Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝSKIPAÐUR starfshópur land- búnaðarráðherra sem fjalla á um framleiðslu- og markaðsmál gróð- urhúsaafurða og garðávaxta kom saman til síns fyrsta fundar á mið- vikudaginn var. Guðmundur Sigþórsson, skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu, formaður starfshópsins, sagði að á fundinum hefði verið farið yfir verklag og vinnubrögð. Ákveðið hefði verið að ræða við Samkeppn- isstofnun og hitta ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnað- arafurða, en hún hefði verið ráð- gefandi um beitingu heimilda til lækkunar á tollum frá því sem kveðið væri á um í lögum. Ráð- gjafanefndin er skipuð fulltrúum fjármála-, viðskipta- og landbún- aðarráðuneyta. Guðmundur sagði aðspurður að í erindisbréfi vegna skipunar starfs- hópsins væru ekki sett ákveðin tímamörk, en óskað væri eftir því að starfinu yrði hraðað eins og unnt væri og það yrði að sjálf- sögðu gert. Á þessu stigi væri ekk- ert hægt að segja um það hvenær starfshópurinn gæti skilað af sér. Það væri til dæmis háð því hvaða upplýsingar væru fyrirliggjandi hjá Samkeppnisstofnun og annars staðar og hvað þyrfti að frum- vinna. Í starfshópnum eiga sæti, auk Guðmundar Sigþórssonar, Ari Ed- wald, framkvæmdastjóri, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins. Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS, fulltrúi Bandalags starfsm. ríkis og bæja. Kjartan Ólafsson, garð- yrkjubóndi, fulltrúi Bændasam- taka Íslands. Kristján Bragason, framkvæmdastjóri, fulltrúi Al- þýðusambands Íslands. Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri, fulltrúi Bændasamtaka Íslands. Ólafur Friðriksson, deildarstjóri, fulltrúi landbúnaðarráðuneytisins. SVÞ vill í nefndina SVÞ, Samtök verslunar og þjón- ustu, hafa sent frá sér yfirlýsingu, þar sem því er mótmælt að land- búnaðarráðuneytið hafi gengið fram hjá starfsgreinasamtökum verslunarinnar við skipan nefnd- arinnar. „SVÞ eru landssamtök verslunar og þjónustu í landinu og gæta m.a. hagsmuna allrar mat- vöruverslunar í landinu, stórra og smárra, auk vöruflutningafyrir- tæja o.fl. Sjónarmið smásöluversl- unarinnar og þekking sem er inn- an SVÞ þarf að komast að í því starfi sem umrædd nefnd á að vinna til þess að segja megi með sanni að fjallað sé um alla þætti málsins. Það er ekki ásættanlegt að þegar fjalla á um verðmyndun grænmetis skuli verslunin víðs fjarri,“ segir í ályktuninni. Aðspurður um mótmæli Sam- taka verslunar og þjónustu við því að eiga ekki fulltrúa í starfshópn- um benti Guðmundur á að Ari Ed- wald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, væri skipaður í starfshópinn, og SVÞ tilheyrðu Samtökum atvinnulífsins. Grænmetisnefndin fundar á þriðjudag Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá fyrsta fundi starfshópsins á miðvikudaginn var. SAMRÆMD próf 10. bekkjar hefjast á mánudaginn, en prófað verður í ís- lensku, dönsku, ensku og stærðfræði og lýkur prófunum á fimmtudaginn. Að sögn Finnboga Gunnarssonar, deildarsérfræðings hjá Rannsóknar- stofnun uppeldis- og menntamála, munu tæplega 3.900 nemendur þreyta prófin að þessu sinni. Ný reglugerð um samræmd próf í 10. bekk tók gildi á þessu skólaári. Finnbogi sagði að samkvæmt reglu- gerðinni gætu nemendur valið um það hvort eða hversu mörg samræmd próf þeir tækju. Hann sagði að þrátt fyrir þetta valfrelsi nemenda væri þátttakan svipuð í samræmdu próf- unum nú og síðustu ár. Nemendur