Morgunblaðið - 13.05.2001, Síða 31

Morgunblaðið - 13.05.2001, Síða 31
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 31 Aðeins það besta fyrir andlit þitt Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita þér slökun og dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun húðarinnar að yndislega róandi nuddinu. Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum sem stafa af þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri blóðrás, þreytulegri húð og öðru sem hrjáir húðina. Öll er meðferðin umvafin ljúfri munúð og slökun. Veittu þér andlítsmeðferð eins og þær gerast bestar og sjáðu hvað svolítið dekur gerir húðinni gott. Það kostar aðeins kr. 1.500. Hringdu og pantaði tíma. Síminn er 568 9033 snyrtivöruverslun Kringlunni Snyrtiklefi Kynning á Norræna iðnaðarsjóðnum og stuðningi við íslensk rannsókna- og þróunarverkefni mánudaginn 14. maí kl 9:00 - 11:00 í Versölum, fundarsal í Húsi Samtaka iðnaðarins, Hallveigarstíg 1 Dagskrá: 9:10 - 9:40 Norræni iðnaðarsjóðurinn: Oddur Már Gunnarsson, starfsmaður NI, kynnir stefnu sjóðsins í styrkveitingum til norrænna rannsókna- og þróunarverkefna- og sóknarfæri fyrir íslensk rannsóknahópa. 9:40 - 10:00 Reynsla af norrænum rannsóknaverkefnum: Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur hjá Rannsóknastofnun Fiskiðnaðarins. 10:00- 10:20 Takk fyrir matinn. Lok á markáætluninni NordFood II - norræn matvælaráðstefna í upphafi árs 2002: Dr. Einar Matthíasson, markaðs- og þróunarstjóri Mjólkursamsölunni. 10:20 - 10:30 Norrænt netverk: Nordic interactive - Gagnvirk upplýsingatækni Snæbjörn Kristjánsson deildarverkfræðingur RANNÍS. Fyrirspurnir og umræður. Norræn sóknarfæri í rannsóknum og þróun Rannsóknarráð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, sími 515 5800, bréfsími 552 9814, netfang rannis@rannis.is, heimasíða http//www.rannis.is NÝTT þriggja stjarna hótel var opnað í Reykjavík 4. maí sl. Hótelið heitir OAK hótel og er með 55 her- bergjum. OAK hótel er staðsett í Brautarholti 22-24 og er á þremur hæðum með lyftu. „Öll herbergin eru rúmgóð, búin öllum nútíma þægindum. Her- bergjaval er; 10 eins manns her- bergi, 41 tveggja manna herbergi og auk þess eru 4 herbergi í lúx- usstærð. Veitingastaðurinn Potturinn og pannan hefur verið endurnýjaður og samtengdur hótelinu, þannig að veitingastaðurinn er bæði fyrir gesti hótelsins og aðra. Rekstur OAK hótels fer vel af stað, og þegar er bókað fram á haustið. Með tilkomu OAK hótels eykst framboð á gistirými á Reykja- víkursvæðinu, en mikill skortur hef- ur verið á gistirými í Reykjavík að undanförnu,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá hótelinu. Eigendur OAK hótels eru Eik- arfasteignir hf., Þórir Halldórsson og Bæring Sigurbjörnsson. Morgunblaðið/Jim Smart Nýtt hótel í Reykjavík EKIÐ var á bifreiðina NR-268 á bif- reiðastæði við Fríkirkjuveg 1, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, þriðjudaginn 8. maí frá kl. 9-15. NR-268 er blár Subaru og var skemmdur á hægra frambretti. Tjónvaldur fór af vettvangi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um tjónvald eru beðnir að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík, umferðardeild. Lýst eftir vitnum NETVERSLUN Á mbl.is Drykkjarbrúsi aðeins kr. 400

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.