Morgunblaðið - 13.05.2001, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.05.2001, Qupperneq 11
ef Ísland yrði aðili, að hann sjái ekki að Íslendingar hafi neitt að óttast. Óbeint segir hann að Íslend- ingar ættu að sækja um aðild og at- huga hver staðan verður í lok aðild- arviðræðna: „Allt byggist þetta á aðildarviðræðum. Í lok þeirra þarf hvert ríki sem sótt hefur um aðild að ákveða hvort ákvæði aðildar- samninga og kostir þeirra og gallar séu viðunandi eða ekki. Framfarir verða með því að taka áhættu. Öllum Evrópuríkjum stendur til boða aðild að Evrópusambandinu. Innifalið í boðinu er að við reynum að takast á við áhyggjuefni viðkom- andi ríkis í aðildarviðræðunum. En raunin er sú að í öllum félagsskap, sama hvaða nafni hann nefnist, gilda sameiginlegar reglur sem hafa vissan forgang. En það er ljóst að ef Ísland verður aðili að ESB, verður ESB einnig aðili að Íslandi.“ Aðspurður segir Fischler ótíma- bært að ræða um afleiðingar hugs- anlegrar aðildar Íslands að ESB fyrir fiskveiðistjórnun hér á landi. „Við erum nú þegar að ræða um- bætur á sjávarútvegsstefnunni og ef við náum árangri þar, mun valdið í auknum mæli verða fært til ein- stakra svæða. Í þessu tilviki myndi það þýða að Íslendingar færu með vald yfir auðlindum sínum sjálfir. En í lok þessa árs mun liggja fyrir skýrari mynd af því hvernig sjáv- arútvegsstefna ESB mun líta út, þangað til þá er ekki tímabært að svara spurningum um afleiðingar fyrir einstök ríki.“ Varðandi hugsanlegar undanþág- ur frá sameiginlegu sjávarútvegs- stefnunni segir Fischler ljóst að Evrópusambandið útilokar almennt að veita undanþágur, þar sem allir aðilar þess verða að virða reglur sambandsins. „Að veita undanþágur er ekki besta leiðin til að takast á við vandamál samfara aðild að ESB. Í viðkvæmum greinum er nauðsyn- legt að geta beitt ýmsum aðferðum, þ.á m. að breyta reglum sambands- ins á þann hátt að þær komi til móts við óskir ákveðins aðila.“ Opin fyrir samningaviðræðum Íslendingar og Norðmenn hafa gert samninga við verðandi aðild- arríki ESB í Austur-Evrópu sem kveða á um tollfrelsi á fiskafurðum. Við aðild þessara ríkja að ESB versnar viðskiptaleg staða Íslands í útflutningi til þeirra, sérstaklega hvað varðar síldarútflutning. Ís- landi og Noregi var bættur skaði af þessu tagi í viðskiptum við Finn- land og Svíþjóð þegar tvö síðar- nefndu ríkin gerðust aðilar að Evr- ópusambandinu árið 1994. Aðspurður segir Fischler að Íslend- ingar geti vissulega búist við slíkum bótum í þessu tilviki. „Evrópusam- bandinu ber skylda til að bæta ríkj- um þann skaða sem þau verða hugs- anlega fyrir í kjölfar aðildar viðskiptalands að sambandinu.“ Eftirspurn eftir fiski og fiskafurð- um fer vaxandi víðast hvar í heim- inum, ekki síst meðal íbúa Evrópu- sambandsríkja. Fiskvinnslur innan sambandsins hafa ekki getað tryggt sér hráefni í nægum mæli innan sambandsins en framboð utan sam- bandsins gæti leyst úr því. Fischler er spurður hvort þessi aukna eftir- spurn ýti undir vilja framkvæmda- stjórnarinnar til að hefja að nýju samningaviðræður um ákvæði við- auka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið sem kveður á um að útfluttur fiskur frá Íslandi og Noregi til ESB njóti tollfrelsis á ákveðnum tegundum, af öðrum séu greiddir fullir tollar en tollar lækkaðir á enn öðrum fiskitegundum. Ef samninga- viðræður yrðu teknar upp að nýju, gæti það leitt til greiðari aðgangs Ís- lendinga og Norðmanna að innri markaðnum með fiskafurðir. „Það er rétt að eftirspurn fer vax- andi og okkur skortir fisk til vinnslu og þurfum líka að flytja inn unninn fisk. Við munum alltaf gera tvíhliða samninga í framtíðinni en fiskvið- skipti munu líka verða æ frjálsari. En við erum alltaf opin fyrir því að taka samningaviðræður upp að nýju, til hagsbóta fyrir báða aðila. En aukin eftirspurn eftir fiski er ekki endilega grunnur til að taka upp viðræður.