Morgunblaðið - 21.04.2001, Page 30

Morgunblaðið - 21.04.2001, Page 30
ELDRI feður eru mun líklegri en yngri feður til að eignast börn með geðklofa, að því er niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til. Eru geðsjúkdómar þá einnig komnir á listann yfir sjúkdóma er taldir eru tengjast hærri aldri föður. Fyrri rannsóknir hafa bent til að börn eldri feðra eigi á hættu að fá tilteknar gerðir krabbameins og hafa fæðingargalla, en þetta er fyrsta rannsóknin sem sýnir fram á tengsl við geðsjúkdóm, að sögn dr. Dolores Malaspina, við Col- umbia-háskóla og Ríkisgeðsjúkra- húsið í New York. Í rannsókninni voru menn sem eignuðust börn þegar þeir voru á aldrinum 45 til 49 ára tvisvar sinnum líklegri en menn sem voru yngri en 25 ára til að eignast börn með geðklofa. Menn eldri en fimmtugt voru þre- falt líklegri. Rannsökuð voru gögn yfir 87.907 manns. Birtast nið- urstöðurnar í aprílhefti Archives of General Psychiatry. „Ég held að rannsóknin sé einungis topp- urinn á ísjakanum,“ sagði dr. Sus- an Harlap, sem tók þátt í gerð rannsóknarinnar. „Það virðist vera að koma í ljós að sæði föð- urins skiptir alveg jafn miklu máli og egg móðurinnar.“ Eftir því sem menn eldast halda sæðisfrumur þeirra áfram að fjölga sér með skiptingu. Í hvert sinn sem það gerist er lítilsháttar hætta á erfða- galla. Um það leyti sem maður verður tvítugur hafa sæðisfrumur hans skipt sér um 200 sinnum, og um fertugt hafa þær skipt sér um 660 sinnum. Um það bil eitt prósent mann- kyns er haldið geðklofa. Talið er að orsakir sjúkdómsins séu sam- spil erfðaþátta og umhverfisþátta. Aldur föður tengdur líkum á geðklofa Associated Press Aldur foreldra skiptir máli á fleiri sviðum en talið hefur verið. Chicago. AP. TENGLAR ..................................................... Archives of General Psychiatry: pubs.ama-assn.org Bandaríska geðheilbrigðisstofnunin: www.nimh.gov 30 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Spurning: Það virðist sem krabbamein hafi aukist mikið, er það ekki rétt? Er rannsakað af hverju fólk fær krabbamein – vitað er að reykingar valda lungnakrabba, en hvað með öll hin tilfellin? Mig undrar að í flestum snyrtivörum eins og and- lits- og húðkremum eru krabba- meinsvaldandi leysiefni eins og ísopropyl- og propylalkohól. Eiga þessi efni ekki ansi greiðan að- gang inn í líkamann og væri ekki rétt að banna þau í þess konar vörum? Svar: Jú, það er rétt að krabba- meinstilfellum hefur farið fjölg- andi undanfarna áratugi og kem- ur þar margt til. Á Norðurlöndum hefur verið reikn- að út að búast megi við 37% fjölgun nýrra krabbameinstilfella og 32% aukningu í dánartíðni af völdum krabbameins fram til ársins 2010. Hér er átt við allar tegundir krabbameins samanlagt en sumum tegundum fjölgar mikið en aðrar minna, aðrar standa í stað eða hefur farið fækkandi undanfarna áratugi. Ef litið er til áranna 1960 til 2000 varð mest fjölgun hér á landi á krabbameini í blöðruháls- kirtli, lungum, húð, eitlum og þvagblöðru hjá karlmönnum en í brjóstum, lungum, húð og eitlum hjá konum. Á sama tíma varð all- nokkur fækkun á tilfellum með magakrabbamein hjá báðum kynjum og leghálskrabbamein hjá konum en ýmsar aðrar krabbameinstegundir stóðu nokkurn veginn í stað og má þar nefna heilaæxli og skjaldkirtils- krabbamein sem dæmi. Heildarfjölgun krabbameins- tilfella stafar að talsverðu leyti af hækkandi meðalaldri þjóð- arinnar vegna þess að líkurnar á að fá krabbamein aukast með hækkandi aldri. Þessi hækkandi meðalaldur skýrir þó ekki nema sumt, hann skýrir ekki hvers vegna sumum krabbameinum fækkar og hann dugir ekki til að skýra fjölgun krabbameinstilfella í brjóstum og blöðruhálskirtli. Við vitum að bæði erfðir og um- hverfisþættir eins og reykingar hafa veruleg áhrif og þó að margt sé þekkt er í mörgum til- fellum einfaldlega ekki vitað af hverju breytingarnar stafa. Ýmislegt er verið að gera til að vinna gegn þessari þróun þannig að spáin fram til 2010 sem