurinn
lét lítið yfir sér. Hógvær og af
hjarta lítillátur. Með honum
gekk sístækkandi hópur og hróp-
aði kveðju sem hæfði konungi.
Fólkið braut lim af trjám, pálma-
greinar og fór jafnvel úr fötum
og lagði í veg riddarans á asn-
anum. Æ fleiri tóku undir fagn-
aðarópin. Það var ekki leiðinlegt
að vera í föruneyti Jesú á pálma-
sunnudag og ekki heldur erfitt.
Jafnvel þótt hann riði bara á
ösnufola. Baða sig í fagnaðarlát-
unum, finna mjúkar pálmagrein-
arnar undir iljum og ganga inn í
borgina á marglitum dregli trjá-
greina og klæða hátíðargesta.
Þvílík stemmning!
Þrátt fyrir fagnaðarlætin var
Jesú ekki hlátur í huga. Þegar
nær kom borginni brast hann í
grát yfir því að borgin þekkti
ekki sinn vitjunartíma. Hann
vissi líka að hverju stefndi. Hann
var kominn til Jerúsalem að
deyja. Jesús átti volduga óvini
sem töldu hann ógna valdi sínu
og viðteknum siðum og gildum.
Þeir vildu hann feigan og lögðu á
ráðin um að binda endi á líf hans.
Viðburðaríkir dagar fóru í
hönd. Jesús fór meðal annars í
helgidóminn og setti þar allt á
annan endann. Velti um borðum
víxlaranna og rak út þá sem
höfðu breytt bænahúsinu í ræn-
ingjabæli. Sumum þykir það ef-
laust ekki mjög „kristileg“ hegð-
un, en Jesú var annt um að
helgidómurinn bæri nafn með
rentu, væri helgaður tilbeiðsl-
unni til Guðs.
Fylgdin við hann varð öllu örð-
ugri þegar leið á vikuna en hún
hafði verið á pálmasunnudag.
Það líða ekki margir dagar frá
því Jesú er fagnað með hrópum
og pálmagreinum þar til múg-
urinn krefst blóðs hans og hróp-
ar í æsingi: Krossfestu hann,
krossfestu hann! Þá varð eft-
irfylgdin svo erfið að jafnvel sá
sem einna fyrstur gegndi kallinu
um að fylgja honum og varð einn
hans nánasti vinur, Símon Pétur,
þorði ekki að kannast við hann.
Afneitaði honum þrisvar.
Þegar Jesús var upprisinn
birtist hann lærisveinunum
nokkrum sinnum. Jesús sýndi
Pétri sérstaka umhyggju og fól
honum það mikilvæga hlutverk
að gæta sauða sinna, kirkjunnar.
Síðan endurtók Jesús kallið við
Pétur: Fylg þú mér!
Þau sem gegna kalli Krists fá
að reyna að stundum er meðbyr
og stundum mótbyr á göngunni.
Sumir heltast úr lestinni í verstu
brekkunum og treysta sér ekki
lengra. Gefast upp. Eflaust hefur
sú hugsun læðst að Pétri forðum.
En hann fékk að reyna kærleika
Krists og að kallið hljómaði eftir
sem áður: Fylg þú mér.
Kristur er hinn sami í gær, í
dag og um aldir. Hvernig sem
okkur hefur gengið að feta í fót-
spor hans, hvort heldur er
pálmasunnudagur eða föstudag-
urinn langi, er kallið hið sama:
Fylg þú mér!
Í blíðu og stríðu
Fylg þú mér, sagði Jesús og margir hlýddu
kallinu. Suma daga var auðveldara að fylgja
honum en aðra. Guðni Einarsson leiddi hug-
ann að atburðum dymbilviku.
gudni@mbl.is
HUGVEKJA