“ Díoxín og fiskimjöl Hátt hlutfall díoxíns í fiski og fisk- afurðum hefur valdið áhyggjum með- al neytenda og fiskframleiðenda, á Íslandi og annars staðar. Að sögn Fischlers er David Byrne, sem fer með heilbrigðis- og neytendamál í framkvæmdastjórninni, að þróa til- lögu um hvernig hægt sé að tak- marka díoxíninnihald í fiskafurðum. Tillagan tekur m.a. til takmarkana á díoxíninnihaldi í fiskimjöli og í fiski til manneldis. Að sögn Fischlers er smíði tillögunnar ekki lokið en búist er við að henni ljúki í sumar. Íslenskum fiskimjölsframleiðend- um var létt þegar ljóst varð að fiski- mjöl yrði ekki bannað í fóðri fyrir svín og fiðurfé. Hins vegar er bannað að nota fiskimjöl í fóður jórturdýra og gildir það bann út sérstakan frest til júníloka. Aðspurður segir Fischler að bann við notkun fiskimjöls í fóður fyrir jórturdýr sé varanlegt og verði ekki aflétt í lok júní. „Það eru ekki svo margar vísinda- legar ástæður fyrir banni við notkun fiskimjöls í fóður jórturdýra. Það er ljóst að þegar öll notkun dýraprót- eina er endurmetin, þarf einnig að taka til endurskoðunar þá spurn- ingu hvort leyfa skuli notkun dýrapróteina í fóður fyrir jórturdýr. Ráðgjöf vísindamanna er á þá leið að viss áhætta fylgi því að nota fiskimjöl í fóður jórturdýra þar sem jórturdýr eru í eðli sínu ekki dýra- ætur. Þess vegna held ég að við eig- um að fara leið náttúrunnar og ekki reyna að breyta jórturdýrum úr jurtaætum í dýraætur.“ Nú stendur yfir lögboðin endur- skoðun á sjávarútvegsstefnu Evr- ópusambandsins og í því sambandi hefur verið lögð fram svokölluð grænbók um framtíð sjávarútvegs- stefnunnar. Grænbókinni er ætlað að vera grundvöllur almennrar um- ræðu í aðildarríkjum ESB um sjáv- arútvegsstefnuna en stefnt er að því að ný sjávarútvegsstefna ESB taki gildi í ársbyrjun 2003. „Grænbókin er skilgreind sem umræðuskjal. Um þessar mundir bjóðum við öllum hagsmunaaðilum og öðrum, eins og neytendahópum og umhverfisverndarsinnum, að taka þátt í umræðunum um framtíð sjávarútvegsstefnunnar. Í kjölfarið munum við draga nauðsynlegar ályktanir og leggja okkar tillögu fyrir Evrópuþingið og ráðherraráð- ið í árslok,“ segir Fischler. Spurður um útlit fyrir stuðning við stefnu framkvæmdastjórnarinnar hjá þess- um stofnunum segir Fischler of snemmt að segja til um það. „Nú er verið að ræða innihald grænbókar- innar en það er ekki fyrr en fullmót- aðar tillögur okkar liggja fyrir sem við getum sagt til um hugsanlegan stuðning við þær.“ Framkvæmdastjórnin hefur hvatt til rökræðu og almennra umræðna um grænbókina og að allir geti viðr- að sína skoðun. Á Evrópuvefnum er gefið upp netfang sem fólk getur sent á vangaveltur sínar um sjáv- arútvegsstefnuna og tillögur. Ráð- stefna um sjávarútvegsstefnuna verður haldin í Brussel 5.-7. júní. Mörgum þykir löngu tímabært að skipta núverandi sjávarútvegs- stefnu út fyrir nýja þar sem floti Evrópusambandsins er t.d. of stór og ýmsir fiskistofnar í hættu. Fischler staðfestir það og segir aug- ljóst að breytinga sé þörf. Í ræðu sinni í Ósló gerði Fischler grænbók- ina m.a. að umtalsefni. Hann lagði áherslu á fjögur aðalatriði grænbók- arinnar: Að vernda vistkerfi sjáv- arins í auknum mæli, að sambandið ráðfæri sig í auknum mæli við hags- munaaðila í sjávarútveginum, að tryggja sjálfbæra þróun í sjávar- útvegi og stuðla að sjálfbærum sjáv- arútvegi einnig utan lögsögu ESB. Nýrri sjávarútvegsstefnu er m.a. ætlað að verða umhverfisvænni, sveigjanlegri og skilvirkari og til að ná þeim markmiðum þarf að minnka flota ESB um 40% frá því sem nú er, að því er fram kemur í grænbókinni. Nú virðist sem svo að markmið stangist á svo sem að við- halda atvinnu en minnka umfang