Morgunblaðið - 21.04.2001, Síða 46
MINNINGAR
46 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Margrét SvanhvítErlendsdóttir í
Saurbæ fæddist í
Þjóðólfshaga í Holt-
um hinn 10. nóvem-
ber 1912. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Lundi 9. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Erlendur Erlendsson
bóndi í Þjóðólfshaga
og kona hans Jónína
Þórðardóttir. Mar-
grét var fimmta í röð
átta barna þeirra
hjóna en þau voru:
Guðrún Laufey, f. 1905, d. 1908;
Elísa Katrín, f. 1907; Árni Guð-
mundur, f. 1910; Guðrún Laufey, f.
1911, dáin sama ár; Margrét, sem
hér er minnst; Þórður, f. 1913;
Númi, f. 1915; og Laufey Fríða, f.
1919. Eru nú öll systkinin látin.
Margrét var heitbundin Guð-
mundi Stefánssyni frá Bjólu og
eignuðust þau einn son, Reyni, f.
30.6. 1937, starfsmaður Land-
græðslunnar í Gunnarsholti og
býr í Saurbæ. Þau slitu samvistir.
Margrét giftist 24. janúar 1948
Páli Elíassyni í Saurbæ, f. 30.3.
1918, d. 22. 6 . 1984. Foreldrar
hans voru Elías Þórðarson bóndi í
Saurbæ og kona hans Sigríður
Pálsdóttir. Margrét
og Páll eignuðust
fimm börn. Þau eru:
1) Viðar, f. 3.3. 1947,
bifreiðastjóri hjá
Suðurverki, í sam-
búð með Hafdísi
Hauksdóttur og þau
búa í Reykjavík. Við-
ar á einn son, Pál
Gretar, og á hann
tvö börn. 2) Elías, f.
22.2. 1950, bóndi í
Saurbæ, í sambúð
með Guðfinnu Þor-
valdsdóttur. 3) Jón, f.
22.2. 1951, bóndi í
Saurbæ, í sambúð með Guðrúnu
Kjartansdóttur og búa þau í Stúf-
holtshjáleigu. 4) Ólafur, f. 28.6.
1953, bóndi í Saurbæ, kona hans
er Guðrún Hálfdánardóttir og
eiga þau fjórar dætur, Láru,
Margréti, Ingibjörgu og Hjördísi.
5) Andvana fætt stúlkubarn, f.
1957.
Margrét og Páll bjuggu allan
sinn búskap í Saurbæ í Holtum.
Eftir lát mannsins síns bjó Margr-
ét áfram með sonum sínum allt til
ársins 1994, að hún fluttist á Dval-
arheimilið Lund á Hellu, þar sem
hún andaðist.
Útför Margrétar fór fram frá
Hagakirkju í Holtum 20. apríl.
Þegar mánudagurinn 9. apríl var
næstum liðinn kom hringing frá
Lundi um að Margrét tengdamóðir
mín væri léleg til heilsunnar. Hún
var búin að vera lasin lengi og lítið
annað en hvíldin langa sem blasti
við. Það var ákveðið að skreppa
strax til hennar í heimsókn. Raunin
varð sú að þegar við komum hafði
heilsu hennar hrakað mjög og
kveðjustundin var runnin upp. Við
náðum í tæka tíð til að kveðja hana
og vera hjá henni, þar til yfir lauk.
Það er þannig að það er alltaf erf-
itt að kveðja, minningar ættingja og
vina rifjast upp og hugurinn reikar
til baka. Ljúfar minningar koma
upp í hugann um góða konu sem
hugsaði fyrst og fremst um heimilið
sitt, manninn og synina fimm sem
hún unni svo mjög.
Einnig voru barnabörnin henni til
mikillar gleði og hafði hún gaman af
að fylgjast með þeim meðan hún
hafði þrek til.
Margrét var bókelsk kona og átti
mikið af bókum, las mikið og var
mjög ættfróð og mundi allt vel sem
hún las. Hún var heimakær og vildi
helst vera heima.
Einnig var hún góð heim að
sækja, bauð uppá gott kaffi, kleinur
og annað góðgæti eftir því hvaða
tíma dags var. Það var gott að leita
til hennar því hún var bóngóð og
alltaf tilbúin að gera fólki greiða og
hjálpa þeim sem til hennar leituðu.
Hún var skarpgreind kona og komst
vel að orði, gat verið ákveðin og föst
fyrir en ákaflega hlý og ráðagóð,
hrein og bein og vildi öllum vel.
Það var alltaf mannmargt í
Saurbæ , sérstaklega yfir sumarið
þegar börn og unglingar fengu að
koma í sveitina. Þau voru send til að
vinna og kynnast sveitastörfum, eða
leika sér fjarri skarkala borgarinn-
ar. Einnig komu vinir og ættingjar
mikið í heimsókn til að spjalla og til
að sjá sveitina sína í sumarskrúða.
