Morgunblaðið - 21.04.2001, Page 40

Morgunblaðið - 21.04.2001, Page 40
UMRÆÐAN 40 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÍÐUSTU þrjú árin í barnaskóla eða allt frá 8. bekk hafa unglingar sem nú eru að ljúka 10. bekk verið hræddir með nokkru sem maður hefði haldið að aðeins lítil börn myndu hræð- ast, sjálfri Grýlu. En hún Grýla er sko ekki dauð, nei hún er sprell- lifandi og birtist sem holdgervingur sam- ræmdu prófanna og hún kemur og étur öll óþekku börnin sem læra ekki heima. Ung- lingarnir fá þau skila- boð að ef þeir læra ekki falli þeir og eigi sér ekki viðreisnar von framar. En ef þeir komast í gegnum prófin þá séu þeim allir veg- ir færir! Því miður nota kennarar þessi próf óspart sem agatæki svo í augum unglinga er fátt jafnhræði- legt og samræmdu prófin. Spennufallið eftir að hafa lokið þessu ferli er því mikið eins og gefur að skilja og unglingar hafa miklar og stórar hugmyndir um það hvernig má fagna og hvernig á að fagna! ,,Nú er Grýla dauð og við því orðin full- orðin og getum skemmt okkur eins og fullorðnir, ekki satt? Síðustu ár hafa unglingar sem betur fer í aukn- um mæli áttað sig á því að þessi til- finningaþrungni dagur er ekki rétti tíminn í slíka tilraunastarfsemi. Deginum er betur varið í eitthvað annað. En hvað er skemmtilegt að gera þegar maður kemur uppgefinn en samt fullur spennu út úr síðasta prófinu? Skapast hefur sú hefð í mörgum skólum að nemendur fari í ferðalag með kennurum sínum, starfsmönnum félagsmiðstöðvarinn- ar í hverfinu og í sumum tilfellum foreldrum strax að loknum sam- ræmdum prófum. Í flestum skólum er um að ræða samstarfsverkefni foreldrafélags, skóla, félagsmið- stöðvar og unglinganna sjálfra. Ferðirnar eru til þess gerðar að ung- lingarnir geti skemmt sér saman og fengið útrás eftir lesturinn með úti- vist og fjölbreyttri dagskrá. Það eru þó ekki allir sem komast í slíkar ferð- ir og þá kemur til kasta foreldranna að hlúa að börnum sínum þennan dag, skilja að þörfin fyrir útrás er mikil og sjá til þess að þessi dagur geti orðið besti dagur ársins fyrir alla. Foreldrar vinna mikið í íslensku samfélagi. Tímaskorturinn getur af sér minni samskipti foreldra og barna. Samskiptaleysið getur af sér fáfræði barnanna um hættur heims- ins. Það er mikilvægt fyrir foreldra að hlusta á börn sín, trúa þeim og geta sett sig í þeirra spor. Varast þarf ofverndun ekki síður en hunds- un, setja skýrar reglur og hafa hug- rekki til að standa við þær. Getum við ekki staldrað aðeins við og látið okkur líða vel saman? Er ekki kom- inn tími til að taka sér frí í vinnunni og skella sér í skemmtiferð eða gera sér glaðan dag með barni sínu sem er án efa í ,,þokkalegu“ áfalli að vera loksins laust við ,,Grýluna“. Guðrún Arna Gylfadóttir Höfundar eru verkefnisstjórar hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Próf Það er mikilvægt fyrir foreldra, segja Guðrún Arna Gylfadóttir og Sigrún Sveinbjörns- dóttir, að hlusta á börn sín, trúa þeim og geta sett sig í þeirra spor. ÉG SKRIFAÐI á dögunum greinarkorn í Mbl. til þess að lýsa andúð, og þó kannski fremur tortryggni, gagnvart því ráðslagi meirihluta bæjar- stjórnar Hafnarfjarð- ar að bjóða út kennsluþátt í almenn- um grunnskóla. Þar vitnaði ég í grein eftir Þröst Harðarson og lét orð falla í þá átt að mér virtist Þröstur bæði vilja brjóta niður kjarasamning kennara og breyta grunnskól- anum sumarlangt í dagvist barna. Í grein Þrastar, sem ég vitnaði til, las ég eftirfarandi: „Hefur BSRB kannað hvaða aðstæður hafa skapast, t.d. fyrir einstæða for- eldra, þegar kennsla liggur niðri í þrjá mánuði á ári? ... Af hverju í ósköpunum hefur BSRB sem hags- munasamtökum launafólks aldrei dottið í hug að benda á þann mikla kostnaðarauka sem fjölskyldur verða fyrir vegna þessa langa hlés? Almennir launþegar fá að jafnaði 24 daga í sumarfrí á ári og samanlagt ná hjón ekki þremur mánuðum þótt þau fari aldrei saman í frí.