Morgunblaðið - 21.04.2001, Side 8

Morgunblaðið - 21.04.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Er þetta ekki bara Hafnarfjarðarbrandari? Megum við ekki einu sinni súla okkur á ljósastaurum og flaggstöngum? Rit um litlu ísöld Borgarís í þoku ÚT ER komin bókinIceberg in theMist: Northern research in pursuit of a little ice age. Ritstjórar hennar eru Astrid E.J. Ogilvie og Trausti Jóns- son og Kluwer Academic Publishers gefa út. Trausti var spurður hvers konar rit þarna væri á ferðinni. „Þetta er heiðarleg til- raun til þess að skjóta hina svokölluðu litlu ísöld niður, þótt það takist reyndar ekki.“ – Með hvaða rökum reynið þið að „skjóta nið- ur“ litlu ísöldina? „Málið er eiginlega þannig að menn sjá litlu ísöldina allir en ef þeir ætla að ná tökum á henni í smáat- riðum þá rennur hún dálítið á milli fingra manns, ef svo má segja. Þannig er tilkominn titill- inn á bókinni. Íslenski titillinn er: Borgarísjaki í þoku. Norrænar rannsóknir leita að lítilli ísöld. Þokan vísar til þess að það vita allir af þessum borgarísjaka en hann fer sem sagt undan í flæm- ingi.“ – Hvað merkir hugtakið „litla ísöld“? „Menn hafa haft tvær megin- skilgreiningar á hugtakinu. Ann- ars vegar er það tímabil aukn- ingar á jöklum eða framgangi jökla á síðmiðöldum og síðar og þá sérstaklega framgangi jökla á tímabilinu 1600 til 1900 og hins vegar er þetta hugtak notað yfir tímabil sem virðist hafa verið ívið kaldara heldur en tíminn fyrir og eftir það.“ – Hvora skilgreininguna að- hyllist þú? „Ég aðhyllist hvoruga í raun. Það er hins vegar ekki deilt um hina fyrri enda er hún hin æski- lega en það er ekki sú skilgrein- ing sem almennt er notuð – því miður. Tilhneigingin hefur verið sú að tengja allar veðurfarsbreyt- ingar sem orðið hafa síðustu þús- und árin við litlu ísöldina, hún er farin að verða „sjálfstaðfestandi“, eins og það er stundum kallað. Það er sama hvað menn finna, það er alltaf tengt litlu ísöldinni.“ – Um hvað ræðið þið í þessu riti? „Þar er fjallað aðeins um hug- myndir um litlu ísöldina og þá sérstaklega hér við norðanvert Atlantshaf. Fjallað er um sögu umræðna um veðurfarsbreyting- ar, bæði hér á landi og á Norð- urlöndum. Þá eru í ritinu nokkrar greinar sem ýmsir hafa samið. Þar er grein um upphaf litlu ís- aldar við norðanvert Atlantshaf á 13. og 14. öld, fjallað er um túlkun á setkjarna sem tekinn var út á Faxaflóa fyrir nokkrum árum, það er fjallað um litlu ísöldina í borkjörnum á Grænlandsjökli. Þá er grein þar sem spurt er hvort breytingar hafi orðið á skordýra- lífi á litlu ísöld og önnur þar sem er spurt hvort hægt sé að nota skófir til að meta útbreiðslu jökla. Svarið við því er frem- ur neitandi. Síðan er fjallað um upphaf veð- urathugana á Íslandi með mælitækjum. Rit- að er um samband hitafars og uppskeru kornteg- unda í Noregi og á Eistlandi. Einnig er grein um hungur á Ís- landi, sem ekki er talið að hafi verið viðloðandi, heldur hafi fólk fremur látist úr vosbúð og pest- um á 18. og 19. öld. Loks er grein um samband hita í Evrópu og al- mennrar hringrásar lofthjúpsins við norðanvert Atlantshaf síðustu 200 árin.“ – Hafa farið fram miklar rann- sóknir á litlu ísöldinni? „Já, mjög miklar rannsóknir, mest erlendis en einnig hér á landi. Mjög mikið er af heimilda- tilvísunum í bókinni þar sem menn geta rakið sig áfram til hinna ýmsu rannsókna. Reyndar má segja að sú skoðun sem ég sjálfur og Astrid fylgjum sé sú sem kom fram í upphaflegri skil- greiningu á litlu ísöld og er yfir 60 ára gömul, hún er þannig að litla ísöld hafi í raun hafist fyrir 4.000 árum, þegar jöklar fóru aft- ur að ganga fram á norðurhveli eftir mikið hlýindaskeið sem var áður.“ – Hverjum er þetta rit einkum ætlað? „Það er ætlað einkum þeim sérfræðingum sem fjalla um litlu ísöld og veðurfarsbreytingar al- mennt og sumum áhugamönnum um hnattrænar umhverfisbreyt- ingar.“ – Er Kluwe-forlagið mikil- virkt? „Já, mjög svo, ég hef ekki tölu á öllum þeim vísindatímaritum og bókum sem það hefur gefið út og er sífellt að gefa út.“ – Er mikið um veðurfarsrann- sóknir af þessu tagi hér á landi? „Það eru vaxandi rannsóknir af þessu tagi hér. Í bókinni eru fjór- ir íslenskir höfundar sem koma við sögu, Jórunn Harðardóttir jarðfræðingur sem ásamt Ingi- björgu Jónsdóttur landfræðingi og fleir- um ritar um rannsókn- ir á setkjarna úr Faxa- flóa og svo skrifa ég og Hilmar Garðarsson sagnfræðingur grein um íslenskar veðurat- huganir á Íslandi fyrir 1870. Við Astrid E.J. Ogilvie skrifum svo saman greinina um litlu ísaldarrannsóknirnar frá ís- lenskum sjónarhóli. Þess má geta að ritið er tileinkað þremur nor- rænum veðurfarsvísindamönn- um, Knud Frydendahl, Erik Wishman og Páli Bergþórssyni.“ Trausti Jónsson  Trausti Jónsson fæddist í Borgarnesi 5. júní 1951. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1970 og embættisprófi í veðurfræði frá háskólanum í Bergen 1978. Hann hefur starfað á Veðurstofu Ís- lands frá námslokum, fyrst við veðurspár en síðan við úrvinnslu og rannsóknir. Hann hefur lengi verið viðloðandi veðurspár í Sjónvarpinu. Trausti hefur lengi sinnt félagsmálum af ýmsu tagi fyrir Félag íslenskra nátt- úrufræðinga. Við Astrid teljum að litla ísöld hafi í raun hafist fyrir 4.000 árum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.