Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert metnaðargjarn
og kannt að haga seglum
eftir vindi en þarft að gæta
þess að láta ekki kappið
leiða þig í ógöngur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að gæta þess að fá
næga hvíld því að öðrum kosti
verður minna úr afköstum
hjá þér og þreytan bitnar líka
á einkalífinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það þýðir ekkert að láta hug-
fallast þótt eitthvað bjáti á.
Erfiðleikarnir eru bara til að
yfirstíga þá. Hættu því öllu
voli og víli og gakktu ákveð-
inn til verks.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Öllu valdi fylgir mikil ábyrgð
og þá skiptir sköpum að menn
kunni að fara svo með vald
sitt að það skemmi hvorki þá
né aðra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur dregið dilk á eftir
sér að flýta sér um of því þá er
hætt við að þér yfirsjáist hlut-
ir sem þú myndir að öðrum
kosti taka með í reikninginn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu af öllum ótta um það
hvort og hvernig þú eigir að
tjá tilfinningar þínar. Farðu
eftir innsæi þínu og láttu aðra
alls ekki stjórna þér að þessu
leyti.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er sú staða uppi að þér er
betra að leita þér samstarfs-
manna en leysa málin upp á
eigin spýtur. Vertu fordóma-
laus og sanngjarn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú ertu kominn á lokasprett-
inn með verkefni sem þú hef-
ur lengi unnið. Mundu þegar
þar að kemur að þú hefur not-
ið dyggrar aðstoðar annarra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að verja meiri tíma
með fjölskyldu þinni. Þótt
starfið togi í þig máttu ekki
láta það gleypa þig því fjöl-
skyldan á að vera í fyrirrúmi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sýndu þá kurteisi að þakka
öðrum framlag þeirra til vel-
gengni þinnar. Smáviður-
kenning getur gert ótrúlega
mikið gott og tryggt þér að-
stoð síðar meir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Taktu það ekki nærri þér þótt
þú neyðist til þess að verja
deginum með erfiðri mann-
eskju. Hafðu bara þitt á
hreinu og reyndu að þrauka
daginn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu ekki vini þína velkjast í
vafa um afstöðu þína til
þeirra. Þótt þú hafir mikið að
gera skaltu gefa þér tíma til
þess að láta þá heyra í þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er nú oftast svo að besta
leiðin til að ná markmiðum
sínum er einfaldlega að
bretta upp ermarnar og
ganga rösklega til verks og
draga hvergi af sér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HRÚTUR
EINS og flest annað eru
sagnir háðar tískunni. Á
síðustu árum hafa veikar
hálitaopnair á tveimur tígl-
um og tveimur laufum ver-
ið mjög „móðins“. Þessi
opnun er stundum kölluð
„norskir tveir“, enda út-
breidd í Noregi. Alltaf þeg-
ar nýjar sagnvenjur koma
fram á sjónarsviðið tekur
nokkurn tíma að finna vörn
sem virkar, en þegar það
gerist detta þessar opnanir
gjarnan úr tísku og þykja
lummó. Nú er komið að
skuldadögum hjá norskum
tveimur!
Suður gefur; enginn á
hættu. Áttum snúið.
Norður
♠ Á875
♥ –
♦ ÁDG9
♣ ÁDG104
Vestur Austur
♠ KD64 ♠ 109
♥ G9762 ♥ ÁKD1084
♦ – ♦ 10742
♣9752 ♣8
Suður
♠ G32
♥ 53
♦ K8653
♣K63
Spilið er frá fimmtu um-
ferð Íslandsmótsins. Vest-
ur er upphafsmaður sagna
og er með dæmigerða opn-
un á norskum tveimur (og
reyndar íslenskum „fjöl-
djöfli“ líka, en inni í honum
eru fleiri gerðir spila). Þar
sem NS voru viðbúnir
gengu sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
2 lauf * 2 hjörtu 4 hjörtu 5 tíglar
Pass 5 hjörtu Pass 6 lauf
Pass 6 tíglar Allir pass
* Norskir tveir – 3-9
punktar og minnst 4-4 í
hálitunum.
Tveggja hjarta innákoma
norðurs sýndi opnunar-
styrk og a.m.k. níu spil í
láglitunum. Þannig komust
NS strax inn í sagnir og
suður gata meldað fimm
tígla yfir fjórum hjörtum.