hafa valfrelsi Valfrelsi nemenda fylgir ákveðin ábyrgð. Inntökuskilyrði í framhalds- skóla gera ákveðnar kröfur um frammistöðu nemenda á samræmd- um prófum. Reglugerðin leggur því í reynd þá ábyrgð á herðar nemenda að ákveða að taka þau samræmdu próf sem krafist er sem inntökuskil- yrði á þær brautir framhaldsskóla sem hugur þeirra stendur til. Samkvæmt reglugerðinni á að fjölga samræmdum prófum úr fjórum í sex á næsta skólaári. Finnbogi sagði að prófi í náttúrufræði yrði bætt við og einnig stæði til að bæta við prófi í samfélagsfræði. Finnbogi sagði að þegar nemendur stæðu frammi fyrir því að þurfa að taka sex próf mætti búast við því að einhverjir myndu ekki taka þau öll. Hann sagði að með samþykki foreldra og skóla væri nemendum í 9. bekk heimilt að taka samræmd próf í þeim fögum sem þeir kysu. Þannig gætu nemendur auðveldað sér 10. bekkinn með því að ljúka ákveðnum prófum einu ári fyrr. Samræmd próf með nýju sniði hefjast á mánudaginn Um 3.900 nemendur þreyta prófin VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- arráðherra hefur skipað fjögurra manna verkefnastjórn til að vinna að mótun nýrrar byggðaáætlunar og þrjá starfshópa til að fjalla um til- tekin viðfangsefni. Páll Skúlason há- skólarektor er formaður verkefna- stjórnarinnar, hún mun skila tillögum til ráðherra um stefnu- mörkun nýrrar byggðaáætlunar hinn 15. nóvember, en áætlunin sjálf á að taka gildi hinn 1. janúar á næsta ári. Páll Magnússon, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, sagði að sam- kvæmt lögum um Byggðastofnun frá 1999 ætti iðnaðarráðherra að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktun- ar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir fjögurra ára tímabil. Hann sagði að áætlunin ætti að lýsa mark- miðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu, áætlun um aðgerðir og tengsl byggðastefnu við almenna stefnu í efnahags- og atvinnumálum. Með stefnumörkuninni á að fylgja tillaga um framkvæmd áætlunarinn- ar, þar sem fram á að koma hver ber ábyrgð á framkvæmd einstakra verkefna, tímasetning og áætlunar- kostnaður. Fyrsti fundur verkefnastjórnar- innar var haldinn á miðvikudaginn en í stjórninni eiga sæti, auk Páls Skúlasonar, þau Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri í Grundarfirði, Finn- bogi Jónsson, stjórnarformaður Samherja, og Sigfús Jónsson, ráð- gjafi hjá Nýsi. Unnið í samráði við Byggðastofnun Eins og áður gat um munu þrír starfshópar starfa að ákveðnum verkefnum og verða fjórir til sex í hverjum hópi. Ingi Björnsson, úti- bússtjóri Íslandsbanka á Akureyri, mun veita hópi um atvinnumál for- stöðu. Elísabet Benediktsdóttir, sem er að taka við framkvæmdastjóra- stöðu þróunarstofu Austurlands, verður formaður hóps um alþjóða- samvinnu og Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá GoPro-Land- steinum, verður formaður hóps um fjarskipta- og upplýsingatækni. Páll Magnússon sagði að Byggða- stofnun myndi fá tækifæri til að til- nefna menn í hvern starfshóp fyrir sig og verkefnið í heild yrði unnið í nánu samstarfi við stofnunina. Iðnaðarráðherra skipar verkefna- stjórn um mótun byggðaáætlunar Ný byggðastefna tekur gildi um áramótin FÉLAGAR í Starfsmannafélagi ríkisstofnana, SFR, samþykktu kjarasamning við fjármálaráð- herra með 70% greiddra atkvæða. Á kjörskrá voru 4.878 félags- menn og greiddu 2.484 eða 51% félagsmanna atkvæði. Þar af sögðu 70% já og 28% nei, auð og ógild at- kvæði