“ Í til- vitnuðum orðum fékk ég ekki betur séð en að Þröstur væri þess fremur hvetjandi að nemendur væru í dag- vistun í þrjá mánuði yfir sumarið. Ég lét þess að vísu getið að mér þætti grein Þrastar fremur torskil- in og er það líklega síst ofmælt því í grein í Mbl. 6. apríl segir Þröstur að hann hafi engan áhuga á þvílíkri dagvist. Hann virðist því fremur vera því fylgjandi að draga úr kostnaði fjölskyldna með því að fjölga enn kennsludögum. Hvað þetta atriði varðar hef ég því misskilið Þröst Harðarson og þykir mér það leitt. Hitt er svo ann- að mál, eins og allir sem komið hafa nálægt kennslumálum vita, að fjölg- un kennsludaga ein og sér er engin töfralausn í þeirri samkeppni við aðrar þjóðir sem Þresti og fleirum verð- ur svo tíðrætt um. Í fyrri grein Þrastar upplýsti hann að í Lækjarskóla í Hafnar- firði vantaði allt að þrem stundum viku- lega hjá yngstu börn- unum uppá að kennsluskyldu þeirra væri fullnægt. Með þessu væru börnin svikin um 18 kennslu- daga á ári sem væri brot á grunnskólalög- um. Um þessa óhæfu segir Þröstur, og óhæfa er þetta vissulega,: „Þetta er eitt dæmið um hvernig skólastarf hefur verið rígbundið við kjara- samning kennara. Nýr kjarasamn- ingur kemur ekki til móts við þessa þörf.“ „Þessi þörf“ er væntanlega þörf á því að fá bætta umrædda 18 kennsludaga á ári og því fæ ég ekki betur séð en að Þröstur vilji breyta kjarasamningum kennara til að bæta börnum og foreldrum þennan missi. Hafi ég í þessu efni einnig misskilið Þröst bið ég aftur forláts. Landbúnaður og skólaár Þröstur vitnar í Jón Ársæl Þórð- arson um að lengd skólaárs á Ís- landi miðist við sauðburð og réttir. Þegar ég var sjálf í skóla hófst kennsla á haustin 1. október og var lokið, að mig minnir, snemma í maí. Á þeim tíma gátu tilvitnuð orð átt sér einhverja stoð þótt þetta langa frí nemenda væri raunar einnig til þess haft að kennarar ættu þess nokkurn kost að bæta sér upp sult- arlaun vetrarins. Samkvæmt grunnskólalögum og nýgerðum kjarasamningum hefst skóli nú 15. ágúst og lýkur 15 júní að vori. Mér sýnist að til þess að kennarar geti sinnt nauðsynlegri og umsaminni endurmenntun megi skólahlé tæp- ast styttra vera. Vilji þeir Þröstur og Jón Ársæll halda kenningu sinni til streitu mætti ætla að sauðfé landsmanna væri tekið að haga lífi sínu eftir kjarasamningum kenn- ara, svo líklegt sem það nú er. Þröstur kemst að þeirri niður- stöðu að ég sé „í hópi þeirra sem kyrja sönginn um að foreldrar nenni ekki að passa börnin sín og skólarnir séu geymslustaðir fyrir lata foreldra“. Á löngum kennslu- ferli hef ég vissulega kynnst for- eldrum og nemendum af margvís- legasta tagi en ég veit ekki til þess að ég hafi nokkru sinni haft uppi stuðning við kjánalegar alhæfingar í þessa veru. Þröstur dregur einnig þá ályktun að áhyggjur af því hvað lítið var og er gert fyrir nemendur með góða námshæfileika hafi ég „sennilega“ aldrei haft. Að vísu get ég ekki séð rökin fyrir þessari ályktun enda er hún út í hött. Þeir sem tekið hafa þátt í samningaviðræðum um kjör kennara þekkja þá baráttu sem þar fer fram um bættan hag nemenda; um aukna stuðningskennslu, um nemendafjölda í bekkjum, um svig- rúm til þess