Norður leyfði sér að gefa
alslemmuáskorun, en lét
hálfslemmuna svo duga,
þrátt fyrir viðleitni makk-
ers með sex laufum.
Slemman er firna góð, en
4-0-legan í trompi er eitruð
ef ekki kemur út hjarta (ein
hjartastunga í blindum er
nóg í tólf slagi). En auðvit-
að spilaði vestur út spaða-
kóng. Enginn samgangur
er til að trompa hjarta og
eina von sagnhafa er sú að
austur hafi byrjað með 109
tvíspil í spaða. Eftir að hafa
drepið á spaðaás, tekið tíg-
ulás og stunið þunglega tók
sagnhafi trompin af austri
og spilaði spaða. Og viti
menn – austur átti 109 í
spaða og áttan í borði varð
frí. Tólf slagir og 920.
Svo sem sjá má vinnast
fimm hjörtu í AV og það
var reyndar algengasti
samningurinn – smellido-
blaður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Ámorgun mánudaginn
9. apríl verður sjötugur Atli
Ágústsson, Engihjalla 3,
Kópavogi, deildarstjóri hjá
Vélamiðstöð Reykjavíkur-
borgar. Eiginkona hans er
Þóra Sigurjónsdóttir. Þau
hjónin eru að heiman á af-
mælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 8. apríl,
verður 75 ára Davíð Kr.
Jensson, byggingameistari,
Reykjavík. Hann og eigin-
kona hans, Jenný Haralds-
dóttir, eru stödd í Brussel á
heimili dóttur þeirra.
DEMANTSBRÚÐKAUP. Á morgun, mánudaginn 9. apríl,
eiga 60 ára hjúkskaparafmæli hjónin Elísabet S. Jónsdóttir
og Halldór M. Ólafsson frá Ísafirði, til heimilis að Flata-
hrauni 16a, Hafnarfirði.
LJÓÐABROT
ÉG BIÐ AÐ HEILSA
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum:
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.
Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssi þið, bárur! bát á fiskimiði,
blási þið, vindar! hlýtt á kinnum fríðum.
Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil, með húfu og rauðan skúf, í peysu:
Þröstur minn góður! Það er stúlkan mín!
Jónas Hallgrímsson
STAÐAN kom upp á Amb-
er-mótinu er lauk fyrir
skömmu í Mónakó. Peter
Leko (2745) hafði hvítt
gegn Anatoly Karpov
(2679), fyrrverandi heims-
meistara. 36. Bxe6+! Hxe6
37. Hf8+! og svartur gafst
upp enda fellur drottning-
in eða hann
verður mát
eftir
37...Dxf8
38. Da8+
eða
37...Kd7 38.
Dd8#.
Skákin var
furðuleg og
mætti ætla
að um
blindskák
hafi verið
að ræða en
svo var svo
ekki: 1. e4
c6 2. Rc3 d5
3. d3 e5 4.
Rf3 d4 5.
Re2 f6 6. g3 c5 7. Bg2 Rc6
8. O-O g5 9. c3 a5 10. cxd4
cxd4 11. Rd2 Be6 12. f4 a4
13. Rf3 h6 14. Bd2 Bd6 15.
b4 Db6 16. fxg5 fxg5 17.
Bxg5 hxg5 18. Rxg5 Rd8
19. Rxe6 Rxe6 20. h4 Hh6
21. a3 Ke7 22. Hf5 Dc6 23.
Dd2 De8 24. Haf1 Hc8 25.
Bh3 Hc7 26. Da2 Hd7 27.
Kh2 Kd8 28. Rg1 Kc8 29.
Rf3 Re7 30. Hxe5 Bxe5 31.
Rxe5 Rc6 32. Rxd7 Dxd7
33. b5 Re7 34. Dd2 Rg8 35.
Da5 Dd6.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ef þú borðar ekki
súkkulaðið þá færðu
enga gulrót.
Öðruvísi píanónám
Jazz Blús Sönglög Popp
Hefur þig dreymt um að geta spilað þín uppáhaldslög eftir
eyranu? Láttu nú drauminn rætast og leiktu af fingrum fram á
8 vikna píanónámskeiði hjá Ástvaldi Traustasyni píanóleikara.
Námskeiðið hefst 2. apríl og hentar fólki á öllum aldri, jafnt
byrjendum sem lengra komnum. Skráning í síma 896-9828.
Tónsmiðjan