nefnd var í upphafi kemur vonandi ekki til með að standast. Mikilvægasti þátturinn í öllu for- varnastarfi er aukin fræðsla; það þarf að fræða almenning um mikilvægi hollra lifnaðarhátta eins og hollrar fæðu, hæfilegrar líkamsþjálfunar og þátttöku í reglulegri krabbameinsleit og einnig um skaðsemi reykinga, óhóflegrar útfjólublárrar geisl- unar (sól og ljósabekkir) og of- neyslu áfengis. Sumar veirusýkingar (lifr- arbólga, alnæmi og fleira) auka hættu á krabbameini og nú þeg- ar er farið að bólusetja fyrir sumum þessara sjúkdóma og slíkum bólusetningum mun fara fjölgandi á komandi árum. Einn- ig þarf stöðugt að viðhalda reglum (lög og reglugerðir) sem banna eða takmarka notkun krabbameinsvaldandi efna í um- hverfi okkar (í lofti, vatni og fæðu) og sjá til þess að farið sé eftir þeim. Eins og áður var nefnt verður krabbamein til vegna samspils erfða og umhverfisþátta. Miklar vonir eru bundnar við rannsóknir í erfðatækni sem geta í vaxandi mæli hjálpað okkur að finna þá sem eru í hættu að fá krabba- mein, þannig að þeir geti forðast vissa umhverfisþætti og gengist undir reglulegt eftirlit þannig að greina megi sjúkdóminn á byrj- unarstigi ef hann kemur upp. Einnig er rétt að geta þess að mjög miklar framfarir hafa orðið í krabbameinslækningum á und- anförnum árum og allt bendir til að sú framþróun haldi áfram með auknum hraða. Að lokum skal tekið fram að alkohólin sem bréfritari nefnir eru ekki talin krabbameinsvaldar og ekki er þörf á að banna notk- un þeirra í snyrtivörum. Fer krabbameinstilfellum fjölgandi? MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Erfðir og umhverfi  Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn- inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir- spurnir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot- mail.com. Læknisfræði Krabbameinstilfellum fer fjölgandi Lyf Nýjar upplýsingar um virkni aspríns Börn Misvísandi upplýsingar um gosið Lýðheilsa Boð og bönn duga skammtHEILSA FÓLK sem er að reyna að lækka í sér blóðþrýstinginn ætti ef til vill að athuga hversu mikil meng- un er í loftinu sem það andar að sér, auk þess að hafa auga með því hversu mikið salt það borðar, að því er þýskir vísindamenn segja. Við rannsókn á 2.600 fullorðn- um kom í ljós að blóðþrýstingur hækkaði eftir því sem loftmengun var meiri. Mengun kann að valda breytingum í þeim hluta tauga- kerfisins sem stjórnar blóðþrýst- ingi sem myndi enn fremur þýða að hún auki hættuna á hjarta- áfalli og öðrum hjarta- og æða- kvillum, að sögn Angelu Ibald- Mulli og samstarfsfólks hennar við GSF-umhverfis- og heilsu- verndarmiðstöðina í Neuherberg í Þýskalandi. Eru niðurstöðurnar birtar í aprílhefti American Journal of Public Health. Mældur var blóðþrýstingur í fólki á aldrinum 25 – 64 ára í tengslum við magn loftmengunar í Suður-Þýskalandi á tveim tíma- bilum, 1984-85 og 1987-88. Einnig voru nokkur sýni tekin í janúar 1985 þegar loftmengun í Mið- Evrópu var sérstaklega mikil og leiddi til mikillar fjölgunar sjúkrahússinnlagna vegna hjarta- kvilla. Ibald-Mulli segir að loftmeng- un geti haft áhrif á hitastig, loft- þrýsting og rakastig, sem geti haft áhrif á blóðþrýsting. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður nýlegrar rannsóknar er gerð var í 20 stærstu borgum Bandaríkjanna, þar sem fundust tengsl á milli dauðsfalla og meng- unar frá bílum og iðnaði. Annar hópur vísindamanna hefur áætlað að loftmengun kunni að vera ástæða um fimm af hundraði sjúkrahússinnlagna vegna hjartasjúkdóma. Ekki er fyllilega ljóst hvernig mengun hefur eitrunaráhrif í fólki en sér- fræðingar telja að mengandi efni valdi bólgum í lungum eða valdi því að í líkamanum myndist efni sem hafi áhrif á starfsemi hjart- ans. Enn er óljóst hvernig ná- kvæmlega mengun getur valdið hækkun blóðþrýstings. Tengsl loftmengunar og blóðþrýstings New York. Reuters. Associated Press Í vinnunni í Mexikó-borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.