Morgunblaðið - 21.04.2001, Blaðsíða 63
MAGNÚS Eiríksson og KK þarf
vart að kynna. Magnús er sennilega
okkar frambærilegasti dægurlaga-
höfundur og KK hefur á stundum
samið afbragðslög þótt ekki skáki
hann Magnúsi í þeim efnum.
Þeir félagar hafa á undanförnum
misserum starfað saman sem tvíeyki
og þannig gert einar þrjár plötur.
Einnig hafa þeir leikið saman á ótal
tónleikum og eru orðnir afar vel
samhæfðir í söng og leik. Það var því
fátt sem gat komið undirrituðum á
óvart þetta fimmtudagskvöldið, en
fimmta kvöld viku hverrar virðist
vera hið eina sem Akureyringar telja
heppilegt til tónleikahalds. Undar-
legt.
Tónleikarnir hófust á gullfallegu
lagi Kristjáns, „When I think of ang-
els“ og í kjölfarið fylgdi Bo Diddley-
skotin smíð Magnúsar, „Vindur“, af
hinni ágætu plötu, Ómissandi fólk.
Það er annars tilgangslítið að fara í
saumana á hverju lagi sem tvíeykið
flutti þetta kvöld. Flest ef ekki öll
lögin sem félagarnir gerðu skil eru
landsmönnum vel kunn og sum
þeirra fyrir löngu orðin sígild til
söngs á mannamótum, sbr. „Bragga-
blús“, „Hudson Bay“ og „Óbyggðirn-
ar kalla“. Eðlilega voru lög úr smiðju
Magnúsar fleiri á dagskrá tón-
leikanna og gaman er að heyra karl-
inn í forsöngshlutverkinu sem oftast
var hlutskipti Pálma Gunnarssonar
á Mannakornsárunum. Magnús er
afar vanmetinn söngvari en að mínu
viti fyrsta flokks. Hann er að vísu
nokkuð takmarkaður tæknilega, en
tilfinningarík og einkar músíkölsk
tjáning vegur upp á móti þeim „veik-
leika“ og gott betur. Magnús hljóm-
ar nokkuð andstuttur en hefur hlýja,
þykka og djúpa rödd sem er hrein-
asta konfekt, einkum í samanburði
við hinar glerhörðu tenórraddir sem
í fjölmörgum tilfellum hafa sér það
eitt til ágætis að vera háværar,
hanga í háum tónum… og víbra! Gít-
arleikur karlsins er og heillandi, líkt
og söngurinn. Hann er smekklegur
og einfaldur, en umfram allt afar
melódískur, sem ekki þarf að koma á
óvart þegar um dægurlagahöfund er
að ræða. Bláar nótur eru margar í
leik Magnúsar og stutt er í tregann,
þótt furðufá laga hans séu í „mel-
ankólískum“ tóntegundum molls.
Það eina sem var aðfinnsluvert við
flutning Magnúsar þetta kvöldið var
hljómurinn frá rafgítar hans, eink-
um í fyrra settinu. Þar nýtti karlinn
sér hljóðbreytitæki sem hér verður
kallað Viðlagsbrella (chorus effect)
og á að gegna því hlutverki að
þykkja og mýkja tónana úr viðkom-
andi hljóðfæri.
Síðasti maðurinn sem þarf á slíku
að halda er Magnús því að mýkri
spilarar finnast varla. Hljóðbreytir-
inn var því aðeins til vansa; hann
gerði hljóminn gervilegan og ýtti
undir tónstillingavandamál tvíeykis-
ins framan af tónleikunum. Óhrein-
indin náðu svo hámarki í klúðurs-
legum flutningi á annars
afbragðslagi, „Kóngur einn dag“,
þar sem tvísöngurinn var reyndar
furðuhreinn ofan á fölskum gítar-
leiknum.
KK var vopnaður hljóðbreytilaus-
um kassagítar og lék afbragðsvel.
Hann er sennilega hrynrænasti
kassagítarmaður landsins og fyrir-
taks pikkari. KK er líka ágætur
söngvari og gæddur miklu næmi, líkt
og Magnús. Raddir þeirra félaga eru
líka skemmtilega ólíkar og afar
heppilegar til tvísöngs eins og glöggt
mátti heyra á tónleikunum. Gilti þá
einu hver sá um áttund eða þríund,
nú eða fimmund! Magnús og KK
voru stórskemmtilegir þetta kvöld
og samhæfðir, þótt ekki væru hljóð-
færin alltaf samstillt. Söngur þeirra
og leikur var geislandi af músíkal-
iteti og spjall á milli laga var uppfullt
af kímni og afslöppuðum skemmti-
legheitum.
Músíkalskt par
TÓNLIST
V i ð P o l l i n n
Tónleikar Magnúsar Eiríkssonar
og KK fimmtudagskvöldið
29. mars á Við Pollinn, Akureyri.
TÓNLEIKAR
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Magnús og KK voru stór-
skemmtilegir þetta kvöld og
samhæfðir,“ segir Orri Harð-
arson m.a. um tónleika þeirra
félaga á Akureyri á dögunum.
Orri Harðarson
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2001 63
MAGNAÐ
BÍÓ
Frá handritshöfundi og leikstjóra Jerry Maguire
UPPLIFÐU ÞAÐ. NJÓTTU ÞESS.
EN EKKI FALLA FYRIR ÞVÍ
1/2
Hausverk.is
Hugleikur.
Frábær rómantísk gamanmynd
með hinni ómótstæðilegu
Jennifer Lopez
Golden Globe verðlaun: Besta myndin í gamamyndaflokki
og Kate Hudson fyrir besta aukahlutverk kvenna.
Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handrit.
Sýnd. 3, 5.30, 8 og 10.10.
Sýnd. 3.30, 5.45, 8 og 10.10.
Sjáðu allt um stórmyndirnar á www.skífan.is
Ó.T.H. Rás2.
ÓJ Bylgjan
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 4, 6 og 10.15. Vit nr. 216.
kirikou
og galdrakerlingin
Tvíhöfði
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit nr. 213.Sýnd kl. 2. Vit nr. 212.
Sýnd kl. 8. Vit nr. 173.Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Vinsælasta Stúlkan
Brjáluð
gamanmynd
Sýnd kl. 4. Vit nr. 207.
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Ísl tal. Vit nr. 213.
Sýnd kl. 6 og 10. Vit nr.173Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit nr. 224
Sýnd kl. 8.
Vit nr. 216.
Sýnd kl. 2 Ísl. tal.
Vit nr. 194.
1/2
Kvikmyndir.com
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Frábær rómantísk
gamanmynd með
hinni ómótstæðilegu
Jennifer Lopez
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
2 fyrir 1
Sýnd kl. 5.40 og 10.30.
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 5.30 og 8.
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika,
þú verður bara að upp-
götva þá.
Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra Good Will Hunting
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Kvikmyndir.is
H.K. DV
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 10.15. B. i. 16
Frábær rómantísk gamanmynd
með hinni ómótstæðilegu
Jennifer Lopez
Sumir menn
fæðast hetjur
Stórmyndin Enemy At The Gates, frá leikstjóra The Name Of The Rose
JUDE LAW JOSEPH FIENNES
RACKEL WEISZ BOB HOSKINS OG ED HARRIS
SÝND Í FRÁBÆRUM HLJÓMGÆÐUM
FRÁ HJÓMSÝN, ÁRMÚLA 38
Sýnd kl. 8. B. i. 16.Sýnd kl. 4 og 6
Frábær
spennumynd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Frumsýning