fiskveiðiflotans. Þeirri spurningu var beint til Fischlers eftir fyrirlest- urinn í Ósló hvort mögulegt væri að byggja upp arðbæra atvinnugrein sem nýtir auðlindina á skynsamleg- an hátt en viðheldur einnig háu at- vinnustigi? Fischler svaraði því til að upp- bygging hagkvæms sjávarútvegs kostaði færri störf. Hann benti á að nauðsynlegt væri að horfa á þróun sjávarútvegs og byggðamál í sam- hengi, þannig að aðgerðir til að auka nýsköpun héldust í hendur við fækkun starfa og hagræðingu í greininni. Félagslega ábyrgð þyrfti að axla með sterkari byggðaþróun, og bjóða t.d. styrki til endurmennt- unar fyrir þá sem þyrftu að færa sig úr sjávarútvegsgeiranum og yfir í aðra geira. Í samtali við Morgunblaðið segir Fischler: „Að mínu mati felst áskor- unin í því að samræma þarf mark- mið sem stangast á. Sjávarútvegs- stefnunni er ætlað það hlutverk og jafnframt að sjá til þess að í fyrsta lagi sé vistfræðilegum markmiðum náð og í annan stað að haldið sé úti samkeppnishæfum sjávarútvegi.“ Nauðsynlegt að binda enda á pólitísk hrossakaup Fischler reifaði einnig eftir fyr- irlesturinn þörfina á að byggja upp nýja heildstæða stefnu í sjávarút- vegsmálunum. Hann tók skýrt fram að binda þyrfti enda á hrossakaup á milli aðildarríkjanna við úthlutun kvóta og kvótaákvarðanir. Mikil- vægt væri að fara eftir ráðlegging- um vísindamanna á allan hátt, en einnig að hafa sjómenn í auknum mæli með í ráðum. Auknar vísinda- rannsóknir í þessu skyni væri mik- ilvægt að efla og gera á grunni þeirra betri áætlanir til meira en eins árs í senn. Samkvæmt grænbókinnni verða umhverfismál í mjög auknum mæli hluti af sameiginlegu sjávarútvegs- stefnunni. „Fiskistofnarnir verða fyrir áhrifum af umhverfisbreyting- um og það er því nauðsynlegt að taka tillit til umhverfisins. Í fyrsta lagi eru auknar vísindarannsóknir nauðsynlegar þar sem þekking okk- ar á flóknum vistkerfum sjávarins er alls ekki nógu góð til að haldbær- ar ályktanir verði dregnar. Í öðru lagi er nauðsynlegt að einnig verði stuðst við umhverfissjónarmið þeg- ar við tökum ákvarðanir um úthlut- un kvóta á vissum hafsvæðum.“ Í grænbókinni er töluvert fjallað um aukna þátttöku sjómannanna sjálfra í mótun sjávarútvegsstefn- unnar og eftirfylgni hennar. „Það er ósk okkar að hagsmunaaðilar taki aukinn þátt í þessu, sjómennirnir sjálfir. Að mínu mati er það mjög mikilvægt, sjómenn verða að skilja að það sem við erum að gera er einnig í þeirra þágu. Þeir lenda í vandræðum ef fiskistofnar þurrkast út,“ segir Fischler. Sjávarútvegsmál eru oft viðkvæm pólitísk mál sem margir halda fram að ættu að vera í höndum hvers ein- staks ríkis fyrir sig, en Evrópusam- bandsríki ættu ekki að móta sam- eiginlega stefnu fyrir. Fischler er ósammála því. „Einmitt af því að þessi mál eru viðkvæm er nauðsyn- legt að hafa sameiginlega stefnu. Ef hvert aðildarríki færi sínu fram myndi það leiða til öngþveitis og átaka. Ein grundvallarstoð sam- bandsins er að forðast átök en ekki að skapa þau. Það er auk þess al- menn vitneskja að vistkerfi eru landamæralaus og fiskistofnar virða ekki heldur landamæri. Þess vegna þarf fiskveiðistjórnun innan sam- bandsins að vera sameiginleg. Ef hvert einstakt aðildarríki myndi leggja fram sérstaka stefnu, yrði myndin afar brengluð.“ að óttast Evrópusam- bandið er ekki stofn- un þar sem þeir stóru koma vilja sín- um fram á kostnað þeirra minni … sambandið er hlynnt fámennum ríkjum. En það er ljóst að ef Ísland verður aðili að ESB, verður ESB einnig aðili að Ís- landi. Þorskur á markaði í Skotlandi og hollenskir sjómenn við mótmæli við innsiglinguna í höfnina í Rotterdam. Um þessar mundir er ný sjávarútvegsstefna ESB í smíðum þar sem leggja á áherslu á umhverfi, sveigjanleika og skilvirkni. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.