Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 40

Morgunblaðið - 13.05.2001, Page 40
MINNINGAR 40 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ TIL SÖLU LÓÐIR Í GRAFARHOLTI Höfum til sölu 8 góðar par- og einbýlishúsalóðir í Grafarholti. Seljast með eða án teikninga. Henta vel fyrir traustan byggingaraðila. Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum okkar. Skeifan fasteignamiðlun, Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556. Glæsilegt tengihús. 4 svefnherbergi, stofa, borðstofa og arinstofa. Lóð fullbúin með sólverönd, skjólveggjum og stórum svölum. Innbyggður bílskúr. Þórarinn Jónsson hdl., löggiltur fasteignasali. Jón Kristinsson sölustjóri. Svavar Jónsson sölumaður. Sími 551 8000 - Fax 551 1160 Vitastíg 12 - 101 Reykjavík Hálsasel - til sölu Aratún - Garðabæ Fallegt einbýlishús 130 fm ásamt 53 fm bílskúr. Vesturfold Einbýlishús á tveimur hæðum sem er 130 fm timburhús. Húsið stendur á hornlóð. Bílskúrsréttur. Blásalir - Kóp. - 4ra herb. Glæsileg ný íbúð á 2. hæð í fjórbýli. Sérinngangur. Skilast fullbúin án gólfefna. Til afh. strax. Eldri borgarar - Skúlagata 20 Glæsileg 2 herbergja 63,4 fm íbúð á 8. hæð í nýrri lyftublokk. Vandaðar innrétt- ingar, parket á gólfum, suðursvalir.Húsvörður. Laus fljótlega. Verð 11,2 millj. Lovísa Kristjánsdóttir, löggiltur fasteignasali Fasteignaþjónustan Skúlagötu 30, 3. h., 101 Reykjavík sími 552 6600 - fax 552 6666 Okkur félagana setti hljóða þegar okkur barst til eyrna sú harmafregn að Sigur- hjörtur væri látinn. Þetta kom sem þruma úr heiðskíru lofti þar sem allt atgervi Sigurhjartar benti til hestaheilsu á líkama og sál. En það er með hann eins og okkur öll að enginn veit ævina fyrr en öll er og stundum kemur kallið fyrr en okkur grunar. Sigurhjörtur starfaði lengst af eftir nám hjá mælingadeild Borg- arverkfræðings og í um 40 ár hjá verkfræðistofunni Forverk. Hann var afar farsæll í starfi og stafaði það ekki síst af einstökum hæfileik- um hans til að glíma við erfið verk- efni þar sem til þurfti þolinmæði, nákvæmni og sérstaka hæfileika til að umgangast fólk. Prúðmennska og SIGURHJÖRTUR PÁLMASON ✝ SigurhjörturPálmason fædd- ist í Reykjavík 29. janúar 1926. Hann lést að heimili sínu hinn 28. apríl síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Bú- staðakirkju 10. maí. heiðarleiki Sigurhjart- ar voru hans heiðurs- merki er engum duld- ist við nánari kynni. Sigurhjörtur var róleg- ur maður og afar hjálp- samur. Allt hans far var þannig að bæði við- skiptavinir og sam- starfsmenn leituðu til hans með ágreinings- mál hverskonar, fagleg og jafnvel persónuleg. Það telst vera góður einstaklingur sem að- eins hefur brot af þeim eiginleikum sem Sigurhjörtur hafði til að bera. Það voru sönn forréttindi að fá tækifæri til að kynnast og vinna með manni eins og Sigurhirti og á hann okkar bestu þakkir fyrir. Minning um góðan dreng lifir í hug- um okkar. Kæra Unnur, Vilhjálmur, Pálmi, tengdadætur og barnabörn ykkur sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. F.h. samstarfsfélaganna á For- verki og Línuhönnun, Ragnar Bjarnason og Sigurður Ragnarsson. Elsku María, mikið var sárt að frétta að þú værir búin að kveðja þennan heim. Margt leitar á hugann nú, þegar ég rifja upp ánægjulega samveru okkar í Ís- landsbanka í gegnum árin. Oft létt skrafað og alltaf áttirðu til hvatn- ingu handa öðrum og varst svo skilningsrík og réttsýn. Þú með þína hæglátu, fallegu framkomu og lágu, stilltu röddina, en bjóst yfir svo miklum innri styrk sem duldist engum og átti jafnvel eftir að koma enn betur í ljós. Þegar þú hættir að sjást við borðið þitt í bankanum vegna veikindanna var þín sárt saknað af mörgum. Ekki fór maður varhluta af því heldur, þegar mað- ur hitti fólk sem var viðskiptavinir bankans. Þú varst vinsæl vegna eigin verðleika og fór ekki fram hjá neinum að þar fór eldklár mann- eskja. Nú er stórt skarð höggvið í starfsmannahóp Íslandsbanka sem ekki verður fyllt. Þegar ég talaði við þig skömmu fyrir andlát þitt ór- aði mig ekki fyrir því sem verða vildi. Við töluðum um að hittast fljótlega. Þá varst þú orðin svo veik. Nú ertu farin eftir hetjulega baráttu