Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 42
SKOÐUN
42 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í KJÖLFAR flugslyssins í Skerja-
firði hafa aðstandendur þeirra sem
þar fórust lagt áherslu á að allir
þættir öryggismála verði teknir til
skoðunar. Því verði að skoða ábyrgð
og verk flugslysanefndar, flugmála-
stjórnar, viðkomandi flugfélags og
svo þeirra, sem sjá um viðhald þessa
hluta flugflota Íslendinga. Þessi mál
snúa að öryggi allra Íslendinga sem
þurfa á þessari þjónustu að halda. Í
þessari grein er ljósi beint að við-
haldsþætti smærri flugvéla íslenska
flugvélaflotans og bent á nokkrar
augljósar og alvarlegar brotalamir.
Hvernig getur það samrýmst öryggi
borgara þessa lands að viðhaldsaðili
flugvéla sé á launum sem tækni-
stjóri, með þeirri ábyrgð sem því
fylgir, hjá flugfélaginu sem rekur
flugvélarnar sem hann á að veita
hlutlausa viðhaldsþjónustu. Sýnt er
fram á að eitt helsta viðhaldsverk-
stæði íslenska flugvélaflotans hefur
augljóslega enga burði til að rækja
það hlutverk svo fullnægjandi sé.
Engu að síður gerir Flugmálastjórn
engar athugasemdir.
Viðhald flugvéla og bifreiða
Fátt skiptir meira máli í rekstri
flugvéla en viðhald. Gott ástand og
fyrsta flokks viðhald flugvéla eru
hornsteinar flugöryggis. Gildir þar
einu hvort um er að ræða nýja flug-
vél eða gamla, stóra eða litla, einka-
vél eða atvinnutæki.
Flestir þekkja til árvissrar skoð-
unar heimilisbílsins. Þá skoða starfs-
menn einhverrar skoðunarstöðvar
bílinn hátt og lágt, veita honum fulla
skoðun sé allt í lagi, gera athuga-
semdir ef eitthvað er ekki eins og
það á að vera og banna notkun ef ást-
and bílsins er óviðunandi. Stundum
segir fólk að það hafi „reddað“ bíln-
um í gegnum skoðun eða þá að hon-
um hafi verið „gefin“ skoðun. Í sjálfu
sér er skoðun og viðhald flugvéla
ekkert flóknara fyrirbæri en skoðun
og viðhald bíla, þ.e.a.s. þegar menn
vita hvað þeir eru að gera og hafa
tamið sér vönduð vinnubrögð. Það er
hins vegar með öllu óviðunandi þeg-
ar þeir, sem viðhalda flugvélum,
temja sér verstu vinnubrögð slaks
bílaverkstæðis. Druslunni er hægt
að ýta út í kant þegar hún bilar, en
fljúgandi flugvél ekki.
Með um 65 flugvélar
Flugvélaverkstæði Guðjóns V.
Sigurgeirssonar (hér eftir verkstæði
Guðjóns) hefur hlotið viðurkenningu
Flugmálastjórnar á að verkstæðið
uppfylli samevrópskan staðal (JAR
145), en slíkt samþykki er nauðsyn-
legt til að geta sinnt viðhaldi flugvéla
í atvinnurekstri. Þannig skal verk-
stæði Guðjóns uppfylla ströngustu
skilyrði t.d. um vönduð vinnubrögð,
aðstöðu og faglega menntaða starfs-
menn. Þá skal einnig halda ná-
kvæma skrá yfir viðhald og útskriftir
flugvéla og eiga flugmenn jafnt sem
farþegar að geta treyst því að það
viðhald sem kvittað hefur verið fyrir
hafi verið framkvæmt og að skoðun
og viðgerð sé ekki bara stimpill í bók.
Ávallt verður fjöldi verkefna hjá
JAR 145-verkstæði að vera í sam-
ræmi við aðstöðu og fjölda starfs-
manna og halda skal áætlun þar að
lútandi þannig að samviskusamlega
sé hægt að sinna þeim verkefnum
sem fyrirhuguð eru. Slíka skrá skal
uppfæra reglulega.
Verkstæði Guðjóns er í svokölluðu
sjóskýli í fjöruborði Skerjafjarðar,
rétt vestan Nauthólsvíkur við vin-
sæla gönguleið borgarbúa. Verk-
stæði Guðjóns hefur um langt árabil
séð um skoðanir og viðhald stórs
hluta íslenska flugvélaflotans. Í dag
viðheldur verkstæði Guðjóns u.þ.b.