Þá mæddi mikið á henni að hugsa
fyrir öllu sem viðkom innandyra.
Margrét lét sig einnig varða ef
það átti að vinna tún úr engi þar sem
fallegar jurtir voru, þá bað hún þeim
griða, þannig að hægt var að skilja
skika eftir af breiðu með mjaðarjurt
og öðrum villtum gróðri, sem prýðir
nú landið og er öðrum til ánægju.
Hún hafði öðru fremur mikið dá-
læti á hestum, þó að hún gæti ekki
sökum bakeymsla stundað hesta-
mennsku. Það var alltaf tilhlökkun-
arefni á vorin að fylgjast með því
hvaða meri hefði kastað þann dag-
inn eða nóttina og sjá hvers kyns
folaldið væri. Síðan hélt hún skrá yf-
ir þau folöld sem voru sett á. Hún
var með litla bók sem allt var skráð
í, eingöngu fyrir hestana. Hver
hestur fékk nafn, ættartala og fæð-
ingarár var skráð. Það er oft búið að
leita til bókarinnar og verður um
ókomin ár.
Ég kynntist Margréti fyrir
nokkrum árum þegar við Elías fór-
um að búa saman. Þá var hún orðin
fullorðin kona og léleg til heilsunnar
en bjó samt yfir ákveðinni reisn og
var mjög myndarleg kona. Hún var
viðkvæm og tilfinningarík og lét það
í ljós. Hún hældi fólki og sagði að
hann eða hún væri góð. Margrét tók
mér afskaplega vel og var góð við
mig, þannig að hún bætti hverja
stund sem var verið með henni.
Manni leið vel eftir heimsókn til
hennar.
Þessi minningarorð mín eru það
sem ég hef heyrt og kynnst sjálf síð-
ustu árin með henni.
Þessi fátæklegu orð eru smá-
þakklætisvottur fyrir að hafa
kynnst þessari góðu konu sem er nú
búin að fá langþráða hvíld.
Guðfinna Þorvaldsdóttir.
MARGRÉT SVANHVÍT
ERLENDSDÓTTIR
Laugardaginn 14.
apríl var til moldar bor-
inn frá Grundarfjarðar-
kirkju Halldór Finns-
son, fyrrverandi
sparisjóðsstjóri og odd-
viti Eyrarsveitar. Með
Halldóri er genginn einn af máttar-
stólpum samfélagsins á Snæfellsnesi
og góðborgari Grundarfjarðar. Hall-
dóri kynntist ég sem unglingur á
Snæfellsnesi, en hann var mjög virk-
ur þátttakandi í starfi sjálfstæðis-
manna og var samtíða foreldrum mín-
um virkur í margvíslegum
félagsstörfum. Síðar lágu leiðir okkar
saman þegar ég hafði gerst sveitar-
stjóri í Stykkishólmi og hann var odd-
viti sveitar sinnar og vann af hygg-
indum og festu fyrir íbúa
Eyrarsveitar. Á þeim vettvangi áttum
við samstarf sem var ánægjulegt og
gefandi. Ekki síst fyrir ungan sveit-
arstjóra sem var að hasla sér völl við
hlið hinna reyndu sveitarstjórnar-
manna á Snæfellsnesi. Halldór Finns-
son var í þeim hópi sem miðlaði af
þekkingu sinni og reynslu. Sanngjarn
og fús til þess að vinna að framfara-
málum byggðanna. Sérstaklega vil ég
nefna mikinn áhuga hans á fram-
kvæmdum við gatnagerð í þorpunum
á Snæfellsnesi sem var mikilvægt
átak í umhverfismálum og stórt fram-
HALLDÓR
FINNSSON
✝ Halldór Finnssonfæddist í Stykkis-
hólmi 2. maí 1924.
Hann lést á Land-
spítalanum 7. apríl
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Grundarfjarðar-
kirkju 14. apríl.
faramál sem kostaði
mikla útsjónarsemi,
ekki síst við fjármögnun
framkvæmdanna. Einn-
ig var hann mjög áhuga-
samur um bætta heil-
brigðisþjónustu svo þau
svið séu nefnd þar sem
ég kynntist störfum
Halldórs sem oddvita
en hann var í samstarfs-
nefnd læknishéraðsins
sem náði m.a. yfir Eyr-
arsveit og Stykkishólm.
Halldór Finnsson starf-
aði af miklum áhuga og
elju innan Sjálfstæðis-
flokksins og var falinn margvíslegur
trúnaður af flokksmönnum.