við þennan illvíga sjúkdóm. MARÍA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR ✝ María MargrétJónsdóttir fædd- ist á Lækjarósi í Dýrafirði 27. febrúar 1951. Hún lést á heimili sínu 30. apríl síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Langholtskirkju 8. maí. Þú varst algjör hetja, svo hugrökk og tókst á við sjúkdóminn með viljastyrknum sem einkenndi þig. Ekki komst annað að en að sigra hann. En enginn veit hvenær kallið kemur og hefurðu nú verið kölluð til mikil- vægra starfa annars staðar. Ég veit að þar verður tekið vel á móti þér. Það hefði bara verið óskandi að við- kynningin hefði verið lengri, en það er ekki okkar að ráða. Við erum öll ríkari af að hafa kynnst þér og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða þér um stundarsakir. Maja mín, minningin um þig mun lifa með okkur. Hafðu þökk fyrir allt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég bið góðan Guð að veita fjöl- skyldu þinni og öðrum aðstandend- um styrk í þeirra miklu sorg. Guð blessi þig. Elfa Björk Ásmundsdóttir. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina SMS FRÉTTIR mbl.is MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur látið þýða og staðfæra leið- beiningabækling sem Evrópuráðið og Evrópusambandið hafa gefið út um tungumálanám. Ber bæklingur- inn heitið „Leiðir til að læra tungu- mál á árangursríkan hátt“ og er gef- inn út í tengslum við Viku tungumálanáms innan fullorðins- fræðslu 5. –11. maí en hún er sam- evrópskur viðburður á Evrópsku tungumálaári 2001. Bæklingurinn nýtist öllum sem hyggjast leggja stund á tungumálanám. Menntamálaráðuneytið mun dreifa bæklingnum til fjölmargra hagsmunaaðila, s.s. símenntunar- miðstöðva, öldungadeilda, málaskóla og námsflokka. Bæklinginn er einnig unnt að nálgast á heimasíðu menntamála- ráðuneytisins, www.menntamala- raduneyti.is. Meginmarkmið með Viku tungumálanáms innan fullorð- insfræðslu 5.–11. maí er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi tungu- málakunnáttu, veita upplýsingar um framboð á tungumálanámi fyrir full- orðna, hvetja fólk til að bæta tungu- málakunnáttu sína og veita ráðgjöf og leiðbeina um tungumálanám. Lögð er áhersla á að fólk sé aldrei of gamalt til að hefja tungumálanám. Meginhluti aðgerða af Íslands hálfu í Viku tungumálanáms innan fullorðinsfræðslu felst í dagskrá Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands sem stendur alla þessa viku. Er dagskráin unnin í samstarfi við ýmsa aðila á sviði tungumálanáms og -kennslu, s.s. námsflokka, málaskóla, Alliance française og Goethe Zentr- um. INNLENT Leiðir til að læra tungu- mál á árangurs- ríkan hátt OPINN fyrirlestur sem ber yfir- skriftina „Þegar barn missir foreldri: Hlutverk eftirlifandi foreldris“ verð- ur haldinn við Háskóla Íslands mið- vikudaginn 16. maí nk. í stofu 101 Odda kl. 17 – 18:30. Dr. Phyllis R. Silverman heldur fyrirlestur á vegum Félagsráðgjafar Háskóla Íslands. Dr. Silverman fjallar um stöðu þess foreldris sem missir maka sinn frá ófullveðja börnum. Foreldrið þarf að hjálpa börnum sínum að syrgja hið látna foreldri jafnframt því að takast á við eigin sorg. Dr. Silverman mun kynna niðurstöður rannsókna um þessi mál og hvernig best sé að að- stoða foreldra við að aðlagast breytt- um aðstæðum. Prófessor Emerita Phyllis R. Silv- erman, félagsráðgjafi, er velþekkt fræðikona, fyrirlesari og kennari. Fyrri rannsóknir hennar beindust að þörfum þeirra sem misst höfðu maka sína, en síðustu ár hefur hún fengist við að rannsaka langtíma áhrif for- eldramissis á líf barna og unglinga. Um þessar mundir stýrir hún rann- sókn á því sviði við Harvard háskóla. Dr. Silverman lauk doktorsprófi frá Brandeis háskóla og meistara- prófum frá Harvard háskóla og Smith College. Hún hefur ritað fjölda bóka og greina en nýjasta bók hennar ber heitið „Never to Young to Know: Death in Children’s Lives“. Henni hafa hlotnast margvíslegar viður- kenningar fyrir framlag sitt til rann- sókna á ástvinamissi og velferðarmál- um. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Opinn fyrir- lestur á veg- um félags- ráðgjafar ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.