65 flugvélum, þar af eru 27 eins-
hreyfils atvinnuflugvélar og 10
tveggjahreyfla atvinnuflugvélar.
Í tvöföldu hlutverki
Verkstæði Guðjóns sér til dæmis
um viðhald fyrir Flugskóla Íslands,
en samkvæmt loftfaraskrá Flug-
málastjórnar dagsettri 26. júlí 2000
(nokkrum dögum fyrir brotlendingu
TF-GTI) var skólinn með 20 flugvél-
ar í rekstri, þar af eina tveggja-
hreyfla. Guðjón er tæknistjóri skól-
ans. Verkstæði Guðjóns sinnir
viðhaldi fyrir LÍO ehf. (Ísleif Otte-
sen), en félagið var þá með 5 flug-
vélar, þar af voru fjórar tveggja-
hreyfla. Guðjón er einnig tæknistjóri
LÍO ehf. Verkstæði Guðjóns sinnir
líka viðhaldi fyrir Flugfélag Vest-
mannaeyja og er Guðjón einnig
skráður tæknistjóri þess flugfélags.
Þá sinnir verkstæði Guðjóns viðhaldi
fyrir ýmsa aðra flugrekendur.
Til að fá útgefið lofthæfisskírteini
þarf að framkvæma svokallaða árs-
skoðun á flugvél. Þessi skoðun fer
fram árlega ef viðhalda á lofthæfi
flugvélar. Þegar flugvélinni hefur
verið flogið 50 flugstundir kemur að
svokallaðri 50 tíma skoðun og að öðr-
um 50 flugstundum liðnum er komið
að 100 tíma skoðun og svo koll af
kolli. 100 tíma skoðun er ekki frá-
brugðin ársskoðun að umfangi. Til
viðbótar þessum reglubundu skoðun-
um kemur vinna við viðgerðir vegna
bilana, svo og endurnýjun t.d.
hreyfla og loftskrúfa, en slíkir hlutir
hafa takmarkaðan gangtíma.
Verkefni í hrönnum
Flugvélar Flugskóla Íslands hafa
flogið a.m.k. 10.000 flugstundir á ári.
Verkstæði Guðjóns þarf því að fram-
kvæma nærri fjórar skoðanir í viku
hverri bara vegna umsvifa þess flug-
skóla.
Ætla má að ársskoðun einshreyfils
flugvélar taki 50 vinnustundir (klst.),
100 tíma skoðun taki 40 klst. og 50
tíma skoðun 5 klst. Sé um að ræða
flugvél með tvo hreyfla og uppdrag-
anleg hjól má ætla allt upp í 100
vinnustundir vegna ársskoðunar, 70
klst. vegna 100 tíma skoðunar og 8
klst. vegna 50 tíma skoðunar. Ætla
má að viðhald flugvéla Flugskóla Ís-
lands taki allt að 6.000 vinnustundir á
ári fyrir utan viðgerðir vegna bilana
milli skoðana, eða um 115 klst. á viku
og a.m.k. tvær flugvélar Flugskóla
Íslands séu í viðhaldsaðstöðu verk-
stæðis Guðjóns á degi hverju allt árið
um kring. Þetta er fyrir utan flug-
vélar, sem eru í ársskoðun, flugvélar
annarra flugrekenda og einkaflug-
vélar. Þessu öllu fylgir svo tímafrek
pappírsvinna og önnur nauðsynleg
skrifstofustörf.
Hjá verkstæði Guðjóns starfa auk
hans sjálfs fjórir menn á sumrin en
einum til tveimur færri á veturna.
Því er augljóst af umsvifum verk-
stæðis Guðjóns að starfsmanna-
fjöldi er hvergi nægjanlegur til að
uppfylla ákvæði JAR 145 og á það
einnig við um aðstöðuna. Fjölmarg-
ir heimildarmenn, ekki síst notend-
ur þjónustu verkstæðis Guðjóns,
hafa staðfest þetta í samtölum við
greinarhöfunda.
Mál er að linni
Með tilliti til tölulegra stað-
reynda, framburða vitna og niður-
staðna rannsóknarnefndar flug-
slysa er augljóst að verkstæði
Guðjóns getur ekki talist njóta þess
trausts sem nauðsynlegt er til að
notendur flugvéla og farþegar
þeirra geti verið öruggir um að
ástand farkostanna sé ávallt sem
best verður á kosið. Að skoðanir og
viðhald séu ekki bara stimpill í bók.
Um þetta er flugmálastjórn full-
komlega kunnugt án þess að hafa
gripið til viðhlítandi ráðstafana.
