Morgunblaðið - 21.04.2001, Page 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 25
MMC Pajero Turbo Int.
Nýskr. 5.1998, 2500cc diesel vél,
3 dyra, 5 gíra, rauður,
ekinn 55 þús. ABS,
32“ dekk,
viðarinnrétting
o.m.fl.
Verð 1.890 þ.
MÖGULEGT er að ljúka samn-
ingum um aðild Eistlands að Evr-
ópusambandinu (ESB) fyrir lok
ársins 2002. Þetta fullyrti Günter
Verheugen, sem fer með stækk-
unarmál ESB í framkvæmdastjórn
þess, á blaðamannafundi í Tallinn í
gær, við lok þriggja daga vinnu-
heimsóknar sinnar til landsins.
Um þessar mundir hefur and-
staða meðal eistnesks almennings
gegn ESB-aðild farið vaxandi en
eistnesk stjórnvöld hafa aftur á
móti lagt mikla áherzlu á að fá
inngöngu í sambandið sem fyrst.
Með tilliti til þessarar þróunar al-
menningsálitsins í Eistlandi sagði
Verheugen að möguleikar landsins
á efnahagsframförum væru stór-
lega minni ef það veldi að standa
utan ESB.
Ver tillögur um
aðlögunarfrest
Varði Verheugen enn fremur þá
tillögu framkvæmdastjórnarinnar
að í væntanlegum aðildarsamning-
um við Mið- og Austur-Evrópurík-
in tíu, sem bíða inngöngu í ESB,
verði samið um allt að sjö ára að-
lögunarfrest á gildistöku ákvæða
um frjálsa för vinnuafls innan alls
EES-svæðisins.
Ráðamenn sumra umsóknarríkj-
anna hafa sagt þetta myndu gera
borgara nýju aðildarríkjanna, þeg-
ar þau hafa fengið inngöngu, að
„annars flokks ESB-borgurum“.
Vísaði Verheugen þessari gagn-
rýni á bug; engar forsendur væru
fyrir slíkum ályktunum.
Samkvæmt gildandi reglum geta
allir borgarar EES-aðildarríkis
flutt hvert sem er innan EES-
svæðisins og leitað sér að vinnu í
öðru landi innan svæðisins. En
framkvæmdastjórn ESB lagði til
fyrir skemmstu að borgarar hinna
væntanlegu nýju aðildarríkja fái
ekki að njóta þessa réttar fyrr en
fimm árum eftir inngöngu heima-
lands þeirra, með möguleika á
tveggja ára framlengingu.
Tók Verheugen fram, að einstök
aðildarríki geti gert tvíhliða sam-
komulag um að láta þennan aðlög-
unarfrest falla niður.
Verheugen á blaðamannafundi í Tallinn í Eistlandi
Aðildarsamningum
lokið fyrir 2003
Tallinn. AP.
HUGSANLEGT er, að kúariðan
hafi borist til Bretlands með sjúkum
antilópum. Er það skoðun nýsjá-
lensks vísindamanns og
hann segist óttast, að
sjúkdómurinn geti kom-
ið upp í öðrum löndum
þrátt fyrir þær ráðstaf-
anir, sem víða hefur ver-
ið gripið til.
Roger Morris, pró-
fessor í dýralækningum
við Massey-háskólann í
Palmerston North á
Nýja-Sjálandi, segir, að
sjúku antilópurnar hafi
verið fluttar til Bret-
lands um miðjan áttunda
áratuginn og komið fyrir
í svokölluðum safari-
garði í Suðvestur-Eng-
landi. Skrokkar þeirra
hafi síðar verið malaðir í
kjötmjöl, sem gefið var nautgripum,
og skrokkar nautgripanna síðan
malaðir í sama skyni.
Sömu kúariðueinkennin
Morris segir, að vitað hafi verið,
að antilópurnar þjáðust af einhverj-
um sjúkdómi og hefði hann lýst sér
með sama hætti og kúariðan. Þar
væri að finna upptök faraldursins
en ekki í mjöli úr riðusjúku sauðfé
eða í erfðafræðilegum stökkbreyt-
ingum.
Fyrstu tilfelli kúariðunnar í Bret-
landi komu fram á
níunda áratugnum
en á þeim síðasta var
gífurlegum fjölda
nautgripa slátrað til
að útrýma sjúk-
dómnum. Þá er vitað
til, að 90 manns í
Bretlandi og tveir í
Frakklandi hafa lát-
ist úr nýju afbrigði
af Creutzfeldt-Jak-
ob-sjúkdómnum en
það er rakið til kúa-
riðunnar.
Villt dýr flutt
landa á milli
Morris segir, að
hætta sé á, að kúa-
riða geti fyrirvaralaust skotið upp
kollinum í öðrum löndum vegna
þess, að mikið sé um, að villt dýr séu
flutt landa á milli. Bendir hann á, að
ljón, sem éti antilópur, geti fengið
riðuafbrigði og raunar sannaðist
það á ljóni, sem drapst í Newquay-
dýragarðinum í Suðvestur-Eng-
landi fyrr á þessu ári. Það reyndist
riðusjúkt og er talið hafa sýkst af
úrgangi úr riðuveikum nautgripum.
Voru upptök
kúariðunnar
í sjúkum
antilópum?
London. Reuters.
Afrísk skógar-
antilópa.
ALBANSKA lögreglan hefur að
undanförnu rutt um koll og
sprengt upp fjölda bygginga, sem
byggðar hafa verið án leyfis í
höfuðborginni, Tirana, og víðar í
landinu. Oftast er um einhvers
konar verslunarhúsnæði að ræða
eins og til dæmis þetta hús, sem
búið var reisa í helsta skemmti-
garði eða útivistarsvæði höf-
uðborgarinnar.
Reuters
Ólögleg
hús
sprengd