voru 2%. Samkvæmt frétta- tilkynningu frá félaginu standa vonir til að greiðslur samkvæmt nýsamþykktum samningi komi til framkvæmda um næstu mánaða- mót. Gildistími kjarasamningsins er frá 1. mars sl. til 30. nóvember 2004. Í upphafi samningstímans hækkar launataflan um 6,9% og 3% 1. janúar 2002, 2003 og 2004. Þá felur samningurinn í sér tvær 10.000 kr. eingreiðslur, þá fyrri 1. maí og seinni 1. júní. Nefnd metur launaþróun Sérstök nefnd hefur verið skip- uð til að fylgjast með hvort launa- kerfið skili eðlilegri framþróun launa og skulu nefndarmenn leggja sameiginlegt mat á þró- unina og gera tillögur um við- brögð. Með kjarasamningnum er aukin áhersla lögð á starfsmenntunarmál og framlag í Þróunar- og símennt- unarsjóð hækkað úr 0,28 í 0,35% af heildarlaunum. Samningurinn fel- ur í sér hækkanir á vaktaálagi um nætur og helgar en einnig verður starfsmönnum heimilt að safna allt að fimm frídögum á ári þar sem yfirvinna kemur á móti fríi. Auk þessa hefur verið samið um fram- lag í styrktar- og sjúkrasjóð SFR og 2% framlag atvinnurekenda til séreignarsparnaðar. Starfsmannafélag ríkisstofnana Kjara- samning- ar sam- þykktir HALLDÓR Blöndal, forseti Al- þingis, opnaði á miðvikudag vef- síðu Jónshúss í Kaupmannahöfn og þar með einnig menning- ardaga sem félögin í húsinu standa að og standa fram í miðj- an maí. Boðið verður upp á ýmsa menningarviðburði, einkum tón- list, á dögunum, sem fara að mestu fram í Jónshúsi en þeir eru haldnir í tilefni þrjátíu ára félagsstarfsemi þar. Alþingi á og rekur húsið og starfsemina, sem hófst með starfi eldri borgara í hópi Íslend- inga í Kaupmannahöfn. Hún hef- ur vaxið með árunum og breyst en árið 1996 var veitingasölu í húsinu hætt. Starfseminni var breytt og ráðinn umsjón- armaður, í fyrstu var það Kristín Bonde en frá árinu 1999 hefur Jón Runólfsson sinnt því starfi. Halldór Blöndal minntist Jóns Sigurðssonar við opnun vefsíð- unnar. „Á meðan í okkur er róm- antísk taug standa ekki aðrir menn okkur nær, sem eru okkur óskyldir,“ sagði hann um sjálf- stæðisbaráttu Jóns. Halldór hef- ur sýnt starfi Jónshúss mikinn áhuga eftir að hann tók við sem forseti Alþingis. Hann tók við gjöf úr hendi Kristínar Bonde fyrir hönd hússins, eintaki af Nýjum félagsritum frá 1846, með eiginhandaráritun Jóns, til varðveislu í safninu. Fjölbreytt menningardagskrá Menningardagarnir, sem félög Íslendinga í Jónshúsi standa að, hófust í raun á sumardaginn fyrsta, á tónleikum Graduale- kórs Langholtskirkju í Skt. Pauls kirkju í Kaupmannahöfn, og bókmenntakvöldi. Menning- ardagarnir hefjast svo af fullum krafti 4. maí með tónleikum söngvaranna Hörpu Harð- ardóttur og Smára Vífilssonar. Í kjölfarið fylgja Megasartón- leikar en hann hefur ekki haldið tónleika í Kaupmannahöfn frá 1995, tónleikar Bubba Morthens og hljómsveitarinnar Drep, kynnisferð Guðlaugs Arasonar, djasskvöld þar sem Haukur Gröndal leikur og tónleikar trú- badúrsins Halla Reynis, auk þess sem boðið verður upp á íslensk- an mat og sýnd kvikmyndin Stikkfrí. Menningardög- unumlýkur 19. maí. Starf Jónshúss og menning- ardagarnir eru kynntir á vefsíðu hússins, www.jonshus.dk. Þrjátíu ára félags- starf í Jónshúsi Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Morgunblaðið/UG Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tekur við gjöf Kristínar Bonde til Jónshúss; eintaki af Nýjum félagsritum frá árinu 1846.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.