Morgunblaðið - 13.05.2001, Side 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 55
FLJÓTLEGA verður allt morandi í
ofurhetjum. A.m.k. í kvikmynda-
húsunum um allan heim því eins
og margir vita eru þó nokkrar
hetjur á leiðinni á hvíta tjaldið.
Framhaldsmynd um X-mennina,
tvær myndir um Leðurblökumann-
inn eru væntanlegar í náinni fram-
tíð, Köngulóarmaðurinn skríður
víst upp á tjaldið í maí á næsta ári
og svo ætlar Ang Lee að gera
mynd um Hulk. Nú hefur kvik-
myndaverið 20th Century Fox op-
inberað áætlanir sínar að gera
kvikmynd um ofurhetjufjölskyld-
una Fantastic Four. Leikstjórinn
Peyton Reed sem ráðinn var til
verksins er víst ekki alls ókunn-
ugur furðubúningum því síðasta
mynd hans var klappstýrumyndin
Bring it On en hún skartaði leik-
konunni ungu Kirsten Dunst í aðal-
hlutverki.
Upphaflega keypti fyrirtækið
kvikmyndaréttin af Marvel mynda-
sögufyrirtækinu árið ’92 og gekk
jafnvel það langt að klára að taka
upp mynd um ofurhetju-kvartett-
inn. Gæði hennar þóttu eitthvað
miður þannig að sú mynd hefur
aldrei litið dagsins ljós. Nú á að
vanda til verka og gera mynd sem
stenst samanburðinn við X-
mannamyndina vinsælu.
Fantastic Four er hugsmíð
þeirra Stan Lees og Jack Kirbys
en Marvel gaf út fyrsta tölublaðið
um ævintýri þeirra árið 1961. Of-
urhetju-kvartettinn er samansettur
af vísindamanninum Reed Rich-
ards, konu hans Sue, bróðir henn-
ar Johnny Storm og vini þeirra
Ben Grimm. Þau öðluðust ofur-
krafta sína eftir að þau urðu fyrir
gammageislun í geimskutluslysi.
Reed varð Mr. Fantastic sem getur
teygt limi sína líkt og gúmmí, Sue
getur gert sig ósýnilega, Johnny
getur flogið og breytt sér í eld-
mann en Ben varð að steinmann-
inum The Thing. Myndasögublöðin
slógu í gegn strax eftir útgáfu
fyrsta heftisins. Hópurinn
þótti ólíkur þeim ofurhetjum
sem þekktust áður, en
þær fóru ekki leynt
með nöfn né andlit sín
og lifðu ekki tvöföldu
lífi. Erkifjandi þeirra
Dr. Doom þótti líka
afar forvitnilegur,
en hann er bráðgáf-
aður geðveikur vís-
indamaður sem ber
járngrímu fyrir af-
skræmdu andliti sínu.
Það er þó enn nokkur
bið í myndina, u.þ.b. tvö
til þrjú ár að frumsýning-
ardegi.
Gleði og hamingja
– ofurhetjuhóp-
urinn Fantastic
Four.
Fantastic Four á leiðinni á hvíta tjaldið
Allt er þegar fernt er
Í KVÖLD kl. 21.30 hefjast tónleikar
á Ozio með djasskvartettinum Tal-
hólf 57. Forsprakki hans er saxófón-
leikarinn Steinar Sigurðarson og
hefur hann fengið í lið með sér takt-
fasta félaga sína, Þorgrím Jónsson
sem leikur á kontrabassa, sænska
trymbilinn Erik Qvick og Ásgeir Ás-
geirsson gítarleikara. Saman lofa
þeir að gera Talhólf meira spennandi
en gengur og gerist.
Hreinn djass
í boði
„Ég fékk þá til að spila undir hjá
mér á stigsprófi í Tónlistarskóla
FÍH, en við höfum haldið áfram að
æfa saman góð lög,“ segir Steinar
um tilurð sveitarinnar.
„Dagskráin er ekki mjög þung, já,
svona í léttari kantinum og mjög
skemmtileg. Enginn frjáls- eða til-
raunadjass, meira djassstandardar.
Við leikum eitt frumsamið lag eftir
Ásgeir gítarleikara sem er mjög gott
og verður gaman fyrir fólk að heyra.
Hann hefur aðallega samið popptón-
list hingað til, m.a. fyrir Sóldögg sem
hann spilaði með. Ég var rétt að
heyra fyrsta djasslagið frá honum og
finnst það mjög gott.“
Sjálfur á Steinar sér klassískan
bakgrunn, en hann byrjaði á að læra
á klarinett en fór síðan að grípa í
saxófóninn og reyna fyrir sér í djass-
inum, og var á sínum tíma í fönk-
sveitinni Sælgætisgerðinni.
– Verður fönk-yfirbragð á lögun-
um?
„Nei,.... þetta er alveg hreinn
djass hjá okkur, en það er aldrei að
vita hvað verður á næstu tónleikum
hins vegar,“ segir saxófónleikarinn
íhugull.
– Hvert er uppáhaldslagið þitt?
„Ja við ætlum að spila „Have You
Met Miss Jones?“ sem er ágætis lag
og „Lonniés Lament“ eftir Coltrane
sem er tregafull ballaða, mjög fín.
Svo fá Wayne Shorter og Ornette
Coleman að láta í sér heyra líka.
Þetta eru allt fínustu lög héðan og
þaðan.“
– Verður ekki gaman hjá ykkur?
„Jú það er von á mikilli stemmn-
ingu. Prófin eru búin í Tónlistarskóla
FÍH og fólk til í að „djamma“, og
vonandi koma sem flestir að fagna
með þeim,“ segir Steinar sax og
kveður.
Létt og skemmtilegt
Morgunblaðið/Kristinn
Erik, Steinar, Þorgrímur og Ásgeir eru Talhólf 57.
Djasstónleikar á Ozio í kvöld