að mæta þörfum nem- enda og um fjölmargt fleira sem oftar en ekki snýst ekki bara um kjör kennara heldur ekki síður um aðstæður nemenda því það tvennt fer raunar oftast saman. Þótt treg- lega hafi oft miðað við að þoka fram þessum málum er ótrúleg einföld- un, og ekki laus við illgirni að halda því fram að samningamenn hafi „sennilega“ aldrei haft áhuga á því sem ekki náðist fram. Nú hefur það gerst að tilboð hef- ur borist um að reka Áslandsskóla fyrir tæpar 400.000 krónur á nem- anda. Verði sú niðurstaðan að tilboð þetta sé einmitt það sem Hafnar- fjarðarbær hefur vænst er tæpast ástæða til annars en að óska við- komandi til lukku. Ég hef hinsveg- ar af því áhyggjur að ýmsir þeir sem vilja „nútímavæða grunnskól- ann“ séu á undarlegri braut; að þeir haldi að hinn almáttugi markaður muni skapa okkur forskot í sam- keppninni við aðrar þjóðir. Hvað þýðir það að nútímavæða skóla? Mér býður í grun að með þessu eigi ýmsir við kennsluaðferðir, aðrir markmið kennslunnar og enn aðrir skilji þetta sem svo að átt sé við bæði þessi atriði og ef til vill fleiri. Skóli er í eðli sínu íhaldssöm stofn- un; við ætlumst ekki einvörðungu til þess af honum að hann vinni sig- ur á fjarlægum þjóðum í keppni um hæfni nemenda til þess að höndla framtíðina. Við gerum líka kröfur til þess að hann treysti tengsl okk- ar við fortíðina og á þeim vettvangi eru keppinautar margir áleitnir. Í þeirri glímu þarf skólinn hjálp foreldra; hjálp samfélagsins, aðstoð allra þeirra sem telja sig geta rönd við reist. Ég ætlaði þessa grein ekki til þess að skattyrðast við Þröst Harð- arson heldur aðeins leiðrétta ákveð- inn misskilning. Ég er á þeirri skoðun að sú leið sem Hafnarfjarð- arbær hefur ákveðið að fara sé röng leið og ekki til eftirbreytni. Ég ætl- ast hinsvegar til þess að Þröstur virði mér skoðanafestuna til vor- kunnar án þess að gera mér upp skoðanir og afstöðu sem enginn fót- ur er fyrir. Ef ágreiningur um einkavæð- ingu, einkaframkvæmd, útboð, upp- boð, nútímavæðingu og aðra þvílíka orðaleppa verður til þess að mynda gjá milli kennara og foreldra er verr farið en heima setið. Þröstur mun sitja í foreldraráði Hafnar- fjarðar og því efa ég ekki að hann vilji leggja skólamálum þar á bæ lið af fremsta megni. Ég get hinsvegar ekki varist því að mér finnst að í grein Þrastar kenni tortryggni, jafnvel óvildar, í garð kennara. Það sem öllu máli skiptir, nú sem endranær, er að foreldrar og kenn- arar vinni heilshugar saman að framförum barnanna, hvaða skoð- anir sem þeir kunna að hafa að öðru leyti. Enn um einkaframkvæmd Sigríður Jóhannesdóttir Höfundur er alþingismaður Samfylkingar í Reykjaneskjördæmi. Kennsluútboð Ég hef af því áhyggjur, segir Sigríður Jóhann- esdóttir, að ýmsir þeir sem vilja „nútímavæða grunnskólann“ séu á undarlegri braut. Sigrún Sveinbjörnsdóttir Sérhver dagur er besti dagur ársins … Í LANDI eins og Ís- landi þar sem engan þarf að skorta neitt, all- ir hafa til hnífs og skeiðar, hafa í sig og á, mætti við fyrstu sýn ætla að landið væri laust við allsslags vár. Í flestum tilvikum er það rétt, hér er til dæmis ekki stríð, það eru ekki alvarlegir faraldrar sjúkdóma, hér er engin hungursneyð og svona mætti lengi telja. Við vitum þó að í landinu okkar er að finna aðrar hættur, misalvarlegar að sjálfsögðu en hættur engu að síður. Ein þeirra, sú sem margir eru hvað hræddastir við, er eiturlyfin, ólöglegu fíkniefnin lífs- hættulegu. Öllum finnst sjálfsagt í landinu góða að geta valið á milli ódýrra bíla og þeirra sem kosta mikið, milli gulr- ar mjólkur og