Eitt var það svið sem Halldór var
óþreytandi að ræða og vinna að, en
það voru vegamál. Hann þekkti vel
einangrun byggðarinnar í Eyrarsveit
meðan Grundarfjörður var að byggj-
ast upp og sá hversu miklar framfarir
fylgdu bættum samgöngum. Hann sá
fyrir sér og nefndi það oft við mig
hverjar breytingar mundu verða þeg-
ar uppbyggingu vegakerfisins á Snæ-
fellsnesi væri lokið. Hann gladdist yf-
ir að sjá mikilvæga áfanga undirbúna
áður en hann féll frá.
Halldór var mikill gæfumaður í
einkalífi. Það var ánægjulegt að eiga
samleið með þeim Halldóri og Pálínu
konu hans, sem voru mjög samhent
og bjuggu við barnalán. Um leið og ég
sendi Pálínu og fjölskyldu samúðar-
kveðjur frá okkur Hallgerði minn-
umst við Halldórs með virðingu og
þakklæti fyrir trausta vináttu og sam-
starf.
Sturla Böðvarsson.
Elsku besti afi, það er búið að vera
erfitt að kveðja þig.
Þegar við sitjum hér og hugsum
um þig eru ófáar minningar sem hell-
ast yfir okkur. Sérstaklega er ljúfsárt
að hugsa til þeirra ára þegar við heim-
sóttum ykkur ömmu við hvert tæki-
færi í Grundarfjörð. Annaðhvort fór-
um við til ykkar með rútunni, mömmu
og pabba eða öðrum ættingjum og
dvöldum hjá ykkur í mislangan tíma í
senn.
Það var ávallt annríki í kringum
þig, en samt hafðir þú alltaf tíma fyrir
okkur og fengum við oft að sitja niðri
á skrifstofu hjá þér í skrifstofuleik þar
sem þú fræddir okkur um löngu látin
ættmenni sem þú hélst gott bókhald
um í tölvunni þinni. Í lok hvers dags
var mjög sterk hefð sem aldrei var
vikið frá, þá sátum við saman í róleg-
heitum og fórum með bænirnar sam-
an. Einnig fórum við oft út á Spjör þar
sem við áttum margar góðar stundir
saman við að gróðursetja og til að
mynda leyfðir þú Hjalta stundum að
keyra gamla P72 um Spjarartúnið án
þess að mamma og pabbi fréttu af því.
Nú í seinni tíð hafið þið amma verið
hjá okkur í Austurgerðinu í meira
mæli en áður. Sem gaf Hjalta mörg
tækifæri til að fræðast um innviði ís-
lenskra stjórnmála og fá sjálfstætt
uppeldi í leiðinni. Og gaf Freyju
Boggu tækifæri til vera með einkabíl-
stjóra fram að þeim tíma er hún fékk
bílpróf og þá varð hún þinn einkabíl-
stjóri. En fyrst og fremst gaf nærvera
ykkar ömmu í Austurgerðinu okkur
tækifæri til að kynnast þér miklu bet-
ur, sem er okkur ómetanlegt og við
munum ávallt búa að.
Elsku afi, takk fyrir að hafa tekið
þátt í uppeldinu. Við viljum kveðja þig
með þremur kossum, eins og þú varst
vanur að heilsa okkur, við munum
ávallt geyma minningu um þig í
hjarta okkar.
Þín afabörn
Hjalti og Freyja Vilborg.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
!
!" #### $ $%$&& # '(& & $&)!*$
+ $ #,- $%$&& # . )
!#&)!*$
& $!$
!" ##&& # . ## &)!*$
+$*&*##
!" ##&& # . /$ 0$ $# )!*$
/$1*# $
!" ##&& # . 02#)&)!*$
!" #### $
!" ##&& #
$%$$+ $ #&& # 3$ 14" //
!$) &+ $ #&)!*$ 56 !$" && #
$+ $ #&)!*$
# 7 + $ #&)!*$ # #, ) #*
0$1 / + $ #&)!*$
*/. ) + $ #&)!*$
% $# % $# %$#-
"
! !
#
8
, 9:&%$*;
$ 6&"/#-
$
!
%!
02#)$+ $ )$&& # +*2 *$* $#*#
8 #(&
4"*202#)&& # 7 ) &+ $ 02#)&)!*$
02#)$+ $ 02#)&& #-
&
<3=
9!& #)*
.$ $0*
'
& !
() *
!# & $&*#&& # + %$(#. //$*4"
8 $$> $&*#&)!*$
7*! $&*#&& # 0$ 0$
!#&)!*$
$$*$ $&*#&& # 0#:'&*$&)!*$
'$#* $&*#&& #
*$0$ $&*#&& # .! 2/$ 0$5>$&)!*$
. * $&*#&& # .$) &'&*$&)!*$
!& $&*#&)!*$
!#!$ $*#&& #
*$ 0$ $&*#&)!*$ 8 *1 && #
% $# %$# % $# % $# %$#-