Flugmálastjórn og samgönguráðu-
neyti hafa lýst því yfir að LÍO ehf.
njóti ekki trausts flugmálayfirvalda
til flugstarfsemi. Sú spurning hlýtur
að vakna hvort sama hljóti ekki að
eiga við um verkstæði Guðjóns og
tæknistjóra LÍO ehf. Í báðum
skýrslum rannsóknarnefndar flug-
slysa vegna brotlendingar flugvél-
arinnar TF-GTI kom fram að verk-
stæði Guðjóns staðfesti verk sem
aldrei höfðu verið unnin og að fram
voru lagðir pappírar, sem ekki áttu
sér stoð í raunveruleikanum, þegar
sótt var um lofthæfisskírteini fyrir
flugvélina TF-GTI.
Á undanförnum árum hafa komið
upp ýmis vandamál og hreyfilbilanir
vegna viðhalds verkstæðis Guðjóns
og ríkir um þetta almenn vitneskja í
flugheiminum. Til dæmis er eitt
slíkt mál til meðferðar hjá Flug-
málastjórn þessa stundina. Því má
spyrja; hvað þarf til að viðhalds-
verkstæði uppfylli umræddan JAR
145-staðal og hver er ábyrgð Flug-
málastjórnar í þessu máli? Ábyrgð
Flugvélaverkstæðis Guðjóns V. Sig-
urgeirssonar á eigin verkum og
þannig öryggi þeirra sem fljúga
með vélum í hans umsjón er ljós.
Flugöryggi er ekki einkamál hags-
munaaðila.
Mál er að linni.
FLUGÖRYGGI –
EKKERT EINKAMÁL
Friðrik Þór
Guðmundsson
Flugöryggi er ekki
einkamál hagsmuna-
aðila, segja Friðrik Þór
Guðmundsson, Jón Ó.
Skarphéðinsson og
Hilmar F. Foss, og bæta
við að mál sé að linni.
Friðrik Þór er blaðamaður,
Jón Ólafur er prófessor og
Hilmar Friðrik er flugmaður.
Jón Ó.
Skarphéðinsson
Hilmar F.
Foss.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Húsasmiðir óskast
Tveir góðir húsasmiðir óskast til að slá upp
fyrir nokkrum raðhúsum. Upplýsingar sendist
auglýsingadeild Mbl. merkt: „Vandvirkir“.
Bílamálun
Vantar vanan mann í bílamálun, undirvinnu
og réttingar.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur Ingvi.
Bílaspítalinn, sími 565 4332 og 897 3150.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Fiskmarkaðs Suðurnesja hf. verður
haldinn föstudaginn 4. maí 2001
kl. 18.00 í Hótel Keflavík.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Reikningar félagsins fyrir árið 2000 liggja
frammi á skrifstofu félagsins í Miðgarði 4,
240 Grindavík.
Stjórnin.
Vorsýning FÁT
Hin árlega vorsýning Félags áhugamanna
um tréskurð verður haldin í safnaðarheimili
Háteigskirkju v/ Háteigsveg laugard. 21. apríl
og sunnud. 22. apríl kl. 14:00—17:00 báða dag-
ana. Heiðursgestur sýningarinnar Þráinn Árna-
son, myndskurðarmeistari, mun sýna verk sín,
en á sýningunni verður ennfremur til sýnis
sveinsstykki Önnu Lilju Jónsdóttur, en hún lauk
sveinsprófi í tréskurði ásamt Erni Sigurðssyni
á árinu 2000. Allt áhugafólk velkomið.
Aðgangur ókeypis.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við
kjör fulltrúa á ársfund Alþýðusambands
Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana
28. og 29. maí 2001. Tillögur skulu vera um
34 aðalmenn og 34 til vara. Tillögum, ásamt
meðmælum 120 fullgildra félagsmanna, skal
skila á skrifstofu Eflingar-stéttarfélags, Sætúni
1, eigi síðar en kl. 11.00 föstudaginn 27. apríl
2001.
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags.
Tæknimenntaður
maður óskast og
verkstjórnandi
Vegna aukinna umsvifa óskar R.B.G. vélaleiga/
verktakar ehf. eftir tæknimenntuðum manni
í mælingar, útsetningar, uppgjör og verkefna-
stjórnun. Einnig tækjamönnum/bílstjórum,
verkamönnum og verkstjórnanda.
Upplýsingar um laun o.fl. gefur Róbert í síma
587 6440, gsm 892 3928.
Netfang: rbg@isholf.is