þeirrar bláu, milli þess að búa úti á landi og í Reykjavík. Þar sem þetta val er fyrir hendi ætti fólk ennfremur að geta valið á milli þess að neyta fíkniefna og neyta þeirra ekki, eða hvað? Flest erum við sam- mála um að best væri að hafa ekki um þessi fíkniefni að velja en raunin er önnur, a.m.k. á meðan fangar í fangelsum þjóðarinnar skipuleggja stór misferli með ólöglegan varning. Því þarf að sporna gegn og til þess eru margar lausnir. Mest áberandi nú um stundir eru „plakataherferð- ir“ eins og ég kýs að kalla þær, það eru heimsóknir í skóla þar sem nem- endum er sagt frá, af fullhraustum, að sjá, fyrrverandi fíklum, hvernig það var að vera í ræsinu. Einhverjir halda fundi og ráð- stefnur þar sem rædd- ar eru kannanir sem enn aðrir gerðu í sömu skólum og ég nefndi áð- an. Það nýjasta er að olíufélag ver hluta af gróða sínum af dýra bensíninu sem ein- hverjir geta valið, í að fá trúbador, á aldur við tólf mílna landhelgina, til að herja á landann. Margt gott er hægt að segja um þessar að- ferðir, og það er líka hægt að segja margt miður um þær. Þannig er það nú með flestar aðferðir, á þeim eru bæði góðar og vondar hliðar, bara mismargar. Í baráttunni við fíkniefnadjöfulinn hefur sumsé fæti verið drepið niður víða. Á Ísafirði hefur þessi sami bar- áttufótur stigið niður á góða lausn að mínu mati. Á sumardaginn fyrsta í fyrra hófst starfsemi Gamla apó- teksins á Ísafirði. Kaffi- og menning- arhús fyrir fólk á framhaldsskóla- aldrinum, að sjálfsögðu vímulaust, laust við áfengið, við reyk og við allar ofskynjanir, nema ef vera skyldi af gleði. Gamla apótekið er sá staður hér á norðanverðum Vestfjörðum sem veitir unga fólkinu þetta val sem ég kom að áðan. Það er nefnilega sannfæring mín að besta forvörnin sé að möguleikarnir séu fyrir hendi. Unglingar á mínum aldri þurfa að hanga mikið, það þarf að spjalla, segja sögur og horfa á sjónvarpið. Til þess að það sé hægt með heilbrigð- um hætti er Gamla apótekið frábær nýjung í flóruna hér fyrir vestan. Lausnin er heilbrigð afþreying, ekki endilega nógu flott og dýr litprentuð plaköt eða bæklingar heldur sam- keppnishæf afþreying við fíkniefnin, við óæskilega félagsskapinn og við myrkrið úti á torgum bæjanna. Öll afþreying fellur undir þetta, það sveitarfélag sem státar af íþrótta- félögum, tónlistarskólum, skáta- starfi og svo framvegis er vel í stakk búið til að demba sér í baráttuna við eina stærstu vá þjóðarinnar. En staðreyndin er sú að unglingar vilja ekki bara alltaf vera að æfa, í úti- legum eða glamra á píanóið, þau þurfa að hanga og gera ekki neitt og eins ótrúlega og það kann að hljóma þá er gott að hafa til þess stað, og helst hafa félagana með. Gamla apó- tekinu er ætlað að vera sá staður. En fyrir þá sem vilja hafa alltaf nóg fyrir stafni þá er það líka hægt í Gamla apótekinu því á þessu ári sem húsið hefur starfað hefur verið stofn- uð útvarpsstöð og ýmsir klúbbar hafa hreiðrað um sig. Það er nóg pláss fyrir alla. Þegar öllu var hrint af stað fyrir ári var það Aldís okkar Sigurðar- dóttir sem tók stjórnina í sínar hend- ur. Nú ári síðar er hún flogin suður aftur og Sigríður Schram tekin við. Takk, Aldís, og gangi þér vel, Sirrý. Til hamingju, Gamla apótek, með af- mælið. Til hamingju, Sigga og Sossa, Hlynur og Ólafur, með framtakið, til hamingju, við öll, með fyrsta árið. Að hafa val Greipur Gíslason Höfundur er menntaskólanemi á Ísafirði. Nýjung Gamla apótekið, segir Greipur Gíslason, er frábær nýjung í flóruna hér fyrir vestan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.